Morgunblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28: SEPTEMBER 1977 — Schleyer Framhald af bls. 1 Hoilenzka dómsmálaráöuneytið staðfesti að leitað væri að báti, sem vestur-þýzkir borgarar hefðu tekið á leigu, en sagði jafnframt að leitin væri. tengd hvarfi þriggja kvenna, sem taldar væru félagar í „Rauðu herdeildinni'1, svokölluóu sem er hryðjuverka- hópur. S:gði talsmaður dóms- málaráðuneytisíns að leitin stæði ekki i sambandi við hvarf Hanns- Martins Schleyers. Þegar leitað var álits hjá Bonnstjórninni á sannleiksgildi fréttarinnar í De Telegraaf lét opinber talsmaður stjórnarinnar svo um mælt að með fréttinni hefði blaðið rofið trúnað, en hann neitaði því ekki að frásögnin ætti við rök að styðj- ast. Konurnar þrjár, sem leitað sé, eru Birgitte Mohnhaupt, Angelik Speitel og Sigrid Sternbeck. Mohnhaupt var í fylgd með Knut Folkerts er hann var handtekirín i sambandi við hvarf Schleyers fyr- ir skömmu, en henni tókst að komast undan. Hinar tvær eru taldar félagar í harðsvíruðstu kliku „Rauðu herdeildarinnar", þar sem Folkerts er einnig virkur félagi, en vestur-þýzk stjórnvöld hafa undanfarna mánuði leitað hans í sambandi við rannsóknina á morðinu á Siegfried Buback, ríkissaksóknara i Vestur- Þýzkalandi, í apríl s.l. Joop den Uyl forsætisráðherra Hollands Jiefur lýst því yfir, að Folkerts verði að koma fyrir rétt i Hollandi enda þótt það kunni aó hafa í för með sér hættu á hryðjuverkum þar í landi. I gærkvöldi voru vígorð máluð á veggi konungshallarinnar i Amsterdam. Gaf þar á að líta áletranir eins og „Sleppið Folk- erts", „Rauðu herdeildina frjálsa" og „Hættið að ofsækja Rauðu herdeildina". — Fiskveiðideila Franíhald af bls. 1 menfi legið undir þungu ámæli vegna þessara veiði, m.a. með til- liti til þess að þeir hafa verið þar með verksmiðjutogara. Síðan í febrúarmánuði s.l. hafa staðið yfir samningaumleitanir milli Sovétrikjanna og Efnahags- bandalagsins um gagnkvæmar fiskveiðar. Þessar samningavið- ræður hafa ekki borið árangur til þessa og er litið á brottrekstur togaranna af miðunum við Sval- barða á laugardaginn sem þrýst- ing af hálfu Sovétmanna til aó koma hreyfingu á þær samninga- umleitanir. — Sakharov Framhald af bls. 1 er það að segja, að Victor Elisev blaóafulltrúi sendiráðsins bauó Magnúsi af fyrra bragði að koma á framfæri við hann óskum sínum viðvíkjandi dvölinni i Sovétríkj- unum, ef einhverjar væru, og mundi hann þá sjá til þess að þær yrðu uppfylltar. Var þá óskað eft- ir því að sendiráðið hefði milli- göngu um að blaðamaður Morgun- blaðsins fengi tækifæri til að hítta Andrei Sakharov og ræða við hann. Þegar málaleitan þessi var fram borin sagði Elisev, að Magnús skyldi ekki gera sér vonir um að hitta Sakharov, og ráðlagði honum jafnframt að reyna ekki að hafa samband við hann eftir komuna þangað, því að slíkt gæti orðið til að eyðileggja hina opin- beru heimsókn íslenzka forsætis- ráðherrans til Sovétrikjanna. Um frekari orðaskipti sín við blaðafulltrúa sovézka sendiráðs- ins i þessu sambandi hafði Magnús þetta að segja: „Ég mótmælti þessu og kvaðst ekki sjá hvernig það, að ég óskaði eftir að tala við ákveðna persónu, gæti komið hinni opinberu heim- sökn við. Frá minum bæjardyrum séð væri það eins sjálfsagt og að menn drægju andann að einn ein- staklingur ætti orðastað við ann- an. Sakharov væri þó Rússi og óumdeilanlega athyglisverður maður. Elisev játti þessu, — sagði