Morgunblaðið - 22.05.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977
23
A Ifons Hannesson
—Minningarorö
F. 3. ágúst 1900.
D. 13. mal 1977.
Mig langar að senda fáein
kveðjuorð við fráfall bróður míns
Alfonsar Hannessonar sem var
mér ávallt svo kær. Við vorum 8
systkinin, 3 dóu ung, elsti bróðir
okkar, Gunnar bóndi í Efrihlíð 1
Helgafellssveit, féll frá, langt fyr-
ir aldur fram frá 6 ungum börn-
um og þar af tvíburum á fyrsta
ári. Eftirlifandi kona hans Sofffa
Guðmundsdóttir frá Jónsnesi 1
sömu sveit, braust áfram með
miklum dugnaði til að koma upp
barnahópnum og er það allt
myndarfólk sem hefur komist vel
til manns.
Soffía varð fyrir mikilli sorg
þegar hún missti elstu dóttur sína
Jóhönnu frá manni og börnum
fyrir fáum árum, en hún hefur
tekið allri sinni erfiðu lffsbaráttu
með mikilli reisn, hún hefur notið
síðustu árin umhyggju barna
sinna enda verið mikil móðir og
félagi þeirra.
Foreldrar okkar voru Jóhanna
Þórunn Jónasdóttir frá Helgafelli
og andaðist hún frá okkur öllum
ungum, hafði hún legið rúmföst f
2 ár. Faðir okkar var Hannes
Andresson skipstjóri; hann dó af
slysförum 1919. Fórum við syst-
kinin því öll að vinna fyrir okkur
um fermingu, og hefur okkur öll-
um farnast vel og verið gæfusöm í
okkar lffi.
Alfons fór fljótlega eftir ferm-
ingu til Isafjarðar og gerðist sjó-
maður þar, hann naut hvarvetna
mikilla vinsælda enda duglegur
og eftirsóttur til vinnu, lundgóður
svo af bar og síkátur, hann var
söngvinn allt sitt líf og kunni mik-
ið af ljóðum og gamanvísum, trú-
maður mikill og lét hann fáa
sunnudaga fram hjá sér fara að
sækja kirkju, annars fylgdist
hann með messunni og söng sálm-
ana af innlifun með.
Hann kvæntist fyrir 50 árum
mestu greindar- og sómakorfu
Hansinu Kr. Hansdóttur. Hún ólst
upp f ögri við Isafjarðardjúp. Þau
byrjuðu búskap inni í djúpi, það
hét á Grundum. Þar stóð timbur-
hús og voru tvær fjölskyldur í því
og var gengið sitt inn f hvorn
enda. Ég minnist þess þegar ég
heimsótti þau þangað fyrst hvað
allt var hreint, eldhúsið niðri og
svefnloftið uppi og voru þá fædd
6 börnin af 7 svo ekki var gólf-
rýmið mikið enda hafst að mestu
við í eldhúsinu og þar var nota-
legt og aldrei þröngt enda ekki
gerðar miklar kröfur um
fermetrafjölda, og held ég að í
flestum tilfellum hafi börn ekki
síður orðið góðir þjóðfélagsþegn-
ar en nú.
Fjölskyldan fluttist siðan til
Bolungarvíkur og bjó þar nokkui
ár, og fór þá áð batna í búi, börnin
farin að hjálpa til. Þaðan fluttust
þau til Reykjavíkur. Áttu þau
miklu barnaláni að fagna, og hafa
þau öll fengið nokkra menntun.
Þau eru Hannes blikksmiður,
giftur Halldóru Kristjánsdóttur,
Benedikt, kennari við Sjómanna-
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
\n.nsi\<; \
SÍMIW i:U:
22480
skólann í Rvík, giftur Katrfnu
Jónsdóttur; Þórir arkitekt, giftur
Margréti Vigfúsdóttur, þau búa í
Bandarikjunum; Garðar járn-
smiður, giftur Elfnu Skarphéðins-
dóttur; Gunnhildur Sofffa, gift
Ólafi Stefánssyni rafvirkja; Asta
Sigrfður gift Alfreð Harðarsyni
iðnskólakennara; Aðalheiður
Kristfn, gift Kristjáni Ásmunds-
syni bónda í Ferjunesi í Villinga-
holtshr. Barnabörnin eru 18 tals-
ins. Konu sfna missti hann 1970
og varð það mikið áfall fyrir hann
og má segja að upp frá þvi hafi
heilsu hans farið að hraka. Hann
vann mörg sfðustu árin hjá Vita-
og hafnamál í Kópavogi, þar til
heilsan bilaði. Átti hann mjög
erfitt með að sætta sig við a verða
að hætta að vinna. Hann dvaldi
um tveggja ára skeið að mestu
leyti hjá dóttur sinni Ástu Sigrfði
og manni hennar Alfreð og naut
Stúdenta-
skeiðin
1977
er komin
Haildór
Skólavörðustig.
hann frábærrar umhyggju hjá
þeim.
Að leiðarlokum er margs að
minnast frá fyrstu dögum og öll
árin sem Alli bjó fyrir vestan, en
aldrei slitnaði samband okkar og
þar kom til hans góða kona, hún
var dugleg að skrifa. Hélst þannig
sambandið. Svo þegar börnin fóru
að koma til Rvfkur að mennta sig,
síðan eftir að þau fluttust i bæinn
þá var sjálfsagt að fara um hverja
helgi til Alla bróður og var alltaf
jafngóð og ánægjuleg heimsókn-
in. Dóttir mín Hafdfs átti þar vini
sem systurnar voru og margar
voru næturnar sem hún gisti hjá
þeim og var þá oft glatt á hjalla.
Þakkar hún allar ánægjustundir
sem hún átti á heimilinu. Siðustu
árin, þegar ég kom i heimsókn inn
f Dalaland, þá var vaninn að taka
lagið og þá mundi AUi allar gömlu
gamanvisurnar frá þvf við vorum
börn, og siðast þegar hann var ,1
vetur í Hátúninu gat hann sungið
svo allir höfðu gaman af. Nú er
þessu lokið hérna megin en ég
trúi að vel verði á móti honum
tekið.
Síðustu mánuðina var Alfons á
hjúkrunardeild Hrafnistu og var
vel að honum hlúð þar og eru
aðstandendur þakklátir fyrir það.
Að endingu kveðjum við syst-
urnar þrjár sem eftir lifum bróð-
ur okkar og þökkum honum allt
og biðjum honum allrar Guðs
blessunar.
Sigrfður Hannesdóttir.
'tJk
Paö eina setn
húnvildi...
var -elna saumavél.vegna:
>«» Hagkvæm í rekstri,
hagkvæm í veröi.
Sérstaklega lágvær
Saumar auöveldlega
yfir títuprjóna og er
því þræöing óþörf.
Sjálfvirk hnappagöt
og festir á tölur.
Jafnvel rýjar.
Saumar allar þykktir af
efnum, öll hugsanleg
mynstur og með
teygjuþræði.
.
.
mqqan I keppni
f f
33
T T
I&ÍHJM2Í1AH l UJ2ÖI3HDHAH I
unilimisflagBlél
Í29ni6ni6ÍJl92 6
22£í \A ,iem .íi nnig6bunnu2
7 7
I HARGREIÐSLU & HARSKURDI
Félagsheim ilinu
á Seltjarnarnesi
Sunnudaginn 22. maí, kl. 1322