Morgunblaðið - 14.08.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. AGUST 1977
25
Fróðleikskorn
Sérfræðingar álíta, að fólksfjöldi jarðarbúa sé
rúmlega 4 milljarðar. Af skiljanlegum .ástæðum er
aldrei unnt að nefna nákvæma tölu.
Árið 1970 voru jarðarbúar „aðeins“ 3.632
milljarðar. Á hverju dægri fæðast um það bil
350.000 manns eða um f jórir á hverri sekúndu. Hins
vegar deyja ekki nema um 135.000 manns á hverju
dægri. Ef fólksfjölgunin heldur þvf áfram með
sama hraða verða jarðarbúar fjórum sinnum fleiri
að 30—40 árum liðnum!
í SUMARFRÖNU
í regni og kulda
Það getur oft verið erfitt að ferðast á
íslandi og ætla sér eingöngu að búa í
tjöldum. Þá getur farið svo, að regnið
streymir til jarðar marga daga f röð, svo
að varla er hundi út sigandi.
Við höfum áður bent á það, að tilgang-
ur okkar með Barna- og fjölskyldusíð-
unni er m.a. sá, að hvetja alla, sem
löngun hafa og áhuga til þess að vera
með börnum — annað hvort sínum eig-
in eða annarra — í vinnu eða frístund-
um.
Börn una sér aldrei lengi verkefna-
laus. Það á einnig við á ferðalögum,
hvort sem það er í bifreið eða f tjaldi,
þegar erfitt er um útiferðir og útivist.
En það þarf oft ekki mikið til þess að
áhuginn vakni. Gott getur verið að taka
með hvers konar pappír og blöð bæði til
þess að klippa út, teikna á og lita. Og þá
fer ekki mjög mikið fyrir lími, litum,
penslum og skærum — eða jafnvel sjón-
auka, áttavita og stækkunargleri.
Síðan getum við stungið upp á ýmsum
verkefnum. Einhver gæti skrifað dag-
bók eða jafnvel teiknað dagbók og skýrt
frá því í stórum dráttum, hvað gerzt
hefur undanfarna daga, annar getur
klippt út einhverja hluti, dýr eða mynd-
ir, sem hann hefur áhuga á — sá þriðji
málað eða litað. E.t.v. geta allir unnið
við sama verkefnið o.s.frv.
I bæjum og borg
Við megum ekki gleyma þeim, sem
koma til bæjanna eða höfuðborgarinn-
ar. Sú ferð þyrfti einnig að vera skipu-
lögð að einhverju leyti. Hvert á að fra,
hvað er að sjá — hvaða söfn eru opin og
hvenær? Vill einhver fara í sundlaug
eða skoða mannvirki, heimsækja stofn-
anir? Svo er líka unnt að athuga, hvort
kvikmyndahúsin sýna einhverjar góðar
myndir. — Það er ótrúlega margt, sem
unnt er að skoða í þorpum og bæjum,
þegar málin eru brotin til mergjar.
Hjá okkur eru glæsilegustu
einkabflar landsins (þó víðar væri leitað)
Jagúar JX 4. 3 LTR
Citroen CX 2.200
Pallas Berlina 1976
vökvastýri og rafmagnsrúður
BIIASAIA
GUDFINNS
Cadilac 1975
Lincoln Continental 1974
Mercedes Benz 280 S.