Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977
Þorbjörn Guðmundsson átti mjög góðan leik með Valsliðinu og skoraði 9 mörk
Valsmenn sluppu með
skrekkinn gegn Haukum
VALSMENN sluppu með skrekk-
inn f leik sfnum f 1. deildinni
gegn Haukum f fyrrakvöld, úrslit
leiksins urðu 20:19, Valsmönnum
f vil, eftir að þeir höfðu leitt með
fjórum mörkum, 13:9 f leikhléi.
Ekki þannig að Valsliðið hafi
ekki verið betra liðið í leiknum,
það voru þeir óumdeilanlega.
Hins vegar átti iiðið tvo afleita
kafla f seinni hálfleiknum og
munaði minnstu að Valsmönnum
tækist að klúðra þessum leik
niður í jafntefli eða tap.
Með þessum ósigri eru mögu-
leikar Haukanna í rauninni fyrir
bí í 1. deildinni, en Valsmenn og
Víkingar eru samsíða á toppi
deildarinnar. Eru þessi tvö lið
sigurstranglegust í 1. deildinni,
en ef eitthvað er þá eiga Vals-
menn léttari leiki eftir.
Það var miðlungshandbolti sem
leikinn var i Firðinum í fyrra-
kvöld. Siðast var jafnt í fyrri hálf-
Reykjavíkurmótið
að hefjast
Reykjavíkurmeistaramótið í
knattspyrnu mun hefjast laugar-
daginn 2. apríl n.k. með leik Vals
og Víkings i meistaraflokki karla,
en síðan mun hver-leikurinn reka
annan og er ætlunin að keppni í
meistaraflokki verði lokið þegar
íslandsmótið hefst.
I fyrra var tekin upp sú ný-
breytni að veita verðlaunastig, ef
lið skoraði þrjú mörk eða fleiri í
leik, og er ákveðið að halda því
áfram að þessu sinni. Þá verður
einnig tekin upp sú nýbreytni í
Reykjavíkurmótinu að þessu
sinni að í öllum flokkum verður
leyfilegt að skipta inná fjórum
leikmönnum, allan leiktím:nn.
Valur - Fram
í kvöld fer fram á Melavellin-
um leikur í meistarakeppni
Knattspyrnusambands íslands.
Eigast þar við lið Vals og Fram,
en sem kunnugt er urðu þessi lið í
1. og 2. sæti í islandsmótinu í
fyrra, og verður því fróðlegt að
sjá hvernig slag þeirra að þessu
sinni lyktar. Leikurinn hefst kl.
20.00 í kvöld.
leiknum 4:4, en eftir það tók Vals-
liðið forystuna og leiddi með heil-'
um fjórum mörkum í hálfleik. i
seinni hálfleiknum komu
Haukarnir grimmir til leiks og
skoruðu sex mörk gegn einu á
fyrstu mínútum hálfleiksins,
þannig að staðan breyttist í 15:14
fyrir þá. Þá keyrðu Valsmenn
hraðann skemmtiiega upp og
náðu nú sínum bezta kafla í leikn-
um, bæði i vörn og sókn. Á sama
tíma gekk allt á afturfótunum hjá
Haukunum og staðan var orðin
20:16, þegar þeir fundu sig aftur.
Skoruðu Haukarnir þrjú
síðustu mörk leiksins og höfðu
boltann síðustu 45 sekúndur
leiksins. Þær dugðu þeim þó ekki
til að skora og Valsliðið vann því
20:19, en leikmönnum liðsins er
eigi að síður skynsamlegast að
athuga sinn gang. Ef þeir standa
sig ekki út heilan leik, vinna þeir
ekki hina mikilvægu leiki, sem
liðið á eftir. Liðin í 1. deildinni
eru það jöfn að ekki er óhætt að
slaka á gegn þeim.
Bezti maður Valsliðsins í
þessum leik var Þorbjörn
Guðmundsson, hann var i sér-
flokki Valsmanna í leiknum. Jón
Pétur gerði margt gott í leiknum
— sömuleiðis nafni hans Karls-
son, sem tekinn var úr umferð
allan seinni hálfleikinn. Sagt
hefur verið að Valsliðið hafi
mikla breidd og það sé aðall
liðsins, e.t.v. er nokkuð til i þessu
en án Jóns Péturs, Jóns Karls-
sonar og Þorbjörns Guðmunds-
sonar væri liðið ekki sterkt.
