Morgunblaðið - 01.05.1977, Side 25
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1977
57
fm: jjfflt,:, ...Wt;
ÍJff fjmé áili í
W m Sslil
+ Þegar Cirkus Schumann hélt
sfna sfðustu sýningu fyrir sjö
árum, benti allt til þess, að
þessi elsti cirkus í Evrópu væri
þar með úr sögunni. Ættarhöfð-
inginn Max Schumann, sem nú
er 60 ára, og kona hans Vivi, 51
árs, drógu sig í hlé til að njóta
Iffsins og hvfla sig á cirkus-
amstrinu. Max hefur alltaf haft
mikinn áhuga á seglbátum og
nú gafst tfmi til að sinna þvf
áhugamáli. Dóttirin Katja hef-
ur unnið f cirkusum bæði f
Frakklandi og Bretlandi en
hún er fræg fyrir hestasýning-
ar sfnar og hefur unnið mörg
verðlaun á þvf sviði. Sonurinn
Philip Oscar hélt einnig áfram
f cirkuslffinu og hefur m.a.
unnið hjá cirkus Benneweis í
Kaupmannahöfn sem margir
tslendingar sem heimsótt hafa
Kaupmannahöfn á síðari árum
kannast við. Fyrir tveim árum
gerðist hann flugþjónn hjá
SAS og hefur ferðast um heim-
inn þveran og endilangan. En
allan þennan tfma hefur Max
dreymt um að endurvekja cirk-
us Schumann. Og nú hefur f jöl-
skyldan komið sér saman um
að byrja aftur eftir sjö ára hlé.
Aðaluppistaðan verða loftfim-
leikar, hestar og trúðar. En
fallegir hestar hafa alltaf verið
stolt Schumann-fjölskyldunnar
og Katja og Philip fóru á hest-
bak áður en þau gátu gengið.
Það er mikil vinna sem liggur í
þvf að endurvekja svo viðamik-
ið fyrirtæki sem cirkus. Og f jöl-
skyldan hefur unnið frá
morgni til kvölds sfðustu mán-
uði við undirbúning þess. Það
þarf að ráða starfsfólk, æfa atr-
iðin, útvega búninga og ýmis
tæki og skipuleggja sýningar-
ferðir um Danmörku. Það er
Max sjálfur sem tekur allar
endanlegar ákvarðanir en frú
Vivi er gjaldkerinn. Og áður en
langt lfður leggur Schumann-
fjölskyldan land undir fót með
nýtfsku cirkustjald og allt sem
þvf tilheyrir. Sýningaratriðin
verða 18.
Á myndinni er Schu-
mannfjölskyldan tilbúin til að
leggja af stað. Þau eru talið frá
vinstri: Susanna, kona Philips
Schumann, með dóttur þeirra,
Theresu Max Schumann, dóttir-
in Katja, frú Vivi Schuman og
sonurinn Philip.
+ „Sfðustu ár hafa verið erfið,
en nú finnst mér að ég geti
byrjað aftur af fullum krafti.“
Það er danska leikkonan
vinsæla Bodil Steen sem tekur
svo til orða. Það var sumarið
1973 sem Bodil Steen stóð sfð-
ast á senunni, en hún hefur
verið öryrki sfðastliðin 5 ár
vegna geðkvilla. Hún hefur nú
fengið meðul sem hjálpa henni
og það eru liðin tvö ár sfðan
hún var sfðast lögð á sjúkrahús
vegna sjúkdómsins. „Ég veit f
dag hvað ég á að gera til að
halda sjúkdómnum f skefjum.
Eg tek þrjár litlar pillur á
hverju kvöldi og það má ekki
gleymast, ég hef slæma reynslu
af því,“ segir Bodil Steen. „Ég
er að búa mig undir að byrja að
leika aftur, maður lifir ekki
neinu lúksuslffi af örorkubót-
um. Eg vona bara að það finnist
einhvers staðar smá hlutverk
handa mér, ég hef starfað við
leikhúsið allt mitt lff og kann
ekkert annað. Einu sinni var
mín heitasta ósk að verða lög-
fræðingur, en nú er það of
seint, en Iffið er ekki búið þótt
maður sé orðinn 54 ára.“ Stóra
myndin er af Bodil Steen eins
og hún Iftur út f dag en sú
minni er tekin á leiksviði þegar
hún var upp á sitt besta.
Höfum kaupendur
að Bröyt X2 gröfum
Vagnhöfða 3, Reykjavík. sími 85265
Vörubifreiða- og vinnuvélasala
Dumovital
Trefjaefni
úr
jurtaríkinu
Dumovital
töflur
fást í
apótekum