Morgunblaðið - 14.08.1977, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. AGÚST 1977
Umsjón Erna Ragnarsdóttir
DEMIC — Skipuleggur
samstarf lýðræðissinn-
aðrar æsku 14 Evrópulanda
fíætt vid Jón Orm Halldórsson, framkvæmdastjóra DEMIC
A FUNDI sínum þann 10.
ðgúst slðast liðinn sam-
þykkti stjórn Samhands
Ungra Sjálfstæðismanna að
mæla mcð því við Þing sam-
bandsins á hausti komanda
að sækja um fulla aðild að
Democrat Youth
Community of Europe, sem
eru samtök ungs fólks á
hægri væng stjórnmálanna f
Evrópu. SUS hefur verið
aukaaðili að samtökum þess-
um frá þvl á árinu 1974 og
tekið mikinn þátt f störfum
samtakanna æ sfðan.
1 aprfl sfðast liðnum var
kosin ný stjórn samtakanna
og var Tony Kerpel, fyrrv.
formaður Young
Conservatives og fyrrver-
andi aðstoðarmaður Edward
Heath forsætisráðherra
Breta, kosinn formaður en
áður hafði þvf starfi gegnt
sænski þingmaðurinn Per
Unkel. Framkvæmdast jóri
samtakanna var kosinn Jón
Ormur Halldórsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri SUS
en hann dvelst nú f Bret-
landi. Umhorfssfðan ræddi
nýverið við Jón en hann er
staddur hér heima um þess-
ar mundir:
Helztu rök, sem bent hef-
ur verið á gegn auknu sam-
starfi SUS og Sjálfstæðis-
flokksins við svokallaða
systurfiokka erlendis er að
margir þessara flokka starfa
á þrengri grundvelli en
Sjálfstæðisflokkurinn og
njóta hlutfallslega minna
fylgis en hann nýtur hér
heima: Er þetta ekki svo um
mörg af aðildarsamböndum
DEMYC?
— Innan DEMYC eru að-
eins ein samtök, sem til-
heyra mjög smáum stjórn-
málaflokki. Á hinn bóginn
eru innan sambandsins
ungliðasamtök flokka, sem
njóta stuðnings helmings
eða nær helmings kjósenda i
viðkomandi löndum. Þar á
meðal má nefna Kristilega
Demókrata á Þýzkalandi og i
Austurríki og íhaldsmenn f
Bretlandi. í haust munu
ungliðasamtök flokks
Suarez á Spáni ganga í sam-
tökin og ef að aðild SUS
verður um svipað leyti mun-
um við í haust hafa meðlimi
í 14 löndum Vestur-Evrópu.
Þessi samtök, sem aðilar
eru að DEMYC, hafa öll
svipaða hugmyndafræði og
það er fremur af sögulegum
ástæðum, að til dæmis á
Norðurlöndum eru það ekki
flokkar af hlutfallslegri
stærð Sjálfstæðisflokksins
sem aðilar eru að DEMYC.
Við höfum afskaplega vín-
samleg samskipti við önnur
Evrópusamtök, sem hafa
innan sinna vébanda
ungliðasamtök frjálslyndra
flokka og flokka Kristilegra
Demókrata f Suður-Evrópu.
DEMYC eru hins vegar
stærst þessara samtaka og
koma yfirleitt fram sem full-
trúi and-sósfaliskrar æsku í
Evrópu á alþjóða vettvangi.
Meðlimir aðildarsamtaka
okkar eru nú yfir 700.000
talsins og fjölgar um tugi-
þúsundir á ári hverju.
Þú nefnir ýmsa af stærstu
flokkum Evrópu sem aðila
að samtökunum. Er ekki
hætta á að við komum til
með að hafa afskaplega tak-
mörkuð áhrif innan samtak-
anna smæðar okkar vegna,
og verðum við ekki bundin
af samþykktum, sem knúðar
eru fram af þessum stóru
aðilum?
— Þessi rök mætti nota
gegn hvers kyns þátttöku
smáþjóða í alþjóðlegu sam-
starfi. Sannleikurinn er hins
vegar sá að áhrif okkar á
erlendum vettvangi eru al-
gjörlega undir okkur sjálf-
um komin. Ég hef aldrei orð-
ið var við, að tekið væri
minna mark á Islendingum
erlendis bara af því þeir
koma frá smárri þjóð. Slík
samskipti fara fram á jafn-
réttisgrundvelli og við höf-
um jafn mikið um allar
ákvarðanir að segja og til
dæmis Þjóðverjar eða Svíar.
