Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 31 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Aðalfundur Þjóðdansafélags Reykjavíkur verður haldinn í Alþýðuhús- inu við Hverfisgötu þriðju- daginn 20. sept. n.k. kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. 1.0.0. F. 8 — 1 59921 8 !6. I.O.O.F. Rb. = 41 2 79208V2. I.O.O.F. = Ob. = 1 P 1 599208 V2. Filadelfia Almennar guðþjónustur í dag og á morgun kl. 1 7 og 20.30, ræðumaður Áke Orrebeck, söngvari Nils Vagsjö. Þróttur Knattspyrnudeild Æfingatalfa veturinn 1977—'78. Sunnudaga Kl. 9.30 — 11.10 5 flokkur kl. 11.10 — 12.30 4 flokkur kl. 12.30 — 13.50 3 flokkur kl. 13.50 — 15.05 2. flokkur kl. 15.05 — 16.20 M. flokkur kl. 16.20 — 17.10 6. flokkur Mánudaga Kl. 22.00 — 23.30 OLD BOYS. Allar æfingar fara fram i Vogaskóla. Mætið stundvís- lega. Stjórnin. Dömu og drengjabuxur úr terylene. Framleiðsluverð. Saumastofan Bramahlið 34, Simi 1 461 6. Til sölu Chevrolet árg. 1 956, lítið keyrður í góðu lagi. Uppl. í síma 33088. Frúarkápur í stærðum 36 — 50 úr ullarefnum. Nælonpels nr. 40. Kápusaumastofan Diana, Miðtúni 78, simi 18481. Munið sérverzlunina með ódýran fatnað. Verðlistinn Laugarnesvegi 82, s. 31330. Keflavík Höfum til sölu við Hátún 2ja herb. íbúð, söluverð 4,5 millj. og 3ja herb. ibúð. Sölu- verð 6,8 millj. með góðum greiðsluskilmálum. Fasteignasalan, Hafnargötu 27. Keflavík, sími 1420. Brotamálmur er fluttur að Ármúla 28, sími 37033. Kaupi allan brota- málm langhæsta verði Stað- greiðsla. 1 september tapaðist af bíl á leiðinni Reykjavík — Vatns- nes svartur plastpoki með tveim tjalddýnum í. Finnandi góðfúslega hringi i síma 94- 3102 eða 91-43725. Akranes íbúð til leigu. Upplýsingar í sima 93-2398. raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Frá skólatannlækningum Reykjavíkurborgar Skólatannlæknar Reykjavíkur munu ann- ast tennlæknaþjónustu fyrir 6 —12 ára börn í barnaskólum Reykjavíkur í vetur. 1 1 og 1 2 ára börn í Fella- og Hólabrekku- skólá verða þó að leita til annarra tann- lækna fyrst um sinn og verða reikningar fyrir þá þjónustu endurgreiddir hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur. Aðrir reikningar verða ekki endurgreiddir nema með leyfi yfirskólatannlæknis. Norska til prófs í stað dönsku verður kennd í Miðbæjarskóla í vetur. Nemendur mæti í stofu 1 1 sem hér segir: 4., 5. og 6. bekkur þriðjudaginn 20. sept. kl 18. 7., 8. og 9. bekkur miðvikudaginn 21. sept. kl. 8. Framhaldsskólastig og stúdentspróf sama dag kl. 19. Innritun í almenna flokka fer fram 26. og 27. sept Námsfl. Reykjavikur. Aðalfundur Heimdallar Aðalfundur Heimdallar SUS i Reykiavik, verður haldinn föstudaginn 30. september 1977 í Valhöll við Háaleitisbraut, kl. 20:30 s.d. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf, nánarauglýst s,r5ar Stjórnin. Rangæingar Innritun í Tónlistarskólann fer fram dag- ana 22. og 23. september kl 1—6 í Félagsheimilinu Hvoli báða dagana. Skólagjöld greiðist við innritun. Skólastjóri. Nýtt fyrirtæki Rafspeki hefur verið stofnað í Vestmannaeyjum, og hefur það gert samning við brezka fyrirtækið Baron Electronics um að hanna ákveðna gerð af rafmagnsvekjaraklukkum. Þessi klukka heitir S-36 og hún hefur innbyggða skeiðklukku. Hún mun koma á markað- inn i Vestmannaeyjum um mánaðamótin sept.