Morgunblaðið - 28.09.1977, Síða 2

Morgunblaðið - 28.09.1977, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977 / FIB undirbýr leigu- flug í sambandi við ferðir m.s. Bifrastar Mál Hauks Guðmundssonar: Ráðuneytið vill að dóm- stólar f jalli um málin FÉLAG íslenzkra bifreiðaeig- enda vinnur nú að koma á reglu- bundnum leiguflugferðum milli Keflavfkurflugvallar og Rotter- dam næsta sumar f tengslum við ferðir bflaskipsins Bifrastar. Frá þessu er skýrt í nýútkomnu Fréttabréfi FÍB. Ms. Bifröst, sem er 1625 tonn, getur flutt 250 bfla neðanþilja og 50 bíla ofanþilja. Ákveðið er, að yfir sumartímann sigli skipið milli islands og Rotterdam í Hol- landi og þaðan annaðhvort til Ipswich eða Felixtowe f Englandi. Heimahöfn skipsins hér á Islandi verður í Hafarfirði. Reiknað er með því að skipið verði hálsmán- aðarlega í hverri höfn. Þar sem ms. Bifröst flytur ekki farþega verða þeir, sem flytja bila með skipinu, að koma sér og sín- um með öðrum hætti til áfanga- staða skipsins í Evrópu og á þetta auðvitað við þá, sem hyggja á Þorsteinn Valdimarsson skáld. ÚT ER KOMIN ný ljóðabðk eftir Þorstein Valdimarsson, og nefn- ist hún SMALAVÍSUR. Þetta er nfunda Ijóðabók höfundar, en hans fyrsta bók kom út 1942 og var það „Vilt vor“. Þorsteinn sem er löngu þjóð- kunnur fyrir ljóða og sönglaga- þýðingar sfnar lézt 7. ágúst s.l. og er þessi bók að sögn útgefenda hinzta kyeðja höfundar til allra vina og til styrktar Erlusjóði, sem er minningarsjóður um Guðfinnu Þorsteinsdóttur, móður skáldsins. ferðalög um álfuna i eigin bílum. Aformar Félag íslenzkra bifreiða- eigenda að koma á leiguflug- ferðum til Rotterdam hálfsmán- aðarlega og verður þá væntanlega flogið fjórum dögum eftir að Bif- röst hefur lagt úr höfn og biði þá billinn á hafnarbakkanum eftir eigandanum þegar hann kæmi út. Lézt af völdum áverka sem hairn hlaut í London AÐFARARNÖTT s.l. sunnu- dags lézt á sjúkrahúsi f London tvftugur piltur úr Reykjavík, Pétur Sverrisson, af völdum áverka sem hann hlaut í ágústmánuði s.l. er ráð- izt var að honum f húsi f London. Pétur heitinn var þá staddur í umræddu húsi ásamt fleira fólki þar á meðal nokkrum út- lendingum. Skyndilega réðst einn þeirra að Pétri með högg- um og spörkum og stórslasaði hann. Pétur var fluttur í skynd- ingu á sjúkrahús, þar sem' gerðar voru á honum aðgerðir til þess að reyna að bjarga lífi hans en þær báru ekki árangur og lézt hann á sjúkrahúsi að- fararnótt sunnudagsins eins og fyrr segir. Brezka lögreglan fékk mál þetta til meðferðar en ekki er Mbl. kunnugt um niðurstöður þeirrar rannsóknar. Upphaflega átti bókin að koma út 26. júní s.l. sem er afmælisdag- ur móður skáldsins, en ýmsar taf- ir urðu þess valdandi að svo gat ekki orðið. Eigi að síður telst 26. júní vera útgáfudagur þó eigi hafi hún komið á almennan markað fyrr en nú. Menningarsjóður annast sölu og dreifingu bókarinnar, en hún verður til sölu fyrst um sinn á sérstöku forlagsverði í Lindarbæ hjá Gunnari Valdimarssyni. DÓMSMALARAÐúNEYTIÐ hef- ur sent rfkissaksóknara umsögn um þau tvö mál, sem hafa verið í rannsókn vegna Hauks Guð- mundssonar rannsóknarlögreglu- manns f Keflavfk, þ.e. ávfsanamál Hauks sjálfs og handtökumál Guðbjarts heitins Pálssonar bif- reiðastjóra. Rækjuveið- um frestað í Húnaflóa RÆKJUVEIÐAR áttu að hefj- ast i Húnaflóa f byrjun októ- ber. Sjávarútvegsráðuneytiö hefur nú frestað veiðunum um óákveðinn tíma, þar sem at- huganir hafa leitt í Ijós að mjög mikið er um þorsk- og ýsuseiði í Flóanum. Að sögn Jóns B. Jónssonar deildar- stjóra í sjávarútvegsráðuneyt- inu eru þetta seiði af hinum geysisterka árgangi frá 1976. Búizt er við því að rúmlega 25 bátar stundi rækjuveiðar í Húnaflóa að þessu sinni og er vart að reikna með því að veið- arnar geti hafizt fyrr en í nó- vember. Samkvæmt upplýsingum Ölafs Volters Stefánssonar, skrifstofu- stjóra i dómsmálaráðuneytinu, var umsögn ráðuneytisins á þá leið að eðlilegt mætti telja eftir málavöxtum að mál Hauks Guð- mundssonar gengju til dómstóla til meðferðar. Samkvæmt lögum ber saksóknara að leita umsagnar hjá viðkomandi ráðuneyti ef um er að ræða meint brot opinbers starfs- manns í starfi. Skal umsögn hafa borizt áður en saksóknari tekur ákvörðun um meðferð málsins. Handtökumálið kom upp í des- ember í