Morgunblaðið - 30.09.1977, Side 32
(iLÝSINíiASÍMINN EK:
22480
311orjj\mT)I«ÍJifc
ALÍÍLÝSINCÍASÍMINN ER:
22480
JHoreimbloíiit'
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1977
Varnargarður reistur
kring um Kísiliðjuna
Ríkisstjórnin samþvkkti á
fundi í gær tillögu nefndar um
a<> varnargarður verði reistur
kring um Kísiliðjuna. Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
„Það var
þó barátta
— sagði Friðrik
um skák sína
við Timman
99
Sjá bls. I 7
„ÞETTA var jákvætt að því
leytinu til, að það var þó alla-
vega barátta í þessari skák hjá
mér, en ekki tóm vitleysa, eins
og í skákunum tveimur þar á
undan,“ sagöi Friðrik Olafs-
son, stórmeistari, er Mbl.
ra-ddi við hann í gær, en Frið-
rik tapaði fyrir Timman á
Interpolis-skákmótinu í gær.
Friðrik sagði, að honum
hefði tekizt vel upp framan af.
„Fg fórnaði skiptamun og mér
tókst að 1'la‘kja taflið mikið, en
svo missti ég tökin og Timman
tókst aó rétta úr kútnum,
þannig að staóan var orðin erf-
ið hjá mér, þegar skákin fór í
bið.
Ég varð svo að gefast upp
eftir 56 leiki."
1 dag eiga stórmeistararnir
frí, en á morgun teflir Friðrik
við Andersson og hefur Frið-
rik hvítt í þeirri skák.
sagði Mbl. að áætlaður kostnaður
við varnargarðinn væri tæpar tíu
milljónir króna og myndi verkið
hefjast fljótlega. Þorsteinn Ólafs-
son, viöskiptalegur framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar, sagði, að nú
væri búið að ákveða að gera við
skrifstofubygginguna til bráða-
birgða og verður m.a. sett nýtt
þak á húsið, sem mun kosta 5—4
milljónir króna. I gærmorgun
rofnaði skarð í þró Kísiliðjunnar
númer þrjú, en aö sögn Þorsteins
fór lítið hráefni úr þrónni. Þor-
steinn sagði að boðað hefði verið
til fundar stjórnar Kísiliðjunnar
næstkomandi föstudag, þar sem
ra“tt yröi um rekstur fyrirtækis-
ins í vetur.
Að beiðni stjórnar Kísiliðjunn-
ar skipaði iðnaðarráðherra nefnd
til aó gera tillögur um aðgerðir til
varnar Kísiliðjunni. Lagði nefnd-
in síðan til að gerður yrði jarð-
vegsgarður kring um verksmiój-
una og sagði Þorsteinn, að garður-
Framhald á hls. 18
Klsiliðjan við Mývatn. Fremst eru þrærnar, þá verksmiðjuhúsið og skrifstofubyggingin hægra megin við
verksmiðjuna. Varnargarðurinn verður reistur í um 200 metra fjarlægð frá verksmiðjunni. Ljósm. Mbl.:
Friðþjófur.
Klak þorsksins aðeins 50%
af meðaltali síðustu 7 ára
— Loðnuklakið helmingur þess sem var 72-75
LJÓST ER nú að klak þorsks og
loðnu hefur heppnast illa á þessu
ári og klak þorsksins er aðeins
Atkvæðagreiðsla BSRB:
8.400 á kjörskrá
Vitavörðurinn á Homi fær að senda skeyti og
hugsanlega nota Grímseyingar talstöðina
„ÞAÐ FRU 8..'574 á þeirri kjör-
skrá, sem við vorum að taka sam-
an, en sú tala kann eitthvað aö
breytast, þannig að sennilega
verða um 8.400 manns á kjör-
skránni," sagði Steingrímur Fáls-
son, hjá launaskrárdeild fjár-
málaráðuneytisins, er Mbl. spurði
hann í gær, hve margir væru á
kjörskrá í sambandi við allsherj-
aratkvæðagreiðslu BSRB á
sunnudag og mánudag um sátta-
tillöguna.
Steingrímur sagði að flestir
væru á kjörskrá í Reykjavík;
5.098, næstflestir á Akureyri, 369,
í Hafnarfirði 246 og 213 í Kópa-
vogi.
Þá sagði Steingrímur að sam-
þykkt hefði verið að Jóhann Pét-
ursson, vitavörður á Horni, gæti
greitt atkvæði með símskeyti til
sáttanefndar og hugsanlega
myndu Grimseyingar greiða at-
kvæði í gegn um talstöð, en kapp
væri lagt á að hver einasti maður
hefði tækifærí til að neyta at-
kvæðisréttar síns.
Þær reglur gilda að verði ekki
Framhuld á bls. 18
talið vera um 50% af því, sem það
hefur verið að meðaltali síðustu 7
árin. Þá heppnaðist klak loðnunn-
ar ekki nándar nærri’eins vel og á
árunum 1972—’75. Hins vegar
virðist útkoman liala verið mun
betri hjá ýsunni og mikiö af
karfaseiðum fannst í sumar á
helztu veiöisvæöum Islendinga.
Kom þetta fram í skýrslu Ilaf-
rannsóknastofnunarinnar, sem
lögð var fram á ársfundi Alþjóða-
hafrannsóknaráðsins í ga*r.
