Morgunblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977 17 Eftirmmnileg ferð og hin þarflegasta sagði Geir Hallgrímsson forsætisráðherra við brottförina frá Sovétríkjunum Frá blm. Mhl. Magnúsi Finnssyni. OPINBEKRI heimsðkn Geirs Hallgrfmssonar forsætisráð- herra til Sovétríkjanna lauk í gær, en hann fór frá Moskvu f gærmorgun kl. 10.45. í samtali við Morgunblaðið sagði forsætisráðherra m.a. að hann hefði átt áhugaverðar við- ræður við Kosygin forsætisráð- herra Sovétrfkjanna, þar sem skoðanir hefðu farið saman um sum mál en verið skiptar um önnur, eins og til dæmis varn- armál. Skömmu eftir að Aeroflot- flugvélin hóf sig til lofts frá Moskvu-flugvelli sendi Geir Hallgrímsson skeyti til Kosygins þar sem hann þakkaði móttökurnar í sjö daga heim- sókn sinni til Sovétríkjanna, og árnaði hinum sovézka starfs- bróður sinum allra heilla. Orðrétt sagði Geir Hallgríms- son í viðtalinu við Morgunblað- ið: „Ferðin var hin þarflegasta íalla staði. Þótt ég hafi áður komið til Sovétríkjanna, þá var nú farið mun víðar og gafst því betur tækifæri til að gera sér grein fyrir vfðfeðmi og fjöl- breytni Sovétríkjanna. Hins vegar ber að fara varlega i að draga altækar ályktanir af reynslu í fárra daga heimsókn- um. En móttökur allar og gest- risni voru með afbrigðum. Áhugaverðar viðræður áttu sér stað, og i þeim viðræðum er ég átti við Kosygin forsætisráð- herra Sovétrikjanna komu fram greinileg mörk milli þeirra mála, er við vorum sam- mála um, eins og t.d. verzlun og viðskipti landanna, og hinna, þar sem skoðanir voru skiptar eins og t.d. varnarmála. Gest- gjafar okkar hafa lagt sig fram um að ferð þessi yrði okkur eftirminnileg og vissulega hef- ur hún verið það“ í skeyti Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra til Alexei Kosygins forsætisráðherra So- vétrikjanna var lýst yfir ánægju með það tækifæri sem gefizt hafði til að skiptast á skoðunum um hin ýmsu mál er varða sameiginlega hagsmuni ríkjanna, svo og alþjóðamál er bæði ríkin láta sig varða. Geir Hallgrimsson forsætisráðherra þakkaði þá gestrisni sem auð- sýnd hafði verió honum og konu hans, frú Ernu Finnsdótt- ur, um leið og hann árnaði Kosygin allra heilla og flutti honum persónulegar kveðjur. Forsætisráðherrahjónin eru væntanleg til íslands um helg- ina. Þolreið í slóð r Arna Oddssonar? —Landsmót hestamanna 13.-16. júlí AKVEÐIÐ hefur verið að næsta Landsmót hestamanna verði hald- ið f Skógarhólum f Þingvallasveit 13. til 16. júlf næsta sumar. Að sögn Bergs Magnússonar, for- manns framkvæmdanefndar mótsins, er þegar hafinn undir- búningur að dagskrá mótsins. Sú nýbreytni verður tekin upp að tveir til þrfr hringvellir verða á mótssvæðinu og er ætlunin að samtfmis geti tvö dagskráratriði farið fram, þannig verði kynbóta- hross sýnd og dæmd á einum velli en gæðingar dæmdir á öðrum. Þá fjallar framkvæmdanefndin nú um þá hugmynd að efna til þol- reiðar þvert yfir landið og endur- taka þar með ferð Arna Oddsson- ar forðum daga. Bergur sagði að nefnt hefði verið að lagt yrði upp frá Vopnafirði og farið í slóð Árna og þolreiðinni lyki á Þing- völlum. Hver knapi hefði f það minnsta tvo hesta og leiðinni yrði skipt f ákveðnar dagleiðir. Einnig hefur komið til álita að Hlöðubruni á Ströndum SNEMMA á mánudagsmorgun kom upp eldur f fjárhúsi og hlöðu að bænum Skarði f Kaldrananes- hreppi á Ströndum. Brunnu hús- in til grunna og 140—150 hest- burðir af heyi, sem voru f hlöð- unni, eru ónýtir taldir. Að sögn sr. Andrésar Ólafsson- ar, fréttaritara Mbl.'