Morgunblaðið - 06.07.1977, Síða 32
AUGLÝSINGASIMINN EH:
22480
Jí'oreunblntiiíi
jftgpiintMitMfr
AUÍÍLÝSINÍÍASÍMINN EH:
22480
JHoraimblatúö
MIÐVIKUDAGUR 6. JULl 1977
Útreikningar á breytingum
kauptryggingatímabils:
Mánaðarlegt uppgjör
getur aukið tekjur
umallt að 4,1%
ÞJOÐHAGSSTOFNUN hefur á
grundvelli tölvuefnis Fiskifflags-
ins um aflaverðmæti og úthald
bátaflotans eftir mánuðum fyrir
árið 1976 metið heilársfjárhæðir
kauptryggingar, heildarhluta og
virkra launagreiðslna fyrir alla
báta 12 til 500 brúttórúmlestir að
stærð, en þeir eru 900 talsins. Er
þá annars vegar miðað við þá
skiptingu f kauptryggingatlma-
bil, sem tfðkazt hefur, og hins
vegar tekin dæmi um styttingu'
kauptryggingatfmabilanna f einn
mánuð, tvo mánuði eða þrjá mán-
uði, sem af slfkum breytingum
leiddi.
Athugunin var framkvæmd
þannig, að bátunum var skipt í 7
stærðarflokka í samræmi við
siðastgildandi kjarasamninga.
Innan hvers stærðarflokks var
bátunum síðan skipt f þrjá hópa,
þ.e. kauptryggingabáta, afla-
launabáta og aflahlutabáta. t stór-
um dráttum fór flokkunin þannig
fram, að bátur var talinn kaup-
Þorlákshöfn. 5. júlf
ÞAÐ hörmulega slys vildi hér til
um sjöleytið f gærkvöldi að tveir
fimm ára drengir urðu undir
sandhlassi, sem sturtað var af
vörubifreið og urðu afleiðingarn-
ar þær að annár drengurinn, Ingi-
mundur Olafsson, Eyjahrauni 11,
lézt.
Vörubifreiðarstjórinn mun
einskis hafa orðið var og ók hann
á brott. Leikfélagi Ingimundar
hljóp til móður sinnar og sagði
tryggingabátur, ef hásetahlutur
var lægri en kauptrygging á við-
komandi kauptryggingatímabili.
Bátur var talinn aflalaunabátur,
ef hásetahlutur var hærri en hálf
kauptrygging, en lægri en full
kauptrygging að viðbættum
16,6%. Allir aðrir bátar voru
flokkaðir sem aflahlutabátar.
Fyrir hvern þessara bata var sið-
an reiknuð kauptrygging og
heildarhlutur og að auki aflalaun
fyrir aflalaunabáta. Þessir reikn-
ingar eru reistir á tölum Fiskifél-
agsins um áhafnastærð og út-
haldsdagafjölda auk aflaverð-
mætis, en Þjóðhagsstofnun hefur
sett upp reikniforsendur fyrir
alla launareikninga á grundvelli
kjarasamninga.
I útreikningunum eru virkar
launagreiðslur í núgildandi kerfi
tryggingatímabils, sem er frá 1.
jánúar til 15. maí, frá 15. mái til
15. september og frá 15. sept. til
ársloka, í heild 6.824 milljónir
Framhald á bls. 18
henni að stígvélin hans hefðu
festst í sandinum. Fór hún á stað-
inn og fann þá Ingimund grafinn
í sandinn. Drengurinn Var strax
fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi og
fóru hjúkrunarkonan í Þorláks-
höfn, Lára Lárusdóttir, og Sigurð-
ur Jónsson hafnarstjóri með biln-
um og gerðu þau allt sem i þeirra
valdi stóð til þess að bjarga lífi
drengsins, en þær tilraunir voru
árangurslausar.
—Ragnheiður.
Bruggtækin voru í eigu tveggja
starfsmanna Sölufélagsins og
voru þau i litlu herbergi þar sem
var áður salerni, en það hafði
ekki verið notað síðan að nýrri og
betri aðstaða fyrir starfsmenn var
tekin í notkun fyrir nokkrum ár-
um. Það hafði því verið tekið burt
og skapaðist þá ónotað læst her-
bergi, sem aldrei var gengið um.
Kristinn M. Gunnarsson hjá
Öryggiseftirliti ríkisins kom á
staðinn skömmu eftir að spreng-
ingin varð. Sagði hann að brugg-
tækin hefðu þá enn verið í gangi.
Kristinn sagði að tækin hefðu ver-
ið þannig, að rafmagnshitalögn
var komið fyrir á botni mjólkur-
brúsa og hitastillir var efst I hon-
um, sem stjórnaði þvi að alltaf
héldist rétt hitastig i brúsanum.
Úr mjólkurbrúsanum lá leiðsla i
gegnum kælikerfi og siðan ofan í
ilát. Kristinn sagði ennfremur að
leifar hefðu sézt af ýmsum stór-
um ílátum, bæði úr plasti og gleri
og hefðu þetta verið allafkasta-
mikil eimingartæki.
Rannsóknarlögreglan tók tækin
í sina vörzlu og fengust þær upp-
lýsingar um þau þar, að á þeim
hefði ekki verið neinn öryggis-
ventill.
Tjónið, sem hlauzt af spreng-
ingunni, er lauslega áætlað að
muni nema um einni milljón
króna.
