Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 44
AI:<;lYS!N<;ASIM!NN KR: 22480 A u<;lYsin<;asíMINN ER: 22480 |W»r0tnil>lfií)ií> ÞIiIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 Heimsmeistarinn heim VKRÐLAUNAAFHENDING á heimsmeistaramóti unKlinga f skák undir 17 ára aldri fór fram í Cagnes f Surtur-Frakklandi kl. 20 art íslenzkum tíma í gærkviildi. Fíkk þá Jón L. Árnason heimsmeistara- hikarinn f hendur o« virturkenninearskjal frá borKarstjórn CaKnes, art því loknu var fslenzki þjóðsöngurinn leikinn. Sfrtan voru afhent verrtlaun fyrir önnur verölaunasæti. Er Jón væntanlegur heim með hikarinn í dag. Jón L. Árnason sigraði glæsi- lega á heimsmeistaramóti ungl- inga i skák i S-Frakklandi, sem lauk un helgina, og hlaut 9 vinn- inga af 11 mögulegum. Á sunnu- dag samdi Jón um jafntefli við Morovic frá Chile eftir aðeins 8 leiki og innsiglarti þá sigur sinn á mótinu. í öðru sæti varð Banda- ríkjamarturinn Jay Whitehead með 8'/6 vinning og þriðjí varð Rússinn Garri Kasporov með 8 vinninga, en hann var talinn sigurstranglegastur fyrir mótirt enda unglingameistari Sovétríkj- anna. Árangur Jóns á mótinu er mjög góður og er vinningshlutfall hans 82%. Jón fékk mjög margar biðskákir til að vinna úr, á meðan helztu keppinautar hans tóku líf- inu með rö. Aðstoðarmaður Jóns á mótinu var Margeir Pétursson. Jön L. Árnason er 16 ára fædd- ur 13. nóv. 1960, og er hann fyrsti heimsmeistarinn sem ísland eign- ast. Margeir sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að verðlaunaafhendingin f gær hefði byrjað með ávarpi framkvæmda- stjóra mótsins og franska skák- sambandsins, Allisse. Siðan hefði hver keppandi gengið fram og tekið við sínum verðlaunum. með bikarinn Sjá hls. 16 17 í dag „Jón L. Árnason var kallaður fram fyrstur sem siguréegari og var Einari Benediktssyni sendi- herra íslands í Frakklandi, falið að afhenda honum verðlaunin, en Einar kom hingað i dag til að vera viðstaddur verðlaunaafhending- una og var hann með okkur stór- an hluta dagsins. Það fór ekki á milli mála að okkur hlýnaði um hjartaræturnar þegar islenzki þjóðsöngurinn var leikinn," sagði Margeir. Á eftir Jóni tóku þeir sem á eftir komu við sínum ■ verðlaun- um. Að því loknu flutti borgar- stjórinn i Cagnes ávarp og þakk- aði keppendum fyrir dvölina i borginni. Er borgarstjórinn hafði Framhald á bls. 28. Iðnkynning í Reykjavfk var opnurt við hátfðlega og fjölmenna athöfn f Austurstræti f gær og var þá um leirt opnuð útisýning á irtnvarningi f Austurstræti og á Lækjartorgi. Mynd þessa tók Ijósm. Mhl. ÖI.K.M. f Austurstræti f gær, en sagt er frá opnunarathöfninni á bls.27. Siglufirði 19. sept. SKUTTOGARINN Dagný frá Siglufirði seldi í gær 127 tonn af karfa og ufsa í V- Þýzkalandi. Fékkst mjög gott verð fyrir aflann eða 234 þús- und v-þýzk mörk, sem nemur um 20.7 milljónum íslenzkra króna. Fengust því um 163 krónur fyrir hvert kíló. Er þetta fyrsta sala íslenzks skips í erlendri höfn á haustinu. — mj. Ljósm. Mbl.: Frióþjófur. Séð inn í púðurgeymsluna, þar sem um 300 kg. af púðri eru geymd. I gær var horfirt frá því art eiga viö púðrið, sem staflað er I plastpokum, og átti art fá efna- fræðing i dag til art rannsaka mál- irt og gera tillögur um meðferrt