Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977
29
u trA™ 1 un
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
Vestfirðir:
sem þaö nú heldur áfram á öðrum
hnöttum, eða á astralsviðum
ólikrar náttúrufræði þeirri er
hérjarðar verður skynjuð og lærð.
En Kristskirkjan sagði viða svo
hátt og snjallt nei, að islamskenn-
ingarmenn mundu bera kinnroða
við að hlusta á.
Islamar kljúfa ekki guð sinn i
þrjár flísar. Það gerði Kristur
ekki heldur. Margföidun hug-
myndanna sem enn er beitt í
kristinni kirkju, er komin frá
þeim eldri af frumstæðari trúar-
bragðatilraunum en gyðingatrúin
var, fyrir daga allra spámann-
anna, og var svo tekin upp aftur
iöngu eftir daga Krists. Asatrúin
norræna og forngríski hugmynda-
heimurinn eru skemmtileg fróð-
leiksdæmi, samhliða þræðinum i
hugsunum niðja Abrahams.
Múhameð gekk að mestu framhjá
þessari villu, en fór þó sálförum
inn i himnaríki Abrahams, í við-
lögum. Einfaldaði átrúnað sinn,
sér og sinu fólki til meiri ávinn-
ings, en kristna trúin getur með
eigin íhaldi. Gefur þar auga leið
að fyrirmynd handa kristninni.
Þarna lærði Múhameð af Kristni
sjálfum, en ekki spámönnum und-
ir áhrifum frumaldanna. Mú-
hameð hefir tekið hlutverk sitt
mun alvarlegar en kristin kirkja,
enda hefir hún orðið að þola
margar siðbætur. Er þess von, því
að mannsandinn lætur ekki að
stjórn nema eftir gullinstreng,
sem verndarvættir leggja í brjóst
einstaklinganna, mismunandi að
hljóm og krafti, eftir tíma og
ástæðum, en þó aldrei nema þann-
ig að hvergi slitnar.
Vissu margir fyrir hundrað öld-
um og löngu fyrr, að það er rót
allra trúarbragða. Hitt er annað
mál, að þeir sem ekki geta farið
alla leiðina í einu, sem ekki er
tiltökumál, hafa oft farið út af
sporinu, þó hreint ekki allir. Mós-
es annaðhvort fann upp Fjandann
eða fékk hann að láni, til að skýra
þetta. En lítil stoð held ég að
siðgæðinu í heiminum hafi orðið
að því.
Af hverju stafar, að norrænn
maður tekur hrifnum huga við
ritverki Múhameðs? Hann er upp-
alinn í kristnum anda og eftir þvi
sem hann hefir betur tileinkaó
sér kjarnann i kristnum boðskap,
er hann fjær því, að ætla öðrum
verra atferli en hann les um. En
hrifning má eigi leiða út í að
gleyma viðvörunum sögunnar,
sögu mannkyns undir örlaga-
stjórnum. Dæmi hef ég séð tekið
um föður og son, og á það ekki við
um samsögu heillar hnattþjóðar.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Nýlokið er í Zaelagaerzeg í Ung-
verjalandi alþjóðlegu skákmóti
með þátttöku margra stórmeist-
ara. Urslit urðu þessi: 1. Vasjuk-
ov (Sovétríkjunum) 9 v. af 12
mögulegum. 2. Holmov (Sovétr.)
7l/i v. 3.—4. Portisch (Ungverja-
landi) og Pribyl (Tékkóslóvakíu)
7 v. o.s.frv. Hér hefur Vasjukov
hvitt og á leik gegn Pribyl.
Grundvöllurinn er eins og einn á
móti milljarði. Og vist ber Mú-
hameó ábyrgð á þeirri tegund út-
skúfunar sem í Kóraninum er,
líkt og kirkja, ekki Kristur sjálf-
ur, í Gamlatestamentis-kristni nú-
tímans. Verið er að biðja um sál-
ræn visindi til leiðsagnar. Sálræn
og efnisleg visindi geta unnið
saman. Það er hrein villa, að
bjóða menntuðu fólki nútimans
sömu trúarbrögð og siðvana frum-
þjóð. Eigi heldur eru það vísindin
sem fara afvega i ýmsum tilfell-
um. Ströng visindaleg þekkingar-
leið er hafnsaga nútímans. Og vis-
indi hafa hjarta, tilfinningu,
skyggni, mátt — þegar sá sem á
heldur er þeim gáfum gæddur.
