Morgunblaðið - 14.08.1977, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. ÁGUST 1977
33
Miðaverðið í Miðgarði
Athngasemör vepa frásagnar af ieila nm miðaverð
á hijémieika Ríó í Miðgarði í Skagafirði
Athufíasemdirnar frá Þór-
arni Magnússyni ritara Leikfél-
ags Sauðárkróks bárust
Morf’unblaóinu á meðan um-
sjónarmaður Slagbrands var í
sumarfríi og því hefur birting
þeirra dregizt.
1 grein um hljómleikaferða-
lag Ríós um landið, sem birtist
á síðu Slagbrands sunnudaginn
3. júni sl., var m.a. greint frá
ástæðunni fyrir því að hljóm-
leikum Ríós í Miðgarði i Skaga-
firði laugardaginn 25. júni var
aflýst á síðustu stundu, þ.e.
eins og liðsmenn Riós sögðu frá
þessu í samtali við fréttamann
Slagbrands. Ekki vilja allir
sætta sig við frásögn Riós og
hafa Slagbrandi borizt athuga-
semdir frá formanni húsnefnd-
ar Miðgarðs og frá ritara leik-
félagsins á Sauðárkróki. En
fyrst er rétt að lita á úrklippu
úr fyrrnefndri grein og siðan
koma athugasemdirnar á eftir:
undirbúin I þaula 09 allur undirbúninu-
ur uandaður eftir fremsta meQni Ekk-
en átti að bregSast, allt byggt me8
eintómum krosstr(ám
En Svo bregðast krosstré
Fyrsta sióráfallið gerði vart við sig
rétt^ áður en hl|ómleikarnir áttu að
hefjast á iaugardagskvöldið fynr viku I
Miðgarði í Skagafirði Upp kom deila
milli húsvarðarins og Rfó um aðgöngu-
miðaverð Húsvörðurínn kvaðst ekki
geta samþykkt að RIó taeki hærri að
gangseyn en 1500 krónur fyrir
skemmtun sem þessa. en Rfó hafði alls
staðar annars staðar látið menr. y.tfiða
2 000 krónur Deilan leystist ekki með
samkomulagi, heldur varð endinnn sá.
að Rfó pakkaði mður sfnu dóti og fór
og þeir hljómleikagestir sem komnir
voru á staðinn urðu að hverfa á braut
með sárt ennið (Nei. það var enginn
barinn.)
„Við vorum með húsið á leigu og
það er ekki húsvarðanns að ákveða
miðaverðið í sfíkum tilvikum." segja
þeir f Rfó um þetta mál ,.Ef við hefðum
farið að sfá af þarna. þá hefðum við
orðið að lækka rmðaverðið alls staðar
annars staðar — og hel/t endurgreiða
þvl fólki sem hafði komið á fyrri hljóm-
leikana
En hvað um þjónustuna við fólkið,
spurði Slagbrandur Hvað um
aummgja áheyrendurna sem stóðu fyr-
ir utan húsið og vildu fá að komast á
hljómleika hjá Rfó? Var ykkur alveg
fsama að skella hurðinni á þá?
..Nei svo sannarlega ekki." svöruðti
þeir Ríó-bræður ..Þetta var leiðmda
mál að lenda í og voðalegt að þetta
skyldi koma fyrir En það merkilega
var. að þeir stóðu með okkur beir
sögðu við húsvörðmn, að þeir vildu
alveg borga þessar 2 000 krónur og
þeir vildu bara fá að komast á hljóm-
leikana Hann var bara I einkastrfði við
okkur
..Maður verður líka að fá að hafa
smásnefil af stolti.' sagði Helgi Péturs
son ..Það kostar 2 000 eða 2 500
krónur á sveitaböllm og þarna hofðu
bæði Skagfírzka söngsveitm og leikfél-
ag af Sauðárkróki haldið sýnmgar og
skemmtamr og selt mn á 2 000 krón-
ur En bara af þvf að við komum að
sunnan. þá voru viðbrogðm önnur
Þeir Ríó-félagar bentu á, að svona
hljómleikaferð væri miklu meira fyrir.
tæki en menn almennt gerðu sér grein
. ** ■ * — I *<Ann.
