Morgunblaðið - 01.05.1977, Blaðsíða 13
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAl 1977
Lffs-
spursmöl
aö
stunda
útiliT
0 Frímann Frfmannsson,
prentari, sem var í útreidartúr
ásamt dóttur sinni Sofffu,
þriggja ára:
,,Það má segja, að ég sé að
kenna ungfrúnni listina. Þótt
ung sé að árum hefur hún
strax fengið mikinn áhuga á
hestunum og hún á sjálf lítið
folald, sem heitir Ösp. Ég vinn
í Prentsmiðju Odds Björns-
soanr og það er lífsspursmál
fyrir mig að stunda eitthvert
útilíf til þess að vega upp á
móti inniverunni í prentinu.
Hestamennskan er ákjósanleg
til heilsubótar og auk þess
veitir hún manni mikla
ánægju. Við erum tveir
bræður saman með hús og við
skiptumst á um að gefa hest-
unum. Við hjónin og krakk-
arnir eigum fjóra hesta og við
ríðum út flest kvöld. Ég byrj-
aði á þessu fyrir 10 árum en
síðan hefur áhuginn á hesta-
mennskunni blossað upp hér í
bænum. Það eru alltaf fleiri og
fleiri að byrja í þessu og er það
vel.“
For-
fallinn
hesta-
maöur
Hersteinn Tryggvason;
verzlunarmaður:
„Það má segja, að ég sé alveg
forfallinn hestamaður. Ég
byrjaði að sýsla við þetta fyrir
þremur árum og sé aldeilis
ekki eftir því. Ánægjan, sem
hestamennskan veitir, er
ómæld. Ég á núna þrjá hesta
og einn þeirra sit ég einmitt
nú, hryssuna Lady. Ég er ný-
búinn að byggja mér ágætt
hesthús hér i grenndinni. Ég
fer þangað á hverjum degi og
sá dagur líður vart að ég riði
ekki út. Ég hef ýmist keypt
hey eða heyjað sjálfur. í fyrra
heyjaði ég til dæmis á golfvell-
inum hérna í bænum. Það er
líka gaman að sýsla við hey-
skapinn og hann minnir mann
á árin i sveitinni í gamla
daga.“
Hef alizt
uppvið
hesta-
mennsku
frö
barnœsku
Björn Jónsson, iðnverka-
maður og fyrrum bóndi:
,,Ég hef alizt upp við hesta-
mennsku frá barnæsku. Faðir
minn var mikill reiðmaður en
hann hét Jón Ólafsson og bjó á
Mýrarlóni við Akureyri, þar
sem ég er fæddur. Siðar varð
ég sjálfur bóndi um árabil, bjó
meðal annars fimm ár í Glaum-
bæ í Skagafirði og einnig viðar
og þá hafði ég sjálfur hesta.
Eftir að ég fluttist til Akur-
eyrar hef ég auðvitað haft
hesta. Nú á fjölskyldan 10
hesta, sumir eru reyndar ekki
tamdir. Við ríðum mikið út
fjölskyldan, hestamennskan er
rótgróin í fjölskyldunni. Þá má
ekki gleyma því, að ég hef
mjög gaman af hestamanna-
mótum og var áður fyrr dóm-
ari á slíkum mótum. Ég hef nú
dregið mig heldur út úr þessu
enda orðinn 67 ára gamall."
lrland
7.—14.maí.
Verð kr. 46.200.—
í cimii á&' Sérstakur
i ciinu fjölskylduafsláttur.
Fjölbreyttir
ferðamöguleikar.
PETTA EK3A BÍLAR
AÐKOSTA
Skoda Amigo er mjög falleg og stílhrein bifreið. Hún er
búin fjölda tæknilegra nýjunga og öryggió hefur verið
aukið til muna. Komió og skoóið þessa einstöku bifreið
' j
Sniðill hf. — Óseyri 8 — Sími 22255 Akureyri
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
Þl’ AL’GLÝSIR LM AI.LT
LAND ÞEGAR Þlí ALG-
LÝSIR I MORGLNBLAOIM