púrtursins. Utanríkis- ráðherra ræðir við fuUtrúa úr st jórn Carters EINAR Agústsson, utanríkisrárt- herra, átti í gær fund mert Harold Brown, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og ræddu þeir þar um samskipti ríkjanna tveggja á svirti varnarmála, art því er greint er frá í AP-skeyti til Morgunhlartsins frá Washington. Einar Ágústsson er nú í Banda- ríkjunum í boði Cyrus R. Vance, utanríkisráðherra Bandarikj- anna, og mun hann hitta að máli ýmsa helztu fulltrúa hinnar nýju stjórnar Carters. Um helgina hitti utanríkisráðherra til að mynda Walter Mondale, varaforseta, og síðar í vikunni mun hann heim- sækja herstöðvar í Colorado og Virginiu en hann mun siðan nk. laugardag snúa aftur til Washing- ton til viðræðna við Vance. \ Slmamynd AP. Jón L. Arnason, heimsmeistari unglinga í skák, ásamt þeim, sem urðu í 2. og 3. sæti. Kasporov, sem varð f þriðja sæti, er lengst til vinstri, Jón fyrir miðju og Jay Whitehead frá Bandarfkjunum til hægri, en hann hafnaði f örtru sæti. Sprengingin á Akranesi: Tugmill j ónatj ón á fjörutíu eignum Sjá lýsingar sjónarvotla vidtól vió tjónþola á hls. .1. Vikuheimsókn forsætis- ráðherra til Rússlands OPINBER heimsókn Geirs Hallgrímssonar forsætisráð- herra og konu hans, Ernu Finnsdóttur, til Sovétríkjanna hefst í dag. Heimsóknin, sem standa mun i viku, er fyrsta heimsókn forsætisráðherra ís- lands til Sovétríkjanna. Forsæt- isráðherrahjónin munu ferðast víða um Sovétríkin. Með forsætísráðherra verður Björn Bjarnason, skrifstofu- stjóri í forsætisráðuneytinu, og Pétur Thorsteinsson sendi- herra. Ennfremur munu fara með þeim nokkrir blaða- og fréttamann. Dagskrá heimsóknarinnar er þannig að fyrstu dagana verður dvalizt í Moskvu, en síðan verð- ur flogið til Yerevan, sem er höfuðborg Armeníu. Þaóan verður svo haldið til Tibilissi, sem er höfuðborg Georgíu. Frá Tibilissi verður flogið til Kiev, höfuðborgar Ukraníu, en þaðan aftur til Moskvu. Lýkur heim- sókninni á Moskvuflugvelli ár- degis hinn 27. september, en þar á sama stað hefst hún í dag klukkan 19.25 að staðartima. FIMMTÍU og fjiigurra ára maður, Helgi Guðmundsson, Esjubraut 7, Akranesi, lézt á sunnudag eftir að sprenging varð í fyrirtæki hans, Flugeidagerrtinni h.f., og sonur s:: ipn. Helgi Guðmundsson. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn. hans á fjóðra ári, Magnús Bald- vin, liggur lífshættulega brunn- inn á Landspítalanum í Reykja- vik. Hús Flugeldagerðarinnar sprakk í loft upp og olli loftþrýst- ingurinn frá sprengingunni og fljúgandi lausahlutir tjóni á um 40 eignum á Akranesi; þrír bátar skemmdust, nokkrir bílar og tjón varð á 18 íbúðarhúsum og tveim- ur verkstæðishúsum. Ekki var í gær búið art fullmeta skemmdirn- ar, en að sögn skoðunarmanna lék tjónið á íbúrtum frá tugum upp í hundrúð þúsunda, þannig art Ijóst er art um tugmilljónatjón er aö rærta, þar sem aðeins vörubirgðir og annart inni í verksmiðjuhúsinu var metirt á um tíu milljónir króna. Menn frá rannsóknarlög- reglu rikisins komu til Akraness art rannsaka rnálið, en í gærkvöldi var ekki Ijóst mert hverjum hætti þessi gífurlega sprenging varð. Að sögn Stefáns Bjarnasonar, Framhald á hls. 28. Góð sala Dag- nýjar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.