Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 1
44 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 208. tbl. 64. árg. ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Barizt í suðurhluta Líbanon: Hersveitir ísraela eru í viðbragðsstöðu Beirut, Tel Aviv, 19. september — Reuter, AP. HARÐIR bardagar stóðu f allan dag I suðurhluta Lfbanon milli fvlkinga vinstri manna og Palestfnumanna annars vegar og hægri manna hins vegar um yfirráð yfir nokkrum þorpum í þessum lands- hluta. Hægri menn njóta hernaðaraðstoðar frá Israelsmönnum, og hafa ísraelskir hermenn á landamærunum fylgzt náið með þessum átökum og eru hersveitir þeirra í viðbragðsstöðu, ef svo skyldi fara að sýrlenzkt herlið gripi þarna í taumana og veitti vinstri mönnum og Palestfnumönnum liðveizlu sfna. Róstusamt hefur verið lengi á þessum slóðum, en átökin mögn- uðust mjög urn helgina. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínuaraba, hefur beðið leiðtoga Arabaríkj- anna að láta átökin til sína taka og skakka leikinn áður en meirihátt- ar bardagar brjótist út, en þetta þykir benda til þess, að vinstri menn og Palestínumenn standi höllum fæti í átökunum við kristna hægri menn, sem njóta aðstoðar ísraelsmanna. Yasser Arafat skýrði frá því í gærkvöldi, að komið hefði til þriggja meiriháttar bardaga í dag í Líbanon milli Palestínumanna og „isralesks herafla" og sagði hann átökin ékki standa milli kristinna manna og múhamðstrú- armanna né palestínumanna og Líbanonmanna heldur væri um að ræða hreina árás af hálfu ísra- elsmanna á Libanon. Varnarmálaráðherra Ísraels fór í dag í heimsökn í landamærahér- uð þau i israel sem liggja að þeirn hluta Líbanon þar sem átökin standa. Hefur hersveitum ísraels- manna í þessunt hluta landsins verið skipað að vera við öllu bún- ar. BE\-ÆVSC,YM vonir lækna um að unnt yrði að stöðva faraldurinn i byrjun. Samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru i Dacca munu að minnsta kosti 111 manns hafa lát- izt af völdum sjúkdómsins i sið- ustu viku í kjölfar flóða i norður- hluta Bangladesh. Öll fórnar- lömbin fengu kóleruna úr fæðu og drykk, er mengazt hefði af flóðavatninu. Stjórnin og Al- þjóðaheilbirgðisstofnunin hafa tekið höndum saman við að hindra frekari útbreiðslu kóler- unnar. Þá hefur flokkur hjúkrunarliða frá Nýja-Sjálandi skýrt frá því, að á Gilberteyjum í Kyrrahafi hafi Framhald á bls. 28. Schleyer er sagður á lífi Bonn, 19. sept. Reuter, AP. RÁÐHERRAR i stjórninni komu saman til fundar í dag til að ræða framvindu Schley- er-málsins, en eftir því sem óstaðfestar fregnir herma eiga stjórnvöld að hafa fengið fyrir því frekari sannanir frá mann- ræningjunum, að Schleyer sé enn á lífi. Walter Scheel, forseti V- Þýzkalands, gerði mannránið að umtalsefni í ræðu í dag, þegar hann bar til baka_ ásak- anir um að fasistiskum skoðun- um vaxi fylgi í Þýzkalandi á nýjan leik. Taldi hann með- höndlun stjórnarinnar á Schleyar-málinu einmitt bera vitni um, að ekki væri beitt ólýðræðislegum aðferðum til að berjast gegn hermdarverka- mönnum. Eiginkonan tók við forystu flokksins Belgísku konungshjónin höfðu stutta viðdvöl hér- lendis í gær á leið sinni til Kanada. Klukkan 11:45 í gær lenti flugvél konungshjónanna á Keflavíkur- flugvelli og tóku þar íslenzkir embættismenn á móti þeim. Síðan var ekið til Bessastaða og höfðu Baudoin og Fabiola þar skamma viðdvöl ásamt fylgdarliði sínu og nokkrum íslenzkum gestum. Frá Bessastöð- um var haldið laust fyrir kl. 13 og um kl. 13:30 héldu