Morgunblaðið - 22.05.1977, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.05.1977, Blaðsíða 39
Öllum brögðum beitt. (Le mouton enragé). Frönsk, 1974. Leikstjóri: Michel Deville. Aðalleikarar: Jean-Louis Trintignant, Romy Schneider, Jane Birkin, Jean-Pierre Cassel, Florinda Bolkan. Á síðustu árum hafa verið framleiddar ríflega 200 myndir árlega I Frakklandi. Gæði þessarar framleiðslu eru að sjálfsögðu misjöfn og sennilega stendur Michel Deville, leikstjóri þessarar myndar, aðeins rétt upp úr meðalmennskunni í franskri kvikmyndagerð. Deville gerði sína fyrstu mynd ásamt öðr- um 1958, en á árunum 1961 — 1 970 gerði hann 10 myndir. Frá 1971 hefur hann hins vegar aðeins gert 3 myndir og er Le mouton enragé nýjasta nynd hans. Engin mynda hans hefur ver- ið talin frábær, þó þær hafi yfirleitt hlotið fremur já- kvæða dóma. Ekki er mér kunnugt, um að önnur mynd eftir Deville hafi verið sýnd hér. Á þetta allt saman er minnst hér, vegna þess, að meðan ég horfði á myndina fór ég að velta því fyrir mér, hvers vegna þessi mynd væri sýnd hér á mánudags- sýningu. Frakkar framleiða ríflega 200 myndir á ári og þar af eru, þegar best lætur, 10 sýndar hér. Mánudags- myndir (eða þessar sérstöku mánudagssýningar) voru upphaflega hugsaðar til þess að sýna umtalsverðar ktfik- myndir, frá hinum ýmsu löndum, myndir, sem þrátt fyrir ótvíræð gæði þóttu ekki henta á almennar sýningar. Því miður hefur borið æ meir á því, að þær myndir, sem valdar hafa verið til sýninga á mánudögum hafa ekki stað- ist þessar kröfur. í þessu sambandi mætti til dæmis nefna allmargar franskar myndir frá árunum '73----- '75, sem hefðu verið betur að því komnar, að vera sýnd- ar hér en þessi mynd. Dæmi: Lacombe Lucien eftir Louis Malle, Sweet Movie eftir Dusan Makavejev, Stavisky eftir Alain Resnais, Themroc eftir Marco Ferreri, (höfundur La Grande Bouffe), Le Maman et la Putain eða Les Petites Amoureuses eftir Jean Eustache, sem gerði sýna fyrstu mynd '64 og nýtur nú æ meira álits, Vincent, Francois, Paul. . .et les autres eftir Claude Sauted, Le fantome de la liberté eftir Bunel, Les innocents aux mains sales eftir Chabrol, Céline et Julie vont en bateau eftir Jacques Rivette. L'homme sans Rod Steiger og Romy Schneider I mynd Chabrols, INNOCENTS WITH DIRTY HANDS. kvik mijnd /idcin Úr MES PETITES AMOUREUSES eftir Eustache. SIGURÐUR SVERRIR PÁLSSON 11 MMIJ- DAGS- Jean-Paul Belmondo (í miðju) I mynd Resnais, STAVISKY. IROG mouton enragé væri með afbrigðum léleg mynd. Svo er þó ekki, því hér er um að ræða nokkuð þokkalega mynd, án þess að hún sé sérstök á nokkurn hátt. í myndinni eru allmargir þekktir leikarar og hún er vafalítið gerð með orð ítölsku kvikmyndaframleiðendanna í huga, sem sögðu á alþjóð- legri kvikmyndaráðstefnu 1 967, að ,,það er miklu betra að segja minna við marga — en að reyna að segja miklu meira yfir auðum sætum". í myndmni er sagt frá banka- starfsmanni (Trintignant), sem dag einn hleypir í sig kjarki og gefur sig á tal við unga og fallega stúlku. Um kvöldið hittir hann vin sinn (Cassel), sem er bæklaður á fæti eftir bilslys og segir hon- um frægðarsöguna. Cassel lætur sér fátt um finnast en eggjar hann til dáða. Smám saman kemur i Ijós, að Cassel er farinn að stýra Trintignant algjörlega eftir vild, og hann lætur hann gera hluti, sem hann sjálfan