—okt. og á almennan markað seinna í haust. Eigendur Rafspeki eru þeir Garðar Baldvins- son, Ágúst Guðmundsson og Kristinn H. Pálsson, en þeir munu hafa bás á Iðnsýningunni og kynna klukkuna þar. Miklar lagfæringar á frystihúsi BÚR Á fundi borgarstjórnar 15. sept- ember gerði formaður útgerðar- ráðs Ragnar Júlíusson all itarlega grein fyrir endurbótum á frysti- húsi B.U.R. á Grandagarði. Til- efnið var fyrirspurn frá borgar- fulltrúa Kristjáni Benediktssyni hvað liði endurbótum á húsinu. Ragnar sagði veigamesta þátt í breytingunum verða lagfærjngar á starfsmannaaðstöðu; nýtt mötu- neyti, fatageymslur og fleira. Til grundvallar liggur tillaga Ingi- mundar Sveinssonar arkitekts og Jóns B. Stefánssonar verkfræð- ings. Meðal annarra breytinga er skýli utan húss ætlað fyrir starfs- fólk í kaffitimum. Þá er gert ráð fyrir nýju loftræstikerfi í mötu- neyti og vinnslusali. Sterkt slitlag verður lagt á gólf vinnslusala, raf- kerfi endurnýjað og nýtt þak sett á húsið. Ýmislegt fleira smávegis mun verða gert. A þessu ári eða fram í ágústlok var unnið fyrir 44,3 milljónir en heildarkostnað- ur mun líklega verða rúmlega 150 milljónir. Við þessar endurbætur mun aðstaða starfsfólks stór- batna. í vinnslu verða tvær flutninga- leiðir og verður þá t.d. bæði hægt að vinna karfa og bolfisk samtím- is, en þá verður unnt að taka upp bónuskerfi sem er allra hagur. Kostnaður hefur til þessa verið fjármagnaður af Framkvæmda- sjóði Reykjavfkurborgar og Landsbankans, en sótt hefur ver- ið um lán hjá Fiskveiðasjóði og Framkvæmdasjóði. Kristján Benediktsson spurði einnig hve- nær yrði hægt að flytja löndun úr togurum i vesturhöfnina. Ragnar sagði varðandi það, að nú væri lokið við að koma milligólfi í verulegan hluta Bakkaskemmu en enn vantaði herslumuninn til að ljúka við verkið. Þegar því lyki sæju menn fram á stórbætta að- stöðu til vinnslu og löndunar sjávarafla. Kristján Benediktsson þakkaði greinagóð svör og kvaðst ánægður með að sjá hilla undir ágæta lausn. Afmælis- kveðja Ástæðan til að ég sendi Þórhildi Hafliðadöttur Snæland Grettis- götu 44 hér í bæ árnaðaróskir í tilefni af 65 ára afmæli hennar, í dag, 20. sept er sú að áratuga vinátta við hana og siðar einnig við eiginmann hennar. B:ldur Snæland, hefur verið sem sól- skinsblettur í lifi okkar hjónanna. Tryggð hennar og velvilji hefur sannað mér hve óumræðilega það er mikils virði fyrir hvern og einn að eiga trausta og göða vini. Á þessum tímamótum rifjast eðli- lega upp fjölmörg atvik og ögleymanlegar stundir frá liðnum árum og eru margar þeirra tengd- ar húsinu þeirra Þórhildar og Baldurs er þau eitt sinn áttu; Bjarkarlundi í Blesugróf. Já, ég vona að enn munum við eiga eftir margar slíkar ánægjustundir með afmælisbarninu og hennar fólki. en Þórhildi og Baldri varð fimm sona auðið, og þakka forsjóninni barnalán sitt. Já, kæra vinkona allt frá æsku- árum okkar, lifðu vel og lengi við hlið þins valinkunna eiginmanns, umvafin ást og umhvggju barna, tengdabarna og barnabarna. T. Athugasemd VEGNA fréttar i Morgunblað- inu s.l. sunnudag um „svokallaða Sverrisbraut" vil ég segja, að það má ekki gleyma öllu þvi sem gert var til að gera þetta verk erfitt fyrir mig sem eru ástæðurar að þetta varð svona dýrt. Þegar allt verður komið fram í ljósið verður margur hissa, að ég skuli ennþá vera að berjast fyrir betri vegum fyrir þetta land. Svo vil ég leiðrétta fréttina, því slit- lagið var alls ekki gert með „Blöndun á staðnum aðferðinni" þvi minni verklýsingu var neitað af Vegagerðinni, og var því ekki notuð, eins og margir vita. Ég er að skrifa ítarlega greinar- gerð um þessa framkvæmd og mun birta hana innan skamms. Vinsamlegast bið ég yður að birta bréf sem ég skrifaði Vegagerð- inni. sem þeir hafa ekki svarað. Reykjavík 3.7. 1977. Vegagerð rfkisins Borgartúni 7, Reykjavík. Þar sem að mínu áliti, hefur ekki verið staðið að viðgerðum sem skyldi, á tilraunakaflanum á Kjalarnesi, fer ég hérmeð fram á að taka að mér nauðsynlegar við- gerðir, þött mér hafi verið til- kynnt þann 26. okt. s.l. munnlega, að ég mætti ekki lengur skipta mér af tilrauninni. Virðingarfyllst Sverrir Runólfsson, Kvisthaga 14, Revkjavfk. sfmi 16578 — v. 26606.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.