Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGUST 1977
5
Frá Þórshöfn
Mývetningar
í Færeyjaför
Björk, Mývatnssveit, 16. ágúst—
FIMMTUDAGINN 28. júlí lagói
18 manna hópur héðan úr
Mývatnssveit af stað f ferð til
Færeyja. Voru það starfsmenn
Kísiliðjunnar og 7 konur þeirra,
sem þátt tóku í þessari ferð. Lagt
var af stað klukkan 9 árdegis og
ekið til Aðaldalsflugvallar. Veðr-
ið var þá eins gott og hugsazt gat,
sunnan gola og hlýtt. Frá Aðaldal
var flogið með Flugleiðavél til
Reykjavíkur með viðkomu á
Akureyri, þar sem nokkrir far-
þegar voru teknir til viðbótar. A
Reykjavíkurflugvelli var ausandi
rigning, svo að margir farþeg-
anna fóru ekkert út úr flugstöð-
inni á meðan beðið var brottfarar.
Farið var f loftið á ný klukkan 14
og lent á flugvellinum í Vogey
eftir tæplega 2ja tíma flug.
Þar var hið fegursta veður og
stórfenglegt að horfa yfir. Þá Var
haldið af stað til Þórshafnar með
bifreiðum og ferju. Tók sú ferð
rúmar tvær klukkustundir. I
Þórshöfn fengum við gistingu á
farfuglaheimili, þær 5 nætur, sem
dvalið var i Færeyjum. Ölafs-
vakan, árshátíð Færeyingá var að
hefjast er við komum til Þórs-
hafnar. Mjög var forvitnilegt að
fylgjast með þessari hátíð og
kynnast því hvernig Færeyingar
gera sér glaðan dag. Mikið var um
skreytingar í bænum og mann-
fjöldi á aðalgötum bæjarins þá
daga og nætur meðan Ölafsvakan
stóð yfir og samkomur á mörgum
stöðum. Meðan við dvöldum i
Færeyjum, var veðrið sæmilegt,
þótt skiptust á skin og skúrir.
Var timinn notaður eftir því
sem hægt var til að skoða hið
markverðasta í Þórshöfn. Þá var
farið til Kirkjubæjar, einnig var
haldið til nágrannaeyja og ferðazt
með bifreiðum og ferjum, allt til
Klakksvíkur. Reynt var að skoða
hið helzta á hverjum stað í þeim
ferðum. Alls staðar, þar sem kom-
ið var mættum við vinsemd og
ágætri fyrirgreiðslu. Heimleiðis
var haldið frá Þórshöfn klukkan
13, þriðjudaginn 2. ágúst. Farið
var í loftið frá flugvellinum á
Vogey klukkan 17 og komið á
Reykjavikurflugvöll klukkan 19
eftir mjög þægilega ferð. Þá var
glampandi sólskin i Reykjavik.
Þaðan var svo haldið klukkan
20.30 og komið í Aðaldal eftir
klukkutima flug. Heim var komið
um klukkan 23. Þar með lauk
þessari velheppnuðu og fróðlegu
ferð.
Ég vil að leiðarlokum þakka öll-
um ferðafélögum fyrir ánægju-
lega og eftirminnilega Færeyja-
ferð. Ennfremur öllum þeim, sem
greiddu götu okkar á einn eða
annan hátt. Vil ég þá fyrst nefna
Jón Sívertssen og konu hans, sem
veita forstöðu farfuglaheimilinu i
Þórshöfn, ennfremur Hákon
Sakrisen, bifreiðastjóra, sem ók
okkur með miklum ágætum vítt
og breitt um Færeyjar. Þetta fólk
sýndi okkur mikla lipurð og
framúrskarandi fyrirgreiðslu.
Einnig vil ég þakka ferðafólkinu
frá Skagaströnd fyrir góð kynni.
