Morgunblaðið - 17.08.1977, Síða 2
* %
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGOST 1977
Flugleiðir bjóða 180 og 330
dollara New Y ork-Luxemburg
■— og aukið frjálsræði í sambandi við farpöntun
„ÞETTA er auðvitað enn eitt
skrefið í áttina að harðnandi sam-
keppni við okkur, þar sem þessi
tilboð höfða til þeirra farþega,
sem við höfum verið að flytja
undanfarin ár,“ sagði Martin
Petersen, framkvæmdastjóri hjá
Flugleiðum, er Mbl. spurði hann
álits á niðurstöðum IATA-
fundarins, sem skýrt var frá í
blaðinu ( gær. „Hins vegar má
segja, að við höfðum séð þetta
fyrir. Laker út af fyrir sig var
engin ögrun, en við vorum hrædd-
ari við afleiðingarnar af Laker, ef
svo má segja, en þær afleiðingar
koma nú fram í samþykkt IATA-
fundarins. Hins vegar vorum við
búnir að ákveða okkar svar og
þetta breytir engu hjá okkur.
Við höfum ákveðið að taka upp
gjöld sem hafa svipaða eiginleika
og Laker og aðrir bjóða, en okkar
fargjöld eru hærri, þar sem við
erum ekki reiðubúnir til að ganga
Jengra í lækkunarátt."
Þegar Mbl. spurði Martin nánar
um þessi nýju gjöld Flugleiða,
sagði hann, að þeim fylgdi meira
frjálsræði i sambandi við farpönt-
un. I vetur munu Flugleiðir bjóða
lægstu fargjöld á leiðinni New
York — Luxemburg 180 dollara
aðra leiðina og 330 dollara fram
og aftur. Fargjöldin, sem sam-
þykkt voru á IATA-fundinum eru
146 dollarar og 256 fram og til
baka, sem eru örlítið hærri far-
gjöld en Laker býður. Hjá Flug-
leiðum sem IATA-félögunum
verður haldið uppi eðlilegri þjón-
ustu fyrir farþegana. Martin sagði
að þessi nýju fargjöld Flugleiða
væru smávægileg lækkun í doll-
urum taiið, en áherzla er lögð á
aukið frjálsræði í sambandi við
pöntun fars og fargjald aðra leið-
ina, en á fargjöld fram og aftur
hefur megináherzlan alltaf verið
Framhald á bls 18.
Sjúkur skipverji sóttur
420 sjómílur á haf út
ÞYRLA varnarliðsins sótti sjuk-
an mann um borð í flutningaskip-
ið Eldvík í gærkvöldi, en skipið
var þá statt um 420 sjómílur suð-
ur af Vestmannaeyjum. Þetta er
lengsta björgunar- eða sjúkraflug
varnarliðsins, en lengsta flug áð-
ur voru flug til að sækja sjúkling
um borð í brezkan togara 50 sjó-
mílur norðaustur af Langanesi og
flug eftir sjúklingi um borð í
þýzku rannsóknarskipi 270 sjó-
mílur vestur af Garðskaga. Aætl-
aður komutími þyrlunnar til
Reykjavíkur með skipverjann af
Eldvík var um miðnætti í nótt.
Það var klukkan 15:20 í gær að
Slysavarnáfélagi Islands bárust
boð gegnum Vestmannaeyjaradió
frá Eldvík um að þar um borð
væri veikur maður og samkvæmt
læknisgreiningu í Vestmannaeyj-
um væri maðurinn með bráða
botnlangabólgu og þyrfti að kom-
ast í sjúkrahús sem fyrst. SVFl
hafði strax samband við varnar-
liðið, en þar sem Eldvík var stödd
utan þess svæðis var haft sam-
band við stöðvar i Englandi og
Skotlandi vegna málsins. Þaðan
komu þau svör, að bezt væri að
varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
aðstoðaði í þessu tilfelli og fóru
þyrla og Hercules björgunar- og
eldsneytisvél frá Keflavíkurflug-
Framhald á bls 18.
