Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 31
í'
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977
31
Fredericia KFUM
væntanlegt í heimsókn
MIKLAR líkur eru á því að
danska meistaraliðið í
handknattleik, Fredrecia
KFUM, komi senn hingað í
heimsókn og leiki a.m.k.
þrjá leiki við íslenzk lið.
Hafa Danirnir sýnt mikinn
áhuga á að koma hingað,
en þeir eru nú að búa lið
sitt undir þátttöku í und-
anúrslitum Evrópubikar-
keppninnar í handknatt-
leik. Er álitið að liðið eigi
góða möguleik á að komast
í úrslit, eða jafnvel sigra í
þeirri keppni.
Ef af heimsókninni verður mun
það verða handknattleiksdeild
Fylkis, sem stendur að henni, en
Fyikir er nú það Reykjavíkurfé-
lag sem á rétt á vorheimsókn. Að
sögn Þórhalls Bjarnasonar, vara-
formanns handknattleiksdeildar
Fylkis, er verið að vinna að þessu
máli núna. Danirnir óskuðu eftir
því að koma hingað um páskana,
en það er talinn óheppilegur timi,
vegna aðsóknar, og þvi verið að
kanna hvort liðið getur komið
annað hvort rétt fyrir páska, eða
rétt eftir þá.
Fredricia KFUM, er nú lang
sterkasta félagslið i Danmörku,
og þykir leika mjög skemmtilegan
handknattleik. Nokkrir landsliðs-
Blakkeppni
skólanna
SKÓLAMÓT Blaksambands Islands
hófst í byrjun febrúar. 24 skólar me8
samtals 40 keppnislið tóku þátt I
mótinu og fór keppnin fram I fjórum
flokkum, og lauk keppni i þremur
flokkum um siSustu helgi.
í grunnskólaflokki karla var8
Gagnfræðaskólinn á Húsavik sigur
vegari, Vighólaskóli i Kópavogi varð
i öðru sæti og Ármúlaskólinn i
Reykjavik i þriðja sæti.
í grunnskólaflokki kvenna sigraði
Gagnfræðaskólinn á Húsavik, Vig-
hólaskóli varð i öðru sæti og Gagn-
fræðaskóli Garðabæjar i þriðja sæti.
Í framhaldsskólaflokki kvenna
sigraði Menntaskólinn á Akureyri,
íþróttakennaraskóli islands varð i
öðru sæti og Kennaraháskóli islands
i þriðja sæti.
Keppt verður til úrslita f fram-
haldsskólaflokki karla á laugardag
(26. marz) og sunnudag (27. marz).
Á laugardag verður keppt i iþrótta-
húsinu á Akranesi og hefst keppni
kl. 14.30. Á sunnudag verður keppt I
Íþróttahúsi Háskóla íslands og hefst
keppni þar kl. 1 7.00. í þessum flokki
komust fjögur lið f úrslit og eru þau
frá Samvinnuskólanum að Bifröst,
Bændaskólanum á Hvanneyri,
Menntaskólanum á Akureyri og
Menntaskólanum að Laugarvatni.
menn eru í liðinu, m.a. Flemming
Hansen, Sören Andersen og
Anders Dahl-Nielsen. Er ekki tal-
ið ólíklegt að kjarni danska lands-
liðsins í heimsmeistarakeppninni
næsta vetur verði úr Fredricia-
liðinu.
Dönsku 1. deildar keppninni
lauk um síðustu helgi og hlaut
Fredricia KFUM 41 stig. Nýlið-
arnir, Holte, urðu í öðru sæti með
37 stig, en síðan komu Saga með
29 stig, Arhus KFUM með 26 stig.
Helsingör með 23 stig
Skovbakken með 23 stig, FIF me>
22 stig, Nr. Nissum með 19 stig
Efterslægten með 17 stig, Stjern
en með 16 stig, Lynge með 9 stip
og Vilby með 2 stig. Tvö síðast
nefndu liðin falla í 2. deild, er
ekki er enn séð hvaða lið koma
þeirra stað.
Janus Guðlaugsson skorar eitt marka sinna I leiknum I fyrrakvöld.
JANUS i SERFLOKKI
ÁN JANUSAR Guðlaugssonar
hefði ekki verið mikil reisn yfir
leik FH og Fram í 1. deildinni I
fyrrakvöld. Janus átti stórleik
með FH-ingunum, skoraði mikið,
fékk nokkur vftaköst, var virkur f
spilinu og gaf sig hvergi I vörn-
inni. Hefur Janus ekki leikið bet-
ur með FH I annan tíma. FH-
ingar unnu þennan leik með 26
mörkum gegn 22 og verðskulduðu
fyllilega sigurinn í leiknum, en
hins vegar gerðu mistækir dómar-
ar leiksins þeim sigurinn auð-
veldari en ella og fór það ekki á
milli mála að FH-ingar högnuðust
á dómum þeirra.