Sannanir eru fyrir hendi. Heim-
sækið snillingana í verk þeirra.
Vel hélt Edison á ljósi Krists.
Þjóðir sem bæði eiga kristna
kirkju og heyja hverja alheims-
styrjöldina af annarri, og hinar
sem eiga trúarbók Múhameðs og
fremja athæfi eins og tilræðið við
armenska fólkið 1915, eiga að
leggja niður öll trúarbrögð. En
meðan trúarbrögð eru ekki lögð
niður, kýs ég mér kristna trú utan
kirkju. Ég virði Múhameð og
volduga tilraun hans, að undan-
skilinni útskúfunarkenningunni.
En mer er skylt að viðurkenna að
Krist ber hærra. Það er enginn
vafi á því að það er Kristnin, sem
getur fullkomlega valdið því hlut-
verki að glata ekki hjörðinni.
Þetta er viðurkenning en ekki
metnaður, viðurkenning á því, að
Kristnin hefir í sér fóginn þann
djúpa kraft, sem til þarf. Aðeins
verður að hreinsa allt burt sem
óskírir málminn. Og hinum djúp-
stæða krafti sjálfum verður það
ekki vandaverk.
Ætti ég aðeins að trúa, yrði það
á herskara af háþróuðum, sjálf-
stæðum og samvinnandi guðum.
Til þess að ná fullkomleikanum,
verður að styðjast við sambönd og
leiðbeiningar þeirra sem langt
eru komnir. A það spor er þegar
komið. En eftir því verður ekki
ratað nema með starfi einlægs
huga og þjálfuðum sérhæfileik-
um. Margt það sem nefnt er spíri-
tismi er í ýmsum tilfellum kák
eitt. Þvi er þessi leið einnig vand-
rötuð, líkt og reynzt hefir með
rangalann í völundarhúsum trú-
arbragða og þeirra kennifeðra.
Sönn vísindi eiga að taka við af
völdundarhúsunum. Starf og
hugsun — í staðinn fyrir kyrr-
stæða heila. Dómgreind til að vita
hvað á að gera.
Sigurður Draumland.
HOGNI HREKKVÍSI
Jæja. — Það verða þá 30 beztu lögin, sem hann
ætlar að taka!
83? SVGeA V/öGA i \iLVtmi
Ýl& W \
'WOG Md /.\TA t/L
IVIM H/'/V, OG
^A WVB^ÚIG VÚ
Afli dróst ekki sam-
an í júlí þrátt fyrir
þorskveiðibannið
„TlÐ var hagstæð til sjðsóknar f
júlf og afli góður f öll veiðarfæri.
Mikill fiskur virðist nú hafa
gengið á miðin út af Yestfjörðum
og hefur verið sérstaklega áber-
andi, hvað afli hefur verið góður
á grunnslóðinni nú f sumar. Er
afli nú áberandi meiri á grunn-
slóð en verið hefur undanfarin
sumur. „Þannig hefst yfirlit um
sjósókn og aflabörgð í Vest-
firðingafjórðungi, en skrifstofa
Fiskifélagsins á tsafirði sér um
samantekt yfirlitsins.
Þorskveiðibann sjávarútvegs-
ráðuneytisins kom til fram-
kvæmda 26. júli og stóð í eina
viku, segir í yfirlitinu. Hætti þá
allur flotinn veiðum nema Júlíus
Geirmundsson, en hann hætti
veiðum fyrstu vikuna í ágúst.
Voru skipin því ekki að veiðum
nema röskar þrjár vikur í mánuð-
inum. Þrátt fyrir þetta var
heildaraflinn í fjórðungnum
aðeins 28 lestum minni í mánuð-
inum, en var í júlímánuði í fyrra.