„Benedikt Gröndal býð-
ur sig fram í Reykjavík”
„Horfum eftir mönnum til framboðs á Vestur-
landi” segir form. kjördæmisráðs Alþýðuflokks
„ÞAÐ er ekkert farið að ákveða
um prófkjör hjá Alþýðuflokknum
í Vesturlandskjördæmi ennþá,“
sagði Sveinn Guðmundsson
bankastjóri á Akranesi, formaður
kjördæmisráðs flokksíns, i sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi, en hann
kvað kjördæmisráð miða að þvi að
taka ákvarðanir þar að lútandi ií
byrjun október. Sveinn var spurð-
ur að því hvort Benedikt Gröndal
formaður Alþýðuflokksins og
þingmaður Vesturlandskjördæm-
is hefði tilkynnt kjördæmisráðinu
um það að hann yrði ekki í próf-
kjörinu á Vesturlandi.
„Benedikt hefur nýlega til-
kynnt okkur, „sagði Sveinn,“ að
hann muni verða í Reykjavík, og
við þurfum þvi að fara að horfa
eftir mönnum til framboðs fyrir
Alþýðuflokkinn á Vesturlandi".
Benedikt Gröndal.
Strax ( gær var komiS tim-
bur að Geysishúsinu við
Aðalstræti og átti endur-
byggingin að hefjast í dag.
Ljósm. Mbl: Rax.
í rústum eldsins.
Tugmillj-
ónatjón
í Geysis-
brunanum
„ÞETTA ER tugmilljónatjón.
Svo mikið er víst," sagði
Helgi Eysteinsson, fram-
kvæmdastjóri Geysis, í sam-
tali við Mbl í gær. „Risið er
alveg ónýtt eftir brunann inn-
viðir á efri hæð eru ónýtir, og
miklar skemmdir urðu af reyk
og vatni á neðstu hæðinni.
Við erum einmitt núna að
flokka fatalagerinn, sem
bjargað var, en hann er að
verðmæti 40—50 milljónir
króna. Og hann er mjög illa
farinn af völdum reyks og
vatns."
Helgi sagði að húsið yrði
byggt upp aftur eins og það
var fyrir brunann og hefst
endurbyggingin I dag. Þegar
Mbl spurði Helga, hvenær
hann reiknaði með að fata-
deildin opnaði aftur, sagði
hann vonir standa til að það
yrði eftir um tvo mánuði.
Sagði Helgi að til stæði að
gera einhverjar breytingar á
verzlunarhúsnæðinu á neð-
stu hæð samfara endurbygg-
ingunni.
„Gerði þetta af ráðnum hug”
Einar Hjörtur Gústafeson skaut þrem skotum
í háls og höfuð Halldóru Ástvaldsdóttur
EINAR Hjörtur Gústafsson, sá er gær urskurðaður í 60 daga gæzlu-
myrti unnustu sfna á vegarspotta varðhaid og geðrannsókn. Við
skammt frá Norðlingabraut, sem yfirheyrslur í gær kvaðst hann
liggur f átt að Elliðavatni, var í. hafa framið morðið af ráðnum
I þessu sæti sat Einar Hjörtur þegar komið var að og Ifk Halldóru var
við hlið hans. Ljósm. Mbl.: Emilfa
hug, og ætlað að stytta sér aldur á
eftir. Þar sem Einar Hjörtur var
enn mjög máttfarinn í gær var
ekki hægt að yfirheyra hann
lengi. Þó er Ijóst að hann skaut
Halldóru þremur skotum, eitt fór
f gegnum háls hennar og tvö f
gegnum höfuðið.
Það var laust fyrir kl. 17.30 i
fyrrakvöld, sem hjón úr Reykja-
vík komu að ljósblárri Peugeot-
bifreið með sænsku skrásetning-
arnúmeri, sem stóð í fjárhliði
á veginum að Rauðhólum. Sat
Einar Hjörtur þá i bílstjórasætinu
og var mjög af honum dregið og
stúlkan var við hlið hans, en yfir
hana hafði hann breitt teppi.
Fólkið fór að ræða við ökumann-
inn, sem kvaðst þá hafa skotið sig
og sagðist ekki getað ekið lengra.
I sömu svifum bar að Reyni
Sveinsson bónda á Elliðavatni og
skömmu siðar fleira fólk. Var þá
sent til að gera lögreglu og sjúkra-
liði viðvart, en fólkið sem fyrst
kom á staðinn ásamt Reyni reyndi
Peugoet-bifreiðin stóð vinstra megin f þessu fjárhliði er komið var að
henni. Ljósm. Mbl. RAX.
A þessu svæði skaut Einar Hjörtur Gústafson unnustu sfna Halidóru
Astvaldsdóttur og reyndi sfðan að stytta sér aldur á eftir.