Morgunblaðið - 01.05.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1977
61
u /-s 3T
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10 — 11
FRA MANUDEGI
um, er nú væru uppi með þjóð-
inni:
„Betra er að vera klaka klár,
og krafsa gadd til heiða.
En lifa mýldur öll sfn ár
undir hnakk og reyða.“
Þriðji maður á mælendaskrá
var Guðmundur H. Garðarsson og
talaði fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins. Mun þessi ræða G.H.G.
ein hin skeleggasta og rökfast-
asta, er heyrzt hefur lengi i
Alþingissölum, þegar rædd eru
varnarmál. Talaði G.H.G.
tæpitungulaust til Alþýðubanda-
lagsmanna eða kommúnista, sem
raunverulega er þeirra rétta
heiti, hvaða nöfnum, sem þeir
kjósa að kasta á sig i skreytinga-
skyni. Auðsýnt var að Alþýðu-
bandalagsmönnum leið illa undir
ræðu G.H.G. og þeir virtust þjást
af mikilli óværu. Upphrópunum
og framiköllum linnti lítt og virt-
ust þeir vera I algjöru uppnámi.
En Guðmundur H. Garðarsson
Iét slikt ekki á si fá
En Guðmundur H. Garðarsson
lét slíkt ekki á sig fá og sagði, að
jafngott væri að i eitt skipti
fengju þeir að heyra sannleikann
ómengaðan um sig sagðan úr
ræðustól sameinaðs Alþingi.
Ber Guðmundi H. Garðarssyni
miklar þakkir fyrir þessa ágætu
ræðu, sem í alla staði var prúð-
mannlega flutt, með skýrum rök-
um og sterkum, er kommar hrein-
legu glúpnuðu fyrir og urðu öld-
ingis að gjalti. Fer svo jafnan
þegar sannleikur með skýrum
rökum mætir lygaáróðri kommún-
ista um varnarmál tslendinga.
Tómas skáld Guðmundsson hef-
ur þetta að segja:
„En þeim var eðlisbundin sú
blóðsins
hneigð,
er bregst gegn ofrfki og nauðung
án
hiks og kvfða,
og þvf verður aldrei til samnings
við
ðréttinn sveigð,
að samvizkan ein er það vald, sem
frjálsir menn hlýða.“
T.G.
Reykjavík 29.4.
Þorkell Hjaltason."
Þessir hringdu . . .
% Enn um opinbera
þjónustu
G.E.:
— Það er að mörgu leyti merki-
leg lífsreynsla að koma inn á eina
stofnun hér í Reykjavík, skrifstof-
ur borgarfógetaembættisins.
Þangað kemur fjöldi manna á
hverjum degi til að leita eftir
veðbókarvottorðum, fá þinglýst
piöggum og ýmsu fleiru. Þetta er í
sjálfu sér ekkert merkilegt, en
það er sá mikli seinagangur, sem
þarna er oft, sem ég vil gera að
umtalsefni. Ég tek fram, að það er
alls ekki verið að sakast neitt við
starfsfólkið um þennan hægagang
heldur þá, sem ráða þessari stofn-
un, og þá spurningu vil ég bera
fram, hvort það væri ekki nokkur
leið að fá viðbótarstarfskraft að
þessari stofnun, til að létta á, ef
vera mætti að það yrði til þess að
flýta fyrir. Þeir, sem þurfa til
dæmis að fá veðbókarvottorð fyr-
ir bíla, geta þurft að bíða eftir
afgreiðslu i 10-15-30-45 mínútur
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
A Evrópumeistaramótinu i
Moskvu voru tefldar margar
frábærlega skemmtilegar og
spennandi skákir, eins og sæmir
jafnsterkum skákmönnum og þar
voru saman komnir. Skák þeirra
'eikfléttusnillinganna Tals
(Sovétríkjunum) og Velimirovic
(Júgóslaviu) sló þó öll met og
fara lok hennar hér á eftir. Það er
Tal, sem hefur hvítt og á leik
— afgreiðslu, sem tekur ekki
nema eina mínútu að framkvæma
I flestum tilvikum. Þegar menn
hafa beðið dágóða stund taka þeir
oft að ókyrrast og er furðulegt
hve starfsfólkið heldur hinni
„stóísku" ró sinni — kannski of
mikilli stundum. En ef t.d. ein
manneskja væri ráðin til að af-
greiða öll veðbókarvottorð fyrir
bíla, held ég að afgreiðslan myndi
ganga miklu hraðar fyrir sig, og
annað starfsfólk gæti einbeitt sér
að verkefnum og afgreiðslu, sem
að öllu jöfnu tekur lengri tima.—
Þessari spurningu er hér með
komið á framfæri, og það er ekki
svo galið að bæta við eins og ein-
um starfskrafti og skipuleggja
enn meira afgreiðsluna á þann
hátt. En hér kemur án efa margt
til og það er oft auðveldara um að
segja en í að komast.
