Morgunblaðið - 18.08.1977, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. AGÚST 1977
lípróHlnl
Framhald af bls. 30
1 10 M GRINDAHLAUP KARLA sek
1 Þorvaldur Þórsson (R 16 0
2 Jón S Þórðarson ÍR 16.3
800 M HLAUP KARLA (B-hlaup) —
1 riðill) Min
1 EinarP Guðmundss FH 1:58.4
2. Jónas Clausen KA 1:59.5
3 Steindór Helgason KA 2:00.0
4 Steindór Tryggvason KA 2:00 3
5 Hafsteinn Óskarsson ÍR 2:01 3
6 Þorgeir Óskarss. ÍR 2:01 6
7 Óskar Guðmundss FH 2:08.5
800 M HLAUP KARLA (B-hlaup — 2
riðill)
1-2 Guðmundur Ólafss IR 2:06 7
1-2. Vésteinn Hafsteinss HSK 2:06.7
3 Kristján Tryggvason KA 2:08 4
4 Jörundur Jónsson ÍR 2:13.2
5 Ingvi Ó Guðmundss FH 2:14 0
6 Karl Blöndal ÍR 2:15.8
7. Magnús Haraldss FH 2-17 3
8 Sveinn Þrastarson FH 2:20 3
LANGSTÖKKKVENNA
1. Björk Ingimundard. UMSB 5.28
2. Lára Sveinsdóttir Á 5 17
3. Matthildur Pálsd. FH 4.61
800 M HLAUPKVENNA:
Min
1. Aðalbjörg Hafsteinsd. HSK 2:26.8
2. GuðrúnÁrnad FH 2:30.3
3 Anna Haraldsd FH 2:37.2
4 Bára Friðriksd FH 2:46.2
3000 M HLAUP KARLA:
1 Josyi Kimeto Kenya 8:10 0
2 Sigfús Jónsson ÍR 8:45.8
3. Ágúst Þorsteinss UMSB 9:11.8
200M HLAUP KARLA: Sek.
1 Charlie Wells USA 22.1
2 Guðlaugur Þorsteinss ÍR 23 2
3. Jón Sævar Þórðarson [R 23.9
HÁSTÖKK KARLA: M
1. Guðmundur Guðmundss FH 1 96
2. Stefán Þ. Stefánsson ÍR 1.85
3—4. Friðrik Þ Óskarss. ÍR 1.80
3—4 Þráinn Hafsteinss HSK 180
200 M HLAUP KVENNA: Sek.
1. Ingunn Einarsd ÍR 25.5
2 Sigurbtrg Guðmundsd Á 25 8
3. Sigriður Kjartansd KA 26 3
4 Rut Ólafsdóttir FH 27 4
800 M HLAUP KARLA: MÍN
Erik Mathisen Noregi 1:52 4
2. Jón Diðrikss UMSB 1:52.6
3. Mike Solomon Trinidad 1:52.8
4 Gunnar P. Jóakimss ÍR 1:53.6
5. Gunnar Þ Sígurðss. FH 1:589
400 M GRINDAHLAUP KARLA Sek
1 Alexand Homtschik USSR 54.2
KRINGLUKAST KARLA: M
1 Erl Valdimarss KR 59 24
2 Óskar Jakobsson ÍR 58 86
3. Guðni Halldórss KR 43.18
4 Al Feuerbach USA 47 68
5. Terry Albritton USA 45.59
— Loðnuklak
Framhald af bls. 32
fundið neitt að ráði af þorskseið-
um enn, þá gefa þær upplýsingar
ekki rétta mynd af hvernig klak
þorsksins hefur heppnazt á þessu
ári. Klakið heppnaðist t.d. mjög
vel i fyrra, og þá fundum við lítið
sem ekkert af seiðum fyrr en við
komum á Húnaflóa, þá fórum við
að finna seiði og síðan við allt
Norðurland og Austfirði. Það má
segja að allt seiðamagnið hafi ver-
ið á þeim slóðum," sagði Hjálmar.
Þá sagði Hjálmar að þegar þeir
hefðu lokið rannsóknum á Húna-
fióa héldu þeir þeim áfram austur
með Norðurlandi og siðar suður
með Austfjörðum, en seiðarann-
sóknunum lýkur væntanlega um
mánaðamótin.
