Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.09.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1977 3 „... og um leið sé ég þakið á verk- smiðjuhúsinu lyftast" „ÞAÐ VAR eilthvad, sem fékk mig til að líta út um d.vrnar í átt til Fluseldagerðarinnar og um leið sé ég þakið á verksntiðjuhús- inu lyftast. Það var cins og það kæmi fyrst upp um miðjuna síðan þeyttist þetta allt i loft upp með tilheyrandi sprengjugný og eldi. Mér finnst nú, að ég hafi endilega heyrt tvær, þrjár sprengingar og einhvern veginn hef ég það á til- finningunni að þa-r hafi verið f vesturendanum aðallega," sagði Skaphéðinn Árnason, sjómaður á Akranesi, í samtali við Mbl. í gær, en Skarphéðinn var staddur í verksta*ðishúsi nálægt Flugelda- gerðinni og sá beint til verk- smiðjuhússins út um opnar dyr. „Ég kom þarna aðvífandi á Framhald á bls. 28. Skarphéöinn /vrnason Sá Helga heit- inn reyna að skella hurð- inni aftur „Ég sá Helga hcitinn koma aft- ur á bak út um einar dyrnar á verksmiðjuhúsinu og virtist mér hann ætla að skella hurðinni aft- ur, en I því komu sprengingarnar, fyrst ein minni og svo önnur ógurleg strax á eftir með eldhafi og rcykjarstólpa. Þrýstingurinn var slíkur, að mér fannst ég lyft- ast frá jörðu, án þess þó að ég missti jafnvægið." Það er Ólafur Guðjónsson, múrari, sem svo lýsir sprengingunni í Flugeldagerð- inni á Akranesi á sunnudags- morgun í samtali við Mbl. í gær, en Guðjon var staddur við næstu hús við verksmiðjuna, þegar sprengingin varð. „Ég var á leið fram á kletta að henda kartöflugrösunum úr garð- Framhald á bls. 28. Olafur Guðjónsson. Myndin til hliðar er af verksmiðjuhúsi Flugeldagerðarinnar hf. og er vesturendinn nær. Vestast I húsinu var kaffistofa, þá lagergeymsla, vinnslusalur og geymsla, sfðan kom stjörnuklefi, þar sem búnir voru til cldflaugartopparnir, og austast I húsinu var hleðsluklefi, þar sem eldflaugahólkarnir voru hlaðnir. Utveggir voru ste.vptir og milliveggir hlaðnir, en hvergi var innangengt milli klefa I húsinu. Myndin fyrir ncðan sýnir rústir verksmiðjuhssins eftir sprenginguna. Hin byggingin er púðurgeymslan, þar sem geymd eru um 200 kg af púðri, en 2,70 m eru f milli. Ilráefnisgevmslunni er skipt í fimm klefa með hlöðnum veggjum. Eldur komst í einn klefann, en púðrið er geymt f þriðja klefa þar frá og tókst að slökkva eldinn áður en hann hreiddist út. Ljósm: Viðar Stcfánsson. Aðalþrýsti- bylgjan fdr á haf út ÖGJÖRNINGUR var i gær að fá nákvæma tölu um allar þær rúður sem sprungu i húsum á Akranesi við sprenginguna i Flugeldagerð-' inni á sunnudagsmorgun, en ljóst er að þær hafa skipt hundruðum, smáar og stórar. Skemmdir á íbúðarhúsum voru auk rúðubrot- anna algengastar á hurðum og loftum, en yfirleitt varð lítið tjón á innbúi. Sem betur fer fór aðal- þrýstibylgjan frá Flugeldagerð- inni hf., sem stóð nyrzt i bænum, á sjó út, en ekki inn yfir byggðina, en sá þrýstingur, sem þangað fór, var samt gifurlega mikill eins og tjónið af hans völdum ber með sér. Sem dæmi má nefna að ofn úr Flugeldagerðinni þeyttist yfir tvö íbúðarhús og skall á miðjum vegg þess þriðja, rörhné þeyttist yfir eitt hús og inn um eldhúsglugga, skildi eftir sig gat á rúðunni og djúpt far á veggnum gegnt glugg- anum. Þá þeyttust hurðarlæsing- ar yfir þrjú hús og í þak þess fjórða svo kröftuglega að gat kom af. Röska 300 metra frá Flugelda- gerðinni var Kristján Friðriksson að mála hús sitt. Stóð hann í tröppu, sem þrýstibylgjan þeytti undan honum og út á götu. Sem dæmi um kraftinn má loks nefna að björgunarsveitarmenn, sem staddir voru rétt fyrir ofan Ölver við Hafnarfjall, fundu greinilega þrýstinginn frá sprengingunni, en einn þeirra, Öskar Tryggva- son, sagði í samtali við Mbl. að fjarlægðin i beinni loftlínu hefði verið um 15 km. „Þetta var svipað og geysimikil þruma,“ sagði Ösk- ar. „Þrýstingurinn var ekkert á móts við hávaðann, $em bergmál- aði i klettunum fyrir ofan okkur.