Morgunblaðið - 14.08.1977, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. AGÚST 1977
Kísiliðjan við Mývatn i fullum gangi
(Ijósmynd Mbl. Sighvatur Blöndahl)
Markadur fyr-
ir kísilgúr er
nú m jög góður
— VIÐ munum í lok þessa
mánaðar Ijúka við þær viðgerð-
ir, sem nauðsynlega þurfti að
framkvæma á tveimur af þrem-
ur þróm verksmiðjunnar eftir
jarðhræringarnar sem urðu hér
í vor, sagði Vcsteinn
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar við
Mývatn, er Morgunblaðið
ræddi við hann í síðustu viku.
— Þessar viðgerðir hafa
gengið fremur hægt, þvi þegar
ein sprunga hefur verið þétt
hefur sú næsta komið í ljós, en
við vonum að okkur takist að
Ijúka þessum viðgerðum nú í
mánuðinum. Þá ættum við líka
að standa jafn vel að vigi og
fyrir jarðhræringarnar í vor.
Nú telja jarðvisindamenn að
einhverjar jarðhræringar séu í
vændum í haust. Eruð þið ekki
hræddir um að sama sagan
endurtaki sig þegar þrærnar
eru loksins komnar í samt lag?
— Við erum nú að leyfa okkur
að vera bjartsýnir, þar sem
samkvæmt upplýsingum jarð-
vísindamanna eru töluverðar
líkur fyrir því að næstu hrinur
verði ekki eins miklar, vegna
þess að svæðið færist til. En
auðvitað erum við alls ekki
lausir við ótta um skemmdir
þegar þetta dynur yfir.
Hvernig er markaðurinn í
heiminum í dag, fyrir kísilgúr?
— Hann er bara nokkuð góður,
með því betra sem gerist. Okk-
ar stærstu viðskiptavinir eru í
dag Vestur-Þjóðverjar en við
seljum einnig til annarra
Evrópulanda bæði austantjalds
og vestan.
Að lokum sagði Vésteinn að
ef þeir yrðu heppnir þegar jarð-
hræringarnar gengju yfir
mætti segja að þeir væru orðnir
ágætlega i sveit settir og þaðsízt
verr en fyrir skemmdirnar í
vor.
r
Islandsmótið í handknattleik:
Úrslitaleikurinn í dag
milli Vals og Víkings
ÚRSLITAKEPPNI Islandsmöts-
ins í handknattleik utanhúss fer
fram vð Austurbæjarbarnaskól-
ann í Reykjavík í dag, sunnudag.
A meðfylgjandi mynd sést Jón
Karlsson fyrirliði Vals sækja að
marki Ármenninga á föstudags-
kvöldið.
Fjórir Norðmenn keppa í
rathlaupi á Hallormsstað
í DAG taka útlendingar í
fyrsta sinn þátt í svo-
nefndu rathlaupi á tslandi.
Keppt verdur í Hallorms-
staðarskógi og þangað eru
mættir fjórir keppendur
frá Noregi, með heims-
meistarann í greininni í
fararborddi. Norðmenn-
irnir komu til landsins f
gær og héldu austur á land
í gærmorgun.
Að sögn Helga Bovim,
sem er fararstjóri hópsins,
er Hallormsstaðarskógur
eitthvert ákjósanlegasta
svæði sem til er til að
keppa í þessari grein, en
Bovim sá um gerð
nákvæms korts af Hall-
ormsstaðarskógi í vor.
Norðmennirnir fóru á
æfingu í Heiðmörk í fyrra-
kvöld og áður en þeir fóru
þangað tók RAX þessa
mynd af þeim fyrir utan
Hótel Esju. í hópnum eru
Egil Johansen, sem varð
INNLENT
heimsmeistari er keppt var
í Skotlandi í fyrra, en hann
er 26 ára, Svein Jacobsen
sem varð nr. 3 á heims-
meistaramótinu, Linda
Verde, en hún varð í f jórða
sæti á heimsmeistaramót-
inu 1974, og hefur fimm
sinnum orðið norskur
meistari, Anne Berit Eid,
sem er Norðurlandameist-
ari og hefur 6 sinnum orðið
unglingameistari Noregs,
auk þess er hún er Noregs-
meistari í göngu kvenna,
Öyvind Mjöen, sem er
landsliðsþjálfari Norð-
mann í rathlaupi, en hann
varð Norðurlandameistari
1965. Helgi Bovim er í
stjórn Rathlaupssambands
Noregs, auk þess sem hann
er starfandi blaðamaður í
Osló.
1 sumar hafa staðið yfir viðgeróir og breytingar á húsi Félags einstæðra foreldra í Skerjafirði; sem ætlað
er sem neyðarhúsnæði þegar fullbúið verður. Unnið hefur verið að því að klæða húsið utan og senn
verður byrjað á rishæð. Inni hefur verið unnið við að standsetja kjallara, og stúka hæðirnar tvær niður I
litlar íbúðir. Ljósm. Mbl. Ól. K. Magn.
Riðlakeppni mótsins lauk á
föstudagskvöld og fóru leikar
þannig að Valur bar sigur úr být-
um í A-riðli, vann alla sína leiki
og hlaut 8 stig. 1 öðru sæti urðu
Haukar með 6 stig, FH hlaut 4
stig, Armann 2 stig og ÍR. I B-riöli
hlutu Víkingur og Fram jafnmörg
stig eða 5, KR hlaut 2 stig og HK
ekkert stig.
í B-riðlinum réð markahlutfall
því hvort Víkingur og Fram færu
í úrslit og hafði Víkíngur þar
vinninginn og mætir því Val í
úrslitaleik mótsins klukkan 17.15
í dag. Þessi tvö lið hafa verið í
nokkrum sérflokki i handknatt-
leiknum undanfarna mánuði og
leikur því vart vafi á því að úr-
slitaleikurinn verður höfku-
spennandi. A undan úrsiitaleikn-
um leika Haukar og Fram um
bronsverðlaunin og hefst sá leik-
ur kiukkan 16.
Skemmtiferð Hvat-
ar n.k. laugardag
HVÖT, félas sjálfstæðis-
kvcnna, fer í skemmtiferd
n.k. laugardag, 20. ágúst.
Lagt verður af stað frá Valhöll,
Bolholti 7, kl. 9 f.h. Farið verður
sem leið liggur austur að Selfossi
og Mjólkurbú Flóamanna skoðað.
Þá verður ekið að Laugarvatni og
þar snæddur heitur hádegisverð-
ur. Síðan verður haldið í Þjórsár-
dal, þar sem Sögualdarbærinn
verður m.a. skoðaður.
Úr Þjórsárdal verður ekið niður
Hreppa, um Biskupstungur með
viðdvöl í Skálholti og síðan til
Þingvalla.
Þátttökugjald er 2800 krónur og
er þá innifalinn hádegisverðuinn
að Laugarvatni.
Sjálfstæðiskonur eru hvattar til
að tilkynna þátttöku sem fyrst í
síma 8-29-00 í Valhöll, og þar
verða farmiðar seldir. Er þeim
heimilt að taka með sér gesti.
Ferðin verður nánar auglýst í
Félagsmáladálki Morgunbiaðsins.