Morgunblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 197 Bókaútgáfa fyr- ir útvalda? Ég hefi um langt skeið veitt forstöðu einni helstu bókaverslun þessa lands, sem út af fyrir sig er ekki í frásögur færandi. Verslunin hefur ávallt lagt sig fram um að veita hinum fjöl- mörgu viðskiptavinum eins góða þjónustu og unnt er. Til dæmis er þess oft óskað, að við útvegum fágætar bækur og bækur sem eru illfáanlegar, og sem betur fer tekst þetta oft. Nú ber svo við að nýlega er komin út bók Matthiasar Jóhann- essens, rithöfundar og ritstjóra, sem hefur að geyma úrval viðtals- þátta, sem Matthías er löngu þjóð- frægur fyrir og þykja með því fremsta á íslensku af þessu tagi. Þessi bók hefur ekki verið send á almennan markað, en seld hjá forlaginu. Vrnsir viðskiptamenn okkar hafa óskað þess, að við útveguð- um þeim bók þessa og auðvitað hefur þvi verið vel tekið. En hvað gerist, þegar umrætt forlag hefur verið beðið um nokk- ur eintök? — Jú, sjálfsagt, en til þess að fá bókina keypta á fullu Snar þáttur í framþróun íslensks iðnaðar: flugfrakt FLUCFÉLAC ÍSLANDS LOFTLEIDIR kjVeljum islenskt 197ð FORD FAIRMONT BÍLLINN SEM BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR Hann sameinar sparneytni og rými Evrópubílsins — styrk og gæði Ameríkubílsins (Eyðsla 10 I. á 1 00 km.) Þér getið valið um eftirfarandi: 4 — 6 — 8 strokka vél — sjálfskiptingu — vökvastýri — Fjórskiptan gírkassa með yfirgír — diskahemla að framan — upphitaða afturrúðu ofi. ofl. Hönnun Ford Fairmont bílsins er talið bezta framlag Bandaríkjanna til bílagreinarinnar í áraraðir. Ford Fairmomont árgerð 1 978 Ford Fairmont árgerð 1 978 4 dyra með eftirfarandi útbúnaði. 4 dyra meS eftirfarandi útbúnaSi. 1. 6 strokka vél 3,3 lltrar (200 cub.) 1. 4 strokka vél 2.3 litrar (eySir 10 á 100 km.) 2. Sjáffskipting. 2. Fjórskiptur girkassi nieS yfirgir. 3. Vökvastýri. 3. Vökvastýri. 4. Hituð afturrúða. 4. HituS afturrúSa. 5. Diskahemlar að framan. 5. Diskahemlar aS framan. 6. Tau eða vinyl i sætum. 6. Tau eSa vinyl i sætum. 7. Heill bekkur eSa sérbólstraSir stólar. 7. SérbólstraSir stólar. verS kr. 3.000.000.— verSkr. 2.780.000.- (verð kr. 2.150.000.- til leigubilstj.) (verS kr. 1.980.000.— til leigubilstj.) FORD Fairmont er rétti bíilinn. Sveinn Egi/sson hf. SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100 verði hefur þess verið krafist að gengið yrði í tiltekinn klúbb og ákveðinn fjöldi bóka hans keypt- ur, hvort sem menn kæra sig um eða ekki. Að öðrum kosti er bók Matthisar ekki föl. Nú ráða menn víst sjálfir sinum viðskiptaháttum, en jafngildir þetta ekki þvi, að menn fengju ekki gert við bíl sinn á verkstæði, ef um smávægilega bilun er að ræða, nema þeir gerðust félagar í einhverjum bilaklúbbi og þyrftu jafnframt að fá verkstæðinu þrjú eða fjögur óþörf verkefni? — Eða að menn fengju ekki keypt drottningarhunang, nema þeir væru félagar í Náttúrulækninga- félaginu, og keyptu jafnframt soyabaunir, alfa-alfa og rúsínur með steinum? Nóg um það, — en vin minn Matthias Johannessen vil ég spyrja, í þeirri von að hann gefi sér tíma til að svara. — Er það þinn vilji og er það með þinni vitund að bækur þínar eru ekki falar öðrum en þeim, sem eru ekki sjálfstæðari en svo í vali bóka, að þeir kjósa að láta um- ræddan klúbb velja handa sér bækur? Ekki hefi ég trú á því að þetta góða fólk leggi á sig að lesa úrvalsfóðrið, og þykir mér miður að þar með fer þín góða bók fram- hjá mörgum, en þetta er önnur saga. Að lokum þetta: Ansi held ég að fáir hefðu lesið Halldór Laxness ef Ragnar i Smára hefði haft sama háttinn á og títtnefndur bókaklúbbur. Með þökk fyrir birtinguna. Sissa Sigurðar, verslunarstjóri Bókaverslunar ísafoldar. Leiðrétting I FRÉTT okkar i gær um verð- launaveitinguna fyrir beztu barnabækurnar, var Þorvaldur Sæmundsson sagður fæddur að Baldurshaga. Hins vegar féll nið- ur að sá Baldurshagi er á Stokks- eyri. Leiðrétting við Lesbókargrein ÞAU mistök urðu i síðustu Les- bók Morgunblaðsins, í spjalli sem Ágúst Vigfússon átti við áttræðan alþýðumann, Jóhannes Ásgeirs- son, að setning féll niður og urðu af því mikil merkingarbrengl. Visan sem tilfærð var er ekki eftir Stein Steinar heldur eftir Jóhannes sjálfan eins og fram kemur i óbrjáluðum textanum. Réttur er textinn þannig: . . . sem Steinn Steinarr orðaði svo snilldarlega: Það skiptir mestu máli, að maður græði á þvi.“ Fyrir þó nokkru heyrði ég og lærði vísu eftir Jóhannes sem hann hafði ort, er hann heimsótti æskustöðvarnar. Vfsan er svona: osfrv. osfrv. Mbl. biðst velvirðingar á þess- um mistökum. Léleg sala hjá Karlsefni TOGARINN Karlsefni frá Reykjavík seldi 173 lestir af fiski i Bremenhaven í gær fyrir 207.628 mörk eða 18.4 millj. króna. Meðalskiptaverð var kr. 70.34 á kíló, en meðalbrúttóverð var kr. 106.58. Góð færð á öllum vegum GÖÐ færð er á öllum vegum á landinu að sögn Hjörleifs Ölafs- sonar vegaeftirlitsmanns. Sagði Hjörleifur að veður hefði verið einstaklega goð að undanförnu og ástand vega með allra bezta móti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.