Morgunblaðið - 18.08.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGUST 1977
5
Brotizt inn hjá
ísaf old 1 Siglufirði
Siglufiröi 17. ágúst.
UM HELGINA var brotizt inn í
frystihúsið og söltunarstöðina ísa-
Reynt að
brjótast inn
hjá Neytenda-
samtökunum
UM HELGINA var reynt
aö brjótast inn hjá Neyt-
endasamtökunum að
Baldursgötu 12 hér í
Reykjavík. Ekki tókst inn-
brotsmönnum þó að kom-
ast inn á skrifstofuna, en
þeir brutu rúðu og
skemmdu hurð mikið. Að
sögn rannsóknarlögregl-
unnar virðist hér miklu
fremur skemmdarfíkn
hafa ráðið ferðinni en
hagnaðarvon.
fold og þaðan stolið ávísun að
upphæð kr. 166.457. Var ávísunin
á eyðublaði frá Utvegsbanka is-
lands, Siglufjarðarútibúi, og talið
er að ávísunin hafi verið nr. 3507,
en svo faglega hefur þjófurinn
farið að, að hann hefur rifið
svuntuna úr ávísunarheftinu en
skilið það eftir. Var ávísunin stíl-
uð á Póst og sima.
Hér er nú bezta veður, og skip á
leið til lands með loðnu. Víkingur
var að melda sig með 1000 tonn,
en ekki liggur fyrir hvort hann
kemur hingað eða fer annað.
Dagný landar í dag 130 tonnum af
stórum og góðum fiski, mest
þorski.
©
INNLENT
Garðar póstmeislari ( Hveragerði,
rúðuna sem brotin var ( pósthúsinu.
Óspektir
gerði um
Hvcragcrði 17. ágúst.
MIKIL læti eru hér í
Hveragerði um helgar.
Lætin byrja yfirleitt á
föstudagskvöldum og hafa
þeir sem búa við aðalgötu
þorpsins, Breiðumörk, vart
Borgin býður 24,3% hækkun en
verkfræðingar vilja fá 36,9%
—segir í greinargerð skrifstofu borgarstjóra
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi greinargerð frá
skrifstofu borgarstjóra vegna
kjaradeilunnar við Stéttarfélag
verkfræðinga:
„Kjarasamningur milli Reykja-
víkurborgar og Stéttarfélags
verkfræðinga rann út 10. júlí s.l.
Hjá borginni og stofnunum henn-
ar starfar nú 31 verkfræðingur
samkv. þessum kjarasamningi.
Launamálanefnd Reykjavíkur-
borgar hefur gert Stéttarfélaginu
tvö tilböð. Hið fyrra var um 7.5%
hækkun á júlíkaup og samnings-
tíma ti_l 1. nóvember n.k. Er það i
samræmi við nýgerðan samning
Bandalags háskólamenntaðra
manna og fjármálaráðherra svo
og samninga sjúkrahúsalækna.
Eftir að samninganefnd Stéttarfé-
lagsins hafði hafnað þessu tilboði
bauð launamálanefndin 12%
hækkun á júlíkaup, áfangahækk-
anir í samræmi við kjarasamn-
inga aðila vinnumarkaðarins frá
22. júni s.l. og samningstíma til
1.12 1978. Visitöluákvæði skyldu
vera öbreytt frá fyrri samningi,
þ.e. hlutfallsleg hækkun.
I þessu síðara tilboði launa-
málanefndar felst, að vegin með-
allaun verkfræðinga verða kr.
43.875 hærri en meðallaun þeirra
i maímánuði námu. Nemur hækk-
unin um 24.3%. Byrjunarlaun
verða kr. 161.504 á mánuði (maí-
laun voru kr. 129.910), en hæstu
laun kr. 258.979 (i stað kr. 208.318
í mai). Vegin meðallaun verða kr.
224.293 á mánuði (í stað kr.
180.418). Á þessar tölur bætast
síðan áfangáhækkanir.
Launakröfur Stéttarfélagsins,
eins og þær nú liggja fyrir, fela
hins vegar i sér 23.3% hækkun að
meðaltali á júlikaup, en það er
36.9% hækkun frá meðallaunum í
maímánuði. Hækkunin i krónu-
tölu frá þeim tíma nemur að með-
altali kr. 66.509. Stéttarfélagið
krefst auk þess áfangahækkunar í
hlutfallstölum og samningstíma
til 15. marz 1978. Byrjunarlaun
samkv. kröfugerðinni yrðu kr.