— Strásykur
lækkar
Framhald af bls. 32
Skagfjörð sagði þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann, að óhætt
væri að segja að verð á sykri væri
nú orðið ótrúlega lágt, en auðsætt
væri að framleiðsla á sykri væri
nú gífurlega mikil. Kvað Ingi, að
nú væri í boði strásykur í 50 kílóa
pakkningum á 197 dollara hvert
tonn og væri þá miðað við októ-
berafgreiðslu. Ef keypt væri fyrir
þann tíma, væri verðtilboð frá 204
til 207 dollarar.
Að sögn Inga myndi sykur, sem
kostar 197 dollara hvert tonn fob.
í erlendri höfn, kosta kominn til
Islands um 54 krónur hvert kg og
ætti því smávöluverð ekki að fara
mikið yfir 70 krónur. Gat hann
þess, að i byrjun ágúst hefði
markaðsverð á strásykri verið i
kringum 206 doilarar og reyndar
allt upp í 218 dollara tonnið eftir
gæðum sykursins.
Þá sagði Ingi, að i aprílmánuði
1973 hefði fob. verð sykurs verið
um 262 dollarar tonnið, þá hefði
verið byrjað að stíga og um mitt
ár 1974 var verðið komið í 657
dollara og í desember sama ár í
1480 dollara tonnið.
Hjalti Pálsson, framkvæmda-
stjóri innflutningsdeildar Sam-
bandsins, sagði þegar rætt var við
hann, að sykur, sem þeir ættu nú
kost á að kaupa frá Danmörku
væri á verðinu 128 danskar kr. pr.
100 kíló eða tonnið á rösklega 200
doilara. Kvað Hjalti að verðið
hefði sigið að undanförnu, en
bætti við að ósennilegt væri að
þessi vara ætti eftir að lækka mik-
ið meira.
— Gylfi og
Eggert
Framhald af bls. 32
opinberlega. Til þessa hefur
ekki enn unnizt tími.
Margir forystumenn Alþýðu-
flokksins í Reykjavík hafa sagt
við mig að þeir teldu sjálfsagt
að ég gæfi kost á mér i sama
sæti á listanum i Reykjavík og
ég hef skipað. Ég hef sagt þeim
að mér væri kunnugt um að
ýmsir teldu æskilegt að for-
maður flokksins væri á listan-
um í Reykjavík, en þetta væri
hins vegar mál sem yrði að ræð-
ast ítarlega innan flokksins í
Reykjavik og það teldi ég ekki
unnt fyrr en að loknum sumar-
leyfum. Þetta er enn skoðun
min. Ég tel hér vera um að
ræða mál sem ekki eiga að ræða
á opinberum vettvangi fyrr en
að slíkum innri umræðum lokn-
um.
Það skal ég þó segja að lok-
um, að ég hef ekki hugsað mér
að hætta afskiptum af stjórn-
málum í næstu kosningum.“
Morgunblaðið náði tali af
Eggert G. Þorsteinssyni í gær
þar sem hann var staddur í
Hirtshals í Danmörku að kynna
sér fiskvinnslu í hinum kunna
útgerðarbæ. Spurningu blaðs-
ins um ákvörðun á þátttöku i
prófkjöri svaraði Eggert: „Ég
svara því eindregið þannig að
áður en ég fór í mitt sumarleyfi
höfðu mér borizt all margar
áskoranir um að verða i kjöri og
því hef ég svarað játandi.“
Þá var Eggert spurður álits á
þeirri skoðun sem Benedikt
Gröndal lét í ljós í Morgunblað-
inu, að það væri eðlilegra að
formaður Alþýðuflokksins væri
í framboði í Reykjavík, en ekki
fulltrúi kjördæmis úti á landi.
