Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977 FRÁ ÓEIRÐUNUM I LONDON framhald verði á. sagan endurtók sig í Birmingham og óttast er að bessihliðá Hérersvo Chiquita er önnur hlið öllum kunn. á Chiquita. Blóðug átök í Birmingham Birmingham og London, 16. ágúst. Reuter. ENN kom til blóðugra átaka á Englandi á útifundi National Front, öfgaflokks til hægri, f Birmingham. þar sem vinstri- menn reyndu að hleypa upp fund- inum. Að minnsta kosti 12 lög- reglumenn hlutu meiðsli, og um 20 manns voru handteknir í þessum óeirðum, sem voru aðeins smækkuð mynd af blóðugum átökum í einum borgarhluta London s.l. laugardag. Ottast er nú, að enn muni koma til óeirða 29. ágúst þegar íbúar frá Vestur-Indíum efna til kjöt- kveðjuhátíðar í Notthing Hill Street, en þar meiddust um 600 manns við sama tækifæri í fyrra og hefur lengi verið grunnt á því góða milli ungmenna þar og lög- reglu. National Front hefur það á stefnuskrá sinni að takmarka mjög heimildir innflytjenda til að flytjast til Englands en fylkingar vinstrisinna hafa hafið skipulagð- ar aðgerðir til að hleypa upp fundum National Front til að and- mæla þessari kynþáttastefnu fiokksins meðal annars. Þessar siðustu óeirðir á Eng- landi hafa kynt undir kröfum manna um auknar takmarkanir á mótmælaaðgerðum öfgahópa, og af hálfu innanríkisráðuneytisins hefur verið sagt að reikna megi með því að sektir verði hækkaðar og fangelsisdómar lengdir yfir óeirðaseggjum. Ihiigar Sadat araiað stríð við Libýu? Beirut, Líbanon, 16. ágúst. AP. DAGBLAÐ f Beirut sagði frá þvf í forsíðufrétt í dag að Anwar Sadat, forseti Egyptalands væri að íhuga að hefja styrjöld af fullum krafti við Lihyu í þessum mánuði. Blað- ið sem heitir Al Anwar og er talið óháð en heldur hlynnt Sadat sagð- ist hafa eftir heimildum sem stæðu nærri forsetanum, að önn- ur Arabaþjóð myndi berjast við hlið Egypta við Libyumenn. „Sovétstjórnin skýrði Gaddafi Lybyuforseta frá því meðan á striðinu við Egypta stóð i júlímán- uði að Sovétríkin myndu ekki gripa til íhlutunar í hernaðarátök- um Egyptalands og Libyu“, segir A1 Anwar og bætir við að Gaddafi hafi verið að íhuga að senda eld- flaugar til árása á Alexandriu, þar sem Sadat dvaldi meðan á átökunum stóð, til að hefna harma sinna eftir árásir Egypta, en Yassir Arafat leiðtogi PLO og forseti Alsír Boumedienne hafi fengið talið Gaddafi ofan af því. Leninmvndin sem danskur sjómaður fékk í net sitt fyrir nokkru og kom í Ijós að var frá árinu 1919, er nú tilbúin til sýninga. Hafa verið fram- kvæmdar lag- færingar á myndinni svo að hún er nú sýn- ingarhæf. Verð- ur hún sýnd í danska sjón- varpinu 19. ág. og tekur sýning þessa hluta sem tókst að gera við, um átta mínútur. Kúluís fyrir mömmu og pabba óg bamaís og bamashake á barnaveröi Skipholti VÝJ37 l Sovétar vildu ekki hitta konu andófsmanns New York, 16. ág. AP. NATALIA Shcharansky, eiginkona þekkts andófsmanns af Gyðingaætt- um, sem biður þess í Moskvu að mál verði höfðað á hendur honum fyrir „njósnir og landráð", reyndi í dag að komast á fund sovézku sendinefndar innar hjá Sameinuðu þjóðunum, en var neitað um aðgang. Lögreglumenn vörnuðu henni veg- arins en hún sagði að einn þeirra hefði látið i Ijós samúð með erindi hennar, en ákveðnar reglur væru i gildi sem ekki yrði framhjá gengið. Fyrr höfðu forsvarsmenn sovézku sendinefndarinnar komið þeim boð- um áleiðis til lögreglumanna sem gæta byggingar Sameinuðu þjóðanna i New York að þeir vildu ekki hitta frúna að máli, né heldur veita viðtöku frá henni neins konar bænarskjölum. Hún fékk talið einn lögreglumanninn á að taka við bréfi, en kvaðst vondauf um að það kæmist til skila.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.