Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 Símamynd AI* Einar Bonediklsson, sendiherra Islands í Frakklandi, afhendir Jóni L. Arnasyni heimsmeistarabikar- inn við verólaunaafhendinguna í Cagnes sur-Mer f gær. „Hafói mest gert mér vonir um þriðia sætið" 0 „Ef satt skal segja, þá átti ég aldrei von á að sigra á þessu móti áður en ég fór út, hafði ég mest gert mér vonir um þriðja sætið og átti ég von á að ungl- ingameistari Sovétrikj- anna, Kasparov, hlyti hnossið. Hins vegar varð mér Ijóst þegar mér tókst að vinna skákina við White- head frá Bandaríkjunum úr fimmtu umferð að mér gengi vel. Skákin var orðin 81 leikur þegar mér tókst að knýja fram vinning. Var hún ákaflega þreytandi og fór m.a. tvisvar í bið. Síðar þegar mér tókst að vinna Kappe frá V-Þýzkalandi á hálfævintýralegan hátt varð ég þess fullviss. að ég ynni mótið, því gæfan verð- ur líka að vera manni hlið- holl á svona mótum, það er ekki nóg að tefla vel, ef heppnin er ekki með," sagði Jón Loftur Árnason, heimsmeistari unglinga í skák, í samtali við Morgun- blaðið í gær, en hann var þá staddur á hótelherbergi sínu i Cagnes sur-Mer í Frakklandi og beið þá komu íslenzka sendiherrans i Frakklandi, Einars Bene- diktssonar, ásamt aðstoðarmanni sínum, Margeiri Péturssyni. Óþekktur fyrir einu ári Fyrir tæpu ári var Jón svo til óþekkt stærð í skákheiminum, bæði hér heima og erlendis Hann tefldi i fyrsta sinn í A-riðli á haustmóti Tafl- félags Reykjavíkur í fyrrahaust og sigraði, og vann sér um leið sæti til að keppa í landsliðsflokki á íslands- mótinu i skák Það má segja að þar hafi Jón komið, séð og sigrað og varð hann öruggur íslandsmeistari Fyrir nokkru tók Jón þátt í Norður- landameistaramótinu í skák, sem fram fór í Finnlandi. og varð ungl- mgameistari Norðurlanda, og nú hefur hann kórónað feril sinn með því að verða heimsmeistari unglinga yngri en 1 7 ára, hlaut 9 vinninga af 1 1 mögulegum Vann hann 7 skák- ir, gerði tvö jafntefli og tapaði einm ..Sjálfur átti ég sízt von á þessari velgengni þegar ég tefldi í A-riðli á haustmótinu í fyrra Áður var ég búinn að tefla í 1 ár í B-riðli á mótum og hafnaði yfirleitt í þriðja sæti, en eftir að ég vann mér sæti í A-riðli hefur allt gengið vel ', segir Jón -rsegirJónL. Arnason, heims- meistari ungl- inga í skák Heimsmeistara- einvígið kom mér af stað Jón fór ekki að tefla neitt að ráði fyrr en á árinu 1972, ea þá var | hann 12 ára gamall ,,Það var heimsmeistaraeinvigið milli þeirra Fischers og Spasskys, sem kom mér af stað og frá þeim tíma hef ég lagt mikla áherzlu á skákina Auðvitað held ég áfram núna, maður getur ekki hætt eftir að hafa náð þessum árangri,'' segir hann ennfremur Morgunblaðið spurði Jón hvort hann teldi að einhver ein skák í mótinu hefði verið þýðmgarmeiri en aðrar ,,Það er skákin við Bandarikja- manninn Whitehead, sú skák varð voðalega löng, 81 leikur, og fór tvisvar í bið, en þetta var í fimmtu umferð Ég var alltaf með ívið betri stöðu, en það var mjög erfitt að vinna úr henni." — Þú sagðir í viðtali við Morgun- blaðið fyrir nokkrum dögum, að þú hefðir oft teflt betur Telurðu að svo sé enn, með hliðsjón af því, að þú hlýtur 9 vinninga af 1 1 möguleg- um? ,,Ef ég held því fram enn mun það flokkast undir mont, og því verð ég að draga fyrri ummæli mín til baka," sagði Jón Nokkuð viss um titilinn eftir að hafa unnið Kappe — Skákin við Kappe frá V- Þýzkalandi var af öllum hér heima talin töpuð fyrir þig Var það ekki „móralskur" sigur að vinna hana? ,,Ég vissi það nokkurn veginn eftir þá skák, að ég yrði heimsmeistari, það er enginn svona lánsamur nema sá sem