Niðurstöður þessar eru byggðar
á svokölluðum „O-grúppu" rann-
sóknum, en þessi rannsóknarað-
ferð er notuð af vísindamönnum
fjölmargra þjóða, meðal annars
Rússa og Norðmanna, og hefur
svo verið í mörg áV. Að sögn fiski-
fræóinga geta niðurstöður þær,
sem koma fram verið skeikular,
en þær gefa enga að síður ntjög
góða vísbendingú um hvort klak
er gott eða lélegt og á allra síð-
ustu árum, hefur þessari rann-
sóknaraðferð fleygt mjög mikið
fram.
I skýrslu Hafrannsóknastofn-
unarinnar segir, að miðað við sið-
ustu 7 árin sé klak þorsksins nú
50% minna en í meðalári. Miðað
við að 2700 milljón seiði hafi klak-
ist út á síðasta ári, — en það er
bezta klakár sem vitað er um —
þá var klak þorsksins á þessu ári
aðeins 435 milljón seiði.
Utbreiðsla seiðanna var í ágúst
s.l. nokkru öðruvísi en venjulega,
þar sem tiltölulega lítið fannst af
þeim við SA- og SV-ströndina, á
Dhorn banka og við NV-
ströndina. Mest var af seiðunum
við norðurströndina og síðan við
austurströndina.
Um klak ýsunnar segir, að þótt
útbreiðsla seiða hafi ekki vérið
nándar nærri eins mikil og á sið-
asta ári, þá verði klakið að teljast
viðunandi.
Þá segir að við rannsóknirnar
hafi komið í ljós, að klak loðnu
hafi að þessu sinni aðeins orðið
'/>—‘A af því sem það var á árun-
um 1972—1975, en þau ár heppn-
aöist klakið mjög vel.
Aó lokum segir, að karfaseiði sé
að finna mjög víða og sé út-
breiósla þeirra tvisvar sinnum
meiri en í íyrra.
Kínverjar kaupa ál
fyrir 1600 milljónir
I V'IKUNNI gekk íslenzka ál- I Ragnars Halldórssonar, forstjóra
félagið hf. frá sölu á 8000 tonnum ísals, nemur söluverðmæti þessa
af áli til Kínverska alþýðuveldis- magns um 1600 milljónum ís-
ins. Samkvæmt upplýsingum | lenzkra króna. Kínverjar senda
Hleranir 1 íslenzka
sendiráðinu í Moskvu
KVISTUR er á húsi sendiráðs
tslands í Moskvu, $em kalla má
heldur kynlegan. tir húsinu
sjálfu er ekki innangengt í
þennan kvist og enginn af
starfsfólki sendiráðsins veit
hvað þar er að finna. Þó telja
menn sig hafa heyrt fótatak á
kvistinum og stundum hefur
gluggi þar verið opinn en I ann-
an stað lokaður. Er talið nær
fullvíst að í þessum kvisti séu
einhvers konar hlustunartæki.
Menn hafa líka orðið ■
við að sitthvað, sem sagl
sendiráðinu, hafi komizt á vit-
orð sovézkra embættismanna.
Eitt sinn mun sendiráðsstarfs-
maöur hafa sagt upphátt við
annan, að nú hefði gerzt leiðin-
legur atbutður á Íslandi og
þekkt skáld látizt. Nokkrum
dögum síðar kom íslenzkumæl-
andi Sovétmaður að máli við
íslenzkan sendiráðsstarfsmann
og spurði, hvort rétt væri að
viðkomandi skáld væri látið.
Ekki þarf að taka fram að þetta
ákveðna skáld, sem nefnt var,
var þá sprelllifandi og var þetta
.ðvik sennilega aðeins gert til
þess að kannna, hvort sagan
spyrðist.
I annað skipti var farið meö
allsérkennilega íslenzka visu í
sendiráðinu, sem enginn gat
vitað um í Moskvu. Nokkrum
dögum síðar fór islenzkumæl-
andi Sovétmaður með visuna og
spurði, hvar hún hefði birzt. Er
jafnvel talið að þessi íslenzku-
mælandi Rússi hafi undir rós
verið að gefa sendiráðsstarfs-
fólkinu í skvn, að ekki væri allt
með felldu í sendiráðinu og það
skyldi tala varlega í návist
hljóðnemanna.
Annars eru hleranir í erlend-
um sendiráðum engin nýlunda
í Moskvu. Eins og menn rekur
minni til var það fyrir nokkrum
árum, að sendiherra Bandarikj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum
kom á fund í öryggisráðinu með
haganlega útskorið stórt
skjaldarmerki Bandarikjanna,
sent sendiherra þeirra hafði
verið gefið þar eystra og hafði
það hangið inni á einkaskrif-
stofu sendiherrans. Þetta
skjaldarmerki, sem var úr tré,
var gert úr tveimur hlulum og
Framhald á bls. 18
skip eftir farminum og er það
væntanlegt til Straumsvíkur i
nóvember eða desember n.k.
Samkvæmt upplýsingum
Ragnars Halldórssonar er þessi
pöntun Kinverjanna níundi hluti
ársframleiðslu Isals, sem er 72
Framhald á bls. 18
Kærði
nauðgun
KONA um þrítugt kærði á mið-
vikudag líkamsárás og nauðgun
til Rannsóknarlögreglu rikisins.
Samkvæmt kærunni átti
atburðurinn að hafa átt sér stað i
Reykjavík kvöldið áður. -Konan
benti á 26 ára gamlan mann sem
hirtn seka. Var maðurinn hand-
tekinn og viðurkenndi hann að
hafa ráðist á konuna. Samkvæmt
Fratnhald á bls. 18