Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977
Hafnarfjörður:
Hlutu
prests-
kosningu
Séra Gunnþór Ingason
1 gærmorgun voru talin atkvæði
á skrifstofu biskups frá prests-
kosningu I Hafnarfjarðarpresta-
kalli og Víðistaðaprestakalli hinn
20. marz s.l.
Um Hafnarfjarðarprestakall
voru tveir umsækjendur og á
kjörskrá voru 3565. Atkvæði
greiddu 2465. Séra Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir hlaut 950 atkvæði og
séra Gunnþór Ingason 1467. Auð-
ir seðlar voru 35 og ógildir 13.
Séra Gunnþór var kosinn lög-
mætri kosningu.
í Víðistaðaprestakaili var einn
umsækjandi, séra Sigurður H.
Guðmundsson. Á kjörskrá voru
2106 og atkvæði greiddu 1036.
Séra Sigurður hlaut 1016 atkvæði,
auðir seðlar voru 17, ógildir 3.
Kosningin er ólögmæt.
Séra Sigurður II, Guðmundsson.
Reyðarfjörður:
Netaafl-
inn að
glæðast
Heyðarfirói, 24. marz
Afli Gunnars SU 139 frá
miðjum janúar er nú 308 tonn.
Léleg netaveiði var fyrst
framan af en er nú heldur að
glæðast. Snæfugl var á loðnu-
veiðum og fékk 1900 tonn af
loðnu á loðnuvertiðinni til 12.
marz, en hann missti úr 17
daga á vertíðinni vegna bilana.
Snæfulg er byrjaður á neta-
veiðum og er nú í annarri
veiðiferð sinni, en hann kom
með 38 tonn af þorski og ýsu
úr fyrsta túrnum.
Mjög gott veður er hér og er
það búið að vera undanfarið.
Snjór er nær horfinn úr pláss-
inu.
—í.rúla.
[