Af Haukunum komust þeir
einna bezt frá leiknum Þorlákur
markvörður, sem varði mjög vel á
kafla í seinni hálfleiknum og
Ingimar Haraldsson, sem er að ná
sínum fyrri styrkleika. Hörður
Sigmarsson fékk lítiö næði til að
athafna sig í leiknum og var að-
eins svipur hjá sjón. Rétt er
einnig að nefna öryggi Ólafs
Ólafssonar í vítaköstunum og
góðan þátt Guðmundar
Haraldssonar undir lok leiks-
ins.
—áij
1
( STIÍTTU MÁLI
ÍSI.ANDSMÓTIÐ 1. DEll.D. íþrollahúsið 35. 13:13 Ingimar
f Hafnarfirði 23. marz 37. Þorbjörn 14:13
VALUR — HAUKAR 20:19 (13:9) 38. 14:14 Elfas
GANGUR LEIKSINS: 39. 14:15 Elfas
Mín Valur Staðan Haukar 42. Þorbjörn (v) 15:15
1. Jón P. 1:0 47. Jón K. 16:15
2. Þorbjörn 2:0 47. Bjarni 17:15
4. 2:1 Hörður 51. Þorbjörn 18:15
4. 2:2 Hörður 53. Jón P. 19:15
6. Stefán 3:2 54. 19:16 (iuðmundur
7. 3:3 Sigurgeir 54. Jón P. 20:16
8. Jón P. 4:3 55. 20:17 Guðmundur
11. 4:4 Ingimar 56. 20:18 Guðmundur
12. Jón K. 5:4 58. 20:19 Sigurgeir
13. Þorbjörn 6:4 MÖRK HAUKA: Olafur Olafsson 4.
14. Þorbjörn 7:4 Ilörður Sigmarsson 3, Guðmundur 1
15. 7:5 Hörður Haraldsson 3, Ingimar Haraldsson 3. 1
17. Jón K. 8:5 Sigurgeir Marteinsson 2. Llías Jónasson 2. 1
19. 8:6 Ólafur (v) Þorgeir Haraldsson I, Jón Hauksson I.
21. 8:7 Jón II. MÖRK VALS: Þorbjörn (•uðmundsson 9. 1
22. Þorbjörn (v) 9:7 Jón Pétur Jónsson 4. Jón Karlsson 4. 1
23. 9:8 Olafur (v) Stefan (iunnarsson 2 . Bjarni Guömunds- 1
24. Þorbjörn 10:8 son 1. 1
27. Stefán 11:8 MISHEPPNUÐ VÍTAKÖST: Jón Breið- 1
28. 11:9 Olafur (v) fjörð varði vílakasl frá Herði Sigmarssyni 1
29. Jón K. 12:9 í fyrri hálfleiknum.
30. Þorbjörn 13:9 BROTTVlSANIR AF LEIKYELLI: 1
LEIKHLÉ Gísli Blöndal I Ivær mfnútur.
31. 13:10 Þorgeir DOMAKAK: Karl Jóhannsson og 1
32. 13:11 Ingimar Hannes Þ. Sigurðsson da*mdu leikinn all- 1
34. 13:12 Olafur (v) vel.
r
\\\\ \ \\\w\\v \\ \s\\ss\
1
Jazz-
hliómleikar
MONICA ZETTERLUND
Lars Bagge píanó,
Sture Akerberg bassi
I NORRÆNA HÚSINU
íkvöld kl 20.00 og 22 00
Miðar seldir við innganginn
Pétur Ostlund, trommur
KLUBBUR
Ferða-og skemmti
ktúbbur ungs fólks
Lækjargötu 2. Rvík
Sími 16400 - 12070
WWNNWVNNNN VVV
1. Grísaveizla Matarverð kr. 1 850. —
3. Ferðakynning.
3 Litkvikmyndasýning frá helztu ákvörðunarstöðum
Sunnu í sumar.
4. Tizkusýning — Tízkusýningarfólk frá Tízkusýningar-
samtökunum KARON, sýnir m a. baðfatatízkuna
1977.
5 Hinir óborganlegu Halli og Laddi skemmta
6 Dans.
Aðgangur ókeypis aðeins rúllugjald. NjótiS ódýrrar og
góSrar skemmtunar. MuniS alltaf fullt hjá Sunnu.
í SÓLSKINSSKAPI MED SUNNU
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AlJGLVSINíiA-
SÍMINN FR:
22480