Kartöflur
hækka um
rúml. 16%
Landbúnaðarráðuneytið hef-
ur ákveðið nýtt verð á kartöfl-
um og svarar það til rúmlega
16% hækkunar á útsöluverði
kartaflna frá þvi að verðið var
ákveðið siðast. Að réttu hefði
nýtt verð á kartöflum átt að
taka gildi, þegar nýjar, italskar
kartöflur komu á markaðinn
fyrir skömmu en ákveðið var
að selja þær fyrst um sinn á
sama verði og islenzku kar-
töflurnar. Innkaupsverð
ítölsku kartaflnanna var
hærra en verðið á þeim ís-
lenzku og er verðhækkunin nú
nokkru meiri á kartöflunum
Framhald á bls. 18
Lóguðu
minkalæðu
og yrðlingum
Stykkishólmi — 5. júlí.
BÍLSTJÓRI héðan úr Stykkis-
hólmi ásamt hjónum úr Helga-
fellssveit lóguðu minkalæðu með
sjö yrðlingum s.l. föstudagskvöld.
Voru þau á leið úr Grundarfirði
áleiðis til Stykkishólms i vörubif-
reið og þegar komið var á móts við
bæinn Eiði óku þau fram á minka-
læðu með sjö yrðlinga. Ekkert
Framhald á bls. 18
„Þessir sigrar gefa mér
þægilegan byr í seglin”
—segir Kortsnoj sem setti fram kröfu
um að fá að tefla undir sjóræningjafána
„Auðvitað er ég ánægður með þessa byrjun, en ég geri mér Ifka
Ijóst, að andstæðingur minn á eftir að sýna á sér sterkari hliðar, en
hann hefur gert i þessum tveimur fyrstu skákum," Viktor Kortsnoj,
er Mbl. ræddi við hann í gær, eftir að Polugaevsky hafði hringt í
Lothar Schmid, aðaldómara, og tilkynnt að hann gæfi aðra einvígis-
skákina án þess að tefla hana frekar. „Þessir sigrar mínar eru ef til
vill svolítil heppni, en þó segir aðstoðarmaður minn, Keene, að ég
hafi teflt aðra skákina betur en áður hefur sézt i þessum einvfgjum.
En hvað sem þvi Ifður þá gefa þessir sigrar mér þægilegan byr f
seglin."
við Petrosjan vorum persónu-
legir fjandmenn, þá var per-
sónulegur vinskapur með
okkur Polugaevsky hér áður
fyrr, þannig að það hefur senni-
lega einhver áhrif á hann að
vera að virða mig í engu, sam-
kvæmt fyrirskipunum sovézkra
stjórnvalda."
Kortsnoj sagði, að sér kæmi
nokkuð á óvart, hversu mistæk-
ur Polugaevsky hefði verið i
þessum tveimur fyrstu skákum.
„En hann er undir voðalega
þungri pólitískri pressu, því
honum er auðvitað ætlað það,
sem Petrosjan mistókst; að
sigra mig í einvigi." Og meðan
Kortsnoj
Þegar Mbl. spurði Kortsnoj,
hvort andrúmsloftið í Evian
væri jafn kalt og þvingað og var
í einvígi þeirra Petrosjans,
svaraði hann neitandi. „Mér lið-
ur miklu betur hér. Eins og ég
sagði áðan vorum við Poluga-
evsky kunningjar áður fyrr og
ég þekki líka flesta hans að-
stoðarmenn. Og þó að þeir láti
sem þeim sé ekkert um mig
gefið, þá veit ég að það er póti-
tík, en ekki persónulegt hatur.
Það kom til dæmis ekki til
greina, að við Petrosjan tækj-
umst í hendur, en fyrir mér
horfði málið allt öðru vísi við,
þegar Polugaevsky á í hlut.
Þess vegna bar ég fram þá
fyrirspurn við aðaldómara ein-
vfgisins, Lothar Schmid, hvort
Polugaevsky gæti ekki fallizt á
það að við tækjumst I hendur,
eins og skákmanna er siður.
Þeir þurftu svolitinn tima til að
svara þessu; efalaust hafa þeir
þurft að hringja til Moskvu og
Framhald á bls. 18
Banaslys í
Þorlákshöfn
Þannig var umhorfs á neðri hæð húss Sölufélags garðyrkjumanna eftir sprenginguna i gærmorgun.
(Ljósm. Kristinn).
Mikið tjón á húsi Sölufélags garðyrkjumanna;
Bruggtæki starfsmanna
völd ad sprengingunni
(Sjá myndir og viðtöl á bls. 3).
BRUGGTÆKI ollu mjög öflugri sprengingu, sem átti sér stað á neðri
hæð húss Sölufélags garðyrkjumanna i gærmorgun. Sprengingin var
svo öflug að sjö hlaðnir milliveggir hrundu og margar rúður brotnuðu
viðs vegar um neðri hæð hússins. Tveir ungir piltar voru að störfum í
nánd við staðinn þar sem sprengingin varð og slasaðist annar þeirra
litillega þegar veggurinn, sem þeir stóðu við hrundi. Er það hin mesta
mildi að ekki urðu frekari meiðsli á fólki, en milli 15 og 20 manns
vinna á þessum stað f húsinu og áttu starfsmenn oft leið framhjá þeim
herbergjum, sem sprengingin varð i.