vinnur mót Og ég held að ég verði að viðurkenna, að sá sigur fyMti mig ósjálfrátt meira sjálfstrausti og harkan og baráttuhugurinn urðu meiri " Gat ekki hafnað jafnteflisboðinu Jón kvaðst ekkert finna fyrir þreytu, ángæjan hefði yfirhöndina „Annars var ég mjög þreyttur um miðbik mótsins og þreyttastur var ég í biðskákmni við Kasparov," en skákin við Kasparov var eina skákin, sem Jón tapaði „Annars fékk ég vist fimm biðskákir í röð og það er ægilegt og ég var alveg að verða uppgefinn á þessu Hins vegar voru síðustu skákirnar mjög stuttar, ein ekki nema 10 leikir og sú síðasta 8 leikir Morovic frá Chile bauð mér jafntefli eftir 8 leiki, þannig að skák- in var rétt að byrja Ég gat engan veginn hafnað jafnteflinu Annars var ég búinn að ætla mér að bjóða jafntefli nokkrum leikjum síðar, en sem sagt, hann varð á undan, hefur sjálfsagt lesið hugsanir mínar " Nauðsynlegt að hafa aðstoðarmann Margeir Pétursson hefur verið aðstoðarmaður Jóns L Árnasonar á mótinu í Cagnes og Morgunblaðið spurði Jón hvort ekki væri nauðsyn- legt að hafa aðstoðarmenn með sér á mót sem þessi „Það er nauðsynlegt að hafa aðstoðarmann, að maður tali nú ekki um, þegar þið blaðamenn eruð að hringja Þá kom það sér mjög vel að hafa Margeir til að fara yfir biðskák- irnar með mér,*sem voru eins og ég hef áður sagt margar Þá fer það ekki milli mála, að það hefur mjög góð áhrif á mann að hafa félagsskap og aðstoð Margeirs tryggði mér heimsmeistaratitilinn " Hef áhuga á Reykjavíkurmótinu Þá sagði Jón, að þegar hann kæmi heim tæki skólinn við, en hann stundar nám við Menntaskól- ann í Hamrahlíð og er á öðru ári „Ég mun að sjálfsögðu reyna að „stúdera" skákina eitthvað og hef áhuga á að taka þátt í Reykjavíkur- mótinu í vetur Samkvæmt því, sem Jón bezt vissi, þá eru verðlaunin á heims- meistaramóti unglinga stór bikar, sem er farandgripur, og sérstakt skjal frá borgarstjórninni í Cagnes Hins vegar væru engin peningaverð- laun Að sögn Jóns tók hann þátt í sinu fyrsta skákmóti árið eftir að þeir Fischer og Spassky tefldu á íslandi Tefldi hann þá í unglingaflokki á haustmóti Taflfélags Reykjavíkur og sigraði, og þar með var ísinn brot- inn. Jón er eitt fjögurra barna hjón- anna Árna Björnssonar endurskoð- anda og Ingibjargar Jónsdóttur Bróðir hans, Ásgeir, er einnig kunn- ur skákmaður og tók á dögunum þátt í heimsmeistaramóti unglinga 1 7—12 aáraa i Innsbruck í Austur- ríki Þá á Jón Loftur systur, sem er við nám i lyfjafræði, og eldri bróður á hann einnig við nám í Háskólan- um „Þau kunna öll að tefla og pabbi kann einnig mannganginn, mamma styður svo við bakið á okkur," segir Jón Lærir einnig píanóleik Eins og fyrr segir er Jón Loftur. nemandi við Menntaskólann i Hamrahlíð, en auk þess hefur hann s I 3 ár stundað nám í píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík Morgunblaðið spurði Jón hvernig hann hefði tíma til að sinna þessu öllu, menntaskólanum, tónlistarskól- anum og skákinni „Maður hefur tíma til að sinna öllu, sem maður hefur áhuga á," sagði Jón að lokum Þá má og geta þess, að Jón hefur þótt mjög efnilegur kylfingur _ Þ.Ó. „Sigur Jóns kom mér ekki á óvart” — segir Ingibjörg móðirhans „SIGUR Jons kom mér ekkusvo mjög á óvart, ég var bjartsýn þegar hann lagói af stað til Krakk- lands,“ sagði Ingibjörg Jónsdótt- ir, móðir Jóns L. Arnasonar, þegar Morgunblaðið ræddi við hana í gær. í samtalinu við Morgunblaðið sagði Ingibjörg, að Jón hefði und- irbúið sig fyrir mótið eftir því sem hann hefði haft tima til, ann- ars væri sumarið búið að vera mjög stíft hjá honum. Þegar Morgunblaðið spurði Ingibjörgu hvort Jón eyddi ekki miklum tíma í skákina sagðí hún: „Hann hefur ekki eytt miklum tima í skák fyrr en á þessu ári, allt fram á þetta ár hefur skákin verið tómstundagaman hjá Jóni, alvaran er nýkomín í þetta hjá honum. Þeir hafa teflt mikið saman á kvöldin hann og Ásgeir bróðir hans.