á Hólmavík, er Skarð í eyði en jörðin hefur verið nytjuð frá bænum Odda, sem er þarna í grenndinni. Heim- ilisfólkið á Odda varð vart við reyk frá Skarði um sjöleytið á mánudagsmorgun og brá skjótt við en eldurinn var þá orðinn svo magnaður að ekki fékkst við neitt ráðið. Simstöðin opnar ekki fyrr en klukkan niu og varð því engum boðum komið til slökkviliðsins á Hólmavik. Utihúsin á Skarði voru gömul timburhús og orðin léleg. Heytjón Oddabænda, þeirra Arngrims Ingimundarsonar og Baldurs Sveinssonar, er tiífinnanlegt. efna til póstferðar á hestum f tengslum við mótið og sagði Berg- ur að helzt væri á döfinni að þarna yrði um að ræða ferðir frá nokkrum stöðum á landinu, sem viðkomandi hestaniannafélög önnuðust og öllum lyki póstferð- unum á Þingvöllum. Fram kom hjá Bergi að fjölmargar fyrir- spurnir um mótið hafa borizt er- lendis frá til islenzkra ferðaskrif- stofa og hafa þannig milli 300 til 400 manns skráð sig hjá einni ferðaskrifstofunni. Væri nú unn- ið að því að skipuleggja ýmsa þjónustu við þessa ferðamenn. Framkvæmdastjórn SFV ályktar: Landsfundur tekur ákvörð- unumframboð MORGUNBLAÐINU barst I gær eftirfarandi ályktun fram- kvæmdastjórnar Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna, sem samþykkt var á fundi stjórnar- innar 21. september s.l. í tilefni af ályktun kjördæmis- ráðs Samtaka frjálslyndra og vinstri manna á Vestfjörðum ný- lega um að standa ekki að fram- boði í nafni Samtakanna vill framkvæmdastjórn SFV taka fram eftirfarandí: Landsfundur SFV hefur verið boðaður 25.—27. nóvember n.k. Þar verður fjallað um stöðu og hlutverk Samtakanna og endan- ieg ákvörðun tekin um þátttöku þeirra i Alþingiskosningunum að vori. Á þessu stigi málsins vill framkvæmdastjórnin einungis leggja áherslu á þá afstöðu sina, að þegar fyrir liggur ákvörðun Samtakanna í heild um þátttöku i Alþingiskosningunum, þá hafi þeir félagar Samtakanna á Vest- fjörðum, sem ekki eru sammála niðurstöðu meiri hluta kjör- dæmisráðsins þar, ótvíræðan rétt til að taka ákvörðun um framboð Samtakanna í þvi kjördæmi. Heimsókn forsætisráðherra til Sovétrikjanna lokið: Sameiginleg yfirlýsing Geirs Hallgríms- sonar og Alexei N. Kosygins gefin út EfTIRFARANDI er sameigin- leg yfirlýsing Geirs Hallgrfms- sonar forsætisráðherra og Alexei N. Kosygins, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, sem gefin var út f lok opinberrar heimsóknar forsætisráðherra tslands til Sovétrfkjanna: Geir Hallgrímsson, forsætis- ráðherra tslands, var í opin- berri heimsókn f Sovétrikjun- um dagana 20.—27. september 1977 í boði sovésku ríkisstjórn- arinnar. Var þetta í fyrsta sinn sem forsætisráðherra Islands fer í heimsókn til Sovétrikj- anna. Auk höfuðborgarinnar Moskvu heimsótti ráðherrann ásamt fylgdarliði sínu einnig Yerevan, Tbilisi og Kiev þar sem tækifæri gafst til að kynn- ast ýmsum þáttum i lffi Sovét- manna og þróun á sviði efna- hagsmála, vísinda og menning- armála. Viðræður fóru fram milli A.N. Kosygins, forsætisráð- herra Sovétríkjanna og Geirs Hallgrímssonar, forsætisráð- herra Islands og tóku þátt i þeim: Af hálfu Islands: Hannes Jónsson, sendiherra íslands i Moskvu, Pétur Thorsteinsson, sendiherra og Björn Bjarnason, skrifstofustjóri forsætisráðu- neytisins. Af hálfu Sovétrikjanna: A.A. Isjkov, fiskimálaráðherra, M.R. Kusmin, fyrsti varautanríkís- viðskiptaráðherra, I.N. Semskov, varautanrikisráð- herra, G.N. Farafonov, sendi- herra Sovétrikjanna á Islandi og V.M. Sobolev, deildarstjóri Norðurlandadeildar utanrikis- ráðuneytisins. Viðræðurnar voru gagnlegar og vinsamlegar og var rætt um margvísleg alþjóðleg vandamál sem eru ofarlega á baugi og mál er snerta samskipti íslands og Sovétrikjanna og horfur varð- andi þróun þeirra samskipta. Báðir