Morgunblaðið - 06.07.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JULl 1977
3
„Veggurinn
tættist í
sundur”
—sagði einn starfsmanna Sölufélagsins
sem var í húsinu þegar sprengingin varð
SJÖ HLAÐNIR milliveggir
voru sundurtættir og alls kyns
annað brak lá á víð og dreif um
gólfin á stórum hluta neðri
hæðar húss Sölufélags garð-
yrkjumanna þegar blm. og
ljósm. Morgunblaðsins komu á
vettvang stuttu eftir sprenging-
una þar í gærmorgun. Starfs-
menn voru þegar byrjaðir að
hreinsa til, en vart sá högg á
vatni, svo miklar voru skemmd-
irnar. Engar skemmdir urðu þó
á efri hæð hússins en þar er til
húsa auk Sölufélagsins Ferða-
skrifstofa ríkisins.
Eirikur Björnsson, sautján
ára sumarstarfsmaður Sölu-
félagsins, slasaðist nokkuð á
fæti þegar sprengingin varð, en
var allhress þegar blm. ræddi
við hann i gær á heimili hans.
Hann kvaðst hafa tognað i ökla
og meitt sig á fingri og taldi
hann meiðsli sín léttvæg. Hann
sagði að um hálftíu-leytið i gær-
morgun hefði hann verið að
flytja nokkuð af gúrkum á
handvagni þegar gífurlegur
hvellur heyrðist og veggur í
u.þ.b. þriggja metra fjarlægð
frá honum tættist í sundur og
hefði einn molinn úr veggnum
líklega farið í fótinn á sér.
Eiríkur var fluttur á Slysavarð-
stofuna, en fékk að fara heim
eftir að búið var að binda um
ökklann og fingurinn.
Broddi Kristjánsson, sextán
ára sumarmaður hjá Söiufélag-
inu, kvaðst hafa verið staddur
fyrir utan þann stað þar sem
sprengingin varð ásamt Eiriki
og lýsti hann atburðinum á
sama hátt.
Hrafnhildur Ólafsdóttir,
starfsmaður Ferðaskrifstofu
ríkisins, sagði svo frá að hún
hefði verið að setjast við skrif-
borðið i skrifstofu sinni, sem er
beint yfir herbergi þvi, sem
bruggtækin voru i, þegar geysi-
legur dynkur heyrðist. Hefði
hún í fyrstu haldið að um jarð-
skjálfta væri að ræða, en þegar
hún hefði litið út um gluggann
og séð rúðubrotin hefði hún séð
hvar hvellurinn átti upptök sin.
Hún sagði að eftir sprenging-
una hefði fundizt mjög sterk og
einkennileg lykt og hefði fólk
haldið að um ammóníak kynni
að vera að ræða og flýtt sér út.
Ammóníak og freon eru notuð í
kælivélar sem Sölufélagið
notar til að kæla geymsluhús-
næði fyrir ávexti og eru slíkar
vélar einníg notaðar í frystihús-
um. Þar sem þessar kælivélar
eru einmitt þar sem sprenging-
in varð, var í fyrstu talið að
bilun í þeim hefði valdið henni,
en brátt kom i ljós að svo var
ekki.
Eirfkur Björnsson. Veggur sem hann stóð við tættist f sundur f
sprengingunni.
(Ljðsm. Kristinn).
Þessi loftræstistokkur, sem starfsmaður Sölufélagsins stendur við,
þeyttist um 20 m vegalengd frá húsinu við sprenginguna. Hann var
áður á einum glugganna f baksýn.
(Ljósm. Kristinn).
Myndin er tekin þaðan, sem bruggtækin stóðu og má á henni sjá
kælivélarnar og inn f einn kæliklefann f gegnum gatið á veggnum.
(Ljósm. Kristinn).
Þriðja
„áttan”
skrásett
hérlendis
I UNDIRBUNINGI er að skrá-
setja hér á landi þriðju og siðustu
DC-8-63, sem Flugleiðir keyptu
hinn 1. október s.l. og flýgur aðal-
lega á flugleið Ari Bahama. Segir
í Flugfréttum, starfsmannablaði
Flugleiða, að þotan beri nú skrá-
setningarnúmerið N-8630, en ís-
lenzka skrásetningarnúmerið yrði
sennilega TF-FLC.
Tekið við
framlögum
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar
hefur nú sent hálfa milljón króna
til hjálparstarfs í Sambíu og
Botswana, þar sem fjöldi flótta-
manna býr við erfiðar aðstæður i
flóttamannabúðum. Ekki verður
þó ráðizt í skipulega söfnun af
hálfu stofnunarinnar, en tekið
verður á móti framlögum frá
þeim sem leggja vilja þessu mál-
efni lið.