Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977 23 Ráðstefna um orlof húsmæðra: Endurskoðuð verði lög um orlof húsmæðra NYLOKIÐ er f Reykjavfk annarri ráðstefnu Orlofs húsmæðra sem 80 þátttakendur sóttu vfðs vegar að af landinu. Tvö aðalmál voru rædd á ráðstefnunni, hið fyrra um þá lagabreytingu, sem gerð var 1975 um að rfkið veitti ekki lengur fé til starfseminnar, en sveitarfélögunum einum sé ætlað það verkefni. Sfðara málið var rekstur Orlofsheimila og sumar- starfið 1977. I lok ráðstefnunnar var kosið i landsnefnd og er formaður henn- ar Steinunn Finnbogadóttir, sem stjórnaði ráðstefnunni, Hulda Sigurðardóttir gjaldkeri og Anna Sigurðardóttir ritari. Meðstjórn- endur eru Sigrún Mathiesen og Brynhildur Skeggjadóttir. Nokkrar samþykktir voru gerðar á ráðstefnunni og segir m.a. i einni þeirra: „Ráðstefnan telur eðlilegast og hagkvæmast að fjárveitingin komi frá einum og sama aðila. Orlof húsmæðra er viðurkenning fyrir störf i þágu þjóðarheildarinnar og ætti rikið því að vera rétti greiðandinn og leggur ráðstefnan ríka áherzlu á mikilvægi þess.“ Þá segir i annarri ályktun: „Ráðstefnan skorar á Alþingi og ríkisstjórn að láta endurskoða lögin um orlof húsmæðra hið allra fyrsta og að minnsta kosti tvær konur úr hverri landsnefnd orlofs húsmæðra verði kvaddar þar til.“ — Misklíð Framhald af bls. 1. samskipti yrðu höfð við allar þjóð- ir sem vildu góð samskipti, en sérstaklega náið samband yrði ekki haft við nokkurt riki. Frú Indira Gandhi sendi Desai árnaðaróskir í dag að hans sögn þótt þau hafi lengi eldað grátt silfur saman. Hann hefur verið útilokaður frá pólitískum áhrif- um í átta ár og sat tvö ár i fangelsi eftir að lýst var yfir neyðar- ástandi en var látinn laus sama daginn og frú Gandhi boðaði kosningar. Desai er fjórði forsæt- isráðherra Indlands og situr í for- sæti fyrstu ríkisstjórnarinnar sem hefur verið mynduð án aðild- ar Kongressflokksins. Desai sagði að stjórn sín yrði að nokkru leyti mynduð á morgun og neitaði að ræða misklíð Janata- flokksins og flokks Rams. Hann sagði að Janata-flokkurinn hefði nægan þingmeirihluta með stuðn- ingi nokkurra smáflokka. Hann sagði enn íremur að fjórir flokkar sem standa að Janata-flokknum yrðu sameinaðir fljötlega. Klofningurinn reis þegar Ram hélt því fram að honum hefði verið meinað að taka þátt i við- ræðum sem leiddu til þess að Desai var valinn forsætisráðherra þegar öldungarnir Jayaprakash Nayrayan og Aeharya J.B. Kriplani höfðu miðlað málum. Desai sagði að nýja stjórnin mundi afnema ritskoðun og tryggja sjálfstæði dómskerfisins. Aðspurður um kjarnorkumál Indverja kvaðst hann ekki hafa trú á kjarnorkuvopnum og ekki vita hvort kjarnorkusprengingar í friðsamlegum tilgangi væru nauð- synlegar. Þegar hann var að því spurður hve lengi hann yrði í embætti sagði hann að hann mundi ekki gegna því lengur en yrði talið nauðsynlegt. Aðspurður um háan haldur sagði hann: „Hvaða máli skiptir aldurinn? Það er andinn sem skiptir máli.“ — Carter Framhald af bls. 1. samherja Bandarikjanna. Hann tók fram að aðalumræðuefni utanríkisráðherrans og sovézkra ráðamanna yrði tak- mörkun vígbúnaðarkapp- hlaupsins. Carter sagði að Bandaríkja- menn mundu bera fram tillög- ur um takmarkanir á vopna- söl.u, gagnkvæma fækkun herja í Evrópu og eftirlit með kjarn- orkuvopnatilraunum. Forsetinn sagði að hann gerði sér grein fyrir að þau mál sem yrðu rædd væru mjög flókin og hann vissi ekki hvort ferð Vance bæri árangur en hann sagði að Rússar hefðu verið mjög samvinnufúsir og hann væri ánægður með afstöðu þeirra. Carter kvaðst hafa lesið ræki- lega siðustu ræður Brezhnevs og sagði að þar kæmi ekkert fram sem benti til þess að Rúss- ar vildu ekki að áfram miðaði í viðræðum um takmörkun vígbúnaðar. — Rússar fúsir til viðræðna Framhald af bls. 1. úr opinberum þrýstingi í mann- réttindamálum gegn þvi að skriði verði komið á Salt-viðræðurnar. Fréttaskýrandi Izvestia, Alexander Bovin, sagði í gær- kvöldi að með því að „hvetja andófsmenn" í kommúnistalönd- um hefði Carter forseti spillt andrúmsloftinu fyrir heimsókn Vance. Jafnframt virðist koma fram í yfirliti Tass-fréttastofunnar um viðbrögð erlendis við ræðu sem Leonid Brezhnev flokksleiðtogi hélt á mánudaginn að Rússar telji nýjan Salt-samning mikilvægari en þjark um mannréttindi. í annarri yfirlitsgrein sem Tass birti í dag er lögð áherzla á vonir um að Moskvuviðræðurnar verði málefnalegar. Þetta verða fyrstu viðræður sovézku stjórnarinnar og hinnar nýju stjórnar Carters. Munum selja næstu daga sænsk straufrí 100% bómullar sængurver og koddaver með mynsturgöllum fyrir aðeins kr. 3200,— settið SÍÐASTA SENDING SELDIST UPP Á VIKU. GÓð V3ÍQ LítÍð Vö^ð Eaill 3acobsen Austurstræti 9 VOLKSWAGEN og Áuói bílarnir eru Vestur-þýzk gæðaframleiðsla «ii» Áudi 80 LS A,LJ<Íl-bílarnir eru frábærir að gæðum og með fullkominn tæknibúnað. — Sjón er sögu ríkari. - V.W. 1200 hefir aldrei verið betri og hagkvæmari í rekstri. Golf fallegur nútímabíll með fullkomnum búnaði. LT sendibíll hagkvæmur og fáanlegur af mörgum gerðum. Komið — skoðið og kynnist Volkswagen og Auói — Landskunn viðgerða- og varahlutaþjónusta. @) Volkswagen GOOOAuöi HEKLAhf. Laugavegi 170—172 — Sími 21240 i □

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.