Morgunblaðið - 01.05.1977, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.05.1977, Qupperneq 8
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1977 — Hvert er viðhorf þitt til yfirstandandi kjarasamninga? fækka sjómönnum, fækka í áhöfninni. Er nú svo komið að vand- ræðaástand ríkir ef fækkar í áhöfn eftir að ferð er hafin t.d. vegna veikinda eða annars þ.h. Hér er um mjög óeðlilega þróun að ræða þegar horft er á að í landi er annað hvort aukin vélvæðíng eða fjölgun starfs- fólks til að minnka álag á hinn vinnandi mann. Sjómanna- samtökin i landinu hljóta að svara þessari árás með einurð og samstöðu. Sjómenn minnumst þess, að fyrirrennarar sjómannastéttar- innar voru upphafsmenn að isl. verkalýðsbaráttu. Til hamingju með daginn. Kjartan Guðjónsson form. Verka- mannafélagsins Bárunnar, Eyrarbakka — Mitt viðhorf til yfirstand- andi kjarasamninga er það, að þeir verði að standa við sam- þykkt ASÍ-þingsins um að ná upp kjörum láglaunafóksins, sagði Kjartan Guðjónson, for- maður Verkamannafélagsins Bárunnar á Eyrarbakka. Þetta er nauðsynin, sem brennur á okkur núna. Ég get ekki orða bundizt og hlýt að lýsa furðu minni á þeim fregnum, sem berast af þeim sérkröfum háiaunahópanna, sem ganga þvert á lágiauna- stefnuna. Það setur að manni ótta um að enn einu sinni eigi að svíkja láglaunafólkið til að þeir, sem meira bera úr býtum, nái að skara eld að sinni köku. Ég vil að þessir samningar náí upp kjörum láglaunafólks- ins og að kaupmáttur þeirra verði tryggður. Þeir, sem búa við betri kjör, verða nú að bíða og ég tel það hreint fráleitt, ef þannig á að standa að málum, að við, sem lágu launin höfum, verðum neydd út í verkfallsað- gerðir til að ná fram enn aukn- um launum handa þeim, sem meira fá. Þeir verða að bíða að þessu sinni, en hagsmunir lág- launafólksins að vera á odd- inum. Á þessu liggur, ef árangurs á að vænta af þeirri samnings- gerð, sem nú stendur yfir og vonandi tekst að ljúka án þess að til vandræða dragi. Björn Þórhallsson, formaður Landssambands r Islenzkra verzlunarmanna 1. maí er hátíðis- og baráttu- dagur., verkalýðsfns. En hverju á að berjast fyrir og hverju á að fagna? Baráttumál íslenzkra launþega, en óþarft er að rekja þau hér, voru ákveðin á síðasta þingi ASÍ og þar var um þau alger samstaða. Þessi samstaða hefur haldizt órofin allt til þessa, og nú á þeirri stundu er kjara- samningar nær allra launþega renna út og samningaviðræður eru í miðju kafi, hefði það verið mest fagnaðarefni, ef verka- iýður landsins hefði getað sameinazt um að gera 1. maí að baráttudegi fyrir kjörum sinum, og að lögð hefðu verið til hliðar flokkspólitísk ágreiningsmál. Það er því harmsefni að enn einu sinni skuli þeim öflum, sem líta á verkalýðshreyf- inguna sem nytsamt tæki til framdráttar ákveðnum stjórn- málaflokkum, hafa tekizt að koma fram klofningsáformum sínum. Ég hygg raunar að samstaða hefði náðst, hefðu þeir einir um fjallað, sem verkalýðshreyf- ingin sjálf hefður valið sér til forustu. Og vonandi kemur að því að islenzk verkalýðshreyf- ing brýtur alveg af sér þá flokkspólitísku hlekki, sem alltof oft heyrist glamra í. Þó að svona hafi til tekist er ekkert gagn unnið með því að hefja nú upp deilur og ásakanir þar um. Það yrði aðeins vatn á myilu óheillafuglanna. Því vona ég að sem flestir reyni að leiða hjá sér þessi vandræði, en horfi heldur til þeirrar baráttu sem framundan er. Til þessa heiti ég á alla þá launþega, sem ofar vilja setja sameiginlega hagsmunabaráttu en sérdrægni og stóryrt stjórn- málaglamur. Dagmar