Morgunblaðið - 01.05.1977, Side 12
0 „Stærsta verkefnið er skipu-
lagning framtiðarsvæðis fyrir
hestamenn á Akureyri," sagði
Arni. „Við erum að láta skipu-
leggja nýtt svæði fyrir okkur í
landi Lögmannshlíðar en þar er
reiknað með að allir hestaeig-
endur á Akureyri geti fengið
aðstöðu. Þarna á að reisa hest-
hús, væntanlega einhvers kon-
ar félagsheimili og 800 metra
hlaupabraut. Er brýn þörf á því
að fá hlaupabraut, þvi núver-
andi braut á Eyjafjarðarbökk-
um er háð rennsli Eyjafjarðar-
ár og fer stundum undir vatn.
Einnig verður það vissulega
mikill áfangi fyrir hestamenn
hér í bænum að fá samastað á
einum stað þvi núna eru hest-
húsin á þremur aðskildum stöð-
um.
Hestamannafélagið Léttir
hefur ásamt öðrum hesta-
mannafélögum I nágrenni
Akureyrar útbúið mjög glæsi-
legt mótssvæði á Melgerðismel-
um inni í Eyjafirði. Það var vigt
með fjórðungsroóti í fyrra, sem
heppnaðist ákaflega vel. Þarna
er hægt að halda hestamót af
öllum stærðum. Þetta hafa ver-
ið mjög dýrar framkvæmdir og
allir okkar peningar hafa farið
f aðstöðuna á Melgerðismelum.
Nú er framkvæmdum lokið þar,
svo að við getum látið pening-
ana okkar í nýja hverfið í Lög-
mannshlíðarlandi, en það mun
vitaskuld kosta margar milljón-
ir að koma þar upp fyrsta
flokks aðstöðu.
Jafnhliða framkvæmdunum
þar verðum við að huga að gerð
reiðvega. Ágætir reiðvegir
liggja suður úr bænum. Hesta-
mannafélagið á jörð, sem heitir
Kaupangsbakki, þar sem eru 80
dagsláttur lands. Þangað eru
prýðilegir reiðvegir. Hins vegar
eru ómögulegar leiðir norður
úr bænum og höfum við hug á
því að semja við Vegagerðina
um að leggja góða reiðvegi sam-
hliða þvi, sem unnið verður að
hraðbrautarframkvæmdum
norðan við bæinn. Akureyring-
ar láta ekki hesta sína standa i
húsum. Þeir ríða mikið út og
nota hesta sina vel og nauðsyn-
legt er því að hafa góða reiðvegi
út úr bænum og þörfin verður
brýnni eftir þvi sem hesta-
mönnunum fjölgar hér um slóð-
ir.
Ekki fær hestamannafélagið
mikla styrki frá bænum, hálfa
milljón króna, sem mun vera
með þvi minnsta, sem varið er
til félagsstarfsemi hér i bæn-
um. Aftur á móti hefur bærinn
farið inn á anzi varhugaverða
braut með því að krefjast þess,
að menn þurfi að fá leyti til
þess að eiga hesta og þeim beri
að greiða sérstakt leyfisgjald til
bæjarins. Þetta teljum við
fáheyrt athæfi, sem sé á móti
landslögum og höfum við alveg
hunzað þessar nýju reglur. Við
ætlum að berjast til sigurs í
þessu máli.“
Árni
Magnússon
„Hestaeigendum hefur fjölgað geysilega hér á Akureyri
á undanförnum árum,“ sagði Árni Magnússon, formaður
Hestamannafélagsins Léttis á Akureyri, f samtali við
blaðamann Mbl. „Fyrir fimm árum voru 100 manns í
hestamannafélaginu en núna eru á þriðja hundrað manns
f félaginu og hestaeign Akureyringa er á fimmta hundrað
hestar.“
HESTAMÖNNUM FJÖLGAR SÍFELLT Á AKUREYRI:
„Nœsta verkefni aö skipu-
leggjaframtíöarsvœöi
ílandiLögmannshlFöar