Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 19 EUAS SIGRAÐI [LUNDÚNUM - náði ágætum árangrí, hlaut 7363 stig ELÍAS Sveinsson, KR, sannaði enn einu sinni um hclgina að hann er nú að verða tugþrautar- maður í fremstu röð, en þá bar hann sigur úr býtum í tugþrautar- keppni sem fram fór á Crystal Palace-leikvanginum í Lundún- um og náði ágætum árangri, hlaut 7363 stig. Hefur enginn fslend- ingur náð svo góðum árangri í tugþraut, þegar notuð hefur verið rafmagnstímataka, og er mjög líklegt að Elías hefði verið alveg við met Stefáns llallgrímssonar hefði verið notuð skeiðklukku- tímataka. A Elías reyndar enn möguleika á að ná meti Stefáns í ár, þar sem honum hefur verið boðin þátttaka í tugþrautar- keppni í Sviþjóð um mánaðamót- in, og er vonandi að honum gefist tækifæri til að kcppa þar. Tugþrautarkeppnin í Lundún- um var jafnframt landskeppni milli Islendinga og B-liða Bret- lands og Frakklands. Sigruðu Frakkar í þrautinni með 20.575 stigum samtals, Bretar urðu i öðru sæti með 20.068 stig og Is- lendingar hlutu 19.985 stig. Er ekki vafamál að íslendingar hefðu sigrað þarna, hefðu þeir getað teflt fram fullu liði, en hvorki Stefán Hallgrímsson, KR, né Vilmundur Vilhjálmsson, KR, Elías Sveinsson náði ágætum árangri í Lundúnum. Enn forföll í landsliðinu - ÓLAFUR SIGURVINSSOIM MUN EKKI LEIKA MEÐ ÞAÐ BLÆS ekki byrlega fyrir Tony Knapp landsliðsþjálfara og félögum hans í landsliðsnefnd að koma saman liði fyrir landsleik- inn við Ira í Belfast á miðviku- dagskvöldið. Nú hefur komið í ljós að Olafur Sigurvinsson, bak- vörður úr IBV, getur ekki leikið þcnnan Ieik vegna veikinda, en Ölafur hefur dvalið í Belgíu hjá Ásgeiri bróður sínum að undan- förnu. Auk Ölafs geta þeir Teitur Þórðarson, Gísli Torfason og Árni Stefánsson ekki leikið með vegna meiðsla og þeir Ingi Björn Al- bertsson og Guðmundur Þor- sem eiga góðan árangur í tug- þraut, voru þarna með. — Við áttum möguleika á að sigra Breta, þrátt fyrir þetta, sagði Ólafur Unnsteinsson, þjálf- ari íslenzku tugþrautarmann- anna, í viðtali við Morgunblaðið í gær, — en urðum fyrir þvi óhappi að Jón Sævar Þórðarson meiddist í keppninni og varð að hætta eftir fyrri daginn. Þá er ekki hægt að segja að Elías hafi verið heppinn að þessu sinni, sagði Ólafur, hann átti t.d. 6,70 metra stökk í lang- stökkinu sem dæmt var ógilt og 45 metra kast í kringlukastinu, sem einnig var dæmt ógilt, eftir mikl- ar vangaveltur fjögurra kastdóm- ara. Ég hef trú á því að Elías geti gert töluvert betur en hann gerði i Lundúnum, og er vonandi að hann fái tækifæri til að keppa í Sviþjóð. Elías hlaut 7363 stig í þrautinni, en bezta afrek íslendings í tug- þraut þar sem notuð er rafmagns- tímataka fram til þessa var 7228 stig. Annar í keppninni varð Delaun frá Frakklandi sem hlaut 7105 stig, en sá náði nýlega 7469 stigum í tugþraut. Þriðji varð Pol- en, Frakklandi, með 6824 stig, fjórði Bredin, Bretlandi, með 6710 stig, fimmti McStavik, Bret- landi, með 6685 stig, sjötti P. Lewis, Bretlandi, með 6673 stig, sjöundi Pasquale, Frakklandi, með 6646 stig, sem er hans bezti árangur í tugþraut til þessa. Þriðji islenzki keppandinn sem lauk þarna keppni, Hafsteinn Jóhannesson, hlaut 6032 stig. Árangur Eliasar í einstökum greinum var þessi: 100 metra hlaup 11,34 sek., langstökk 6,55 m kúluvarp 13,84 m, hástökk 1,98 m, 400 metra hlaup 51,57 sek., 110 metra grindahlaup 15,49 sek, kringlukast 39,88 metrar, stangar- stökk 4,10 metrar, spjótkast 63,82 metrar, 1500 metra hlaup 4:44,2 min. Arangur Þráins í einstökum greinum: 12,27 — 6,15 — 12,96 — 1,86 — 54,33 — 16,61 — 44,22 — 3,60 —53,14 —4:43,3. Arangur Hafsteins: 12,16 — 6,19 — 10,89 — 1,89 — 55,69 — 16,40 — 34,20 — 3,60 — 45,42 — 5:01,2. Sem fyrr greinir