Morgunblaðið - 18.08.1977, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. AGUST 1977
radauglýsingar
raðauglýsingar
raöauglýsingar
/o
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans h.f. Gjald-
heimtunnar í Reykjavík og samkvæmt
fógetaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m.
verða lögtök látin fram fara fyrir van-
greiddum opinberum gjöldum, skv. gjald-
heimtuseðli 1977, er féllu í eindaqa þ.
1 5. Jxm.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignar-
skattur, kirkjugjald, kirkjugarðsgjald,
slysatryggingargjald, vegna heimilsstarfa,
iðnaðargjald, slysatryggingargjald, at-
vinnurekenda skv. 36. gr. 1. nr.
67/1971 um almannatryggingar, lífeyr-
istryggingarfjald skv. 25. gr. sömu laga,
atvinnuleysistryggingagjald, launaskatt-
ur, útsvar, aðstöðugjald, iðnlánasjóðs-
gjald, iðnaðarmálagjald og sjúkratrygg-
ingargjald.
Ennfremur nær úrskurðurinn til gjald-
hækkana og skattsekta, sem ákveðnar
hafa verið til ríkissjóðs pg borgarsjóðs svo
og til skatta, sem innheimta ber skv.
Norðurlandasamningi sbr. 1. nr.
1 1 1 /1972.
Lögtök fyrir framangreindum sköttum og
gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostn-
aði, verða látin fram fara að 8 dögum
liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
verði þau eigi að fullu greidd innan þess
tíma.
Borgarfógetaembættid í Reykjavík,
16. ágúst 1977.
] [
Lögtaksúrskurður
Að kröfu sveitarsjóðs Gerðahrepps úr-
skurðast hér með að lögtak má fara fram
að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar
þessa, til tryggingar ógreiddum en gjald-
föllnum fasteignagjöldum, aðstöðugjaldi,
hreinsigjaldi og útsvari ársins 1977 til
sveitarsjóðs Gerðahrepps.
Kef/avík 12. ágúst 1977,
Sýs/umadurinn í Gullbringusýslu.
Ykkur, sem heiðruðuð mig á áttræðisaf-
mæli mínu með veislum, gjöfum og
skeytum, færi ég innilegar þakkir og bið
ykkur heilla og blessunar um alla framtíð.
Lýður Jónsson.
FÉLAGSSTARF
Málfundafélagið Óðinn
efnir til skemmtiferðar sunnudaginn 21. ágúst.
Farið verður að Búrfelli, í Sögualdarbæinn í Þjórsárdal. að
Hrauneyjarfossum, og í Sigöldu.
Farseðill fyrir fullorðna kostar 2500 kr. fyrir börn 1000 kr.
Innifalið er hádegisverður. lagt verður af stað frá Valhöll,
Háaleitisbraut 1, kl. 8.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Upplýsingar um ferðina eru veittar á skrifstofu Óðins. milli kl
1 7 og 1 9 í Valhöll, sími 8292 7. Ferða- og skemmtinefnd.
Stjórn kjördæmissamtaka
ungra sjálfstæðismanna
í Reykjaneskjördæmi
boðar til fundar fimmtudaginn 18. ágúst n.k. kl. 20.30 i
Sjálfstæðishúsinu Keflavik.
Fundarefni:
Undirbúningur fyrir S.U.S.-þíng.
Önnur mál. _ ..
Stjornin.
Ungir sjálfstæðismenn
í Kópavogi
Fundur í Sjálfstæðishúsinu. Hamraborg 1 fimmtudaginn 18.
ágúst kl. 1 7:30.
Fundarefni:
1. Staða ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi.
2. Þing SUS i Vestmannaeyjum 16.—18. sept. n.k.
Fulltrúar frá stjórn SUS mæta á fundinn.
Stjórnin.
Undirbúningur fyrir þing
SUS í Vestmannaeyjum
16. —18. sept.
— Starfshópur um húsnæðismál.
Fundur í Valhöll fimmtudaginn 1 8. ágúst kl. 20:00.
Ritari: Þorvaldur Mawby, framkvæmdastjóri.
Skemmtiferð Hvatar
laugardaginn 20. ágúst
Hvöt félag sjálfstæðiskvenna fer skemmtiferð n.k. laugardag.
Lagt verður af stað frá Valhöll, Bolholti 7 kl. 9 f.h. Farið verður
sem leið liggur austur að Selfossi og Mjólkurbú Flóamanna
skoðað. Þá ekið að Laugarvatni og þar snæddur heitur
hádegisverður. Eftir viðdvöl að Laugarvatni verður farið í
Þjórsárdal og Þjóðveldisbærinn þar skoðaður ásamt Hjálpar-
fossi.
A leiðinni í bæinn verður ekið niður Hreppa, gegnum Biskups-
tungur með smáviðdvöl í Skálholti og siðan á Þingvöllum.
Þátttökugjald er aðeins kr. 2800 og er þá innifalinn hádegis-
verðurinn að Laugarvatni. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir
fimmtudagskvöld 18. ágúst i sima 82900 i Valhöll og þar
verða seldir farmiðar. Allar sjálfstæðiskonur hvattar til þátttöku
og taki með sér gesti.
Sleppa lundapys junum tíl hafs
Lundapysjuveiðar standa nú
yfir af miklum móð í Eyjum, en
fólk á öllum aldri safnar pysj-
unum saman þegar þær fljúga á
nóttinni á ljósin i bænum og
næsta dag er þeim sleppt út á
hafið blátt. Þessi venja hefur
ávallt verið í Eyjum, en víðast
annars staðar á landinu drepa
menn pysjuna, til matar eða
kofuna eins og hún heitir ann-
ars staðar á landinu. Meðfylgj-
andi myndir tók Sigurgeir í
Eyjum af nokkrum unglingum
sem voru að sleppa pysjum á
Eiðinu í Eyjum, en þar er
hundruðum pysja sleppt dag-
lega um þessar mundir.
Það er ekkert smá alvörumál að
hafa Iff pysjunnar í hendi sér,
en þegar búið er að sleppa, fær-
ist bros yfir á ný.
Syntu af
stað vegna
ævintýra-
þrár
Brighton, Englandi,
16. ág. Reuter.
ÞRJU BÖRN, haldin ævintýra-
þrá og löngun eftir að vinna sér
frægð og frama, ákváðu í dag að
synda yfir Ermarsund til
Frakklands — en þeim láðist
að gera foreldrum sínum við-
vart.
Vörður við Brightonströnd-
ina, Ray Walters, var kvaddur
út af vegfaranda sem hafði séð
börnin leggja af stað. Fundust
börnin sem voru systkini, 12 og
14 ára og fjórtán ára vinur
þeirra, i mestu makindum á .
sundi fjórar milur frá strönd-
inni. Vörðurinn sagði að börnin
hefðu haft mestar áhyggjur af
því að fá ekki að halda áfram,
en þegar hann hefði sagt þeim
hversu langt þau hefðu synt
hefði stúlkan Sara látið i ljós
gleði sína og talið að hún myndi
fá fyrir þetta viðurkenningu
hjá sundkennara sinum. Voru
þau því næst flutt til sama
lands. Þar tóku þau upp klæði
sín og gengu á brott eins og
ekkert hefði i skorizt. Frá
Brighton til Frakklandsstrand-
ar eru 68 mílur.