að ekkert væri eðlilegra og að sjálfsögðu væri ég sjálfráður gerða minna, en eigi að siður vildi hann ráðleggja mér að gera ekk- ert frekar í málinu. Hann benti á að Sakharov væri maður, sem ekki hefði veríð handtekinn vegna þess að hann hefði átt svo mikinn þátt í þvf að skapa varnar- mátt Sovétrikjanna. Hins végar væri ljóst að Sakharov væri trufl- aður. Um leið og hann lét þessi ummæli falla um Nóbelsverð- launahafann benti Elisev á höfuð- ið á sér. Ég sagði þá, að ég virtist halda, að Sakharov væri fulltrúi ákveðins minnihlutahóps Sovét- borgara. Það kvað Elisev fráleitt, — um minnihlutahóp væri alls ekki að ræða, heldur fámennan hóp einstaklinga, sem teldi kannski um 20 manns. Það væri allt og sumt," sagði Magnús Finnsson að lokum. — Eþíópía . . . Framhald af bls. 1 verið fjölgað hafi þeir ekkert gert til að stöðva mötmælendurna. Óstaðfestar fregnir herma einnig, að óánægðir hermenn, sem hark- izt hafi undan hersveitum Sómalíu úr Ogadeneyðimörkinni hvetji einnig til að herstjórninni verði komið frá völdum. — Stólamál Framhald á bls. 18 anir Rússa í Reykjavik 1972 hafi vakið furðu margra og jafnvel grínagtug viðbrögð, þá var þarna um að ræða hluti, sem töldust til römmustu al- vöru stórveldanna. Spassky sjálfur hafði látið þau orð falla, að honum liði ekki vel á sviði Laugardalshall- arinnar. „Það er einna helzt eins og ég sé ekki stundum ekki með réttu ráði, þegar ég er að tefla á sviði Laugardalshallar- innar", sagði hann. Fyrst í stað tæptu aðstoðarmenn Spasskys aðeins á grun sínum vió for- ráðamenn Skáksambands Is- lands og var reynt að rannsaka málið i kyrrþey, en án árang- urs. Sovétmennirnir virtust svo stunda einhverjar rannsóknir sjálfir, en sama dagínn og 17. skák einvigisins var tefld gaf Geller, aðstoðarmaður Spasskys, út fréttatilkynningu, þar sem hann gaf í skyn, aó Fischer og aðstoðarmenn hans notuðu einhveja dularfulla tækni til að draga úr getu Spasskys og af hálfu sovézku skáknefndarinnar í Reykjavík var sett fram krafa um visinda- lega rannsókn á sviði Laugar- dalshallarinnar og búnsði þess. Sérstakur öryggisvörður var settur á sviðið dag og nótt og sérfræðingar fengnir til rann- sóknanna. Ekkert óvenjulegt kom i ljós fyrr en stólar kepp- endanna voru röntgenmynd- aðir. Á myndum af stól Spasskys kom fram einhver hlutur, sem ekki sást á myndum af stól Fischers. Stóll Spasskys var svo rifinn i sund- ur og kom þá i ljós, að galli hafði verið í viðnum í stólset- unni og viðarfyllingu skotið þar inn i. Hins vegar héldu sérfræð- ingarnir þvi fram að viðarfyll- ing hefði ekki átt að koma fram á röntgenmynd og var þá ákveðið að mynda stólinn aftur, þegar sýnishorn hafði verið tekið af viðarfyllingunni. Á þeim myndum kom ekkert at- hugavert fram. Sovétmenn gengu eftir skýrslu um rannsóknirnar og kvörtuðu loks opinberlega yfir seinaganginum. Sérfræðingar kváðust enga viðhlítandi skýr- ingu geta gefið og loks varð það ofan á að skýra málið með því að „einhver mistök hafi orðið þegar fyrri röntgenmyndirnar voru teknar." „Skáksamband íslands álítur, að niðurstöður rannsóknanna sýni, að enginn fótur er fyrir þeim hugmynd- um, sem fram komu í bréfi yð- ar . ..