Fyrri hálfleikur þessara gömlu
erkióvina úr íslenzkum hand-
knattleik var nokkuð jafn, en í
leikhléi leiddi FH með 13 mörk-
um gegn 11. Höfðu Framarar
lengst af fyrri hálfleiknum haft
forystu í leiknum, en 9 mörk FH
gegn 4 mörkum Fram síðustu 10
mínútur hálfleiksins breyttu stöð-
unni fyrir hlé. í seinni hálfleikn-
um munaði ekki nema einu marki
á liðunum þar til um 15 mínútur
voru eftir af leiknum. Náðu þá
FH-ingar mjög góðum kafla, sem í
rauninni gerði út um leikinn. Gáf-
ust Framarar hálf partinn upp er
hér var komið sögu, en munurinn
Nystárlep fjáröflunarleið:
FARAA SKAK
varð þó ekki nema fjögur mörk,
26:22.
Af FH-ingunum hefur Janus
Guðlaugsson þegar verið nefndur
og þessi 23 ára gamli kennari á
íþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni hefur ekki áður stað-
ið sig betur með félögum sínum i
FH. Viðar Símonarson stóð fyrir
sínu í leiknum og Guðmundur
Magnússon átti einnig góðan leik.
Af leikmönnum Fram voru þrir
menn áberandi beztir. Andrés
Bridde verður stöðugt atkvæða-
meiri og hefur sýnt það i síðustu
leikjum Fram að nauðsynlegt er
fyrir varnarmenn annarra liða að
hafa vakandi auga á honum. Sig-
urbergur Sigsteinsson stóð sig
mjög vel í þessum leik og Einar
Birgisson, hinn efnilegi mark-
vörður liðsins, varði vel meðan
vörnin var á verði.
—áij.
I STIITTU MAI.l:
islandsmótið 1. deild. íþróttahúsió I
Hafnarfirði 23. marz.
FH — FRAM 26:22 (13:11)
gangur leiksins:
Mín. FH Staðan Fram
3. 0:1 Andrés
3. Janus 1:1
4. 1:2 Pálmi
6. Viðar(v) 2:2
2:3 Andrés
9. 2:4 Pálmi (v)
10. 2:5 Sigurbergur
12. Vióar (v) 3:5
14. 3:6 Ragnar
15. Geir 4:6
16. 4:7 Andrés
17. Sæmundur 5:7
18. Janus(v) 6:7
20. Janus 7:7
21. 7:8 Guðmundur
21. Janus 8:8
23. Guómundur S. 9:8
23. 9:9 Sigurbergur
25. Viðar (v) 10:9
25. Viðar 11:9
27. 11:10 Guðmundur
28. Janus(v) 12:10
30. Viðar (v) 13:10
30. 13:11 Sigurbergur
i.kíkiii.e
32. 13:12 Andrés
33. (■uðmundur M.14:12
35. 14:13 Árni
37. Viðar 15:13
39. 15:14 Sigurhergur
40. Guðmundur M.16:14
42. 16:15 Andrés
43. Janus 17:15
44. 17:16 Pálmi
45. Viðar 18:16
46. Sæmundur 19:16
48. Janus 20:16
49. 20:17 | a.
51. Janus (v) 21:17
51. Geir 22:17
52. 22:18 Pálmi (v)
52. Viðar (v) 23:18
54. 23:19 (■uðniundur
55. (iuðmundur M.24:19
56. 24:20 Pálmi (v)
58. 24:21 Pétur
59. Geir 25:21
60. 25:22 Andrés
60. Janus 26:22
MÖKK FH: Janus
Uuólaugsson 9, Vióar Slmonarson 8. tiuó-
mundur Magnússon 3, Geir Hallsteins-
son 3, Gudmundur Arni Stefánsson I,
Ssemundur Stefánsson 2.
MÖRK FRAM: Andrés Bridde 7, Pálmi
Pálmason 6, Sigurbergur Sigsteinsson 4.
(íuðmundur Þorbjörnsson 3, Ragnar
Hilmarsson 1, Arni Sverrisson 1.
Misheppnuð vftaköst: Einar Birgisson
vardi vítakast frá Vidari Sfmonarsyni,
Birgir Finnbogason varði vftakast frá
Andrési Bridde og Pálmi Pálmason gerði
vftakast ógilt.
BROTTVÍSANIR AF LEIKVELI
(iuðmundi Árna Stefánssyni, Pétri
Jóhannssyni, (iuðmundi Þorbjörnssyni
og (íústaf Björnssyni var vikið af leik-
velli í 2 mínútur hverjum.
