Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.08.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. AGÚST 1977 15 Kleppe: Olíutekjur Norð- manna eru miklu Indira Gandhi og Bandarnajke meðan allt lék i lyndi. Fyrrum forsætisráðherra Sri Lanka á einnig f erfiðleikum um þessar mundir svo og sonur hennar, þvf að fyrir hæstarétti í Sri Lanka liggur nú krafa um ógildingu kjörs þeirra beggja til þingsins fyrir misferii f kosningabaráttunni fyrir sfðustu kosningar. Staða Indiru veikist: Handteknír tíu nánir samstarfsmenn hennar UNDIRBÚNINGUR að málssókn á hendur þremur fyrrverandi mjög nánum samstarfsmönnum Indiru Gandhi hófst f dag og sagði f fréttum þaðan að tfu hefðu verið handteknir þar f gær og hefðu þeir allir verið Indiru fyIgispakir á vaidatfma hennar. Handtökur þessar þykja benda til að ríkisstjórnin sé staðráðin í að hreinsa til i innsta hring Ind- Meðal þeirra sem teknir voru höndum voru fyrrverandi einka- ritari Indiru, ráðherra sá sem fór með málefni er vörðuðu ófrjó- semisaðgerðir og sömuleiðis einn helzti ráðgjafi Indiru Gandhi. iru Gandhi og torvelda henni á allan hátt að ná árangri í þeirri viðleitni að treysta sig í sessi inn- an Kongressflokksins, en það hei ur hún reynt ákaft upp á siðkast ið. Allir þeir sem voru handteknir í gær verða leiddir og ákæröir fyrir spillingu og undirróðurs- starfssemi, kugun og hvers konar óheiðarleika á tímum Indiru Gandhi. minni en ætlað var Jiri Hajek rfkismálum kommúnistalandanna og mannréttindabaráttan sé skálkaskjólið. Einnig sagði blaðið að barátta Bandaríkjaforseta væri háð til að draga athygli Bandaríkjamanna frá þeirra eigin vandamálum heima fyrir. New York Times hefur það eft- ir andófsmanni i Tékkóslóvakíu að Jiri Hajak, sem var utanrikis- ráðherra Tékkóslóvakiu i tið Dubceks, hafi verið tekinn til yfirheyrslu af iögreglu nýlega og hafi þar verið lagt hart að honum að hætta öllum pólitiskum af- skiptum en hann neitað. Sam- kvæmt þessari heimild var lög- reglunni einkanlega i mun að fá fyrirheit Hajeks um að hann léði ekki nafn sitt á nein gögn sem fram kæmu i nafni Mannréttinda 77. Ósló, 16. ág. Reuter. PER KLEPPE, fjármála- ráðherra Noregs, sagði í dag að ábati Norðmanna af Norðursjávarolíunni virt- ist ætla að verða miklu minni á þessu ári en gert hefði verið ráð fyrir og Norðmenn yrðu að horfast í auga við verulegar að- gerðir í efnahagsmálum vegna þessa. Hann sagði einnig að viðskiptajöfnuð- urinn myndi verða miklu óhagstæðari heldur en ríkisstjórnin og sérfræð- ingar hennar hefðu spáð í upphafi ársins. Per Kleppe sagði þetta i ræðu i gærkvöldi og sagði hann að ástæð- urnar væru meðal annars hinn alvarlegi atburður á olíupallinum Bravo í apríl og útflutningstekjur hefðu einnig rýrnað umfram það sem búizt hefði verið við vegna taf a sem hefðu orðið á því að opna lögn frá Ekofisksvæðinu til Emd- en i Vestur-Þýzkalandi. Kleppe sagði að búizt hefði ver- ið við því að viðskiptahalli lands- ins yrði 13 milljarðar norskra króna árið 1977, en nú væri við- búið að hann færi i allt að 20 milljarða norskra króna. Arafat til Sovét Damaskus, 16. ág. Reuter. YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis- samtaka Palestínumanna, PLO, fer í opinbera heimsókn til Sovét- rikjanna í öndverðum næsta mán- uði, að því er áreiðanlegar heim- ildir Reuterfréttastofunnar höfðu fyrir satt. Mun hann hafa i föru- neyti sinu alla helztu mektar- menn PLO sem munu ræða við sovézka ráðamenn um þróun mála i Miðausturlöndum í kjölfar heim- sóknar Cyrus Vance, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna. Samkvæmt heimildunum verð- ur þó efst á blaði að fjalla um hugsanlega Genfarráðstefnu um Miðausturlönd og haft er eftir heimildunum sem sögðu frá för Arafats að Sovétmenn hefðu lofað að mæta ekki til ráðstefnunnar ef PLO fengi