Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
68. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Callaghan ver
samkomulagið
London. 24. marz. Reuter.
JAMES Callaghan forsætisráðherra sagði f dag að samkomulagið við
Frjálslynda flokkinn jafngilti þvf ekki að Verkamannaflokkurinn félli
frá grundvallarreglum sfnum og kvað mikla þörf á jafnvægi f brezkum
stjórnmálum.
Callaghan varði samkomulagið f flokksmálgagninu Labour Weekly
og kvað það gera stjórninni kleift að fylgja fram stefnu sinni. Hann
sagði að f næstu kosningum gæti þjóðin dæmt stjórnina af verkum
hennar.
Carter segir frá
málum sem Vance
ræðir í Moskvu
Washington. 24. marz. AP. Reuter.
CARTER forseti lýsti þvf yfir f dag að segja ætti bandarfsku
þjóðinni frá þvf hvað væri á seyði f utanrfkismálum, gerði grein
fyrir þeim málum sem Cyrus Vance utanrfkisráðherra mundi ræða
vfð Róssa þegar hann færf til Moskvu á morgun og sagði að Vance
mundi meðal annars reyna að koma þvf til leiðar að ölium kjarn-
orkutilraunum yrði hætt.
Carter kvaðst vongóður um
að Rússar vildu alvarlegar við-
ræður við Bandarfkjamenn,
þótt þeir hefðu reiðzt afstöðu
hans gegn brotum á mann-
réttindum í Sovétríkjunum.
Forsetinn kvaðst ekki mundu
hætta baráttu sinni fyrir mann-
réttindum og sagði hana ekki
tengda viðræðum um takmörk-
un vfgbúnaðar. Hann lét f Ijós
von um að eðlilegu stjórnmála-
sambandi mætti koma á við
Vfetnam og 13 önnur lönd sem
Bandarfkin hafa ekki viður-
kennt formlega.
Carter sagði einnig að Vance
mundj hvetja sovézka leiðtoga
til þess að taka höndum saman
við Bandaríkjamenn um að
Jimmy Carter
binda enda á utanaðkomandi
afskipti í Afriku svo að slík
afskipti leiddu ekki til átaka
þar.
Forsetinn sagði enn fremur
að Vance mundi ræða leiðir til
að gera Indlandshaf að vopn-
lausu svæði en sagði að í því
máli yrði náið samband haft við
Framhald á bls. 23
Morarji Desai, hinn nýi forsætisráðherra Indlands, vinnur embættiseið sinn f forsetahöllinni f Nýju
Delhi.
Mísklið skyggir á
valdatöku Desais
Castro í
Angola
I.uanda. 24. marz. Reuter
FIDEL Castro, þjóðarleiðtogi
Kúbu, lagði í dag blómsveig að
gröfum angólskra og kúbanskra
hermanna sem féliu f borgara-
stríðinu í Angola.
Seinna ferðaðist Castro um
höfuðborgina og til tveggja víg-
valla og sykurplantekru. I kvöld
ræddi hann við Agostinho Neto
forseta, væntanlega um áfram-
haldandi stuðning Kúbumanna.
Kosið um
sjálfstjóm
á Grænlandi
Góðvon, 24. marz. NTB.
LANDSRÁÐIÐ á Græn
landi ákvað í dag að 50.00C
íbúar landsins skyldu
ákveða við þjóðaratkvæði á
næsta ári hvort þeir skuli
fá sjálfstjórn í sérmálum
sínum og ef það verður
samþykkt er líklegt að
Grænland fái sjálfstjórn 1.
maí 1979.
Tveir aðalflokkarnir, Sujumut
og Atassut, vilja sjálfstjórn. Gert
er ráð fyrir þvf að iandsstjórnin f
Góðvon fái í sínar hendur yfir-
stjórn efnahagsmáia, menningar-
mála, félagsmála og atvinnumála,
en Danir fari áfram með stjórn
utanrfkismála, landhelgismála og
nýtingu náttúruauðlinda.
Cyrus Vance
Nýju Delhi, 24. marz. Reuter.
MORARJI Desai boóaði endur-
reisn lýðræðis, sparnaðarráðstaf-
anir, baráttu fyrir útrýmingu fá-
tæktar og hlutleysi f alþjóðamál-
um þegar hann tók við embætti
forsætisráðherra Indlands f dag,
en klofningur í röðum flokkanna
sem komu honum til valda varp-
aði skugga á embættistökuna sem
kórónar stjórnmálaferil Desais,
Washington, 24. marz. Reuter.
CYRUS Vance utanríkisráðherra
fer til Moskvu á morgun til að
reyna að. koma skriði á við-
ræðurnar um takmörkun kjarn-
orkuvfgbúnaðar (Salt) og viður-
kennt er að hann eigi vandasamt
verk fyrir höndum þar sem kyrr-
staða rfki í samskiptum risaveld-
anna.
Ferðin er farin f skugga deil-
unnar um mannréttindi í Sovét-
sem nær aftur til fyrstu ára sjálf-
stæðisbaráttu Indverja.