dreymdi ef til vill um að gera en gat ekki. Hann ýtir Trintignant smám saman út i samkvæmislífið, skipar honum að kynnast fallegum stúlkum og ná sam- bandi við fokriká umsvifa- menn. Trintignant hlýðir möglunarlaust þó honum of- bjóði stundum, það sem hann þarf að leggja á sig. En Cassel nær takmarkinu, Tringnant verður fokrikur og leiknum er lokið. Cassel fremur sjálfsmorð. Le mouton enragé er gerð sem létt þjóðfélagsádeila og að meginefni svipar henni til myndar Claytons, Room at the Top (sýnd nýlega í sjón- varpinu), þó sú síðarnefnda sé öllu alvarlegri og mann- legri. Deville reynir hins veg- ar að skapa andrúmsloft óraunveruleika og firringar, bæði með því að láta leikar- ana sýna állka miklar tilfinn- OLLIIM BROOBUM BEITT Visage eftir George Franju og þannig mætti telja áfram, aðeins frá Frakklandi. En hvers vegna þessar myndir fremur en sú, sem nú er sýnd? kann einhver að spyrja. Það eru einkum tvær ástæður, sem leggja má til grundvallar. í fyrsta lagi, sú. Le Fantome de la liberté: hjúkrunarkona og munkar í mynd Bunuels. að flestar af þessum mynd- um eru gerðar af leikstjórum, sem þegar eru þekktir af fyrri myndum sínum hjá íslensk- um áhorfendum (Bunuel, Chabrol, Franju, Malle, Resnais og Ferreri) og það er alltaf áhugavekjandi að geta fylgst með þróun þeirra manna, sem taldireru standa fremst í listgreininni, frá einni mynd til annarrar. í öðru lagi sú, að það hefði verið nær að kynna verk manna, sem vekja sifellt á sér meiri athygli (Rivette, Eustache, Sautet og Makavejev, sem reyndar er júgóslavi, en gerði Sweet Movie í Frakklandi) og reyna síðan að halda áfram að sýna myndir eftir þessa menn, i stað þess að skjóta inn einni miðlungsmynd eftir mann, sem virðist vera farinn að minnka framleiðsluna og aldrei hefur náð þvi að verða þekktur utan heimalands síns. Ef þessar mánudagssýn- ingar sem þýða 15 til 16 myndir á ári, eiga að þjóna hinum upprunalega tilgangi sínum, verður að velja mynd- ir með einhverri fyrirhyggju og styðja valið einhverjum röksemdum. Þetta leiðir okk- ur að spurningu, sem gaman væri að fá svar við: Hver velur myndir til mánudags- sýnmga? Trúlega fást engin skýr svör við þessari spurn- ingu fremur en mörgum öðr- um, sem varpað hefur verið fram hér á síðunni i gegnum árin, en vonandi sér þó ein- hver sóma sinn í því að upp- lýsa mig og lesendur um þetta atriði og þá ef til vill einnig um það, hvers vegna þessi mynd var tekin til sýn- inga. Nú mætti ætla eftir þennan fyrirlestur um gæði mánudagsmynda, að Le ingar og brúður og jafnframt með hraðri atburðarás, mikl- um klippingum og óvenju- legum, örstuttum innskots- myndum á nokkrum stöðum, (brot úrsekúndu), sem fæstir munu festa augu á, en hjálpa til að rugla áhorfandann augnablik og skapa óöryggi. Samband Trintignant og Cassel minnir ef til vill á Dr. Jekyll og Mr. Hyde, eða að- ferðir Sören Kirkegárd, en Cassel er rithöfundur (eða leggur fyrir sig skriftir) og segist ætla að skrifa bók um reynslu Trintignant. Inn I miðri mynd spyr ein vinkona Trintignants hann að því, hvort hann hafi lesið siðustu bækur Cassels og kvartar undan þvl að þær séu skrítn- . ar. Ef til vill stafar firring myndarinnar af þvl að hún sé gerð upp úr endursögn Cass- els fremur en upplifun Trintignants? SSP. MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.