Morgunblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977
Atvinnuleysi
Eitt mesta böl, sem
gengur yfir þjóðir
heims, er atvinnulevsið.
t kjölfar efnahags-
kreppu, sem m.a. á ræt-
ur f þróun olíuverðs,
hefur atvinnuleysi sagt
til sfn f ríkum mæli í
hinum iðnvædda hluta
heims, ekki sfzt f V-
Evrópu. 1 febrúarmán-
uði sl. minnkaði at-
vinnuleysi f aðildarríkj-
um Efnahagsbandalags
Evrópu um tvö prósent.
Enn munu þó um 5,8
milljónir manna at-
vinnulausar í þessum
löndum, eða um 5.5%
vinnuaflsins. Atvinnu-
leysingjar munu um
200.000 fleiri en á sama
tíma í fyrra. Vestur-
Þýzkaland hefur náð
einna beztum árangri í
aðgerðum gegn atvinnu-
leysi og hefur það
minnkað þar um 10% á
sl. 12 mánuðum — og í
Holiandi um 8%. Engu
að síður má Ijóst vera,
að hér er enn við ógn-
þrungið vandamál að
ræða í flestum Evrópu-
ríkjum.
Spár, sem
ekki rættust
Sá alþjóðlegi kreppu-
vottur, sem er meginor-
sök umrædds atvinnu-
leysis, sagði til sín hér á
landi. Hann bættist við
ýmis heimatilbúin
vandamál á efnahags-
sviði f endaðan feril
vinstri stjórnarinnar.
Viðskiptahallinn við út-
lönd hafði vaxið mjög
ört, galdeyrisvarasjóðir
þurrkazt upp, erlend
skuldasöfnun hrannazt
upp, rekstrarhalli ríkis-
sjóðs farið ört vaxandi.
Verðbólgan rauk upp f
54% vöxt 1974. — Þvf
var spáð, er núverandi
rfkisstjórn tók við völd-
um, að þá rfkjandi
ástand og nauðsynlegar
efnahagsaðgerðir hlytu
óhjákvæmilega að leiða
til hliðstæðs atvinnu-
leysis hér og þá þegar
var farið að segja til sfn
f helztu nágranna- og
viðskiptalöndum okkar.
Þessar spár hafa sem
betur fer ekki rætzt.
Tekizt hefur að tryggja
atvinnuöryggi um
gjörvallt land á liðnum
misserum og hvarvetna
berast fréttir af blóm-
legu atvinnulífi. Engu
að síður hefur miðað
verulega í rétta átt f
efnahagsmálum. Við-
skiptahallinn hefur
minnkað að mun, þó
hann sé enn mikill.
Gjaldeyrisstaðan er
erfið en þó allt önnur
og viðráðanlegri en var
á árinu 1974. Verð-
bólguvöxtur, sem var
54% á árinu 1974, hefur
hjaðnað i um 30% á sl.
ári, — en er þó enn
alvarlegasta meinsemd
efnahagslffs okkar. Á
miklu rfður að takizt aðj
hefta enn vöxt hans á
yfirstandandi ári, en
þar eru mörg Ijón á veg-
inum. Á árinu 1976 náð-
ist í fyrsta sinn um
langt árabil hallalaus
rfkisbúskapur, m.a.
vegna vaxandi aðhalds f
ríkisrekstri og sam-
dráttar í rfkisfram-
kvæmdum. Hins vegar
eru ýmsar biikur á lofti
í efnahagslffi okkar —
og ekki þarf mikið að
fara úr skorðum, til
þess að aftur sæki í
gamla ógæfu farið.
Skattheimtan
verður
að minnka
Þvf hefur verið haldið
fram með nokkrum rök-
um að kaupmáttur al-
mennra launa sé veru-
lega minni hér á landi
en í þeim löndum, sem
búa að hæstum kaup-
mætti launatekna.
Nauðsynlegt er að fram
fari ítarleg könnun á
þessu efni, þar sem tek-
ið er tillit til verðlags
og skattheimtu, þann
veg, að samanburður-
inn verði marktækur.
Þó ætti öllum að vera
ljóst, sem um þessi mál
fjalla á raunhæfan hátt,
að þeim mun stærri
hlut sem samneyzlan,
þ.e. skattheimta ríkis og
sveitarfélaga, tekur í
sinn hlut af heildartekj-
um eða verðmætasköp-
un í þjóðfélaginu, þeim
mun minna verður eftir
í ráðstöfunartekjur
(rauntekjur) heimila
og einstaklinga. Einn
veigamesti þátturinn í
því að tryggja heimil-
unum og einstaklingun-
um í þjóðfélaginu sann-
gjarnar ráðstöfunar-
tekjur, hlýtur því að
vera sá, að halda skatt-
heimtunni/ samneysl-
unni innan hóflegra og
sanngjarnra marka, á
heildina litið, samhliða
réttlátari skiptingu
skattbyrðarinnar. Hér
er um pólitískt
grundvallaratriði að
ræða, sem augu hins al-
menna borgara eru að
opnnast fyrir í æ ríkara
mæli.
Hinn almenni borgari
hlýtur að krefjast þess
af stjórnmálaflokkum
og stjórnmálamönnum
að þeir taki skýrari af-
stöðu til þessa atriðis en
gert hefur verið um
sinn. Óánægjan með of-
sköttun og ofvöxt í rík-
isbákninu getur hvenær
sem er brotizt upp á yf-
irborðið f þjóðfélaginu.
Fleiri en smærri kaup-
krónur rétta engra hlut,
einar út af fyrir sig. Það
sannar dýrkeypt reynsl-
an. En aðhald í opinber-
um útgjöldum, sem
leiddi til lækkunar
skattheimtu, skapaði al-
menningi frekari ráð-
stöfunarrétt en nú er á
eigin vinnulaunum og
aflafé.
Gerið
góð kaup
CHEERIOS 1. PK.
TROPICANA STÓR FERNA
M.S. FRÓMAS 3 TEG.
MAYONNESE LÍTERS FATA
HRÍSGRJÓN 907 GR.
PAXO RASP 1. PK.
OPAL BRJÓSTSYKUR 6. TEG. 350 GR. P.K.
MAGGÝ SÚPUR 1. PK.
Leyft veró Okkar verð
kr 209 kr 187
369 332
240 216
549 493
225 202
76 68
382 344
107 95
Ath:
Ath:
Þetta eru aðeins fáein verðsýnishorn.
einnig verðsamanburð sem sést á tvöföldum
verðmerkimiðum er sýnir leift verð og okkar verð.
Opið til kl. 10 föstudaga
Lokað á laugardögum
&
Vörumarkaðnrinn hf.
Sími86111
Iþróttafélag Miklaholtshrepps
minnist 40 ára afmælis síns með hófi að
Breiðabliki laugardaginn 23. apríl kl. 21. Öllum
fyrrverandi og núverandi félögum ásamt mök-
um þeirra er boðin þátttaka. Þátttökutilkynn-
ingar berist fyrir 12. apríl til eftirtalinna aðilja
sem einnig veita nánari upplýsingar.
Reykjavík og nágrenni: Ágúst Ásgrímsson sími
84427
Stykkishólmur: Magndís Alexandersdóttir sími
8207 eða á símstöðina Hjarðarfelli.
Stiórnin.
m
Urval af
fermingarfötum
úr riffluöu flaueli og terylene-efnum.
Fermingar: Skyrtur,
slaufur,
skór.
QBDl “
c^Austurstræti