“ Að sögn Héðins Emilssonar starfsmanns Samvinnutrygginga á heimilistrygging að bæta tjón á innbúi, en brunatryggingin tjón á húsunum sjálfum. Sjá fleiri viðtöl og myndir á blaðsíðu 29 Jóna Elíasdóttir, Esjubraut 29. Þrátt fyrir fjarlægð hússins frá Flugeldagerðinni brotnaði ein stór rúða og loftklæðningin í stof- unni hrundi niður. „Mér varð það á að hlaupa inn í stofu, þegar ég heyrði brothljóðið," sagði Jóna i samtali ið Mbl. í gær. „Og ég var svo rétt komin fram i ganginn aftur, þegar stofuloftið kom niður með öllu saman. Það má eiginlega segja að loftið hafi hrunið niður á hæla mér. Þetta var alveg voðaleg sprenging. Alveg hryllileg. Ég heyrði þetta sem tvær sprenging- ar sú fyrri var minni og hin alveg ægileg. Mér varð auðvitað fyrst hugsað til þess að nú hefði kynd- ingin sprungið, annaðhvort hjá mér eða einhverjum nágrann- anum.“ Engin reglugerð til um upp- setningu slíks fyrirtækis ENGIN ákvæði eru til í íslenzk- um lögum eða reglugerðum uni hvernig haga skuli uppsetningu húss fyrir fyrirtæki eins og eld- flaugaverksmiðjuna á Akranesi, að sögn Bárðar Danfelssonar, for- stöðumanns Brunamálastofnunar ríkisins. Sagði Bárður í gær, að lengi hefði staðið til að setja slík- ar reglur, en það hefði raunveru- lega ekki verið hægt þar sem lög til að byggja á vantaði. Væru það lög um skotvopn og sprengiefni, sem voru fyrir síðasta Alþingi. — Að visu eru til ákvæði um að ekki megi geyma hvellhettur og sprengiefni í sama húsi og hafði eiganda verksmiðjunnar á Akra- nesi verið bent á það fyrir all- mörgun árum, sagði Bárður Guöntundur Eiríksson hjá Öryggiseftirliti ríkisins tjáði Morgunblaðinu i gær, að húsið hefði á sinum tíma verið byggt eftir danskri teikningu með sam- þykki Oryggiseftirlitsins. Húsið hefði ekki verið skoðað af Örygg- iseftirlitinu, en hins vegar hefði Brunamálastofnunin látið skoða húsið í júnímánuði síðastliðnum og þá hefðu engar athugasemdir verið gerðar, en sagt að umgengni væri góð. Eftir aó sprengingin varð í Haraldshúsi á Akranesi i fyrravetur hefðu kynditæki þessa húss og margra annarra á Akra- nesi veri skoðuð og ekkert verið talið athugavert í eldflaugaverk- smiðjunni. Þá hefði rafmagn hússins verið athugað um svipað leyti og allt reynzt í lagi. — I dag skoðuðum við Flug- eldaiðjuna i Garðabæ í tilefni af þessu slysi og þangað verður aft- ur farið á morgun, sagði Guð- mundur Eiríksson. — Kannað verður gaumgæfilega hvort ein- hverjum öryggisatriðum kunni að vera áfatt þar og munu fulltrúar frá Brunamálastofnun og Raf- magnseftirlitinu kanna það ásamt okkur, sagði Guðmundur að lok- um. Magnús Oddsson, bæjarstjóri á Akranesi, var að þvi spurður í gær hver hefðu verið viðbrögð bæjaryfirvalda við mótmælum íbúa á Akranesi við byggingu nýs húss fyrir Flugeldagerðina á sín- um tíma. Fer svar Magnúsar hér á eftir: — Þegar umsókn um hús Flug- eldagerðarinnar kom til af- greiðslu bygginganefndar Akra- ness árið 1969 var ákveðið að gera miklar öryggiskröfur til hins nýja húsnæðis. Samband var haft við Öryggiseftirlit ríkisins, sem sam- þykkti fyrir sitt leyti teikningu hússins og staðsetningu 17. júlí 1969. Að þvi fengnu var teikning- in samþykkt i byggingarnefnd Akraness. — Þess má geta að teikning að þessu húsi er sams konar og að flugeldaverksmiðju i Danmörku, sagði Magnús Oddsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.