hætti Jón Sævar keppni eftir fyrri daginn vegna meiðsla.'en árangur hans í einstökum greinum fyrri daginn var: 11,60 — 6,26 — 11,74 — 1,75 og 51,95. Olafur Sigurvinsson — getur ekki verið með í Belfast. björnsson gáfu ekki kost á sér í liðið. Hörður Hilmarsson, sem verið hefur fastamaður í liðinu í sumar, getur heldur ekki leikið með — er í leikbanni. í landsliðshópnum sem hélt til Belfast í gærmorgun, eru eftir- taldil' leikmenn: Markverðir: Sigurður Dagsson, Val, Þor- steinn Bjarnason, IBK, Aðrir ieikmenn: Jóhannes Eðvaldsson, Celtic, Marteinn Geirsson, Royal Union, Guðgeir Leifsson, Tý, Vilhjálmur Kjartansson, Norrby, Matthías Hallgrímson, Halmia, Jón Gunn- laugsson, tA, Árni Sveinsson, IA, Kristinn Björnsson, IA. Asgeir Elíasson, Fram, Janus Guðlaugs- son, FH, Viðar Halldórsson, FH, Ólafur Danivalsson, FH, Einar Þórhallsson, UBK, Atli Eðvalds- son, Val. Þótt mikil forföll séu í landslið- inu, er það engan veginn „skrap- lið" sem teflt verður fram i Bel- fast. Vitanlega veikir það liðið mjög mikið að Ásgeir Sigurvins- son getur ekki leikið með, svo og Gísli Torfason, en skörð annarra leikmanna er auðveldara að fylla. Erfitt er að spá um hvernig liðsskipan verður í leiknum á mið- vikudagskvöldið, en ekki er ólík- legt að Sigurður Dagsson verði markvörður, Jóhannes Eðvalds- son og Jón Gunnlaugsson mið- verðir, Janus Guðlaugsson og Við- ar Halldórsson bakverðir, Mart- einn Geirsson, Guðgeir Leifsson, Ásgeir Elíasson og AtlLEðvalds- son miðvallarleikmenn of^þeir Ól- afur Danivalsson og Matthias Hallgrímsson sóknarleikmenn. Ekki er vitað annað en að Norð- ur-írar tefli fram sínu sterkasta liði í leiknum annað kvöld, enda munu þeir hafa fullan hug á að hefna harma sinna eftir tapið í Reykjavík fyrr í sumar. George Best Islendingum. — leikur gegn BEST MEÐIRSKA LIÐINU Knattspyrnusnillingurinn George Best verður nieðal leik- manna írska landsliðsins sem leikur gegn Islendingum í Bel- fast annað kvöld. Best birtist óvænt á Lundúnaflugvelli i gærmorgun, en hann hefur dvalið í Bandaríkjunum að undanförnu og leikið þar með liðinu Los Angeles Aztecs. Hafði Best reyndar gert samn- ing við enska 2. deildar félagið Fulham og hafið að leika með því í liaust, en hvarf síðan skyndilega vestur um haf, án þess að kveðja kóng né prest hjá Fulham. — Ég veit ekkert um hvernig málin standa milli Los Angeles Aztecs og Fulham, sagði Best við fréttamenn á Lundúnaflug- velli í gærmorgun. — Þetta er mál sem félögin verða að gera upp sín á milli, það eina sem ég veit er það að ég ætla mér að leika með norður-írska lands- liðinu svo lengi sem ég verð valinn í það lið. Þess vegna er ég hingað kominn — landsliðið á erfiðan leik fyrir höndum á miðvikudagskviildið og ég mun gera mitt bezta til þess að við hreppum sigur í honum. Góður túr loftskeytamannsins ÓSKAR Sæmundsson, GR, gerði það ekki endasleppt i Jack Nicklaus golf- mótinu á Nesvellinum um helgina. Óskar var langt suður í hafi um borð i hafrannsóknarskipinu Árna Frið- rikssyni þegar hann tilkynnti þátt- töku i mótinu og fór beint af skips- fjöl siðdegis á laugardag til keppn- innar. Gekk honum vel á laugardag- inn og enn betur á sunnudaginn. Fékk hann samtals 72 punkta Í keppninni, en Július R. Júlíusson, GK, varð samsíða honum, einnig með 72 punkta. Þurftu þeir þvi að heyja aukakeppni um hin glæsilegu 1. verðlaun. Fóru leikar svo að Óskar sigraði og hélt heim með glæsilegt golfsett af McGregor-gerð, verðlagt á um 200 þúsund krónur. Þetta var sannarlega góður túr hjá loftskeyta- manninum Óskari Sæmundssyni eins og einhver sagði. Um 50 keppendur tóku þátt i móti þessu og voru leiknar 36 holur. Keppt var með svonefndu Stable- ford-fyrirkomulagi og fengu kepp- endur 7/8 af forgjöf