Morgunblaðið - 28.09.1977, Síða 3

Morgunblaðið - 28.09.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977 3 Menn hafa haft á orði að það sé eins og að fljúga í röri þegar ferðazt er með Concorde. CONCORDE-þota frá Air France lenti á Keflavíkurflug- velli í gær og er það i annað sinn sem þota af þessari gerð lendir á íslandi. Ferð þotunnar hingað í gær var i tilefni þess að vöruhús i Madrid stóð fyrir Vinning- urinn var íslands- ferð með Concorde happdrætti meðal viðskipta- vina sinna og vinningarnir voru íslandsferð með Concorde-þotu. Alls komu 99 farþegar með vél- inni og fóru þeir i skoðunarferð um suðvesturland I gær. Mjög tígulegt er að sjá Con- corde-þotuna lenda, hún kemur eins og ránfugl sem ætlar að hremma bráð sína og rétt áður en hún snertir braut breytist nefstaða vélarinnar og er nef- Framhald á bls. 19. Concorde á Keflavfkurflugvelli f gær ásamt Boeing og DC-8 þotum Flugleiða. Concorde tekur um 100 farþega eða heldur færri en Boeing-þota Flugleiða og DC-8 vélarnar taka 250 farþega. Flugtfmi Concorde frá New Vork til tslands er um 3 tfmar, cn flugtfmi DC-8 um 5 tfmar. Ljösmyndir Mbl. Friðþjófur. Öslað brautina eins og stór vaðfugl. Forsætisráðherra í við- tali við sovézkt blað: Góður mögu- leiki á að auka viðskipti landanna Á FERÐ Geirs Hallgrfmssonar, forsætisráðherra, um Sovétríkin hitti fréttamaður dagblaðsins Sósfalfskur iðnaður hann að máli, og var forsætisráðherra þar beð- inn um að láta í Ijós álit sitt á þróun verzluarsamskipta og vfs- indasamstarfs milli Sovétrfkj- anna og tslands. 1 viðtalinu sagði Geir Hall- grímsson m.a. að verzlunarvið- skipti milli islands og Sovétrikj- :nna eftir síðari heimsstyrjöldina hefðu þróazt stöðugt, ef frá væri skilið nokkurra ára tímabil. Hann benti á, að nú keyptu ís- lendingar meira frá Sovétríkjun- um en þeir seldu þangað, en hinn óhagstæði vöruskiptajöfnuður táknaði þó ekki endilega að fs- lendingar yrðu að jafna viðskipt- in við Sovétrikin. Munurinn á út- og innflutningi væri greiddur í frjálsum gjaldeyri, og sagði for- sætisráðherra, að fslendingar skildu það viðhorf Sovétmanna að kaupa vörur þar sem þeim væri hagstæðast. Forsætisráðherra sagði einnig, að af islendinga hálfu væru taldir góðir möguleikar á því :ð auka viðskiptin milli landanna, en í viðræðum hans við Kosygin for- sætisráðherra, hefði sú orðið niðurstaðan, að grundvöllur við- skiptanna yrði að byggjast á vöru- verðinu i samræmi við hagsmuni beggja aðila. Geir Hallgrímsson sagði, að ef bæði löndin notfærðu sér þá möguleika sem fyrir hendi væru i samræmi við gerða samninga mundi það hafa jákvæð áhrif á Framhald á bls. 19. Mjog óhrelnn fatnaöur þarf mjög gott þvottaefm... Með Ajax þvottaefnl veróur mislití þvotturinn aíveg jafn hreinn og suðuþvotturinn. Hinir ttýju endurbættu efnakljúfar gera þaó kieift aó þvo jafn vel meó öllum þvottakerfum. Strax víð lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus. Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hreinn og hvitur. Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótvíræða kosti sina. einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatiminn er stuttur og hitastigið lögt. Hann verður alveg hreinn og litirnir skýrast. Hreinsandi efni og nýir. endurbættir efnakljúfar ganga alveg inn i þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti i forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni. Ajax þvottaefní þýóir: gegnumhreinn þvottur meó ötlum þvottakerfum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.