Morgunblaðið - 14.08.1977, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. AGUST 1977
, - . •» -
■ ■ . • ; 'v. ■
„Stórsegttð fettt
og siglt á fokkunni
í snörpum vindi"
Frá siglingu Siglunesmanna frá Nauthólsvík til Saltvíkur
Það voru vígalegir siglinga-
menn, ungir víkingar, sem
söfnuðust saman í Nauthólsvík-
inni einn laugardaginn fyrir
skömmu, allir félagar I Sigl-
ingaklúbbnum Siglunesi og
markmiðið var að sigla þönd-
um seglum til Saltvikur á
Kjalarnesi Þetta var langþráð
ferð því tvær helgar hafði för-
inni verið frestað vegna óhag-
stæðs veðurs. Þennan morgun
var heppilegur byr og öðru
hverju sprangaði sólin fram úr
skýjaþykkninu. Daginn áður
höfðu krakkarnir undirbúið bát-
ana, yfirfarið útbúnað og fleira,
en flestir siglingamennirnir
voru á aldrinum 1 2-— 14 ára.
Tilbúnir voru 8 bátar af flipper-
gerð og þrír eftirlitsbátar áttu
að fylgja flotanum mannaðir
harðsnúnu liði undirstjórn
Gísla Árna Eggertssonar sem
veitir Siglunesi forstöðu af
miklum dug, en i klúbbnum
eru starfandi yfir 1 00 félagar
og alls er búið að byggja yfir
40 báta á vegum klúbbsins
undanfarin ár.
Saltvíkurferðin er þáttur i
starfinu fyrir þá reyndari í hópi
klúbbfélaga, en undanfarnar
vikur höfðu félagarnir verið á
námskeiði í meðferð og sigl-
ingu seglbáta við erfiðar að-
stæður, sjógang og mikinn
vind.
Og siðan var ýtt úr vör, siglt
vestur Skerjafjörð, fyrir Gróttu
og stefnan tekin á Saltvík.
Nokkru eftir að stefnan hafði
verið tekin, jókst vindurinn til
muna og var þá tekið til þess
Gfsli Árni tekur strikiS á Esjuna, Hanna, einn af klubbfélögun-
um er um boð, en nokkrar stúlkur eru I siglingaklúbbnum og
láta ekki sinn hlut eftir liggja.
ÖslaS um sæinn á fullri ferS og sígldur höfuSbitabyr.