Morgunblaðið - 18.08.1977, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAG.UR 18. AGÚST 1977
■ MA blMAK
ÍO 28810
car rental 24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
" 2 1190 2 11 38
■
k
II
I
® 22-0-22-
RAUÐARÁRSTIG 31
FERÐABÍLAR hf.
Bilaleiga. simi 81260.
Fólksbílar, stationbílar, sendibíl-
ar, hópferðabilar og jeppar.
(~Qeyhsoðim
simgufi
i lnádegm
BERGSTAÐASTR>íTI 37
SIMI 21011
Bifreiðasala
Notaðir bílartil söki
Nýir bílar
Nýr Willys 1400 GL.
Notaðlr bilar á góðum kjörum
Peugeot 404 dlesel '74
elnkabill.
Fiat 128 rally 74
Hornet 2ja dyra sjálfskiptur
•74.
Hillman Hunter ’74
Allt á sama stað
EGILL,
VILH J ALMSSON
HF
Laugavegi 118-Sími 157CX)
. Útvarp ReykjavíK
FIMVITUDKGUR
18. áKÚst
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00. 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Sigrún Sigurðardóttir
les söguna „Komdu aftur,
Jenny litla“ eftir Margaretu
Strömstedt (3).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Við sjóinn kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson kynnir skýrslu
rannsóknarnefndar sjóslysa.
Tónleikar kl. 10.40.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Orazio Frugoni, Eduard
Mraxek og Pro Musica hljóm-
sveitin I Vín leika Konsert I
E-dúr fyrir tvö pfanó og
hljómsveit eftir Felix
Mendelssohn; Hans
Swarowsky stj. /
Fílharmoníusvcitin í Vín
leikur Sinfóníu nr. 1 í O-dúr
eftir Franz Sehubert; Istvan
Kertesz stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Á frívaktinni.
Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan:
„Föndrararnir" eftir Leif
Panduro. Örn Olafsson les
þýðingu sína (9).
15.00 Miðdegistónleikar.
Sinfóníuhljómsveit útvarps-
ins í Miinchen leikur Tvö
sinfónísk Ijóð eftir Bedrich
Smetana; Rafael Kubelik
stjórnar. Konsertgebouw
hljómsveitin í Amsterdam
leikur Svftu nr. 2 „Dafnis og
Klói“ eftir Maurice Ravel;
Bernard Haitink stjórnar.
NBC Sinfóníuhljómsveitin
leikur „Furutré Rómaborg-
ar“ hljómsveitarverk eftir
Ottorino Respighi; Arthur
Toscanini stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagið mitt. Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.00 Tónieikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIO
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35. Daglegt mál. Gfsli Jóns-
son menntaskólakennari flytur
þáttinn.
19.40 Fjöllin okkar. Armann
Halldórsson safnvörður talar
um Dyrfjöll.
20.05 „Fremur hvftt en himin-
blátt" — trío fyrir klarí-
umm
FÖSTÚDAGUR
19. ágúst 1977
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingarogdagskrá
20.30 Konungur sjófuglanna
Brezk hcimildamynd um
albatrosinn. Vænghaf þessa
tignarlega fugls verður allt
að fjórum metrum, og hann
getur náð 80 ára aldri.
Þýðandi og þulur EUert
Sigurbjörnsson.
20.55 Reykjavfk og hyggða-!
stefnan
úmræðuþáttur. j
Stjórnandi Bergur Guðna- j
son lögfræðingur.
21.45 Útlaginn
V _______________
Bandarfsk sjónvarpskvik-
mynd frá árinu 1975, byggð
á sögu eftir Fdward Fverett
Hale.
Leikstjóri Delbert Mann.
Aðalhlutverk Cliff Roberts-
son, Robert Ryan, Beau
Bridges, Walter Abel og Pet-
er Strauss.
Myndin hefst í upphafi
nítjándu aldar. Herréttur I
Bandarfkjunum dæmir ung-
an liðsforingja til ævilangr-
ar útlegðar. Það sem eftir er
ævinnar á hann að vera á
herskipum, og skipsfélagar
hans mega ekki segja hon-
um tfðindi að hcíman.