Var aflinn nú 7.592 lestir, en var i
fyrra 7.620 lestir. I júli voru gerð-
ir út 162 (156) bátar til fiskveiða
frá Vestfjörðum, 122 (114) stund-
uðu veiðar með handfæri, 22 (25)
réru með línu, 8 (7) með dragnót
og 10 (10) með botnvörpu. Eins
og fyrr segir varð heildaraflinn i
mánuðinum 7.592 lestir og er
heildaraflinn á sumarvertíð þá
orðinn 14.193 lestir, en var 13.800
lestir á sama tíma i fyrra. Bátaafl-
inn var nú 2.876 lestir, en afli
togaranna 4.716 lestir.
Af einstökum verstöðvum barst
mest á land á Isafirði í mánuðin-
um eða 3.236 lestir á móti 2.893
lestum I sama mánuði i fyrra, þá
kemur Bolungavik með 1.000 lest-
ir á móti 1.212 lestum i júlímán-
uði i fyrra og þá Suðureyri með
635 lestir.
Af togurum var Júlíus Geir-
mundsson aflahæstur i mánuðin-
um með 763.8 lestir, þá kom Guð-
björg með 592.2 lestir og síðan
Gyllir með 512.2 lestir. Af línubát-
um var hæstur Orri með 173.9
lestir úr 9 sjóferðum.
BSRB-samning-
ar af stad á ný
SAMNINGANEFND Bandalags
starfsmanna rfkis og bæja hefur
verið boðuð til fundar á morg-
un, fimmtudag klukkan 13.30 og
er fyrirhugað að á þeim fundi
geri nefndin sér grein fyrir því
efni, sem safnað hefur verið um
kjaraatriði á hinum almenna
vinnumarkaði, en eins og menn
rekur minni til var samningavið-
ræðum frestað fram í miðjan
ágúst á meðan þessi gagnasöfnun
færi fram.
Ekkert hefur verið látið uppi
um þau gögn, sem safnað hefur
verið, en þau munu vera talsverð
að vöxtum. Svipuð könnun fór
fram á vegum Bandalags háskóla-
manna og kom þar í ljós um 40%
munur á launum og voru ríkis-
•starfsmenn þar lægri. Sáttasemj-
ari ríkisins hefur enn ekki boðað
aðila til fundar og er ekki búizt
við því að svo verði fyrr en i
fyrsta lagi eftir að samninga-
nefndin hefur kannað þær upp-
lýsingar, sem fyrir liggja — en
það gerir hún á fimmtudag eins
og áður sagði.
Verklegar kynning-
ar á dýralæknafundi
Aðalfundur Dýralækna-
félags fslands var haldinn
að Húnavöllum 11.—13.
ágúst. f sambandi við fund-
inn var fræðslufundur um
ýmsar nýjungar á sviði
dýralækninga.
Dr. med. vet. Michael Hessel-
holt frá Dýralæknaháskólanum I
Kaupmannahöfn var gestur
fundarins og hélt fyrirlestra og
sýndi nýjungar i skurðaðgerðum
deyfingum og svæfingum á hest-
um. Alls voru teknir til aðgerðar
eða skornir upp 9 hestar, sem
valdir voru úr hópi laungraðra
hesta og strenghesta af dýra-
læknunum í Húnavatnssýslu og
Skagafirði i sumar og vor. Alls
voru 30 dýralæknar á fundinum,
en tvo vantaði. Elzti dýralæknir
landsins, Jón Pálsson frá Selfossi,
sem nú er 86 ára gamall, mætti og
gaf Visindasjóði Dýralæknafélags
tslands kr. 100 þús.
I stjórn Dýralæknafélags
íslands eru nú: Jón Pétursson
héraðsdýralæknir Egilsstöðum,
formaður, Birnir Bjarnason
héraðsdýralæknir Hornafirði,
ritari, og Rögnvaldur Ingólfsson
héraðsdýralæknir Þórshöfn,
gjaldkeri.
Leiðrétting
Greinin, Einfari kvaddur,
um Þorstein Valdimarsson
í blaðinu í gær er eftir
Jóhann Hjálmarsson. Nafn
hans féll því miður niður.
19. Rc7 + !! — RXC7; 20. Hxe7 + !.
Svartur gafst upp. Hann á ekki
völ á öðru en 20. ... Kxe7 og þá
verður hann mát eftir 21. Df6+.
v-/r
06
Ví'R V/t
yWA VIW?<
'N