“ Nokkurrar eftirvæntingar gætti um viðbrögð Sovétmanna vió þessu svari Skáksambands Islands, segja má að þarna hafi málið dagað uppi, þar sem öll viðbrögð hafi verið um seinan, því þennan sama dag tapaði Spassky einvíginu. — Mývatnssveit Framhald af bls. 32. un væri að byggja nýtt verk- smiðjuhús fyrir utan umbrota- svæðin, þar sem ekki væri nokkur leið að vinna i húsi Léttsteypunn- ar við þessar aðstæður. í umbrotunum fyrir nokkrum vikum eyðiagðist borholan, sem verksmiðjan hafði til afnota, og einnig leiðsla frá holunni til verk- smiðjuhússins. Hjörtur Tryggvason á skjálfta- vaktinni í Reynihlið tjáði Mbl. í gær að skjálftavirkni væri nú í lágmarki við Kröflu. Landris er svipað og það var fyrir umbrotin eða um 7 millimetrar á sólar- hring. Er þess að vænta að til tíðinda dragi einhvern tíma í næsta mánuði. Að sögn Hjartar telja visinda- menn að aukin hveravirkni í Bjarnarflagi sé eftirstöðvar um- brotanna fyrr í mánuðinum. — Banaslys Framhald af bls. 32. ing. Virðist sem jeppinn hafi oltið þegar hjól hans snertu malarrönd við veginn. Fór bíllinn nokkrar veltur en Svanhvít heitin kastað- ist út úr bílnum og er talið að hún hafi látizt samstundis. Svanhvít var hjúkrunarfræð- ingur að mennt. Stundaði hún framhaldsnám í grein sinni og var á leið til Reykjavikur i þeim er- indum þegar þetta hörmulega slysvarð. Selfosslögreglan bað Morgun- blaðið að koma því á framværi við ökumenn, að nú færi sá tími í hönd að búast mætti við ísingu á fjallvegum og bað hún ökumenn að sýna sérstaka aðgæzlu af þess- um sökum. — Urslitakrafa Framhald af bls. 2 huga. Ég vil líka benda á að ég hef átt gott samstarf við yngra flokksfélagió hér; Eyverja, í fulltrúaráð sjálfstæðisfélag- anna í Vestmannaeyjum, i kjör- dæmisráð flokksins í Suður- landskjördæmi og ég átti sæti í siðasta landsfundi Sjálfstæðis- flokksins. Einnig sat ég SUS- þingið hér í Eyjum á dögunum og ég á sæti í stjórn samtaka ungra sjálfstæðismanna. Þann- ig get ég ómögulega litið á mig sem utanflokkamann og þessu öllu til viðbótar má svo benda á, að i fulltrúaráðinu hér í Eyjum kom á sínum tima fram rödd um það, að okkur Einar ætti að reka úr flokknum vegna af- stöðu okkar í bæjarstjóramál- inu, en til þess fékkst ekki meirihluti". Sigurður Jónsson sagði, að í sambandi við bæjarstjóramálið væri rétt að það kæmi fram, að sjálfstæðismenn hefðu haft vissu fyrir því, að meirihluti myndaðist um kjör Guðmundar Karlssonar sem bæjarstjóra. „Þetta fór svo langt, að við ræddum við Guðmund, en hann var ófáanlegur til að gefa kost á sér," sagði Sigurður. „Einnig voru uppi hugmyndir um Gísla Gislason kaupmann, en það var ljóst að við sjálfstæðismennirn- ir fjórir gátum ekki komið manni í gegn án þess að hafa fimmta hjólið með okkur. Þannig hafði framsóknarmað- urinn mjög sterka aðstöðu og þegar hann setti Pál á oddinn var um annað tveggja að ræða; að styðja Pál og viðhalda þann- ig meirihlutasamstarfinu í bæjarstjórn eða lenda í minni- hluta. Um þetta skiptust svo skoðanir okkar bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins". Þegar Mbl. spurði Sigurð, hvort hann væri búinn að ákveða, hvað hann ætlaði að gera í sambandi við næstu bæjarstjórnarkosningar, sagði hann. „Um það hef ég enga ákvörðun tekið, en ég get full- yrt, að ég mun ekki standa að neinu utanflokkaframboði. All- ar líkur benda til þéss að hjá okkur verði prófkjör í sam- bandi við framboðslistann og ég mun, þegar þar að kemur, hafa samráð við stuðningsmenn mína í Eyverja um það, hvað við þá gerum." Þess skal getið að i viðtali við Mbl., sem birtist 1. april 1976, lét Sigurður Jónsson eftirfar- andi orð faila um stöðu sína sem