“ Ingibjörg sagði, að samkvæmt því sem hún bezt vissi væri ekki mikið um mikla skákmenn í ætt- inni. „Hvort ég kann mannganginn. Ja, Jón hefur reynt að kenna mér hann, en það hefur gengið mis- jafnlega. Annars veit maður ekki nema maður slái til núna og reyni að læra að tefla almennilega til að geta fylgzt betur með í framtið- inni.“ „Afrek Jóns er aðeins byrjunin” — segirFriðrik Olafsson „ÞAÐ VAR bæði ánægjulegt og skemmtilegt að heyra um úrslitin í Frakklandi þegar þau spurðust. Allir sem fylgjast með skák hafa beðið spenntir og menn fengu þau úrslit sem þeir óskuðu," sagði Friðrik Olafsson stórmeist- ari þegar Morgunblaðið rauldi við hann. „Ég efast ekki um, að þetta af- rek Jóns er aðeins byrjunin á öðru meiru í framtíðinni; fyrsti áfanginn á merkum ferli, því ég efast ekki um að ef Jón leggur skákina fyrir sig þá á hann eftir að ná langt. Þá vona ég einnig, að við förum að venjast því að eiga heimsmeistara hér á íslandi og að þessi titill sé aðeins sá fyrsti af fleirum.“ Morgunblaðið spruði Friðrik hvort hann hefði teflt við Jón. Kvað hann svo ekki vera. „Við höfum ekki einu sinni tekið æf- ingaskák saman. Hins vegar hef ég séð nokkrar skákir frá honum. Jón teflir rnjög markvisst og hvasst og byggir stöður sínar vel upp. Annars er ekki hægt að segja mikið um skákstil manns, sem er aðeins 16 ára, hann er þá rétt að byrja að tefla og móta sinn stíl.“ „Afréksmað- ur á heims- mælikvarða” — segirEinarS. Einarsson „ÞAÐ ER stór dagur hjá okkur Islendingum þegar okkar f.vrsti heimsmeistari er krýndur og árangur Jóns L. Arnasonar er ánægjuefni fyrir allla þjóðina. Hann hefur sýnt að hann er af- reksmaður á heimsmælikvarða," sagði Einar S. Einarsson, forseti Skáksamhands Islands, í samtali við Morgunblaðið I gær. „Það er oft sagt, að sá sigri sem hafi seigluna. I svona keppni er ekki nóg að hafa góða skákkunn- áttu, heldur þarf einnig að hafa seigluna til að tryggja sigur og koma honum í höfn," sagði Einar ennfremur. Þá sagði Einar, að árangur Jóns væri ennþá glæsilegri fyrir þær sakir, að hann hefði átt fjölda biðskáka í upphafi og um miðbik mótsins á meðan keppinautar hans hefðu átt náðuga daga. „Mér þykir mjög leitt að Skák- sambandið skuli vera það miklum vanefnum búið, að það geti ekki betur hlúð að og stutt unga og efnilega skákmenn en til þessa hefur verið hægt,“ sagði Einar S. Einarsson. Tíunda skák Jóns I tíundu og na-st síðustu um- ferð heimsmeistaramótsins tefldi Jön L. Arnason við Frakkan Santo Roman og vann hann skákina i 40. leik. Skákin fer hér á eftir. Hvllt: Jón L. Arnason Svart: Santo Roman Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — eS, (Lasker-afbrigðið) 6. RdbS — d6, 7. Bg5 — a6. 8. Ra3 — b5, 9. Rd5 — Be7, 10. Bxf6 — Bxf6, 11. c3 — 0-0. 12. Rc2 — 111)8. 13. Be2 — Bg5, 14. 0-0 — Be6, 15. Dd3 — f5, 16. Bf3 — Dc8, 17. Iladl — f4?, (betra var. . . g6), 18. De2 — Bd8. 19. h3 — Hb7, 20. Hd3 — g5, 21. Bg4 — Bxgt, 22. Dxg4 — Dxg4, 23. hxg4 — Rb8. 24. b4! — Kf7, 25. llfdl — Kg6. 26. c4! — bxc4. 27. Hc3 — a5. 28. a3 — axb4. 29. axb4 — h5, 30. gxh5+ — Kxh5, 31. Ra3 — Bb6, 32. Rxc4 — Bd4, 33. Hh3+ — Kg6, 34. Rxd6 —Ha7, 35. Rf5 — g4, 36. Rde7+ — Kg5, 37. Hhd3 — Hf7, 38. Rc8 — Ilal ', 39. Hxd4 — exd4, 40. Hxal og svartur gafst upp. Þanníg var staðan þegar svartur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.