177.792, hæstu laun kr. 285.408,
en vegin meðallaun kr. 246.927.
Þegar þessi staða lá fyrir eftir
fund samningsaðila 9. ágúst s.l.
boðaði Stéttarfélagið með bréfi
12. þ.m. verkfall hjá fjórum verk-
fræðingum, sem starfa við verk-
áætlanadeild Rafmagnsveitunn-
ar, og á verkfallið að hefjast 22.
ágúst.
1 kjaradeilu aðila fyrir u.þ.b.
ári siðan beitti Stéttarfélagið
svipuðum vinnubrögðum, þ.e. að
boða verkfall örfárra verkfræð-
inga á vinnustöðum, þar sem slík-
ar aðgerðir geta verið sérstaklega
viðkvæmar, annaðhvort gagnvart
starfsemi borgarinnar sjálfrar
eða einstaklinga í borginni. 1
þessu sambandi er minnt á, að þá
var reynt með verkfalli 2 verk-
fræðinga í skrifstofu byggingar-
fulltrúa að draga úr eða stöðva
byggingarframkvæmdir i borg-
inni.
Með hliðsjón af því sem hér
hefur verið rakið telja borgaryfir-
völd ekki rétt, að Stéttarfélagið
ráði eitt ferðinni i þessari kjara-
deilu og telji félagið, að nauðsyn
beri til að gripa til verkfallsað-
gerða til að knýja á um lausn
Framhald á bls 18.
með stein, sem hent var I aðra
Ljósm. Mbl.: CcorR.
í Hvera-
helgar
svefnfrið. Nú um síðustu
helgi urðu þrjú fyrirtæki
fyrir barðinu á pörupiltum
þessum, en þá voru unnin
spjöll á pósthúsinu meðal
annars. Voru þar brotnar 2
stórar rúður, sem kosta um
100 þús. kr. Hvergerðingar
hafa lengi reynt að fá lög-
gæzlu á staðinn, en án
árangurs. Engu að síður
stendur lögregluvarðstofa
tilbúin til notkunar. Um
helgar er hér mikil umferð
og finnst Hvergerðingum
ekki lengur hægt að búa
við núverandi ástand í lög-
gæzlumálum. — Georg.
Vestfirzkir
náttúruvemd-
armenn ferð-
ast og funda
AÐALFUNDUR Vest-
firzkra náttúruverndar-
samtaka verður haldinn á
ísafirði á sunnudaginn.
Gestur fundarins verður
Jakob Björnsson, orku-
málastjóri, sem flytur er-
indi um stefnu og valkosti í
orkumálum Vestfirðinga.
1 sambandi við aðalfund-
inn verður efnt til ferðar í
Jökulfirði, sem farin verð-
ur á laugardaginn.
Skemmtiferð
Óðins á
Suðurland
MALFUNDAFÉLAGIÐ Óðinn
efnir ti! skemmtiferðar að Sögu-
aldarbaMium í Þjórsárdal og að
Hraune.v jarfossum og Sigöldu
n.k. sunnudag, 21. ágúst.
I.agt verður af stað frá Valhöll
við Háaleitisbraut 1. kl. 8 ásunnu-
dagsmorgunn. Fargjald fyrir full-
orðna er kr. 2500. en í þvi er
innifalinn hádegisverður á leið-
inni. Gjald fyrir börn er kr. 1000,
en ferðin er opin öllu sjálfstæðis-
fólki.
0
II
PIFCO
LOFTRÆSTIVIFTUR
Á undanfömum tveimur áratugum höfum við byggt upp stcerztu og reyndustu sér-
verzlun landsins með loftrcestiviftur í hibýli, skrifstofur, skóla, samkomuhús,
verksmiðjur,vörugeymslur, gripahús og aðra þá staði þar sem loftrcestingar er þörf.
Veitum tceknilega ráðgjöf við val á loftrcestiviftum.
Nýlega tók iil starfa hér I Keykjavfk fyrirtæki, sem sérhæfir sig (gerð
eldhúsinnréttinga. Nefnist það Eldhúsval s.f. og eru aðaleigendur
Þórarinn Valgeirsson og Haraldur Jónsson. — Fyrirtækið er til húsa
að Njálsgötu 22 og hefur þar sérstakan sýningarglugga með
innréttingum. — Hér á myndinni eru þeir Þórarinn og Haraldur ( einu
af „eldhúsum" sfnum. Innréttingin er úr litaðri eik.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Fálkinfi
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.