sinni. Var gefin forgjöf á hverja holu þannig að þeir sem mesta forgjöf hafa, fengu allt að höggi gefins á hverja holu og siðan 2 högg á sumar holanna. Áttu því byrj- endur svipaða möguleika og þeir sem lengra eru komnir og kom það á daginn að kylfingar i öllum gæða- flokkum börðust um sigurlaunin. Hafði Kjartan L. Pálsson, fram- kvæmdarstjóri Nesklúbbsins, á orði í mótslok að þetta væri skemmtilegt fyrirkomulag og mætti gjarnan hafa það við á fleiri opnum golfmótum. Keppnin var mjög jöfn þegar frá upphafi og aðeins skildu nokkrir punktar fyrstu 15 menn eftir fyrri daginn. Baráttan hélt áfram seinni daginn og urðu þá verulegar breyt- ingar á toppinum. Þegar inn var komið eftir 36 holur kom í Ijós, eins og áður sagði að Óskar og Július voru efstir og jafnir með 72 punkta. Þurftu þeir því að leika þriggja hola aukakeppni og urðu þeir enn jafnir að þeim loknum. Á 4. holu náði Óskar hins vegar að fara einu höggi undir par, en þar sem Júlíus var á parinu, féll golfsettið í hlut Óskars. Notaði Jack Nicklaus þetta McGreg- or, VIP, golfsett er hann hélt golf- Framhald á hls. 28. VALUR SIGRAÐIFH 21 -17 FYRSTI stórleikur keppnistlma- bilsins I handknattleik fór fram í Íþróttahúsinu I Hafnarfirði á sunnudagskvöld. en þar mættust þá I slandsmeistarar Vals og bikar meistarar FH I hinni svokölluðu meistarakeppni. Fóru leikar svo að Valsmenn, báru öruggan sigur úr býtum. skoruðu 21 mark gegn 17 mörkum FH-inga Voru Valsmenn greinilega betra liðið I leik þess- um, en FH-ingar veittu þó harða mótspyrnu til að byrja með og var staðan i hálfleik 9—9. Leikurinn bar þess greinileg merki að handknattleiksmenn eru nú rétt að hefja vertið sina. og verður ekki annað sagt en að bæði liðin hafi valdið nokkrum von- brigðum, ekki sizt vegna þess að ætla má að þau hafi reynt að búa sig eitthvað undir Evrópukeppnina sem þau eru þátttakendur i. Beztu leikmenn Vals i leik þess- um voru nafnamir Jón Pétur Jóns- son og Jón Karlsson. ásamt Gisla Blöndal, sem var mjög drjúgur við markaskorunina. Geir Hallsteinsson var atkvæða- mwstur FH-inga og skoraði hann 7 mörk. Annars er greinilegt að FH-liðið vantar skyttur um þessar mundir, og er ekki óliklegt að það skarð sem Viðar Simonarson skil- ur eftir sig verði vandfyllt. Á laugardaginn léku FH-ingar og Haukar i Hafnarfjarðarhúsinu um hinn svonefnda Essó-bikar og fóru leikar þannig að Haukarnir sigruðu i framlengdum leik með 32 mörkum gegn 29. MANCHESTER UTD. í KEPPNISBANN Ensku bikarmeistararnir i knatt- spyrnu, Manchester United, hafa verið dæmdir frá þátttöku i Evrópubikarkeppni bikarhafa, og verður þvi ekki af seinni leik liðs- ins við franska liðið St. Etienne frá Paris, sem fram átti að fara i Manchester siðar í þessum mán- uði. Forsenda brottvísunar Manchester United úr keppninni er sú, að s.l. miðvikudag, er fyrri leikur liðsins við St. Etienne fór fram i Parls, efndu áhangendur liðsins til mikilla óspekta i Paris og slösuðust þá um 30 manns, sumir hverjir alvarlega, auk þess sem áhangendur Manchester liðsins ollu stórspjöllum á mann- virkjum Er þetta reyndar ekki í fyrsta sinn sem fylgjendur liðsins valda vandræðum. Slikt er nánast regla. Það var stórn UEFA sem ákvað að setja keppnisbann á Manchest- er United, og fram kom i frétta- skeytúm i gær, að á næstunni yrði fjallað um fleiri mál vegna óláta innan vallar eða utan. og voru þar tilnefndir eftirtaldir leikir: Manchester City — Widzew Lodz frá Póllandi; Inter Milan frá Ítalíu og Dinamo Tbilisi frá Sovétrikjun- um, Bohemians frá frlandi og Newcastle frá Englandi og leikur Vals og írska liðsins Glentoran. Mun norski dómarinn sem dæmdi síðastnefnda leikinn hafa sent UEFA skýrslu um leikinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.