Morgunblaðið - 22.05.1977, Page 23

Morgunblaðið - 22.05.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1977 23 A Ifons Hannesson —Minningarorö F. 3. ágúst 1900. D. 13. mal 1977. Mig langar að senda fáein kveðjuorð við fráfall bróður míns Alfonsar Hannessonar sem var mér ávallt svo kær. Við vorum 8 systkinin, 3 dóu ung, elsti bróðir okkar, Gunnar bóndi í Efrihlíð 1 Helgafellssveit, féll frá, langt fyr- ir aldur fram frá 6 ungum börn- um og þar af tvíburum á fyrsta ári. Eftirlifandi kona hans Sofffa Guðmundsdóttir frá Jónsnesi 1 sömu sveit, braust áfram með miklum dugnaði til að koma upp barnahópnum og er það allt myndarfólk sem hefur komist vel til manns. Soffía varð fyrir mikilli sorg þegar hún missti elstu dóttur sína Jóhönnu frá manni og börnum fyrir fáum árum, en hún hefur tekið allri sinni erfiðu lffsbaráttu með mikilli reisn, hún hefur notið síðustu árin umhyggju barna sinna enda verið mikil móðir og félagi þeirra. Foreldrar okkar voru Jóhanna Þórunn Jónasdóttir frá Helgafelli og andaðist hún frá okkur öllum ungum, hafði hún legið rúmföst f 2 ár. Faðir okkar var Hannes Andresson skipstjóri; hann dó af slysförum 1919. Fórum við syst- kinin því öll að vinna fyrir okkur um fermingu, og hefur okkur öll- um farnast vel og verið gæfusöm í okkar lffi. Alfons fór fljótlega eftir ferm- ingu til Isafjarðar og gerðist sjó- maður þar, hann naut hvarvetna mikilla vinsælda enda duglegur og eftirsóttur til vinnu, lundgóður svo af bar og síkátur, hann var söngvinn allt sitt líf og kunni mik- ið af ljóðum og gamanvísum, trú- maður mikill og lét hann fáa sunnudaga fram hjá sér fara að sækja kirkju, annars fylgdist hann með messunni og söng sálm- ana af innlifun með. Hann kvæntist fyrir 50 árum mestu greindar- og sómakorfu Hansinu Kr. Hansdóttur. Hún ólst upp f ögri við Isafjarðardjúp. Þau byrjuðu búskap inni í djúpi, það hét á Grundum. Þar stóð timbur- hús og voru tvær fjölskyldur í því og var gengið sitt inn f hvorn enda. Ég minnist þess þegar ég heimsótti þau þangað fyrst hvað allt var hreint, eldhúsið niðri og svefnloftið uppi og voru þá fædd 6 börnin af 7 svo ekki var gólf- rýmið mikið enda hafst að mestu við í eldhúsinu og þar var nota- legt og aldrei þröngt enda ekki gerðar miklar kröfur um fermetrafjölda, og held ég að í flestum tilfellum hafi börn ekki síður orðið góðir þjóðfélagsþegn- ar en nú. Fjölskyldan fluttist siðan til Bolungarvíkur og bjó þar nokkui ár, og fór þá áð batna í búi, börnin farin að hjálpa til. Þaðan fluttust þau til Reykjavíkur. Áttu þau miklu barnaláni að fagna, og hafa þau öll fengið nokkra menntun. Þau eru Hannes blikksmiður, giftur Halldóru Kristjánsdóttur, Benedikt, kennari við Sjómanna- EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU \n.nsi\<; \ SÍMIW i:U: 22480 skólann í Rvík, giftur Katrfnu Jónsdóttur; Þórir arkitekt, giftur Margréti Vigfúsdóttur, þau búa í Bandarikjunum; Garðar járn- smiður, giftur Elfnu Skarphéðins- dóttur; Gunnhildur Sofffa, gift Ólafi Stefánssyni rafvirkja; Asta Sigrfður gift Alfreð Harðarsyni iðnskólakennara; Aðalheiður Kristfn, gift Kristjáni Ásmunds- syni bónda í Ferjunesi í Villinga- holtshr. Barnabörnin eru 18 tals- ins. Konu sfna missti hann 1970 og varð það mikið áfall fyrir hann og má segja að upp frá þvi hafi heilsu hans farið að hraka. Hann vann mörg sfðustu árin hjá Vita- og hafnamál í Kópavogi, þar til heilsan bilaði. Átti hann mjög erfitt með að sætta sig við a verða að hætta að vinna. Hann dvaldi um tveggja ára skeið að mestu leyti hjá dóttur sinni Ástu Sigrfði og manni hennar Alfreð og naut Stúdenta- skeiðin 1977 er komin Haildór Skólavörðustig. hann frábærrar umhyggju hjá þeim. Að leiðarlokum er margs að minnast frá fyrstu dögum og öll árin sem Alli bjó fyrir vestan, en aldrei slitnaði samband okkar og þar kom til hans góða kona, hún var dugleg að skrifa. Hélst þannig sambandið. Svo þegar börnin fóru að koma til Rvfkur að mennta sig, síðan eftir að þau fluttust i bæinn þá var sjálfsagt að fara um hverja helgi til Alla bróður og var alltaf jafngóð og ánægjuleg heimsókn- in. Dóttir mín Hafdfs átti þar vini sem systurnar voru og margar voru næturnar sem hún gisti hjá þeim og var þá oft glatt á hjalla. Þakkar hún allar ánægjustundir sem hún átti á heimilinu. Siðustu árin, þegar ég kom i heimsókn inn f Dalaland, þá var vaninn að taka lagið og þá mundi AUi allar gömlu gamanvisurnar frá þvf við vorum börn, og siðast þegar hann var ,1 vetur í Hátúninu gat hann sungið svo allir höfðu gaman af. Nú er þessu lokið hérna megin en ég trúi að vel verði á móti honum tekið. Síðustu mánuðina var Alfons á hjúkrunardeild Hrafnistu og var vel að honum hlúð þar og eru aðstandendur þakklátir fyrir það. Að endingu kveðjum við syst- urnar þrjár sem eftir lifum bróð- ur okkar og þökkum honum allt og biðjum honum allrar Guðs blessunar. Sigrfður Hannesdóttir. 'tJk Paö eina setn húnvildi... var -elna saumavél.vegna: >«» Hagkvæm í rekstri, hagkvæm í veröi. Sérstaklega lágvær Saumar auöveldlega yfir títuprjóna og er því þræöing óþörf. Sjálfvirk hnappagöt og festir á tölur. Jafnvel rýjar. Saumar allar þykktir af efnum, öll hugsanleg mynstur og með teygjuþræði. . . mqqan I keppni f f 33 T T I&ÍHJM2Í1AH l UJ2ÖI3HDHAH I unilimisflagBlél Í29ni6ni6ÍJl92 6 22£í \A ,iem .íi nnig6bunnu2 7 7 I HARGREIÐSLU & HARSKURDI Félagsheim ilinu á Seltjarnarnesi Sunnudaginn 22. maí, kl. 1322

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.