„Á þessu hefur verið allur
gangur i Alþýðuflokknum eins
og i öðrum stjórnmálaflokk-
um“, sagði Eggert, „en ég efast
hins vegar ekkert um persónu-
legt mat Benedikts að það sé
auðveldara að gegna for-
mennsku með því að vera full-
trúi í Reykjavik. Að mínu mati
er það þó ekki neitt ófrávíkjan-
legt né sjálfsagt nú fremur en
áður.“
Um prófkjörsfyrirkomulagið
sagði Eggert: „Mitt mat hefur
alla tíð verið það að stefna ætti
að sem allra lýðræðislegustum
prófkjörsháttum. Hvort skrefið
hefur verið stigið of langt nú í
einu er spurning og ég hef
reyndar verið einn af þeim Al-
þýðuflokksmönnum sem hafa
verið á þvi. Það er sitthvað að
stefna ákveðið að marki eða
taka áfangann í einu stökki.
Þetta var niðurstaða meiri-
hlutans og fyrir því ber að
beygja sig.“
— Frystihús
lokar...
Framhald af bls. 32
þannig að það gæti reynt að út-
vega sér annað starf, og i sumar
hefðu mjög margir skólanemend-
ur unnið i frystihúsinu og færu
þeir brátt í skóla á ný. „Því miður
fer það fólk sem vill vart í önnur
frystihús hér á svæðinu, þar sem
þau eru líka að stöðvast. Hins
vegar vona ég að það birti til á ný,
og á ég von á því að það verði fyrr
en seinna, þá munum við hefja
vinnslu þorsks og skyldra teg-
unda á ný,“ sagði Einar.
—Avextir hækka
Framhald af bls. 32
Times kemur fram, að vegna
frostskemmda verði ávaxta-
framboð í löndum Efnahags-
bandalagsins nú mun minna
en síðustu árin og reyndar er
talið að uppskeran verði sú
minnsta siðustu 13 ár. Talið er
að eplauppskeran verði aðeins
um 5.4 milljón tonn, en í fyrra
var hún 6.5 milljónir tonna og
meðaltalið árin 1972—76 var
6.8 milljónir tonna. Segir blað-
ið að aðeins í Italíu og Dan-
mörku reikni menn með að fá
svipaða uppskeru og fyrr. Þá
virðist peruuppskera Efna-
hagsbandalagsríkjanna ætla
að verða á bilinu 2,05—2.15
milljónir tonna, en hún var
2.65 milljónir tonna á síðasta
ári.
Nokkur undanfarin ár hafa
Efnahagsbandalagslöndin
eyðilagt hluta eplauppsker-
unnar, þar sem framleiðendur
hafa haldið því fram að þeir
næðu ekki viðunandi verði fyr-
ir afuröir sínar. Þannig var
fleygt 827,280 tonnum á síð-
asta ári, um helmingi magns-
ins í Frakklandi, 328 þúsund
tonnum var fleygt á Italíu og
afganginum í Hollandi, Belgíu
og Vestur-Þýzkalandi.
— ísraelsstjórn
Framhald af bls. 1
svæðunum, en jafnframt verið
ófáanlegur til að slá nokkuð af
fyrirætlunum stjórnvalda í þess-
um efnum, eins og kapp hefur
verið lagt á af hálfu Bandaríkja-
stjórnar í ljósi friðarum-
leitananna sem nú standa yfir.
I fréttum frá Washington í
kvöld var frá því skýrt að stjórnin
þar myndi bera fram mótmæli
gegn ákvörðun Israelsstjörnar um
búsetu á vesturbakkanum, og af-
henti Samuel Lewis, sendiherra
Bandaríkjanna þar, orðsendingu
þessa efnis í dag. Lewis afhenti
einnig Begin forsætisráðherra
orðsendingu frá Carter Banda-
ríkjaforseta í gær, og er ætlun
manna að þar hafi Carter lýst
áhyggjum sínum yfir fyrirætlun-
um Israelsstjórnar varðandi bú-
setu á herteknu svæðunum. Tals-
maður Bandaríkjastjórnar gaf í
skyn i dag, að hún hefði ekki
fengið vitneskju um þessa ákvörð-
un Israelsstjórnar áður en hún
var formlega tilkynnt.
Forsvarsmenn samtaka
Palestínuaraba gáfu einnig út
harðorða mótmælayfirlýsingu er
fregnir bárust af ákvörðun
Israelsstjórnar og sögðu að hún
væri aðeins enn ein sönnun um
ráðagerðir Israelsmanna um inn-
limun þessarra umdeildu svæða í
Israelsríki og um útþenslustefnu
þeirra.