fyrra og i framhaldi af því hófst rannsókn á ávisanavið- skiptum Hauks Guðmundssonar. Steingrimur Gautur Kristjánsson héraðsdómari I Hafnarfirði ann- Framhald á bls. 19. Hassmálið í Suður-Frakklandi: Líklegt að íslend- ingarnir þrír losni út í næsta mánuði ÞRlR ungir Islendingar hafa nú um nokkurra mánaða skeið setið I fangelsi í Suður-Frakklandi vegna meints ffkniefnasmygls. Eins og áður hefir komið fram í Mbl. eru þetta tvær stúlkur og einn piltur. Dómur í málum þeirra féll fyrir nokkrum vikum og var þeim m.a. gert að greiða 60 þúsund franka í sekt eða um 2.5 milljónir is- lenzkra. Að sögn Péturs Eggerz sendiherra hefur frönskum lög- fræðingi, sem utanrikisráðuneyt- ið fékk til að taka að sér mál ungmennanna, nú tekizt að fá sektina lækkaða niður í 5 þúsund franka, eða liðlega 200 þúsund íslenzkar krónur. Sektin hefur verið greidd og kvaðst Pétur vona að ungmennin losnuðu úr prís- undinni í næsta mánuði. Smalavísur ný ljóðabók eftir Þorstein Valdimarsson, komin út Bæjarstjórnarmálin í Vestmannaeyjum: Úrslitakrafa frá framsóknarmann- inum gerði útslagið — segir Sigurður Jónsson Vorum tilbúnir að styðja sjálfstæðis- mann í embættið — segir Magnús H. Magnússon „AFSAGNIR okkar Einars voru á þeim tfma f fullri alvöru og við vissum aldrei annað en að þær yrðu teknar til greina," sagði Sigurður Jónsson, bæjar- fulltrúi f Vestmannaeyjum, er Mbl. ræddi við hann f gær. „Það er svo allt annað mál, hvort það var rétt að hlfta þeim úrskurði, sem bæjarstjórnin felldi um að taka ekki afsagnir okkar til greina. Hins vegar var það ekki að tilhlutan Magnúsar H. Magnús- sonar, að Páll Zóphóníasson var kjörinn bæjarstjóri. Það var úr- slitakrafa frá fulltrúa Fram- sóknarflokksins um Pál sem bæjarstjóra, sem gerði útslagið. Við sjálfstæðismenn vorum f meirihlutasamstarfi með fram- sóknarmanninum og við Einar mátum stöðuna þannig, að rétt væri að leggja áherzlu á það samstarf. Ég held helzt að hinn armur Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn hafi ekki viljað trúa þvf að um úrslitakost væri að ræða, en við töldum okkur hafa vissu fyrir því, að fram- sóknarmaðurinn myndi bera Pál fram til atkvæðagreiðslu, hvað sem við segðum, og þá myndum við sjálfstæðismenn óhjákvæmilega lenda í minni- hluta. Við töldum álit bæjar- félagsins hafa skaðazt nóg áf því, sem á undan var gengið, og því væri ekki rétt að fara að auglýsa bæjarstjórastarfið upp á nýtt og láta ef til vill einhverj- ar vikur líða enh án þess að raunveruleg stjórn væri á mál- efnum bæjarins. Ég gerði mér á þessum tíma mjög vel Ijóst, að afstaða mín kynni að valda mér erfiðleikum í samstarfi mínu við flokksbræður mína I Sjálf- stæðisflokknum, en mér fannst annað ekki rétt með hliðsjón af hagsmunum bæjarins og þá kaus ég að láta sitja í fyrirrúmi. Það er svo alls ekki rétt, að ég hafi starfað utan flokka siðan. Enda þótt samstaða hafi náðst í bæjarstjórninni um kjör Páls þýddi hún ekki formlega meiri- hlutamynd og reglulegir meiri- hlutafundir hafa ekki verið haldnir, heldur hefur bæjar- stjórnin starfað eins og mál- efnaleg samstaða hefur gefið tilefni til og ég hef alla tíð litið á mig sem sjálfstæðismann og tekið afstöðu til mála með það í Framhald á bls. 18 „FRA okkar sjónarhóli stóðu málin þannig, að meirihluti fulltrúaráðs sjálfstæðismanna f Vestmannaeyjum þröngvaði þeim Einari H. Eirfkssyni og Sigurði Jónssyni til að segja af sér f bæjarstjórninni og okkur fannst það óviðfelldið. Hitt er svo aftur, að við hefðum aldrei staðið að tillögu um að taka afsagnirnar ekki til greina, nema við hefðum rökstuddan grun um, að þeir Einar og Sig- urður væru ekki á móti þeirri málsmeðferð," sagði Magnús H. Magnússon, stöðvarstjóri f Vestmannaeyjum, er Mbl. ræddi við hann í gær í fram- haldi af frétt blaðsins um af- sagnir Einars H. Eirfkssonar, forseta bæjarstjórnar og skatt- stjóra. „En auðvitað höfum við alltaf litið á þá Einar og Sigurð sem fulltrúa sjálfstæðismanna f Vestmannaeyjum f bæjar- stjórn," sagði Magnús. „Og ég vil benda á, að bæði 1976 og ‘77 var Einar kjörinn forseti bæj- arstjórnar, ekki aðeins með at- kvæðum vinstri manna, heldur hlaut hann f bæði skiptin öll atkvæðin, nfu talsins, þannig að trausts til embættisins hefur Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.