Vegna greinar sem birlist á
slagbrandssióu Morgunblaðsins
3. júli sl. um samskipti félags-
heimilisins Miðgarös í Skaga-
firði og Ríó-triós, þar sem réttu
máli er verulega haliað, óska ég
eftir að fá að birta eftirfarandí
þessu til leiðréttingar og fólki
til upoiýsinga.
1 örstuttu máli gekk sagan
þannig fyrir sig. Laugardaginn
25. júni sl. voru auglýstir
hljómleikar með Rio-triói í Mið-
garði. Eg frétti það svo af til-
viljun-aðeins um teimur tímum
áður en hljómleikarnir skyldu
hefjast að til sta*ði að selja að-
gang á „okurverði" á okkar
mælikvarða. Að höfðu samráði
við húsvörð (sem að öðru leyti
kom hér hvergi nærri og leið-
réttist hér með fyrsta rang-
færslan i fyrrnefndri Slag-
brandsgrein) ákvað ég að reyna
að komast að samningum við þá
féiaga i Rió um að lækka verð
aðgöngumiða. Eg mætti þvi á
staðinn um það leyti sem miða-
sala skyldi hefjast. Þar hitti ég
fyrir framkvæmdastjöra hóps-
ins, Eggert að nafni og var
hann sá eini sem þá var ma'ttur
af þeim félögum. Hann stað-
festi að miðaverö skyidi vera
kr. 2.000 fyrir fuilorðna og allt
niður í 12 ára aldur og kr. 1.000
frá 12 ára og niður i fjögurra
ára aidur!
Ég benti honum á að þetta
væri miklu hærra verð en við
ættum að venjast á tveggja
tfma skemmtun og er ekki að
orðlengja það, aó við komumst
fljótlega að samkomulagi um að
lækka miðaverð niður i kr.
1.500 fyrir fullorðna og kr. 750
fyrir börn frá 12 til 4 ára. Þótti
mér það reyndar meira en nóg.
A þessu verði byrjuðum við svo
að selja.
Vegna þess hvernig málin
þróuðust finnst mér rétt að það
komi fram, að Eggert sýndi
ávallt fyllstu kurteisi i okkar
samskiptum.
Rúmlega hálftima áður en
hljómleikarnir skyldu hefjast
mæta svo hinir félagarnir úr
hópnum á staðinn og þykir sér
vist freklega misboðið. Sala að-
göngumiða var stöðvuð og ég
boðaður á þeirra fund, sem ég
reiknaði með að yrði annar
samningafundur. En það virtist
aldrei hafa verið ætlunin. Eg
var ekki fyrr kominn i þeirra
augsýn en ráðist var að mér
með ókurteisi og frekjulegu
orðbragði. Mér „húsverðartík-
inni“ og „sveitaiubbanum"
kæmi vist ekkert við hvað þeir
seidu inn. Við lifðum i frjálsu
landi og þeir hefðu húsið á
leigu. Eg reyndi að beita sömu
rökum og við Eggert fram-
kvæmdastjóra hálftíma fyrr, en
það var eins og að skvetta vatni
á gæs. Fúkyrðin urðu bara enn
magnaðri og lýstu þeir yfir að
við mig væri ekki talandi og
þeir væru bara farnir. Það kom
lika fram hjá þeim skömmu sið-
ar að þeir væru ekki lengur í
skapi tii að skemmta fólki og
hygg ég að þar hafi þeim ratazt
rétt á munn.
Það kom svo i hlut okkar Egg-
erts að tilkynna fólkinu, sem
inn var komið, þessi málaiok.