Jagjivan Ram, leiðtogi 80
milljóna stéttleysingja og helzti
keppinautur Desais um stöðu for-
sætisráðherra, lýsti því yfir að
flokkur hans, Lýðræðislegi
Kongressflokkurinn (CFD)
mundi ekki ganga til stjórnar-
samvinnu með Janata-flokki
Desais.
rfkjunum, en þrátt fyrir hana er
talið að tekið verði vel á móti
Vance og að Rússar séu reiðubún-
ir til málefnalegra umræðna,
ekki aðeins um kjarnorkuvfgbún-
að heldur einnig önnur sameigin-
leg áhugamál.
Hins vegar gera sérfræðingar
ráð fyrir að Rússar kunni að
leggja fast að Bandaríkjamönnum
að skuldbinda sie til bess að draga
Framhald á bls. 23
Margir stjórnmálasérfræðingar
í London sögðu í dag að með sam-
starfi Verkamannaflokksins og
frjálsiyndra væri nýtt timabil haf-
ið í brezkum stjórnmálum.
Vinstri armur Verkamanna-
flokksins gagnrýndi stjórnina
harðlega í dag fyrir samkomulag-
ið. Um það bil 80 þingmenn sem
eru kenndir við blaðið Tribune
Desai sagði að megintilgangur
stjórnarinnar væri að útrýma fá-
tækt og hún ætti að ganga á und-
an með góðu fordæmi og skera
niður óþarfa útgjöld. Hann sagði
að takast mætti að útrýma at-
vinnuleysi á tíu árum. Desai er 81
árs gamall en engin þreytumerki
var að sjá á honum þegar hann
skýrði frá stefnu stjórnar sinnar.
Seinna sagði einn af aðalritur-
um Janataflokksins, Ram Dahn,
af sér og mótmælti þvi hvernig
val Desais fór fram. Hann sagói
að upphaflega hefði verið ákveðið
að allir þingmenn flokksins yrðu
hafðir með i ráðum, en það hefði
ekki verið gert og Desai hefði
verið valinn með „einræðislegum
hætti“ og ekki i anda þess lýðræð-
is sem flokkurinn hefði heitið að
berjast fyrir.
t utanríkismálum sagði Desai
að indverska stjórnin mundi
halda áfram þeirri stefnu að
haida sig utan valdablokka. Hann
sagði að ef vináttusamningur
Indverja við Rússa mundi standa
í vegi fyrir vináttu við önnur ríki
yrði að breyta samningnum. Að-
spurður um sambúðina við
Bandaríkin sagði hann að góð
Framhald á bls. 23
lýstu því yfir að þeir teldu sig
ekki bundna af samkomulaginu.
Leiðtogi frjálslyndra, David
Steel, sætti einnig gagnrýni í
flokki sínum, en margir telja að
skapazt hafi sérstætt ástand
svipað því og ríki í ýmsum lönd-
um Evrópu. Frjálslynda blaðið
The Guardian segir að þetta kerfi
hafi reynzt vel I öðrum löndum og
það sé þess virði að reyna það
einnig í Bretlandi.
Ráðherrar stjórnarinnar og
leiðtogar Frjálslynda flokksins
munu halda með sér reglulega
fundi samkvæmt samkomulaginu
og það verður tekið til endurskoð-
unar í haust. David Steel skyrði
frá því á biaðamannafundi að
Frjálslyndi flokkurinn mundi
koma á fót „skuggaráðuneyti".
Verðbréf hækkuðu í verði í
kauphöllum f dag og pundið
hækkaði i verði á gjaldeyrismörK-
uðum.
Danskir
prentarar
sektaðir
Kaupmannahöfn. 24. marz. NTB.
Vinnumáladómstóll-
inn í Kaupmannahöfn
dæmdi í dag félög prent-
ara og myndasmiða í
sekt að upphæð 170.000
danskar krónur (um 5i4
millj. Isl. kr.) þar sem
þau bæru hluta ábyrgð-
arinnar af deilunni í
blaðaútgáfufyrirtækinu
Berlingske Hus.
Hver einstakur félagsmaður
var jafnframt dæmdur til að
greiða sekt að upphæð 500
danskar krónur (um 16.000 ísl.
kr.). Vinnudómstóllinn skip-
aði einnig starfsmönnum
Berlingske að hefja aftur
vinnu samkvæmt þeim reglum
sem stjórn fyrritækisins setti.
Um 2.000 prentarar og aðrir
efndu til mótmælaaðgerða
gegn úrskurði vinnudómstóls-
ins fyrir utan húsakynni hans.
Politiken og Ekstrabladet
komu ekki út í dag þar sem
starfsmenn tæknideildar blað-
anna samþykktu að leggja nið-
ur vinnu vegna óánægju með
framkomna tillögu i yfirstand-
andi launasamningum. Á það
var lögð áherzla að verkfallið
stæði ekki í sambandi við deil-
una í Berlingske Hus.
Kippur í Póllandi
Varsjá, 24. marz. Reuter.
SNARPUR jarðskjálftakippur
fannst í suðvestanveróu Póllandi
í dag en olli hvorki manntjóni né
eignatjóni.
Jarðskjálftinn átti upptök sín
vestur af Wroclaw og mældist 5
stig á Richterskvarða.
Rússar sagðir
viðræðufúsir