Morgunblaðið - 18.08.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. AGUST 1977
7
„Horft eftir
mönnum”
Morgunblaðið birti i
gær stutt viðtal við
Svein Guðmundsson,
bankastjóra á Akranesi
og formann kjördæmis-
ráðs Alþýðuflokksins
þar í bæ. Hann sagði
m.a.: „Benedikt
(Gröndal) hefur nýlega
tilkynnt okkur að hann
muni verða í Reykjavík,
og við þurfum því að
fara að horfa eftir
mönnum til framboðs
fyrir Alþýðuflokkinn á
Vesturlandi." Ennfrem-
ur sagði Sveinn: „Það
er ekkert farið að á-
kveða um prófkjör hjá
Alþýðufloknum f Vest-
urlandskjördæmi enn-
þá.“
Þessi yfirlýsing for-
manns kjördæmisráðs
Alþýðuflokksins á
Vesturlandi virðist
þýða það, að Benedikt
Gröndal hefur brotið
brýr að baki sér á
Vesturlandi. Það þýðir
jafnframt, að hann
hyggst taka þátt í próf-
kjöri um efsta sæti á
^Jramboðslista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík.
Enn þýðir þetta að ann-
ar af tveimur, sem nú
skipa þingbekki Al-
þýðuflokks fyrir
Reykjavfk, Gylfi Þ.
Gíslason (móðurskip
Alþýðuflokksins í síð-
ustu þingkosningum)
eða Eggert G. Þorsteins-
son (eini fulltrúi verka-
lýðshreyfingar í þing-
liði Alþýðuflokksins)
verður að standa upp
fyrir Benedikt. Auðvit-
að er líka fyrir hendi sá
möguleiki, að Benedikt
Gröndal einfaldlega
falli í prófkjöri og væri
þá komin upp býsna
sérstæð staða fyrir Al-
þýðuflokkinn.
Það vekur athygli, að
framangreindar yfirlýs-
ingar um það, að Bene-
dikt Gröndal hyggist
hasla sér völl í Reykja-
vík, koma á meðan
Gylfi Þ. og Eggert G.
eru erlendis, sem þó
getur verið tilviljun
ein.
Alþýðuflokkur
og Alþýðu-
bandalag
Þjóðviljinn hefur
ítrekað látið að því
liggja undanfarið, að
endurskoðunarsinnar í
röðum róttækra sósfa-
lista á tslandi séu höf-
undar svokallaðs
„evrópukommúnisma"
þegar grannt er skoðað.
Umræddur Evrópu-
kommúnismi snýst um
það, a.m.k. í orði
kveðnu, að komm-
únistaflokkar Italíu,
Frakklands og Spánar
varpa fyrir borð kenn-
<ngunni um „alræði ör-
Gylfi Þ. Gíslason — Eggert G. Þor-
steinsson. Hvor þeirra afsalar sér þing-
sæti í Reykjavík fyrir Benedikt Grönd-
al? Eða verður það Benedikt sem missir
af strætisvagninum?
eiganna", tengslum við
framkvæmd sovézks
marx-leninisma og
þjóðnýtingaráformum
að vissu marki — en
taka upp hliðhylli við
leikreglur borgaralegs
lýðræðis, Nató-aðild
þjóða sinna og efna-
hagssamstarf V-
Evrópurfkja.
Þessi blíðmælgi Þjóð-
viljans við „evrópu-
kommúnisma" er f raun
viðurkenning á því, að
klofningur Alþýðu-
flokksins íslenzka árið
1930, þegar Komm-
únistaflokkur Islands
var stofnaður, hafi ver-
ið söguleg mistök, enda
nú — a.m.k. í orði —
strikað yfir þau ágrein-
ingsefni, sem þá vóru
talin réttlæta klofning-
inn.
Þessi viðbrögð Þjóð-
viljans, hvort sem þau
stafa af slægð eða aftur-
bata, eru í raun viður-
kenning á því, að lýð-
ræðislegur sósfalismi
Alþýðuflokksins sé það,
sem blaðið vilji, þó það
hafi ekki breytt í sam-
ra'mi við þann vilja:
Það góða, sem ég vil,
það geri ég ekki. Það
illa, sem ég ekki vil, það
gjöri ég.