Eftir það átti ég tvfvegis orða-
stað við þá féiaga og varð orð-
bragðið og kurteisin jafnan hin
sama og fyrr. Gagnvart þeim
sem kurteisari voru er þó rétt
að taka það fram, að það voru
þeir Helgi Pétursson og Gunnar
Þórðarson sem helzt höfðu orð
fyrir hópnunt, þótt fieiri legðu
oró í belg.
Þetta var sagan í stuttu máli
og sný ég mér þá að beinum
rangfærsium i fyrrnefndri slag-
brandsgrein:
1. „Fyrsta stóráfallið" var í
Miðgarði, segir þar. Það er
raunar matsatriði hvað er stór-
áfali, en svo mikið er víst að á
Olafsfirði varð að kveðja til lög-
reglu tii að fá þá Rió-menn til
að greiða söluskatt af skemmt-
uninni þar.
2. “En það merkilega var, að
þeir (áheyrendurnir) stóðu
með okkur. Þeir sögðu við hús-
vörðinn, að þeir vildu alveg
borga þessar 2000 krónur og
þeir vildu bara fá að komast á
hljómleikana."
Elkki treysti ég mér tii að
fullyrða neitt um, hve mikill
hluti væntanlegra áheyrenda
var á minu bandi eða Ríós. En
hvernig þeir félagar hafa kom-
izt að þessari niðurstöðu er mér
hulin ráðgáta, þvi tæpast er
hægt að segja að þeir hafi sýnt
sig á meðal fólksins, ef fram-
kvæmdastjórinn. Eggert, er
undanskilinn og þá i fylgd með
mér. Og ekki trúi ég að þeir
hafi unnið neitt á sitt band með
þeim málflutningi sem þeir
höfðu í frammi. En e.t.v. talar
það skýrustu máli í þessu sam-
bandi, að á hijómleikum þeim,
sem Riö hélt fimmtudaginn eft-
ir þetta i félagsheimilinu
Höfðaborg i Hofsósi, greiddu
aðeins 140 manns aðgangseyri
(uppiýsingar frá húsverði í
Höfðaborg), en þaö er sam-
dóma álit manna hér, aó ekki
færri en 400 manns hafi komið
i Miðgarð umrætt laugardags-
kvöld.
3. Helgi Pétursson segir:
„Það kostar 2.000 eða 2.500
krónur á sveitaböllin og þarna
höfðu bæði Skagftrzka söng-
sveitin og leikfélag af Sauðár-
króki haldið sýningar og
skemmtanir og selt inn á 2.000
krónur.
Hér fer Helgi vísvitandi með
rangt mál, svo oft var ég búinn
að tiunda þetta og nota í minni
röksemdafærslu fyrir lækkuðu
miðaverói. Hið sanna í þessu
máii er enn einu sinni:
Leikféiag Sauðárkróks hefur
ekki haldið leiksýningu i Mið-
garði siðan haustið 1974. Skag-
firzka söngsveitin hélt söng-
skemmtun i Miðgarði i vor og
seldi inn á kr. 1.000 fyrir full-
orðna og kr. 500 fyrir börn.
Karlakórinn Goói hélt söng-
skemmtun hér i vor, verð að-
göngumiða kr. 1.200 fyrir full-
orðna. Hekla, samband norð-
lenzkra karlakóra, hélt söng-
skemmtun m.a. i Miðgarði nú í
júni sl. Þar sungu sex karlakór-
ar i rúma tvo tima án hlés.
Miðaverð kr. 1.200 fyrir full-
orðna, ókeypis fyrir börn innan
fermingaraldurs. Leikfélag
Skagfirðinga (það er ekki sama
og Leikfélag Sauðárkróks),
Leikfélag Hvammstanga og
leikflokkur austan úr Þing-
eyjarsýslu sýndu hér öll leikrit
i vetur og vor og seldu inn á kr.
1.000 fyrir fuliorðna og kr. 500
fyrir börn.
Verð aðgöngumiða á opin-
bera dansleiki (4 timar) hér i
Miðgarði hefur á árinu 1977
aldrei verið hærra en kr. 1.500,
með einni undantekningu þó.