Varðandi samþykktir sam-
takanna þá hefur sá siður
viðgengist, að þau aðildar-
samtök, sem af einhverjum
ástæðum eru ekki sammála
meirihlutanum geta gert
fyrirvara við allar sam-
þykktir og eru gersamlega
óbundnar af þeim. Þannig
hefur það til dæmis verið
með vini okkar í Finnlandi,
sem eru Natóandstæðingar,
að þeir hafa jafnan skráð
mótmæli sin við varnarmála-
samþykktir DEMYC.
Jón Ormur Halldórsson.
Hvaða beina þýðingu hef-
ur það fyrir okkur hér
heima að taka þátt í störfum
DEMYC?
— Það hefur afskaplega
margvíslega þýðingu. An
þess að leggja á það dóm
hvað mesta þýðingu hefur
fyrir okkur í þessu samstarfi
vil ég nefna þrjú atriði, sem
ekki komu nógu glöggt fram
að minu viti þegar ég síðast
heyrði þessi mál rædd hér
heima. Það er í fyrsta lagi sú
þýðing, sem þetta hefur
fyrir einstaklingana, sem
þátt í þessu taka. Við höld-
um sennilega einar 7 al-
þjóðaráðstefnur á næsta ári
og tökum þar að auki þátt í
allmörgum ráðstefnum ann-
arra aðila í Evrópu. Á þess-
um ráðstefnum hittast menn
frá öllum löndum Vestur-
Evrópu og viðar að og sú
reynsla sem þetta veitir
þeim er einstæð. Þannig
kynnast menn gjarnan nýrri
hlið á hverju máli og verða
betur færir um að greina
sjónarmið mótuð af hreppa-
pólitík eða fordómum frá
kjarna málsins.
Þá vil ég nefna þá þýðingu.
sem þetta hefur fyrir fram-
tíð okkar allra. Á þessum
ráðstefnum og fundum hitt-
ast þeir menn, sem seinna
meir eiga eftir að ráða mál-
um í Evrópu. Þetta eru leið-
togar ungliðahreifinga
margra af stærstu stjórn-
málaflokkum álfunnar og
þeir kynnast innbyrðis, læra
að bera virðingu fyrir
skoðunum manna af ólíku
þjóðerni og kynnast þeim
ólíku viðhorfum og aðstæð-
um, sem móta samskipti
þjóða i milli. Margir þátt-
takendur í ráðstefnum þess-
um hafa sagt mér að þeim
loknum að þeir hafi öðlazt
algerlega nýjan skilning á
vandamálum annara þjóða
og samskiptavandamálum
þjóða án þess að slík mál
hafi kannski beinlinis verið
rædd á viðkomandi ráð-
stefnu. Þriðja atriðið, sem
ég vildi nefna er, að á þess-
um ráðstefnum skiptast
menn á hugmyndum bæði á
ráðstefnunum sjálfum og
utan þeirra á óformlegan
hátt. Ekki hefur þetta aðeins
þá þýðingu að dreifa um alla
áfluna upplýsingum og hug-
myndum um vinnuaðferðir
heldur vekur þetta þátt-
takendur til meðvitundar
um ákveðin mál sem eru
þess virði að skoða þau nán-
ar. Eg vil í þessu sambandi
benda á, að mér finnst ungir
Sjálfstæðismenn hér á is-
landi hafa ýmislegt að kenna
skoðanabræðrum sínum er-
lendis. Ég vil sérstaklega
minnast á undanfarna og
raunar yfirstandandi bar-
áttu fyrir samdrætti í ríkis-
kerfinu. Þessu sama máli
eru menn að berjast fyrir
um alla Evrópu en óvíða á
eins skipulegan hátt og með
eins markvissum vinnu-
brögðum og ungir Sjálf-
stæðismenn hér heima.
w
1 Itsala á inlavrirum
Mikið magn af jólavörum einnig fjölbreytt úrval
af öðrum hannyrðapakkningum.
1 /j ^amtgrðattrrzltttntt J/ j Snorrabraut 44.
Morgunblaðið
óskar eftir
blaðburðarfólki
Austurbær
Skipholt 1 1 1 Ingólfsstræti
Laugavegur 1—33. Skúlagata
frá 42, Meðalholt, Þingholts-
stræti, Laufásvegur 2 — 57.
Kópavogur
Vesturbær, Skjólbraut
Upplýsingar í síma 35408
Megum við benda
Athugið að útsalan er í minni
fundarsal Domus Medica, gengið inn
um aðaldyr, salur til vinstri.
SkóverdunS. Waage
Domus Medica Egilsgötu 3 — Sími: 18519