Morgunblaðið - 14.08.1977, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.08.1977, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. AGUST 1977 t Útför föður míns og afa okkar, KARLS JÓHANNS NÍLSEN, Hörgshlið 2, verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 1 5 ágúst kl 1 3 30 Klara Nilsen og börn Útför mannsins mins, JÓNS G. JÓNSSONAR, fyrrverandi hreppstjóra á Bildudal, Stórholti 12, fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 15 ágúst kl 10 30 Blóm og kransar afþakkað Þeir sem vildu minnast hans láti liknarstofnanir njóta þess Ingveldur Sigurðardóttir. t Útför eiginmanns míns og föður okkar, HJARTAR HALLDÓRSSONAR, fv. menntaskólakennara, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1 7 ágúst kl 10:30 Unnur Arnadóttir og synir. t Eiginmaður minn og faðir, SIGVALDI JÓHANNSSON. garðyrkjumaður, Mjósundi 3, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði. þriðjudaginn 16 ágúst kl 2 00 e h Svava Ásmundsdóttir. Ásmundur Sigvaldsson Eiginkona min, móðir og tengdamóðir, INGIBJORG MAGNÚSDÓTTIR, Holtsgötu 18. er látin Ólafur Kristmannsson, Magnús Ólafsson, Laufey Jörgensdóttir. + Bálför dóttur minnar og systur okkar, JÓNU BJARNADÓTTUR. fer fram mánudaginn 1 5 ágúst kl 10:30 frá Fossvogskirkju Halldóra Sveinsdóttir, Olga Bjarnadóttir, Aðalheiður B. Rafnar, Anna Bjarnadóttir, Dóra Bjarnadóttir, Sveinn B. Bjarnason, Bjami J. Bjarnason, Guðrún B. Ireland, Guðný B. Ryder. Blóm vínsamlegast afþökkuð Vinsamlega bent á líknarstofnanir. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar og afa, FRIÐRIKS ÞÓRÐARSONAR frá Borgarnesi, Sólheimum 27 Reykjavík. Stefanla Þorbjamardóttir. ÓskarV. Friðriksson, Guðlaug Þorleifsdóttir, Halldór S. Friðriksson, Erna Sveinbjömsdóttir, og bamaböm t Alúðarþakkir sendum við þeim fjölmörgu vmum okkar og ættingjum er vottað hafa okkur samúð sína og sýnt okkur vinarhug við andlát og útför. JÓHANNS PÁLSSONAR, plpulagningameistara, Blönduhllð 27, R. Sérstakar þakkir sendum við stúlkunum á deild 7 A Borgarspitalanum fyrir það hversu góðar og yndislegar þær voru við hann á meðan hann átti við sin átakanlegu veikindi að striða Ennfremur þakkir til Guðmundar Oddssonar. læknis Guð blessi ykkur öll, Guðrún K. Elíasdóttir, Kristján Pálmar Jóhannsson. Valgerður Sigurðardóttir, Ruth Jóhannsdóttir, Lárus Ingólfsson. Sveinn Frlmann Jóhannsson Jón G. Jónsson fyrr- verandi hreppstjóri frá Bíldudal - Minning Er ég heyrði lát Jóns heitins, komu mér i hug þessar ljóðlínur Bólu-Hjálmars. Vinir mínir fara f jöld, feigóin þessa heimtar köld ég kem eftir, kannske f kvöld. mert klofinn hjálm og rofinn skjöld, hrynju slitna, sundrað sverð ojí svndagjöid. Jón fæddist 24. ágúst, árið 1900 á Kirkjubóli í Mosdal i Arnar- firði. Foreldrar hans voru Jón Jónsson, bóndi þar og kona hans Guðmunda Guðmundsdóttir. Þeg- ar Jón var fjögurra ára fluttu þau hjón að Dynjanda í sömu sveit, og við þann bæ voru þau ævinlega kennd. Þar ólst Jón upp i systkinahópi, í faðmi fjalla blárra, við niðinn frá Fjallfossi ár og sið, ýmist þungan og tröllslegan, eða klið- mjúkan, já næstum blíðlegan. Náttúrufegurð innfjarða Arnar- fjarðar eru meiri en viðast hvar annars staðar á landi hér. A sumr- um má líta skoppandi fjallalæki niður blómskrýddar birki-ilmandi skógarbrekkur, freyðandi fossa, syngjandi fugla, sporðaköst sil- ungs i ám og vötnum, og gjarnan sel á steini eða syndandi með landi fram. A vetrum allt í klaka- böndum og þá ýmist sviðrandi stórhriðar, eða blækyrr frost- kvöld með bragandi norðurljós- um, og kyrrðina svo djúpa að næstum má heyra sinn eigin hjartslátt. Ur þessu umhverfi kom Jón út i eril lifsins, hann var vörpulegur é velli, þéttvaxinn, afrenndur að afli, hagorður vel, næmur fyrir hinu kátlega og sérkennilega við menn og málefni. Hann var dulur í skapi, og eins og títt er einkann- lega um sterka menn; er þeim eigi ver