% Um þrifnað hunda
Kona 1 Garðabæ.
— Eg get ekki orða bundizt yfir
smáatviki, sem ég varð vitni að
nýlega þegar hundaeigandi fór í
göngutúr með hund sinn. Eins og
allir vita þurfa hundaeigendur að
fara út með hunda sína til að
leyfa þeim að gera þarfir sínar og
þeim (hundaeigendunum) virðist
vera alveg sama um hvar þetta er
gert, eða svo sýndist mér þegar ég
sá hundaeiganda á kvöldgöngu
með hund sinn hér í hverfinu.
Það hlýtur að teljast frekar
óhreinlegt, svo ekki sé meira sagt.
að hægt skuli að leyfa hundunum
að gera þarfir sinar hvar sem er,
þar sem fólk fer um og börn eru
að leik. Hvað finnst lesendum um
það?
0 Athugasemd
1 Velvakanda í fyrradag var
nafnlausl bréf, sem fjallaði um
sjónvarpsviðtal, og hefur Vel-
vakanda verið bent á að þar hafi
verið komizt mjög ósmekklega að
orði, svo ekki sé meira sagt. Og
þar sem hér er um nafnlaust bréf
að ræða, vill Velvakandi við nan-
ari athugun eindregið taka undir
þá skoðun, án þess að ástæða sé til
að fjölyrða um þá hugsun, sem
flögraði að bréfritara, eins og
hann kemst að orði. Morgunblaðið
biður viðkomandi aðila afsökunar
og harmar slík bréfaskipti á
ábyrgð ritstjóra þess. En hér er
vonandi um að ræða ósmekkvísi
hins nafnlausa bréfritara og ann-
að ekki, enda getur öllum orðið á
að misrita hugsanir sínar, ekki
síður en mismæla sig í orði. Þess
skal að lokum getið, að
viðkomandi aðili hefur ekki óskað
eftir leiðréttingu eða afsökun, en
hún er þó fram borin hér með.
HOGNIHREKK VÍSI
Nei, Högni minn! Skelltu þér á hana!
S3? SlGGA V/GGA S ‘f/LVE&AU
a\\a-
Benidorm - kvöld
Skiphóli sunnudag kl. 19.00. Grísaveizla.
Stortunon Vinning»r 3 utanlandsfcrAir. I
:* ° . Sæmi og Didda — rokka
SKemmtiatriOI Baldur Brjánsson — töfra-
madur
Júlfus Brj&nsson — kynnir
Tfzkusýning — Modelsamtökin
Feróakynning
Sýndar verta myndir frí Benidorm og fertirnar I sumar
kynntar.
A eftlr leikur hljömsveitin DOMINO fyrir dansi.
Matarverð kr. 1*50. Bortapantanir I sfma 52502.
Feróamióstöóin hf.
Aöalstræti 9 Revkjavik
simi 11255
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
/rl AUGLÝSINGA-
SÍMINN ER:
22480
40. hxg6! IIgl+ 41. Kxgl al=D+
42. Kg2 Hér hugsaði Velimirovic
sig um í 52 mínútur fyrir biðleik
sinn, en fann enga vörn. 42. . ..
Bg7 gengur t.d. ekki vegna 43.
Df5 Db7 44. Bh5; Biðleikurinn
reyndist vera 42. ... Bf6, en
svartur gafst upp án frekari tafl-
mennsku, því að eftir 43. gxf7+
Kxf7 (43. . . . Kf8 44. Dh7 43. . . .
Kg7 44. Hg4+) 44. Bh5+ verður
hann mát.