Morgunblaðið - 28.09.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977
5
Styrktarfélag vangefinna
byggir afþreyingarheimili
Styrktarfélag vangefinna er
nú að byggja afþreyingarheim-
ili fyrir vangefna við Stjörnu-
gróf i Reykjavík. Bygging þessi
var hafin s.l. vor og er áætlaður
kostnaður við húsið fokhelt og
frágengið að utan um 45 millj-
ónir króna. Stofnfé til þessara
framkvæmda var söfnunarfé
frá árinu 1976 og fé úr Styrkt-
arsjóði vangefinna.
Afþreyingarheimilið verður
um 650 fm. að stærð og mun
rúma 24 vistmenn. í þvi verður
aðstaða til líkamsræktar g
þjálfunar, vinnu, föndurs og til
hvíldar. Heimilið mun fullbúið
bæta úr brýnni þörf fyrir slika
aðstöðu, en öll dagheimili
félagsins eru nú fullsetin.
Þessa dagana er Styrktar-
félag vangefinna að senda út
happdrættismiða í hinu árlega
bilnúmerahappdrætti félags-
ins, og verður öllum ágóðanum
af . happdrættinu varið til
styrktar málefnum vangefinna,
þ.á m. til byggingar afþreying-
arheimilins við Stjörnugróf.
Aðalvinningurinn f bflnúmerahappdrætti Styrktarfélags vangefinna, Plymouth Volare bifreið að
verðmæti kr. 3.3 milljðnir, en heildarverðmæti vinninga er um 14 milljónir króna.
/iF
Viljir þú prjóna þér gæðaflík,
veluróu vélþvottagarnið
Superwash
Mölvariö
Hleypur ekki
Lætur ekki lit
Austurstracti 10
27211
SEXTIU œ SEX NORÐUR
Merkið verður hér eftir á allri okkar framleiðslu, bæði
á innlendum og erlendum markaði.
m r 1 ■■■ flpai« gf ■ ■ W m
A Skulagotu 51 framleiðum við nu eins og
undanfarin 10 ár:
66°N Sjóklæði
66°N Regnklæði
66°N Vínylglófann
66°N Svuntur og flökunarsloppa
fyrir frystihús
66°N Slagveðursfatnað barna
66°N Slagveðursfatnað fullorðinna:
Dömu og herra sportfatnað
SJOKLÆÐAGERÐIN HF
Skúlagötu 51 Sími 11520
Frá Sjóklœðagerðinni
Skúlagötu 51:
Við kynnum nýtt vörumerki fyrir hin landsþekktu sjó-
og regnklæði okkar.