bæjarstjórnarfulltrúa: „Við munum starfa utan flokka, og teljum okkur ekkí lengur fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins og því óbundna af honum, en þótt ég hafi sagt mig úr fulltrúaráði flokksins mun ég áfram starfa innan ungra sjálfstæðismanna, en meiri- hluti þeirra var fylgjandi af- stöðu okkar og ákvörðun". Þegar Mbl. bar þessi ummæli undir Sigurð í gær, sagði hann: „Þessi ummæli mín spegla við- horfin, eins og þau voru þenn- an dag. En siðan hafa linurnar skýrzt og það kom strax í ljós, að yngri sjálfstæðismenn vildu hafa við mig fullt samstarf og við höfum alltaf talað saman um málin. Þannig tel ég nú, að ég geti með fullum rétti sagt, að ég hafi starfað innan Sjálf- stæðisflokksins, enda þótt ég hafi talið mig óháðan flokksfor- ystunni. Vegna þess að þarna kemur fram, að ég sagði mig úr full- trúaráðinu, er rétt að fram komi til skýringar á því, sem ég hef áður sagt í þessu samtali okkar nú, að ég var kjörinn á ný í fulltrúaráðið á síðasta aðal- fundi." — Vorum Framhald af bls. 2 hann líka notið hjá öllum sam- herjum sínum úr Sjálfstæðis- flokknum." „Þetta kom allt til út af bæj- arstjóramálunum," sagði Magnús H. Magnússon. „Eins og málum var komið, held ég að allir bæjarfulltrúar hafi verið þeirrar skoðunar, að allt hafi riðið á þvi að fá bæjarstjóra til starfa og gera bæjarstjórnina þar með starfhæfa að nýju. Ég get sagt það nú, að við Alþýðu- flokksmenn vorum tilbúnir að styðja sjálfstæðismann í em- bættið og höfðum þá Guðmund Karlsson i huga, en það mál komst þó ekki á formlegt stig. Hins vegar kom svo í ljós, að menn vildu leggja að Páli Zóphóníassyni aá taka starfið að sér. Þessari lausn voru tveir fulltrúar sjálfstæðisflokksins andsnúnir og var farið með málið í fulltrúaráð flokksins, þar sem það var fellt að fulltrú- ar flokksins í bæjarstjórn stæðu að kjöri Páls. Þessu vildu þeir Einar og Sigurður ekki una og sögðu af sér. Okkur hin- um fannst það óviðfelldið að fulltrúaráðið væri að þröngva þessum mönnum til að segja af sér út af bæjarstjóramálinu, þar sem við töldum okkur vita, að afstaða tvímenninganna byggðist á því að þjarfélagsins að leiðarljósi. Og eins og ég sagði áðan, var það okkur kappsmál að fá bæjarstjóra til að hjólin gætu farið að snúast á nýjan leik. Formlega myndaðist enginn meirihluti í bæjarstjórninni við kjör Páls i bæjarstjóraembætt- ið. Þar af leiðandi varð þá eng- inn formlegur minnihluti til heldur þó mál hafi síðan þróazt á þann veg að hægt sé að tala um meirihluta og minnihluta." — Ræða Ingólfs Framhald af bls. 12 afurða er nú það hæsta sem nokkrum hefur dottið í hug að mögulegt væri að fá. Eigi að síður virðist vera stórtap á útgerð við meðalaflabrögð og rekstrar- stöðvun er yfirvofandi hjá frystihúsun- um. Þannig fer kostnaðarverðbólgan með sjávarútveginn. Menn vona, að úr rætist og takast megi, þótt síðar verði að draga úr verðbólgu hér á landi. Með 200 mílna fiskveiðilögsögu sem nú er fengin er ástæða til bjartsýni um framtíð sjávarútvegsins. Ríkisstjórnin hélt vel á landhelgísmál- inu. Þess vegna vannst sigur í því máli miklu fyrr heldur en nokkur hefði þorað að vona. Gylfi minntist einnig á land- búnaðinn. Það er rétt að landbúnaður- inn stendur nú frammi fyrir miklum vanda. Kostnaðarverðbólgan hefur skrúfað upp afurðaverðið þannig að dregið hefur verulega úr sölu innan- lands. Á viðreisnarárunum þegar verð- bólgunni var haldið í