Hér hefur Þjóðviljinn
lagt Alþýðuflokknum
sterkt vopn f hendur á
vinstra væng íslenzkra
stjórnmála. Er hér
máske komin skýringin
á því hvers vegna mað-
ur eins og Björn Jóns-
son, forseti ASl, yfirgaf
Alþýðubandalagið og
gekk yfir í Alþýðu-
flokkinn. Eða á þvf að
Magnús Torfi Ólafsson
yfirgaf sama flokk (og
raunar Þjóðviljann
líka) og stofnaði SFV?
Minna má einnig á nöfn
eins og Héðin heitinn
Valdimarsson, Áka
heitinn Jakobsson og
K:rl heitinn Guðjóns-
son. Allir hurfu þeir
Sósíalistaflokknum eða
Alþýðubandalaginu
reynslunni rfkari.
Margt bendir til þess að
Alþýðubandalagið
muni nú standa frammi
fyrir útbrciddri vantrú
og efasemdum fólks,
sem til þessa hefur kos-
1 ið það f góðri trú.
Sumarvertíð lokið á Höfn
Hornafirði 17. áMÚst
Á HORNAFIRÐI lauk
sumarvertíð 26. júlí, er
þorskveiðibannið tók gildi.
Hófust þá sumarfrí skips-
hafna og um leið undirbún-
ingur undir síldarvertíð.
Alls lögðu 34 bátar ein-
hvern afla á land á Höfn á
timabilinu frá 25. maí til
26. júlí. Þar af voru humar-
bátar sem lönduðu reglu-
lega 15 talsins og hand-
færabátar 10. Heildarafl-
inn á þessu tímabili var
128.7 tonn af slitnum
humri og 1335 tonn af öðr-
um fiski. Þar af öfluðu
handfærabátar 267 lestir.
Heildarverðmæti upp úr
sjó var röskar 208 millj. kr.
Allir heimabátarnir, 15 að
tölu, búast nú til síldveiða.
Gunnar
■
?
4-
Það er 5. september
sem námskeiðin hefjast að nýju eftir sumarfrí.
3ja vikna námskeið, dag- og kvöldtímar.
Leikfimi, sturtur, sauna, Ijós, sápa, shampoo,
olíur og kaffi innifalið í verðinu.
Nudd á boðstólum. Strangir megrunarkúrar
4 sinnum í viku.
Haustnámskeiðin eru fljót að fyllast hjá okkur.
Færri hafa komist að en vildu.
Pantið því tímanlega í síma 86178.
Eldri pantanir óskast ítrekaðar.
Á staðnum eru einnig hárgreiðslustofan
Hrund og snyrtistofan Erla til þæginda
fyrir viðskiptavini okkar, sími 44088.
ei»a
Heilsuraektin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360
Snyrtistofan
& Hótel Loft/eiðum
sími 25320
i
Helga Þóra Jónsdóttir,
fótaaðgerða og snyrtisérfræSingur. Heimasimi 36361
Andlitsböð, húðhreinsun,
litun, fjarlægi óæskileg hár af fótleggjum og andliti.
Líkamsnudd — partanudd.
1. flokks aðstaða. Dag- og kvöldtímar (sama verð),
vinn aðeins með og sel hinar viðkukenndu
SANS — SOUCIS snyrtivörur.
Kennsluhúsnæði
vantar sem allra fyrst. Mjög hljóðlát starfsemi.
Þarf að vera í strætisvagnaleið, 70 — 1 00 fm.
Sími 85752.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjoöleildnisinu
kaup:
Notaðir
F ! A T
Eigum til geysilegt
úrval af notuðum
Fiatbifreiðum.
Kynnið ykkur verð
og greiðsluskilmála
Við eigum örugglega
Fiatbíl sem hentar
yður
Davíð Sigurðsson
SÝNINGARSALUR