Það er vissulega margt forvitni-
legt fyrir Islendinga að skoða i
Færeyjum. Vil ég því hvetja sem
flesta til Færeyjafarar. Það sem
kom mér e.t.v. mest á óvart voru
hinir góðu vegir. Svo virðist sem
hver vegarspotti sé lagður varan-
legu slitlagi. Þá eru ekki síður
athyglisverð jarðgöngin, sem gerð
hafa verið þar siðustu ár. Á því
sviði standa Færeyingar okkur
einnig framar. Auðsætt er að
margt hefur verið framkvæmt í
Færeyjum á síðustu árum. Okkur
var t.d. tjáð að sjúkrahúsið í Þórs-
höfn væri eitt hið fullkomnasta á
Norðurlöndum. Þess urðum við
greinilega vör í þessari ferð að
Færeyingar bjóða Islendinga vel-
komna til Færeyja og að síðustu,
sem að mínu áliti er mjög mikil-
vægt að við sem fórum þessa ferð
urðum greinilega vör við — aö í
Færeyjum eiga Islendingar mörg-
um góðum vinum að mæta.
— Kristján.
Færeyjar:
Brezkur landhelg-
isbrjótur sektaður
Þórshöfn, 16. ág. Einkaskeyti
til Morgunblaðsins.
SKIPSTJÖRINN á Aberdeen-
togaranum Burwood féllst f dag á
það fyrir rétti í Þórshöfn að
greiða 20 þús. danskar krónur
(rösklega sex hundruð þúsund
fsl. kr.) í sekt fyrir að hafa veitt
með ólögleg veiðarfæri við Fær-
eyjar.
Skipstjórinn Alister Nelson
sagði fyrir rétti að hann vissi ekki
að það væri ólöglegt að hafa troll
um borð með of smárri möskva-
stærð, þegar veiðar væru stundað-
ar við Færeyjar. Hann sagðist
heldur ekki vita að stýrimaðurinn
hefði sett út troll með þessari
möskvastærð meðan togarinn var
að veiðum.
Hann sagði að tæknilega séð
væri hann sekur, en bætti þvi við
að hann hefði ekki visvitandi
brotið færeysk lög. Burwood er
gerður út af fyrirtækinu John
Wood í Aberdeen og missir togar-
inn nú veiðiréttindi við Færeyjar.
Fyrir tveimur vikum glataði ann-
ar af togurum sama fyrirtækis
leyfi sínu vegna þess að hann
gerðist brotlegur.
Nelson skipstjóri sagði að hann
gæti ekki borgað háa sekt meðal
annars vegna þess að fyrirtækið
hefði rekið sig eftir að kom í ljós
að skip hans hafði stundað ólög-
legar veiðar við Færeyjar.
Spánn:
Enn nokkur verkföll
hjá hótelstarfsfólki
Madríd, 16. ágúst. AP.
LIÐLEGA 30 þúsund hótel-
starfsmenn hafa hafið störf
að nýju eftir eins dags verk-
fall á Spáni, en 15 þúsund
starfsmenn halda áfram verk-
falli í sex ferðamannabæjum.
Verkfall er þó að heita má
úr sögunni á sólarströndinni,
þar sem ferðamannafjöldinn
er mestur, en þar sættust
þeir á 5 þús. peseta hækkun
á mánuði en höfðu upphaf-
lega krafizt 8 þúsund peseta
hækkunar.
í Cadiz hafa samninga-
fundir verið teknir upp að
nýju við rúmlega 8 þúsund
hótelstarfsmenn eftir að þeir
höfðu hafnað boði vinnuveit-
enda um 4 þúsund peseta
hækkun. Einnig eru hótel-
starfsmenn í La Coruna, Frá Spáni
Santiago de Compostela, El
Ferrol del Caudillo, Gijon og
Zaragoza enn i verkfalli. og
bæði spænskir og erlendir
ferðamenn i þessum bæjum
eru farnir að tygja sig þaðan
og leita fyrir sér um gistingu í
öðrum bæjum, sem þegar
eru yfirfullir af ferðamönn-
um.
Mikið vöruval,
-lágt verð!
Hneppt peysa Verð 3.940,- Jakki Verð 9.900.-
Rúllukragapeysa Verð 3.190,- Poki Verð 735,-
Buxur Verð 6.175.- Leðurstígvél Verð 10.800.