DOMARAR: (íunnar Kjartansson og
Olafur Steingrfmsson da‘indu þennan
leik og ekki verður annað sagt en FII-
ingar hafi hagnazt á dómum þeirra.
ÓHÆTT er að fullyrða að rtæsta fjár-
öflunarleið Frjálsíþróttasambands (s-
lands sé allsérstæð. Hafa stjórnar-
menn sambandsins ákveðið með sér
að fara á „skak", og þannig draga
Frjálsiþróttasambandinu, sem er
mjög fjárvana, gull úr greipum Ægis.
Að sögn Arnar Eiðssonar, for-
manns FRÍ, var þessi hugmynd rædd
ýtarlega á 900. fundi Frjálsfþrótta-
sambandsins, og þar ákveðið að
reyna þessa fjáröflunarleið með vor-
inu, eða sennilega í maimánuði. Örn
Eiðsson sagði að stjórnarmenn sam-
bandsins hefðu reynt margar og mis-
munandi fjáröflunarleiðir á undan-
förnum árum. Hefðu þær flestar
byggst upp á „sama gamla betlinu"
eins og Örn orðaði það, en nú væri
hugmyndin að reyna að breyta örlitið
út af þvi.
Aðspurður sagði Örn Eiðsson að
þeir FRl-menn væru ekki búnir að
verða sér úti um bát, en það vær von
hans að einhver formaður eða út-
gerðarmaður mundi setja sig i sam-
band við FRÍ eftir að málið hefði
verið kynnt eða reifað i fjölmiðlum.
Örn Eiðsson sagði þessa fjáröflunar-
leið kannski vekja athygli meðal
fólks. „En hún er nauðsynleg, þvi
mjög illa er staðið að islenzkri
fþróttahreyfingu af hinu opinbera, og
á Frjálsiþróttasambandið i gifurlega
miklum fjárhagserfiðleikum. Höfum
við varla hugmynd um hvernig okkur
muni takast að kosta og leysa það
verkefni, sem við teljum Frjáls-
íþróttasambandinu skylt að inna af
hendi. Það er svo aukalegur ávinn-
ingur af þessari fjáröflunarleið, þvi
hún mun einnig afla þjóðarbúinu
nokkurs erlends gjaldeyris, sem
sjaldan er til nema af mjög skornum
skammti," sagði Órn Eiðsson.
FH: Birgir Finnbogason 2, Magnús Ólafsson 1, Sæmundur
Stefánsson 2, Geir Hallsteinsson 2, Vióar Símonarson 3, Janus
Guðlaugsson 4, Guðmundur Magnússon 3, Guðmundur Árni
Stefánsson 1, Þðrarinn Ragnarsson 1, Auðunn Óskarsson 1.
FRAM: Einar Birgisson 3, Árni Sverrisson 1, Pálmi Pálmason 2,
Pétur Jóhannesson 2, Jðn Árni Rúnarsson 1, Andrés Bridde 3,
Sigurbergur Sigsteinsson 3, Gústaf Björnsson 1, Ragnar
Hilmarsson 1, Guðmundur Þorbjörnsson 2, Arnar Guðlaugsson
1, Jðn Sigurðsson 1.
IIAUKAR: Gunnar Einarsson 2, Þorlákur Kjartansson 3, Þorgeir
Haraldsson 1, Sigurgeir Marteinsson 2, Ólafur Ólafsson 2, Stefán
Jðnsson 1, Ingimar Haraldsson 3, Hörður Sigmarsson 2, Jón
Hauksson 2, Elfas Jðnasson 2, Svavar Geirsson 1, Guðmundur
Haraldsson 2.
VALUR: Jðn Breiðfjörð 2, Jðn Karlsson 3, Steindór Gunnarsson
2, Bjarni Guðmundsson 2, Jðn Pétur Jónsson 3, Stefán Gunnars-
son 2, Þorbjörn Guðmundsson 4, Björn Björnsson 1, Glsli
Blöndal 1, Jóhannes Stefánsson 1, Garðar Kjartansson 1.
YIÐ VEKJUM ATHYGLI A:
ótrúlega góðum kjörum á ÚTSÖLUMARKAÐI okkar
••'d$K • ? i*5’aveoi 66 s==- m
Wbsl' 2. hæö. rp 25oo- ".Mfwv
40 — 70%
afsláttur
Kr.
Ullardomujakkar 2500.~
Terylenepilsdragtir 7 500.-
Gallaskyrtur 1590.—
Dömupils alls konar
frá 2500 -
Stakar terylenebuxur 3500 —
Jakkaföt m / vesti 15 900 —
Stakir herrajakkar 6500.—
Herraskyrtur 1790.—
koflóttar
domublússur 1790.—
Gallavesti 1990.—
f
-M
Skór í miklu úrvali.
Mjög gott verö
Oglp
IP*
Laugavegi 66, sími 28155