— Vilji borgar-
yfirvalda
Framhald af bls. 2
ég að mótmæla þeirri fullyrð-
ingu að menn hafi ekkert feng-
ið fyrir sína peninga.
Á þessum tíma var það stefna
borgaryfirvalda að gatnagerð-
argjöld skyldu duga til greiðslu
á framkvæmdum við stofnlagn-
ir og ræsi og undirbyggingu
gatna. Þessar framkvæmdir
fóru fram í Ártúnshöfðahverf-
inu, þannig að fyrir sín gatna-
gerðargjöld fengu menn það,
sem til stóð. Síðan hefur verið
reynt að láta gatnagerðargjöld-
in hrökkva líka til malbikunar-
framkvæmda, sérstaklega í
ibúðahverfunum og eftir mætti
i iðnaðarhverfum líka.
En meðal skýringa á þvi
hversu hægt framkvæmdir í
Ártúnshöfðahverfinu hafa
gengið má nefna að byggð þar
er mjög dreifð og til skamms
tíma voru þar byggingar á ýms-
um framkvæmdastigum. Þá var
það og viss hindrun i uppbygg-
ingu svæðisins að um það lágu
línur, sem torvelduðu bygg-
ingaframkvæmdir. Þessar línur
hafa nú verið fjarlægðar og líta
má á þær framkvæmdir, sem
gerðar verða í sumar, sem byrj-
unarframkvæmdir á- lokafrá-
gangi svæðisins.
En óhjákvæmilegur niður-
skurður á útgjöldum borgar-
sjóðs bitnaði á framkvæmdum
á Ártúnshöfða sem annars stað-
ar, og því er framkvæmdum við
Breiðhöfða frestað, svo og að
setja yfirlag á Bildshöfða og
Höfðabakka, en sett verður
yfirlag á tvær siðast töldu göt-
úrnar.
Þessar götur verða malbikaðar,
en sennilega verður að fresta
siðasta slitlaginu á síðasttöldu
áföngunum yfir á næsta ár.
Eg legg á það áherzlu, að
borgaryfirvöld vilja hafa gott
samstarf við Ártúnshöfðamenn
og það er vilji okkar að fram-
kvæmdum á svæðinu geti lokið
svo fljótt sem kostur er“, sagði
Ölafur B. Thors.
— Sovétríkin
Framhald af bls. 1
Sovétríkin hafa ekki áður tekið
svo afdráttarlausa afstöðu i átök-
um þeim sem nú eiga sér stað í
Ogadenhéraði innan landamæra
Eþíópíu, þar sem stjórnarherinn
hefur undanfarnar vikur átt í
höggi við skæruliða, sem Sómalir
styðja. Eþíópíustjórn hefur sakað
Sómali um að hafa sent hersveitir
inn fyrir landamærin skæruliðum
til aðstoðar en Sómalir neita öllu
sliku.
i Izvestiagreininni er lögð á það
áherzla, að bardagarnir standi
milli hersveita úr Sómalíuher og
eþíópiskra hersveita, og það sé
staðreynd að átökin eigi sér stað á
eþíópísku landsvæði og Eþiópía
sé þannig fórnarlamb vopnaðrar
innrásar.
Náið samband hefur verið milli
Sómalíu og Sovétríkjanna um
langt skeið, þannig að i Sómalíu
hafa Sovétmenn um árabil haft
herstöðvar og lagt landinu til
hernaðarráðunauta. Vestrænir
sendiráðsmenn segja þó, að enn
séu engin merki þess að sovézkir
borgarar séu farnir að yfirgefa
landið, þrátt fyrir að Sovétríkin
hafi nú tekið að halla sér æ meira
að Eþíópiumö'nnum, sem til
skamms tima nutu hernaðarað-
stoðar Vesturveldanna. Er nú svo
komið að Sovétmenn sjá báðum
hinum stríðandi þjóðum fyrir
vopnum, en Sómalir hafa þó upp
á síðkastið þreifað fyrir sér um
vopnakaup frá Vesturlöndum.
Sómalir hafa látið í það skína að
Eþíópíumenn vænti beinnar
hernaðaraðstoðar erlendis frá og
þá einkum frá Kúbu, og sagði
útvarpið í Mogadishu i dag að
slíkt myndi leiða til beinnar
styrjaldar milli ríkjanna tveggja.