þar ekki fulltrúa. Blaðið segir, að stefna Carters miði að þvi að draga úr áhrifum ýmissa Varsjárbandalagsríkja og beiti hann mannréttindamálinu fyrir sig í því skyni. I grein Rude Pravo er Zbigniew Brzezinski tal- inn aðalhöfundur þessarar stefnu sem feli í sér afskipti af innan- Carter frestar ákvörðun um smíði nifteindarsprengju Washington, 16. ágúst. Reuter. AP. CARTER Bandaríkjaforseti mun væntanlega í byrjun næsta mánaðar taka ákvörðun um það hvor ráðist skuli f framleiðslu á nifteindarsprengjunni, sem miklar deilur hafa risið út af þar sem eyðingarmáttur hennar nær fyrst og fremst til Iffs en veldur ekki spjöllum á mannvirkjum. Bandarfkjaforseta barst skýrsla Pentagon um sprengju þessa s.I. mánudag og er hún nú til athugunar hjá ráðgjöfum forsetans um öryggismál, svo og er gert ráð fyrir að bandamenn Bandarfkjanna innan Atlantshafsbanda- lagsins fái skýrslu þessa til umsagnar. Upphaflega var búizt við að Carter tæki ákvörðun um fram- leiðslu sprengjunnar í þessari viku, en að sögn bandarfska stórblaðsins Washington Post mun Bandaríkjaforseti hafa frestað því að taka ákvörðun i málinu, m.a. vegna hatrammra deilna sem risið hafa út af framleiðslu sprengjunnar í V- Þýzkalandi. I hópi andstæðinga hennar þar eru ýmsir þingmenn jafn- aðarmanna og er ein röksemd þeirra sú, að nifteindarsprengj anna yrði notuð á v-þýzkri grund gegn hugsanlegu inn- rásarliði Sovétríkjanna. Þetta sé grundvallarbreyting á hern- aðarstefnu NATO, þar sem 'sé gert ráð fyrir að beita aðeins kjarnavopnum í Varsjárbanda- lagsrikjum til að verjast innrás þaðan. Miklar deilur hafa einnig orð- ið um framleiðslu nifteindar- sprengjunnar i Bandarikjun- um, þar sem andstæðingar sprengjunnar telja geislavirkni frá sprengjunni geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þróun mannkyns. Stuðningsmenn nifteindar- sprengjunnar benda aftur á móti á að unnt sé að beita sprengjunni á mjög afmörkuðu svæði gegn sveitum óvinaherja og að þar fyrir utan feli hún i sér litla hættu fyrir almenna borgara og mannvirki. Þegar er fyrir hendi fjárveiting til smíði sprengjunnar en sú fjárveiting er hins vegar háð þeim skilyrð- um að fjármunina megi því að- eins nota að Bandarikjaforseti ákveði að ráðast i framleiðslu á nifteindarsprengjunni. Haft er eftir Alexander Haig, hershöfðingja og yfirmanni herafla Atlantshafsbandalags- ins, að nifteindarsprengjan muni verða til þess að styrkja kjarnavopnavarnir Bandaríkj- anna en þurfi ekki að magna vopnakapphlaupið. Hann dró i efa, að smiði sprengjunnar mundi verða Sovétmönnum hvatning til að hraða fram- leiðslu samskonar vopns, og benti á að fyrri ákvarðanir Bandaríkjastjórnar um að ráð- ast ekki i gerð vopna hafi ekki haft í för með sér hliðstæð við- brögð af hálfu Sovétmanna, þvert á móti hafi riki Varsjár- bandalagsins stöðugt aukið hernaðarmátt sinn án tillits til samdráttar i hernaðarútgjöld- um Vesturlanda. Veðriðí borgum heims New York. 16. ágúst. AP Veður og hitastig í nokkrum borgum heims: Amsterdam 22 stig. skýjað Aþena 25 stig. sól Berlin 20 stig. skýjað Briissel 23 stig. Chicago 26 stig. rigning Genf 21 stig. mistur Helsinki 18 stig. sól Kaupmannahöfn 19 stig. sól Lissabon 22 stig. sól London 22 stig. skýjað Madrid 36 stig. sól Moskva 16 stig. skýjað skiptum af mannréttindum TÉKKNESK stjórnvöld hafa varað Jiri Hajek, fyrrum utanrfkisráðherra Tékkó- slóvakfu við að hann gæti komið sjálfum sér í hinn mesta vanda haldi hann áfram að koma fram sem talsmaður fyrir mannréttindahreyfinguna sem kennd er við Mannréttindi 77. Jafnframt hefur málgagn tékkneska kommúnistaflokksins Rude Pravo ráðist á Carter Bandaríkjaforseta fyrir stefnu hans f mannréttindamálum að því er segir í Reutersfrétt í gær. Jiri Hajek varaður við af-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.