Þýðandi Jón O. Fdwald.
1.00 Dagskrárlok.
___________________________/
nettu, selló og píanó eftir
Atla Heimi Sveinsson. —
Verkið er samið að tilhlutan
NOMUS-nefndarinnar fyrir
Den fynske Trio, og hljóðrit-
að er það var frumflutt í
Egerskovhöllinni á Fjóni 19.
marz s.l.
20.25 Leikrit: „Hver er maður-
inn?“ eftir Alexander
Vampilof. Þýðandi: Árni
Bergmann. Leikstjóri: Gísli
Halldórsson. Flutt af leikur-
um 1 Leikfélagi Sauðárkróks.
Kalosjfn/ Kári Jónsson,
Potapof/ Hafsteinn Hannes-
son, Rúkósúéf/ Kristján
Skarphéðinsson, Kamaéf/
Olafur H. Jóhannsson,
Marfna/ Elsa Jónsdóttir,
Viktorfa/ Kristín Dröfn
Arnadóttir, Iþróttafrétta-
maður/ Haukur Þorsteins-
son.
21.15 Divertimento nr. 3 eftir
kanadfska tónskáldið Murray
Adaskin. Taras Gabora,
Georg Zukerman og Barry
Tuckweil leika á fiðlu, fagott
og horn.
21.30 „Sjónaukinn", smásaga
eftir Simon Grabowski. Anna
Jóna Kristjánsdóttir íslenzk-
aði. Jón Júlfusson leikari les
fyrri hluta sögunnar. (Sfðari
hluti á dagskrá á laugardags-
kvöld).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sagan af San Michele“
eftir Axel Munthe. Þórarinn
Guðnason les (31).
22.40 Hljómplöturabb. Þor-
steins Hannessonar.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Leikrit vikunnar kl. 20,25:
Sauðkrækingar fly t ja
„skrýtlu úr sveitinni”
í kvöld kl. 20.25 verður flutt
leikritið „Hver er maðurinn?” eftir
Alexander Vampilof, í þýðingu
Árna Bergmanns. Leikstjóri er
Glsli Halldórsson. Með hlutverkin
fara eftirtaldir leikarar úr Leik-
félagi Sauðárkróks: Kári Jónsson,
Kristín Dröfn Árnadóttir, Haf-
steinn Hannesson, Elsa Jónsdótt-
ir, Kristján Skarphéðinsson, Ólaf-
ur H. Jóhannsson og Haukur Þor-
steinsson. Flutningur leiksins tek-
ur um 50 mfnútur.
Leikurinn gerist í herbergi á
sveitahóteli Þar býr Viktoría, stúlka
um tvítugt Hún fær óvænta heim-
sókn, þegar annar hótelgestur, Pota-
pof, ber að dyrum og vill óður og
uppvægur fá að hlusta á knatt-
spyrnulýsingu í útvarpinu Þegar
leikurinn stendur sem hæst birtist
hótelstjórinn og tekur heldur
óþyrmilega á aumingja Potapof. En
honum lízt ekki á blikuna, þegar
hann fréttir að Potapof er „layout-
maður” frá Moskvu Hótelstjórinn
Kristján Skarphéðinsson
Gísli Halldórsson
veit ekkert hvað það er og ímyndar
sér, að það sé einhvers konar út-
sendari yfirvaldanna.
Þetta leikrit er úr flokknum „Skrítl-
ur úr dreifbýlinu", en útvarpið flutti
fyrr á þessu ári annað leikrit úr sama
Hafsteinn Hannesson
Elsa Jónsdóttir
Kári Jónsson
flokki, og nefndist það „Tuttugu
mínútur með engli". Höfundurinn,
Alexander Vampilof, drukknaði á
bezta aldri, en skrifaði heilmikið,
sem vakið hefur óskipta athygli,
enda kann hann þá list að blanda
saman þjóðfélagsádeilu og gamni,
og hæfilegum skammti af hvoru
fyrir sig. „Hver er maðurinn" minnir
að sumu leyti á „Eftirlitsmann"
Gogols, og má segja að þar sé ekki
leiðum að líkjast.
Kristfn Dröfn Árnadóttir og Haukur Þorsteinsson