Karls- dóttir, gjaldkeri Starfsstúlkna- félagsins Sóknar — Mitt svar gæti verið stutt og laggott, sagði Dagmar Karls- dóttir, gjaldkeri Starfsstúlkna- félagsins Sóknar. — Ég vil fá mínar 100 þúsund krónur á mánuði og þær verðtryggðar. Það er fyrir neðan allar hellur, að við skulum ár eftir ár vera látnar þræia fyrir lágum launum meðan verkalýðsfor- ystan virðist fyrst og fremst hugsa um þá, sem meira bera úr býtum en við. Þessi samningamál virðast vera eilíf togstreita og það virðist vera orðið náttúrulögmál í höndum verkalýðsforystunnar að hlutur okkar láglaunafóiksins sé borinn fyrir borð til að rýma fyrir hagsmunum þeirra sem meira mega sín. Ösk mín varðandi yfirstand- andi kjarasamninga er að verkalýðsforystan beri gæfu ‘>l að losa sig undan þessu nátt- úrulögmáli og komi nú út með þá samninga, sem alltaf hefur verið talað um, en aldrei samið um til þessa. Annars finnst mér sjálfsagt að Ííta til rikisstjórnarinnar lika í þessum málum. Það eru til fleiri kjarabætur en bara hækkun f prósentum eða krónutölum. Ég nefni sem dæmi skattalækkun, sem ef til vill myndi reynast okkur lág- launafólkinu haldbetri kjara- bót, en einhver umfram kaup- hækkun, sem brenndyði af okk- ur um leið og blekið á samn- ingapappírunum er þornað. Þórhallur Halldórsson, formaður Starfsmanna- félags Reykja- víkurborgar Yfirstandandi kjarasamning- ar opinberra starfsmanna eru hinir fyrstu samkvæmt nýjum samningsréttariögum, en með þeim er starfsmönnum rikis og sveitarfélaga veittur takmark- aður verkfallsréttur. Samning- ar þessir verða þvi nokkur próf- steinn á þetta nýja fyrirkomu- lag og er ekki síður þýðingar- mikið fyrir stjórnvöld en starfs- menn, hvernig til tekst. Stjórn- völd verða að gerða sér grein fyrir þvi, að það timabil er liðið, er okkur voru skömmtuð laun af gerðadómum, meira og minna fjarstýrðum af ríkisvald- inu. Þau verða einnig að gera sér ljóst, að sá tími kemur ekki aftur, að opinberir starfsmenn þurfi að sætta sig við þá tegund samningsgerðar, er kjara- ákvarðanir voru iðulega teknar einhliða fyrirfram af hinum samningsaðilanum, og samn- ingafundirnir sjálfir oft nánast tii málamynda. Einhver kann nú að spyrja: Þýðir þetta að opinberir starfs- menn stefni að verkfalli? Síður en svo. Ég leyfi mér að fullyrða að innan St. Rv. sé sú skoðun yfirgnæfandi, að verkfall sé neyðarúrræði og að hin ný- fengnu réttindi séu vissuiega vandmeðfarin. En hitt er lika jafnvist, að ef stjórnvöld og samningsgerðar- menn þeirra hafa engu gleymt og ekkert lært, þá má brýna svo deigt járn að biti um siðir. I yfirstandandi kjarasamn- ingum leggja opinberir starfs- menn höfuðáherzlu á eftirfar- andi kjaraatriði: Að laun í lægstu launaflokk- um hins opinbera kerfis, þar sem um helmingur félags- manna St. Rv. eru flokkaðir, verði hækkuð til að tryggja þeim lífvænleg laun, miðað við dagvinnu. Að tryggð verði full vísitala á öll laun. Rétt er að vekja athygli á þvi að í dag eru hæstu laun opinberra starfsmanna 2.7 sinnum hærri en lægstu laun þeirra, en samkvæn}t kröfugerð B.S.R.B. nú myndi launamis- munur þessi minnka niður i 2.15 sinnum. Þar með hefur verið stigið stærra skref tii launajöfnunar af hálfu B.S.R.B. en nokkru sinni áður. Að heimiluð verði uppsögn væntanlegs samnings, ef veru- leg röskun verður á kjara- grundvellinum á samnings- timabilinu, s.s. vísitala afnumin eða mikil gengisfelling. Að framkvæmd verði stefnu- breyting i skattamálum, sem í reynd skipti nauðsynlegum út- gjöldum þjóðfélagsins hlut- fallslega rétt á gjaldendur. Leyfi ég mér að minna á