við annað meir, en að einhver áliti þá tilfinninganæma og meyra i skapi, og brynja sig þá gjarnan skel, sem virðast kann bæði hrjúf og kaldranaleg. Jón hleypti engum nær sér enn hann sjálfur ákvað, nema kannski sin- um allra nánustu. Fyrir kom þó, að hann fékk eigi dulist, svo að maður skynjaði að innifyrir bjó allt annað en út sneri. I bókinni íslenskir samtíðar- menn segir svo: ... tók smáskipa- próf á ísafirði 1925, sjómaður til ársins 1947. Hreppstjóri Suður- fjarðarhrepps 1940—1967. Um- boðsmaður sýslumanns Barða- strandarsýslu og formaður skatta- nefndar frá sama ári. Fiskimats- maður frá 1939, í hreppsnefnd 1948—1957. Gjaldkeri og formað- ur sjúkrasamlags Bíldudals frá stofnun þess 1952—1967. Sýslu- nefndarmaður frá 1954. 1 stjórn Kaupfélags Arnfirðinga frá 1941, og siðar stjórnarformaður þess. Þetta ásamt fjölmörgu öðru er í stuttu máli það sem honum var falið og treyst til af samtíðar- mönnum sínum, og segir meira til um manninn en fjálglegar lýsing- ar. t Þökkum af alhug hluttekningu vegna fráfalls EDDU STEINGRÍMSDÓTTUR Þuríður Eggertsdóttir, Hörður Harðarson t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför, JÓHÖNNU ROKSTAD Marklandi, Garðabæ Sigríður Johnsen, Gunnar Johnsen, Jóhanna Gunnarsdóttir, Vilhelmína Gunnarsdóttir, Kristfn Guðmundsdóttir, Birgir Jakobsson, Ragnhildur Vilhjálmsdóttir. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, LÁRUSAR JÓHANNESSONAR. Stefanla Guðjónsdóttir. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SIGURÐAR MATTHÍASSONAR, kaupmanns Vigdis Eiriksdóttir, Ásta Sigurðardóttir. Ámi ísaksson, Matthias Sigurðsson, Selma Skúladóttir, Eirikur Sigurðsson, Helga Gisladóttir, ______________________________________og barnabörn__________ t Þökkum innilega sýndan vinarhug og virðingu vegna andláts og útfarar, ÖNNU JÓNSDÓTTUR, Védís Bjamadóttir, Þorkell Bjarnason, og systkini hinnar látnu. Arið 1944 kvæntist Jón Guðmundu Ingveldi Sigurðardótt- ur bónda á Krikjubóli í Ketildöl- um. Það var gæfa hans, því trygg- lyndari og umhyggjusamari lífs- förunautur mun torfundinn, enda þurftu þau mjög á samheldni og eindrægni að halda, ekki síst vegna hinna fjölmörgu viðfangs- efna Jóns og gestagangs þar af leiðandi. Þau byggðu sér hús í litlum og skjólsælum hvammi á Bíldudal, er þau nefndu Baldurs- heima. Þar bjó Ingveldur manni sínum og syni hlýlegt og fagurt heimili og vel voru þau samtaka um að fegra þar allt utan húss og innan. 1 lífi manna skiptast á skin og skúrir allajafna, og svo varð einn- ig hjá þeim. Tvö fyrstu börn sín misstu þau við fæðingu en hið þriðja, er var drengur, var tekið með keisaraskurði 16. ágúst 1949. Hann var látinn heita Björn Maron í höfuð Jóns heitins Maron á Bíldudal, en hjá honum og konu hans dvaldi Ingveldur árum sam- an. Hann ólst svo upp í föðurgarði við mikið ástriki foreldra sinna. Árið 1967 flytjast þau svo til Reykjavíkur, og gekk Björn hér í Stýrimannaskólann og lauk fiski- mannsprófi frá honum vorið 1969. Um áramótin 1970 réðst hann stýrimaður á vélbátinn Sæfara frá Tálknafirði, og fórst með hon- um 10. janúar 1970, ásamt fleiri ungum mönnum frá Bíldudal. Auðvelt er að hugsa sér hversu mikill og sár harmur foreldra hans var, er þar misstu sitt kæra og eina afkvæmi, þess varð þó lítt vart út á við en hyggja skyldu menn í eigin barm til skilnings- auka. Siðastliðið ár átti Jón við van- heilsu að stríða, sem hann þó vildi leyna sem mest, en Ingveldur kona hans studdi hann með ráð- um og dáð uns yfir lauk. Læt ég svo þessum minum fá- brotnum minningarorðum lokið. Eg og börn min vottum Ingveldi okkar innilegustu samúð. Það er huggun harmi gegn að eiga minninguna um traustan og ástríkan lifsförunaut, því minn- ingin lifir þó maðurinn deyi. Guðbjartur Ólafsson Birting afmælis- og minning- argreina ATIIYGLI skal vakin á þvi, aó afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.