aðilar lögðu áherslu á nauðsyn þess að leggja sitt af mörkum til að draga úr spennu f alþjóðamálum og stuðla að friðsamlegri samvinnu i Evrópu og hvarvetna i veröld- inni. Þeir telja að það sé sér- staklega mikilvægt fyrir áfram- haldaridi slökun spennu að framkvæma til hlítar öll ákvæði iokasamþykktar ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu og tryggja árangursrík- ar niðurstöður fundanna i Bel- grad. Sérstök áhersla var lögð á nauðsyn þess að gera Samein- uðu þjóðirnar virkari, svo að þær geti á raunhæfan hátt verndað frið og alþjóðlegt ör- yggi og stuðlað að samskiptum ríkja á milli á öllum sviðum i fyllsta samræmi við stofnskrá sína. Rætt var um nauðsyn þess, að þriðja hafréttarráðstefna Sam- einuðu þjóðanna lyki sem-fyrst störfum með heildarsamkomu- lagi, er taki tillit til réttmætra hagsmuna allra ríkja. Aðilar lögðu áherslu á brýna nauðsyn þess að gera ákveðnar ráðstafanir til að stöðva vigbún- aðarkapphlaupið og ná árangri hvað snertir almenna og algera afvopnun undir ströngu og virku alþjóðlegu eftirliti. Itarlegar viðræður áttu sér stað um fjölmörg önnur alþjóð- leg vandamál. Hvað snertir viðræður um mál varðandi tvíhliða samskipti Islands og Sovétríkjanna sem ávallt hafa verið vinsamleg var af hálfu beggja aðila látin i ljós ósk um aukin samskipti með hag beggja landanna og eflingu friðar fyrir augum. Talið var að sú venja sem skapast hefir að löndin tvö greini frá viðhorfum sinum m.a. á vegum utanrikisráðu- neyta þeirra hefði gefið góða raun, og að æskilegt væri að halda þeirri venju ífram með reglubundnum hætti. Aðilar tóku fram, að sam- skipti löggjafarþinga Islands og Sovétrikjanna stuðli að góðri sambúð landanna og að kynni fulltrúa almennings séu mikil- væg leið til aukins gagnkvæms skilnings. Nytsamlegar viðræður fóru fram um þróun verslunarvið- skipta. Aðilar létu í ljós ánægju yfir hagstæðri þróun þeirra við- skipta á grundvelli bókunarinn- ar um gagnkvæmar vöruaf- greiðslur milli Islands og Sovét- rikjanna á tímabilinu 1976—1980 og voru sammála um að fyrir hendi séu góð skil- yrði til frekari þróunar gagn- kvæmra verslunarviðskipta. Lögð var áhersla á þýðingu samskipta beggja landanna á sviði sjávarútvegs á alþjóða- vettvangi og á tvihliða grund- velli eins og fram kemur i samningi Islands og Sovétríkj- anna sem gerður var i Reykja- vik i apríl á þessu ári um vis- inda- og tæknisamvinnu og samráð á sviði sjávarútvegs og rannsókna á lifandi auðæfum hafsins. Aðilar lýstu ánægju yfir þróun íslensk-sovéskra sam- skipta á sviði kennslumála, vis- inda- og menningarmála, sem eiga sér stað innan ramma áætl- unarinnar um menningar- og visindasamvinnu á timabilinu 1975—1979 sem gerð var á grundvelli samningsins milli Is- lands og Sovétríkjanna frá 1961 um menningar-, visinda- og tæknisamvinnu. Aðilar létu í ljós þá skoðun að þær viðræður sem fram hefðu farið meðan á heimsókn Geirs Hallgrimssonar, forsætisráð- herra, til Sovétrikjanna stóð, hefðu verið gagnlegar og myndu stuðla að frekari þróun vinsamlegrar sambúðar Islands og Sovétríkjanna. Geir Hallgrimsson, forsætis- ráðherra tslands, lét i ljós þakk- læti við sovésku ríkisstjórnina fyrir hlýja gestrisni og vinsam- legar móttökur sem hann og fylgdarlið hans hefir orðið að- njótandi i Sovétrikjunum. Fyrir hönd ríkisstjórnar ís- lands bauð Geir Hallgrimsson forsætisráðherra.dgin, for- sætisráðherra Sovétríkjanna, i opinbera heimsókn til íslands. Var því boði tekið með þökkum. Ákveóið verður siðar hvenær af þeirri heimsókn getur orðið. U tanríkisráðuney tið, Reykjavik, 27. september 1977.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.