skefjum unnust góðir markaðir fyrir diklakjöt bæði í Noregi og Svíþjóð. Enska markaðinn sem alltaf var lélegur þurfti ekki að nota. Allgóður markaður fékkst einnig fyrir osta bæði í Svíþjóð og B :ndaríkjun- um. Á þessum árum nægðu úrflutnings- uppbætur, sem miðast við 10%, af heildarframleiðslu búvara, til þess að tryggja bændum ákveðið grundvallar- verð fyrir búvörur. Útflutningsuppbæt- ur á landbúnaðarafurðir voru lögfestar í ársbyrjun 1960 og hafa reynst vera ómissandi og bændum til mikils hagnað- ar, fyrir þjóðarheildina. Vegna verðbólgunnar hér og geysi- legrar hækkunar á búvörum hefur verð- hlutfall breytst á erlendum mörkuðum okkar til mikils óhagræðis. Auk þess hafa Norðmenn aukið niðurgreiðslur á búvörum og hefur það áhrif á verð inn- fluttra búvara þar í landi. Vegna áhrifa verðbólgunnar er búist við, að lög- ákveðnar útflutningsbætur nægi ekki fyrir liðið ár eða næsta ár til þess að bændur nái fullu verði fyrir framleiðsl- una eins og oftast var meðan verðbólg- unni var haldið niðri. Vandamál land- búnaðarins myndu verða miklu minni og viðráðanlegri ef takast mætti að koma verðbólgunni niður. Að sjálfsögðu má segja um landbúnaðinn eins og aðrar atvinnugreinar að nýjir timar og breytt- ar forsendur geta kallað á endurskoðun og breytingu á framkvæmd land- búnaðarmála. Gylfi minntist á orku- og iðnaðarmál hér áðan, m.a. Kröflu. Menn geta deilt um framkvæmd mála en við eldsumbrot og náttúruhamfarir verður ekki við ráð- ið. Iðnaðurinn er i vexti og hefur aukið gildi í þjóðarbúskapnum. Allir virðast skilja nauðsyn þess að efla islenskan iðnað til þess að hann megi verða þess megnugur að veita þvi fólki atvinnu, sem árlega bætist á vinnumarkaðinn. En fjárskortur og verðbólga eykur á erfið- leika iðnaðarins og gerir samkeppnisað- stöðuna erfiða. íslenskur iðnaður verður að keppa að því að komast inn á erlenda markaði. Án þess fæst ekki sá árangur í framleiðslu og tekjuöflun sem nauðsyn- legt er að ná. Þjóðarhagur og lífskjör í landinu eru undir því komin að takast megi að auka framleiðsluna og vinna góða markaði fyrir hana. Stefnuatriði Verslunarráðs íslands eru að flestu leyti skynsamleg og þjóóhagsiega réttmæt. Eigi að síður er ástæða til að setja spurn- ingamerki við nokkur atriði sem ekki eru eins réttlát eða auðveld í fram- kvæmd og margir virðast ætla. Um það gefst vonandi tækifæri til að ræða síðar. Góðir áheyrendur. Ég fer nú að ljúka máli mínu. Við munum flest telja, að höfuðverkefni næstu mánuða og ára sé að færa niður verðbólguna í landinu, sem næst því marki sem gerist i við- skiptalöndum okkar. Með þvi fæst jafn- vægi í þjóðarbúskapnum og þannig styrkist grundvöllur atvinnulífsins. Verslunarstéttin hefur þar mikilvægu hlutverki að gegna. Sagt er að hús- mæðurnar séu fjárhaldsmenn heimil- anna, að þær ráði miklu um fjárhagslega afkomu fjölskyldunnar, með því að kaupa daglega það sem heimilið þarfn- ast. En því er einnig þannig varið með verslunarstéttina, sem annast kaup á öll- um innfluttum vörum til landsins, að hún getur haft gífurleg áhrif á þjóðarbú- skapinn og verðlag í landinu. Þjóðin gerir miklar kröfur til kaupsýslumanna um að þeir gegni skyldum sínum við þjóðfélagið. En um leið er eðlilegt að kaupsýslustéttin vilji fá verslunarlög- gjöf og aðstöðu, sem gerir velviljuðum og duglegum mönnum fært að starfa þjóðinni til farsældar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.