Skæruliðar eru nú sagðir hafa
mestan hluta Ogadenhéraðs á
valdi sínu, en það er um fjórðung-
ur allrar Eþíópíu. Eþíópíumenn
segja að skæruliðar hafi notið að-
stoðar innrásarliðs frá Sómaliu,
en því hefur verið harðlega neitað
i Sómaliu og fullyrt að þarna berj-
ist skæruliðar einir, sem vilja að-
skilnað þessa landshluta frá
Eþíópíu. Vestrænir menn í
Sómaliu eru þó þeirrar skoðunar,
að skæruliðum hafi ekki tekizt að
hrekja herafla Eþíópíumanna úr
héraðinu algerlega á eigin spýtur
og hersveitir frá Sómalíu hljóti að
hafa átt þar hlutdeild í.
— 600 milljónir
Framhald af bls. 3
gert hvort hann hefði áður lagt
fram fé til skákviðburða, eða
hvort áhuginn hefði vaknað með
samningnum við Korchnoi, svar-
aði hann því til að skákklúbbur-
inn i Porz hefði haldi.ð uppi öfl-
ugu skáklífi síðustu tuttugu árin.
Ekki kvaðst Hilgert hafa heyrt
neitt frá Fischer eða neinum á
hans vegum, heldur væri áhuginn
til kominn fyrir orð Korehnois, en
hann skýrði frá þvi i viðtali við
Mbl. fyrir skömmu, að hann væri
á förum til fjölteflisferðar um
Bandaríkin og vænti þess að hitta
Fischer að máli í þeirri ferð.
„Mér er til efs, að Korchnoi hafi
nefnt einhverjar tölur“, sagði Hil-
gert, þegar Mbl. skýrði honum frá
þvi að upphæðin væri höfð eftir
stórmeistaranum. „Hvað sem
öðru líður hefur ekkert í þá veru
verið rætt og sú upphæð, sem
þarna er getið um, er i mínum
augum alltof há“.
— Kappler er
í Luneburg
Framhald af bls. 15
bréf frú Kapplers að persónuleg-
ar tilfinningar hans yrðu að vikja
þegar þjóðin sýndi svo augljósa
fordæmingu á þeirri moðgun sem
hún hefði orðið að sæta.
Þýzka blaðið Bild Zeitung hafði
eftir Anneliese Kappler, að hún
hefði gripið til þess að hjálpa
eiginmanni sínum við hinn fífl-
djarfa flótta af sjúkrahúsinu
vegna þess, að hann hefði hótað
að fremja sjálfsmorð, þar sem ör-
vænting hans hefði verið alger.
Hún kvaðst ekki hafa notið að-
stoðar eins né neins og spilað al-
gerlega upp á eigin spýtur. „Ég
tók hann bókstaflega undir hönd-
ina og flúði með hann“ segir hún
og bætir því við að Herbert
Kappler sé sannkristinn maður og
hefði því tilhugsun um sjálfsmorð
i rauninni verið honum ógeðfelld,
en hann hefði ekki séð neina aðra
lausn. Bild Zeitung birti aðeins
útdrátt úr viðtalinu, en það birtist
i heild á morgun, fimmtudag.
— Borgin býður
Framhald af bls. 5
kjaradeilunnar sé eðlilegt, að þeir
félagsmenn sem hlut eiga að máli,
eigi þar jafna aðild að. Launa-
málanefnd og borgarráð hafa því
i dag ákveðið að setja verkbann á
aðra meðlimi Stéttarfélags verk-
fræðinga, sem vinna hjá Reykja-
víkurborg eða stofnunum hennar.
Verkbannið hefst frá og með 25.
ágúst n.k. og stendur meðan áður-
nefnd vinnustöðvun fjögurra
verkfræðinga er ekki afturkölluð,
eða þar til kjarasamningar milli
Reykjavíkurborgar og Stéttarfé-
lags verkfræðinga hafa verið
gerðir.
Að lokum skal áréttað, að
Reykjavíkurborg er og hefur
jafnan verið reiðubúin að ráða
verkfræðinga til starfa á sömu
kjörum og verkfræðingar i þjón-
ustu rikisins njóta.“