Sunnanhljómsveitin Pókerspii-
aði hér á dansleik i vor og var
aðgangseyrir kr. 2.000. En þá
voru einnig skemmtiatriði.
Að lokum þetta: Ég er sam-
niáia þeim Rió-félögum um að
þetta var leiðindamál, fyrst og
fremst vegna hinna fjöimörgu,
sem fóru snuðtúr í Miðgarð
þetta kvöld. En má vera að
nokkru jákvæðu hafi það einn-
ig áorkað. Það er a.m.k. víst að
á hljómleikum sinum í Höfða-
borg i Ilofsósi. og mér er sagt
einnig á Selfossi, höfðu þeir
Rió-félagar breytt aldursmörk-
unum þannig, að verð aðgöngu-
miða var kr. 2.000 niður í 14 ára
aldur, í stað 12 ára áður, og
ókeypið innan 10 ára aldurs.
Batnandi mönnum er bezt að
lifa.
Formaður húsnefndar
félagsheiinilisins Miðgarðs,
Þórarinn Magnússon.
Af sama tilefni hefur ritari
Leikfélags Sauðárkróks óskað
að það komi fram hér að síð-
unni, að Leikfélag Sauðárkróks
hafi síðast haldió ieiksýningu i
Miðgarði haustið 1975 og var þá
sýnt leikrit Sigurðar Róberts-
sonar. Stormur. undir leik-
stjórn Gisla Halldórssonar. Að-
gangseyrir var þá 400 krónur.
Karnabær
HjfMmii)
Fyrir 2 plöturókeypis buröargjald.
Fyrir 4 plötur10% afsláttur og
ókeypis buröargjald.
Disco —
Tilboðkr. 1990
DISCOMIX
DISCO FUN
DONNA SUMMER • BL ACKSMOKE • PARLIAMENT
GIORGIO UE ANNIE REYNOLDS • ROBERTA KELLY
• M ARGARET SINGANA -
3» MíMUTeS AWD «7 StCOHOS Of COHT1M!!ö«S Pi.w
Get Down and Boogie
Jú, þú last rétt, þessi frábæra plata er fáanleg fyrir
kr. 1990. A „Get Down and Boogie" eru 10 topp
disco lög með topp — disco listafólki. Platan er
sérstaklega Disco — Mixuð þannig að næsta lag
byrjar inni i endingu lagsins á undan.
TilboðiS stendur meðan birgðir endast.
Aðrarsplunkunýjar Disco plötur
T-Connection — Macing
Ritchie Family — African Quens
Cerrone — Cerrone s Paradise
John Davis and
the Monster Orchestra — Up jumped the Devil
Munich Machine — Ný plata
Eddie Drennon — Would you Dance to my Music
Becket — Disco Calyps
Whispers — Open Up Your Love
Love and Kisses — Nv plata
Aðrar nýjar vinsælar plötur
Spilverk þjóSanna — Sturla
Rut Reginalds — Ný plata
Climax Blues Band — Gold Plated
John Miles — Stranger in the City
Ýmsir — 20 great heartbreakers
Ýmsir — HitAction
Yes — Going for the one
Supertramp — Even in the Quietest
Moments
Manhattan Transfer — Comming Out
KC& the Sunshine Band — Part 3
Donna Summer — I Remember Yesterday
Al Stewart — Year of the Cat
Shaun Cassiday — Ný plata
Stanglers — Rutus Norvegur
Leo Sayer — In Flight
Prúðu leikarnir — The Muppet Show
Smokie — Greatest Hits
10 CC — Deceptiva Bands
Á mánudag tökum við nýja sendingu sem inni-
heldur m.a. plötur, kassettur og 8 rása spólur með
ABBA ARRIVAL OG ABBA
- GREATEST HITS
Karnabær — hljómdeild
Laugavegi 66 Glæsibæ Austurstræti 22
S. 28155 S. 81915 S 28155.
*