þau áleiðis til Kanada, en þangað var ferðinni heitið í opinbera heimsókn. Bhutto í varðhaldi: Rawalpindi, Pakistan, 19. september — Reuter. AP. NIJSRAT Bhutto, eiginkona Ali Bhutto, fyrrum forsætisráðherra, sem nú situr í varðhaldi í Kar- achi, hefur tekió að sér til bráða- birgða að veita forystu flokki Bhuttos, Þjóðarflokknum. Nusrat Bhutto kom fram á fjöl- mennum kosningafundi í dag, þar sem tugir þúsunda stuðnins- manna Bhuttos kröfðust þess að hann yrði látinn laus. „Þeir óttast Bhutto og hafa þess vegna tekið þann kostinn að geyma hann bak við lás 'og lá,“ sagði eiginkona Bhuttos í ræðu sinni á útifundin- um, og bætti því við, að þessi ráðstöfun yrði þó einungis til að auka enn fylgi Þjóðarflokksins. Ali Bhutto er sakaður um marg- víslegt misferli frá þeirri tíð er hann var forsætisráðherra Pakist- ans eða allt til þess að herfor- ingjaráð tók þar völdin undir for- ustu Zia, hershöfðingja, í júlí í sumar. Hann hefur þó heitið því að endurreisa lýðræði í landinu með kosningum sem fyrirhugaðar eru í október næstkomandi en mikil ókyrrð hefur verið i landinu um langt skeið og er enn, ekki sízt meðal stuðningsmanna Bhuttos. að fangelsa mann hennar til hæstaréttar landsins, og mun rétt- urinn taka málið fyrir á morgun, London, 19. september, Reuter. STJÖRNVÖLD í Bangladesh skýrðu frá því í dag, að meira en 100 tilfella af kólcru hefði orðið vart þar í landi og jafnframt hafa fréttir borizt frá Gilberteyjum í Kyrrahafi að þar hafi 17 manns látizt af völdum kóleru. Þá heldur kólerufaraldurinn áfram að breiðast út í Austurlöndum nær, þar sem upp hafa komið 54 ný tilfelli í Jórdaníu og Sýrlandi og eru þá sjúkdómstilfellin í báðum þessum löndum orðin alls um 2.800, sem gerir nánast að engu Ali Bhutto þriðjudag. Zia hefur lýst því yfir að valdsvið hans nái ekki til rétt- arkerfisins og er þvi úrskurðar hæstaréttar beðið með töluverðri eftirvæntingu. Polansky fékk 90dasra fang- elsisvist Santa Monica, Kaliforníu, 19. september — Reuter ROMAN Polansky, kvik- myndaleikstjóri, var í dag úr- skurðaður í 90 daga varðhalds- vist nteðan hann á að gangast undir geðrannsókn en Polan- sky liggur undir ákæru um að hafa neytt 13 ára skólatelpu til lags við sig. Dómarinn í máli þessu kvaðst ekki mundu kveða upp fullnaðardóm fyrr en hann hefði fengið í hendur skýrslu gcðlæknis um andlegt heilbrigði Polanskys. Jafnframt þessu féllst dóm- arinn á að Polansky fengi 3ja mánaða frest til að hefja varð- haldsvistina meðan hann lyki við gerð nýrrar kvikmyndar sem taka skal á Tahiti, enda beitti lögfræðingur Polanskys þeim rökum, að hundruð manna myndu missa vinnuna, ef Polansky^yrði gert að hefja fangelsisvistina þegar í stað. Átök magnast enn í Eþíópíu Nairobi, Kenya, 19. sept. — Reuter, AP HERNAÐARYFIRVÖLD í Eþíópíu eiga í gær að hafa skipaö allsherjarárás flugflota landsins á landsvæði þau sem Sómalfu- menn og frelsishreyfing Vestur- Sómalíu ráða í Ogadenhéraði. Heimildir í Addis Ababa, höfuð- borg Eþíópíu, greindu frá því, að allur flugfloti landsins hefði haldið uppi stöðugum loftárásum á skriðdrekasveitir og stórskota- og fótgöngulið Sómala í allan dag. Eþíópíumenn segja að þeim hafi orðið verulega ágengt í þessum bardögum, en Sómalir bera það til baka og fullyrða að þeim hafi vegnað betur í bardög- unum í dag. Af hálfu Eþíópiumanna er þvi haldið fram, að eþiópískar flug- vélar hafi skotið niður 28 Mig- Framhald á bls. 28. Kólera breiðist enn út í Austurlöndum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.