Morgunblaðið - 30.09.1977, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 30.09.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1977 5 BARNASTARF Dómkir kj unnar BARNASTARF Dómkirkjunnar hefst nú um helgina og verður í Vesturbæjarskólanum við Öldu- götu eins og undanfarin ár. Sú breyting verður nú á, að barna- samkomurnar verða á laugardög- um og hefjast kl. 10 árdegis. Ástæðan til þessarar breytingar er sú, að fyrirhugað er að hefja guðsþjónustur í Landakotsspítala, og verða þær á hverjum sunnu- dagsmorgni, og munu dómkirkju- prestarnir annast þær. Við viljum eindregið hvetja for- eldra til þess að senda börn sín á barnasamkomur Dómkirkjunnar í Vesturbæjarskólanum við Öldu- götu og koma gjarnan með þeim. A barnasamkomunum er börn- unum sagt frá Jesú Kristi og boð- skap hans og þau fá myndir til skýringar og má líma þær inn í þar til gerða bók. Þá eru sungin vers og sálmar, beðnar bænir, sög- ur sagðar og að lokum sýnd stutt kvikmynd. Verið hjartanlega velkomin á barnasamkomur i Vesturbæjar- skólanum á laugardögum kl. 10. Hjalti Guðmundsson. Stofnfundur Samtaka áhuga manna um áfengismál STOFNFUNDUR Samtaka áhuga- manna um áfengisvandamálið verður haldinn í Háskólabíói á morgun kl. 2. Fundarstjóri verður Eggert G. Þorsteinsson, alþingismaður, en ræður og ávörp flytja Vilborg Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur, Hilmar Helgason, verslunarmað- ur, Skúli Johnsen, borgarlæknir. Indriði Indriðason, stórtemplar, Jóhannes Magnússon, bankafull- trúi, og Pétur Sigurðsson, alþing- ismaður. 99 kunnir borgarar hafa undir- ritað áskorun til samborgara sinna um að mæta á fundinum. Aður en fundurinn hefst mun Skólahljómsveit Kópavogs leika í bíóinu. Æfingar á Hnotu- brjótnum hafnar í Þjóðleikhúsinu NÝLEGA er kominn til starfa við Þjóðleikhúsið Yuri Chatal, ballettmeistari frá Bandaríkj- unum. Hann hefur nú tekið við þjálfun íslenzka dansflokksins og hafið undirbúning og æfing- ar fyrir jólasýningu leikhúss- ins, Hnotubrjótinn eftir Yuri Chatal. Tsjaikovskí sem Chatal sviðset- ur með Helga Tómassyni í aðal- hlutverki. Yuri Chatal er rússneskur að uppruna, en fluttist barn að aldri til Bandaríkjanna og stundaði dansnám við School of American Ballet í New York. Hann hefur starfað sem sóló- dansari, listdansari og dansa- höfundur víðs vegar um Banda- ríkin og var um fjögurra ára skeið stjórnandi og ballett- meistari ballettsins í Memphis í Bandarikjunum. Síðan hefur hann verið stjórnandi og list- rænn leiðtogi ballettsins í Maryland. Chatal hefur sjálfur samið fjölmarga balletta en frægastur mun hann vera fyrir hinar ýmsu sviðsetningar sínar á Hnotubrjótnum. Helgi Tómasson, ballettdans- ari, hefur tvivegis áður tekið þátt í uppsetningu á Hnotu- brjótnum með Chatal. Frumsýning á Hnotubrjótn- um verður á annan dag jóla, 26. desember n.k. Arásarmadur líflátinn í Kína Peking, 29. sept. Reuter. KlNVERSKUR maður sem réðst að bandarískum ferðamanni og stakk hann hnífi í grennd við Torg hins himneska friðar á dög- unum, hefur verið líflátinn Vinimslys í Hafnarfirði VINNUSLYS varð i Hafnar- firði unt hálffjögurleytið í gær. 15 ára piltur var að vinna með fleyghamar á Garðastig þegar það slys vildi til að hamarinn fór á fót hans svo að tók framan af tám. Pilturinn var fluttur á slysadeild Borgarspítalans til aðgerðar. að því er segir í fréttum frá Peking í dag. Eftir árásina var maður handtekinn snarlega og Kínverjar lýstu því yfir að hann yrði látinn svara til saka enda málið talið mjög alvarlegt. Var maðurinn, sem mun hafa heitið Uu Ming-Ching, 35 ára gamall, leiddur fyrir rétt og dæmdur til dauða hinn 18. september sl. Bandaríkjamaðurinn sem varð fyrir árásinni Richard Talmadge var í Kína með vini sínum leikar- anum William Holden. Hann var í sjúkrahúsi i viku, en hélt frá Kína fyrir fáeinum dögum. Kínverska fréttastofan segir að Yu hafi verið „andbyltingarmað- ur og komið vopnaður til Peking með það í huga að drepa." ©m Allflestar hausttízkuvörur okkar sem sýndar voru á sýningunni Heimiliö '77 og nú á lönkynningu í Laugardal eru nú komnar í verzlanir okkar. TfZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi frá skiptiborði 28155

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.