Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGtJST 1977 IMP : 6,8/11 6,3/10 ,3/14 UMBOÐSMENN: G\er *■ lífv»WerK,. TW9'" c, Eir'arss0 SSfiífgE^ÍSSii baW'Kur 09 _r Qun^arsS°n &*»*££!? &** ’^ondsson Ran9*,n^ a«°n K, Ra'19*ir'^>grlússor'l 'ES^srí^rr «528. “■ por'á ^^99^6rUde"“ &c Fellsmúla 24-26 • Hreyfilshúsinu • Sími 82377 sölumet fleiri litir Góðir litir gleðja augað. Falleg áferð og frábær ending Hrauns, húsamálningarinnar frá Málningu h.f., hefur stuðlað að vinsældum hennar. Enda margfaldaðist salan á s.l. ári. Hraun hefur sýnt og sannað fram- úrskarandi eiginleika; — við höf- um dæmi um rúmlega 10 ára end- ingu. Hraun er sendin akrýlplast- málning, sem sparar vinnu: Betri ending og færri umferðir. Ein um- ferð af Hrauni jafngildir þrem um- ferðum af venjulegri plastmáln- ingu. Nú bjóðum við ennþá meira litaúr- val í Hrauni en áður. Lítið á lita- kortið og fáið allar upplýsingar hjá umboðsmönnum okkar. HRAUN SENDIN AKRÝLPLASTMÁLNING málningbf Liverpool fékk oddveifu Vals 21. júlí s.l. var íslenzkum læknanemum, sem eru í árlegri krufningaferð í Bretlandi, boð- ið á æfingu hjá hinu fræga knattspyrnuliði Liverpool. Tóku læknanemarnir þátt i léttri þrekæfingu með leik- mönnum Liverpool, en síðan voru málin rædd yfir tebolla og fór hið bezta á með gestum og gestgjöfum. Hápunktur þessar- ar heimsóknar læknanemanna var svo er Grímur Sæmunds- sen, knattspyrnumaður úr Val færði Liverpool-liðinu oddveifu félags sins. Tók Emlyn Huges, fyrirliði Liverpool-liðsins, við veifunni og virtist kunna að meta hana vel. Það var Rotarymaðurinn J. Pearson, sem hafði forgöngu um þessa heimsókn íslending- anna til Liverpoolliðsins og sést hann lengst til hægri á með- fylgjandi mynd sem birtist í einu stærsta blaðinu í Liver- pool „Liverpool-Echo“. í fremstu röð á myndinni eru þeir Huges og Grímur og halda þeir á Valsfánanum á milli sin. Greenwood einvaldur? ENSKA knattspyrnusambandið hefur boðið Ron Greenwood, framkvæmdastjóra Lundúna- liðsins West Ham að taka við starfi framkvæmdastjóra og einvalds enska landsliðsins af Don Revie, sem sagði starfinu lausu fyrir nokkru. Greenwood hyggst taka sér nokkurra daga umhugsunarfrest og ætlar hann að svara ákveðið i viku- lokin. Reiknað er með þvi að hann taki starfinu. Góð hlaup hjá Lilju og Gunnari LILJA Guðmundsdóttir, ÍR, keppti í 800 m hlaupi á frjáls- íþróttamóti i Karlstad í Svíþjóð i fyrri viku og hljóp á sæmileg- um tíma, 2:08,7 mínútum. Varð Lilja fjórða í hlaupinu eftir að hafa haft forystuna frá upphafi þess, en á síðustu metrunum skutust tvær sænskar og ein áströlsk stúlka fram úr henni. Gunnar Snorrason og Einar Óskarsson, sem hafa stundað atvinnu í Svíþjóð að undan- förnu, kepptu einnig í fyrra- kvöld á móti í Stokkhólmi. Setti Gunnar persónulegt met í 1500 metra hlaupi, hljöp á 4:10,0 Enn dökknar útlitið hjá Atla og Co. ENN dökknar útlitið hjá Hol- bæk, hinu danska liði Atla Þórs Héðinssonar. Þegar 17 umferð- um er lokið í 1. deildinni dönsku er Holbæk í neðsta sæti með 10 stig en OB er efst með 27 stig. Holbæk tapaði 1:2 á heimavelli fyrir B-1903 um síð- ustu helgi og var liðið óheppið að tapa leiknum að sögn dönsku blaðanna. Eina mark Holbæk var skorað úr vítaspyrnu eftir að Atla hafði verið brugðið í dauðafæri. minútum, en hann átti bezt 4:13,3 áður. Einar hljóp á 4:12,5 mínútum. Gunnar bætti einnig sinn fyrri árangur í 800 metra hlaupi er hann hljóp á 2:02,6 minútum, en á sama móti hljóp Einar á 2:02,3 mín., en hann á aðeins betri árangur frá fyrri árum. Loks stórbætti Gunnar sig i 3000 metra hindrunar- hiaupi er hann hljóp nýlega á 9:36,5 mínútum, en það gerði hann á móti í Oskarshamn í Sviþjóð. 1 spjalli við Morgun- blaðið sagðist Gunnar ekki beint hafa verið í stuði á mót- inu í Stokkhólmi og teldi sig vera í formi upp á betri tíma í 1500 metrum. Birtalan beztur íþróttablaðið Sport i Bratis- lava fékk nýlega handknatt- leikssérfræðinga frá 10 löndum til þess að greiða atkvæði um hverjir væru beztu handknatt- leiksmenn heims. Féllu at- kvæði þannig að Stefan Birtal- an, Rúmeniu, hlaut 43 stig, Jerzy Klempel, Póllandi 37 stig, Hrvoje Horvat, Júgóslavíu, 31 stig, Valeri Gassi, Sovétríkjun- um, 29 stig, Vladimir Maksi- mow, Sovétríkjunum, 28 stig, Jaehfm Deckarm, V- Þýzkalandi, 18 stig, Mihail Ischenkok Sovétrikjunum 15 stig, Abes Arslanagic, Júgó- slavíu, 13 stig, Christian Gatu, Rúmeníu, 9 stig og Juri Klimow, Sovétríkjunum 8 stig. Bezta handknattleikskonan var kjörin Sinaida Turtschina, Sovétríkjunum, og hlaut hún 50 stig í atkvæðagreiðslunni. Önn- ur í röðinni varð landa hennar, Tatiana Makerec, með 45 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.