Morgunblaðið - 17.08.1977, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 17.08.1977, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. AGUST 1977 17 Fornleifafundurinn við Hrafnseyri: ft Þarna hefur verið reisu- legur bær" SEM Kunnugt er af frétt- um hafa þrír starfsmenn Þjóðminjasafns íslands unnið að uppgrefti og rannsóknum á bæjartóft- um sem fundust nálægt Hrafnseyri við Arnar- fjörð. Ekki er enn hægt með vissu að segja hvaða bær hafi þarna verið, né hverjir voru þar ábúend- ur, og ekki er enn ljóst hvenær búið hefur verið á þeim bæ sem að hluta hefur verið grafinn þarna upp. Morgunblaðið spjallaði í gær lítillega við Mjöll Snæsdóttur og Guðmund Ólafsson, en þau voru tvö þriggja sem unnu að uppgreftinum. Með þeim var Kristín Sigurðardóttir, en þeir þremenningarnir eru annaðhvort útlærðir eða nemar í fornleifafræði. ,,í sumar grófum við upp sjálfan bæinn, þ.e. íbúðarhúsið, en það er einn skáli með einu af- hýsi og langeldi. Auk þess grófum við upp jarð- hús, sennilega baðhús, en það var rétt við skálann, og einnig litum við á smiðju sem var rétt við aðalhúsið. Það má segja að þarna hafi verið nokkuð reisu- legur bær, miðað við það sem gerst hefur á þessum tíma, en við teljum bæ- inn vera frá 10 öld. Skál- inn er 13 metrar að lengd að innanverðu, og við giskum á að afhýsið hafi haft að geyma lokrekkju. Staðurinn ber í dag nafnið Grélutóftir, og tímans vegna gæti staðist að þetta væri bær þeirra landsnámshjóna Áns og Grélaðar, sem Landnáma getur um. Þau byggðu Eyri við Arnarfjörð segir í Landnámu, en þessar tóftir eru í um tíu mín- útna gang vestur frá Hrafnseyrarbæ, niður undir sjó við flugvöllinn og vestur undir Hrafns- Framhald á bls 18. . __________... . -;*«■ '2, " ~ — ' . - ' - ' ’p- „ L " Langeldurinn. —...—.— ----- Á þessum uppdrætti má sjá lag bæjarins sem grafinn hefur verið upp við Hrafnseyri. Fyrir miðju er lang- eldurinn og út af innri enda skálans gengur afhýsið, sem fornleifafræðingarnir telja hafa verið lokrekkju. Að nokkru leyti má ráða stærð skálans af stærð mannsins á myndinni, en sá er Guðmundur Ólafsson, einn þremenninganna er unnu að uppgreftinum. ..... • ■ •-■ •' "''• S,.; ^ y&S&áJSN . ' A ' ~-V, \ ^ v, '• ^ «••■■' . • '■ ■ i.'V- , I., •> . >s,,\ ., >:'■> • 'V''í~ <X ' ■'• ' r - >* , ' > CV < V v .. . . s... y. V - ■ í-V ' i' -'v ■ % . . ,m ' j ' | 'H* % ■ y r '/••».' Séð frá Grélutóftum að Hrafnseyrarbæ. Fyrir miðju má sjá langeldinn, til vinstri mótar fyrir afhýsinu og fremst hægra megin sér á innganginn. Inngangurinn í bæinn. Fremst eru hellurnar á hlaðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.