fundarsamþykkt aðalfundar St. Rv. frá i marz 1975, en þar segir m.a.: „Fundurinn leyfir sér að halda því fram, að á meðan opinberir starfsmenn greiða skilvislegá skatta af öllum sín- um launum, sé það látið við- gangast, að fjölmennar stéttir og ýmsir hagsmunahópar í þjóðfélaginu hafi að verulegu leyti möguleika til þess að skammta sjálfum sér tekjur, og auk þess komast upp með að greiða ekki skatta og skyldur hlutfallslega á boð við opinbera starfsmenn og ýmsa aðra laun- þegahópa." Loks að opinberum starfs- mönnum verði tryggðar svip- aðar rauntekjur og starfsmönn- um, er vinna sambærileg störf á hinum frjálsa vinnumarkaði, eða í ríkisreknum fyrirtækjum. Það er skoðun mín, að erfitt muni reynast að stimpla ofan- greindar kröfur sem ósann- gjarnar eða óábyrgar, og leyfi ég mér i því sambandi m.a. að vitna til skrifa í leiðurum Morgunblaðsins um kjaramál opinberra starfsmanna vetur- inn 1973 — 1974. Þá birtist í blaðinu hver leiðarinn öðrum skeleggari til stuðnings málstað þessara starfsmanna, og átti blaðið vart nógu sterk orð til að lýsa hneykslan sinni áþví, að B.S.R.B. skyldi hafa skrifað undir samning (í des. 1973), sem þá voru gjarnan í háðungarskyni nefndir olíu- samningar af hálfu blaðsins. Hvað myndu sambærilegir samningar kallaðir í dag? Sennilega bæði raunhæfir og ábyrgir!! / Með tilliti til þess að senn dregur til úrslita i yfirstand- andi samningum, tel ég við hæfi að gera eftirfarandi fróma ósk að minni, en hún er tekin orðrétt úr ritstjórnargrein Morgunblaðsins 10. janúr 1974: „En vonandi er þó að ríkis- stjórnin geri sér að lokum grein fyrir þeirri skyldu, sem á henni hvílir, og komi til móts við samningaaðila, þannig að þeir geti náð endum saman". Hinrik Konráðsson, form. Verka- lýðsfélagsins Jökuls, Ólafsvík „Kjaramálaályktun sii, sem 33- þing A.S.Í. samþykkti sam- hljóða og einnig kjaramálaráð- stefna A.S.Í. í febrúar s.l., þ.e. hæstu kjarabætur til hinna lægst launuðustu og síðan sömu krónutölu á öll laun — hin títt- nefnda launajöfnunarstefna — verður að hafa allan forgang í núverandi samningagerð og hvergi verði hvikað frá henni. Þá komi visitölubætur í sömu krónutölu áöll laun. Kjör elli- og örorkulífeyris- þega sem ekki hafa úr öðru að spila en tekjutryggingu almannatrygginga verði stór- bætt. Allar sérkröfur einstakra landssambanda og einstakra félaga sem fram kynnu að verða lagðar og sem sýndu að hafa myndu i för með sér stór- breikkað launabil á milli þeirra, sem lægst eru launaðir og hinna, sem hærri hafa laun- in og ganga myndu þvert á kjaramálaályktun 33. þings A.S.Í. verður að draga til baka af viðkomandi aðilum. Gagnkröfum atvinnurek- enda, sem þeir settu fram i upp- hafi samningagerðar, verði algjörlega hafnað. Þær eru ekki til annars en að tefja alla samn- ingagerð og lýsa algjöru ábyrgðarleysi þeirra á að leysa samningana á friðsamlegan hátt, ef haldið verður fast við þær. Þá skora ég á núverandi rikisstjórn að taka til skjótra ákvarðana þær tillögur, sem launþegasamtökin hafa beint til hennar, um lausn kjara- samninganna og þar sem hún gæti komið inn i þá með stjórn- valdaaðgerðum. í framhaldi af þeim aðgerðum verður að gera kröfur til stjórnvalda, að þær kjarabætur, sem nást kynnu, verði raunhæfar, en ekki velt út í verðlagið áður en blekið þornar við undirskrift samn- inga. Að lokum sendi ég öllu verka- fólki til lands og sjávar baráttu- kveðjur á hátiðisdegi verka- lýðsins, 1. mai, og vona að við stöndum saman í komandi átök- um um kjör okkar og laun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.