Morgunblaðið - 19.10.1977, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÖBÉR 1977
Kristinn Hallson
Guðný Guðmundsdóttir
Sieglinde Kahmann
Létt tónlist á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Garðabæ á föstudagskvöld
Sinloníuhljómsveit Islands
heldur tónleika n.k. tostudags-
kvöld kl. 20.30 í íþróttahúsinu í
Garðabæ. Stjórnandi á tónleikun-
um er Páll P. Pálsson, en ein-
söngvarar eru óperusöngvararnir
Sieglinde Tvahniann og Kristinn
Hallsson. Einleikari á fiðlu er
Guðný Guðmundsdóttir.
Efnisskráin er mjög fjölbreytt
og verður eingöngu leikin létt
klassisk tónlist. Sinfóniuhljóm-
sveitin var með þessa sömu efnis-
skrá í „Hringferð ‘77".
Aðgöngumiðar að tónleikuríum
verða seldir við innganginn.
Vegna yfirstandandi verkfalls
hefur reglulegum tónleikum
Sinfóníuhljómsveitarinnar sem
halda átti í Háskólabíói fimmtu-
daginn 20. október verið frestað
um óákveðinn tíma.
Sveit MH mun ver ja NM-titil
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
senda sveit Menntaskólans
við Hamrahlíö á Noröur-
landamót framhaldsskóla í
skák, sem haldið verður í
Danmörku um miðjan
næsta mánuð.
Sveitin mun freista þess að
verja meistaratitil sinn en hún
hefur borið sigur úr býtum í
þessari keppni tvö siðustu
skiptin.
I sveit HM eru nokkrir
þekktustu skákmenn yngri kyn-
slóðarinnar og skal þá fyrstan
telja sjálfan heimsmeistara
unglinga, Jón L. Árnason, en
einnig má nefna Margeir Péturs-
son, Ásgeir Þ. Árnason, Þröst
Bergmann og Ómar Jónsson.
Eimskip athugar sigl-
ingar til Portúgals
EIMSKIPAFELAG Islands
hefur nú í athugun að skip
félagsins hefji á næstunni
siglingar til Portúgals til
að taka vörur til íslands og
einnig með útflutning
þangað. Eins og fram hefur
komið í fréttum hafa
Portúgalir mikinn áhuga á
því að íslendingar auki
vörukaup frá Portúgal.
Jafnframt hefur viðskiptaráðu-
neytið og sendiherra Portúgals á
Islandi beint þeirri ósk til Eim-
skipafélagsins að það taki vörur í
Portúgal til íslands, til að hægt sé
að komast hjá umhleðslu i
Evrópu.
Óftarr Möller, forstjóri Eim-
skips, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að vörumagn frá
Portúgal væri enn sem komið
væri það lítið, að ekki væri kleift
að senda skip tóm héðan. Hins
vegar kvað hann það vera í athug-
un og ætti ekki vera erfiðleikum
háð, að skip Eimskipafélagsins,
sem flytja íslenzkar afurðir til
Portúgals og Miðjarðarhafslanda,
komi við í Lissabon eða Oporto til
að lesta vörur. Á meðan ekki væri
um fullfermi að ræða, myndu
skipin ferma þá vöru sem fyrir
lægi og sigla síðan til meginlands-
hafna til frekari lestunnar og það-
an til Lslands.
Kvað Óttarr að óskað hefði ver-
ið eftir því, að innflytjendur og
útflytjendur hefðu samband við
flutningadeild félagsins og gæfu
upplýsingar um þann flutning,
sem fyrir hendi lægi -á hverjum
tíma.
Leigubíla-
taxti hækk-
ar um 15%
RÍKISSTJÖRNIN heimilaði í gær
15% hækkun á taxta leigubif-
reiða.
Ekið á bíl
AÐFARARNOTT þriðjudagsins
var ekið á bifreiðina R-48345, þar
sem hún stóð mannlaus á bíla-
stæði við húsið númer 6 við Stiga-
hlíð í Reykjavík. Bifreiðin er af
gerðinni Lancher, brún að lit, og
er hægra frambretti hennar
mikið skemmt. Þeir, sem geta
veitt upplýsingar um .ákeyrslu
þessa, eru beðnir að hafa sam-
band við lögregluna eða hringja I
síma 30257.
Ungir sem gamlir hafa gott af því aö fá sól á kroppinn -
ná sér í nauðsynleg vítamín gegn vetri og skammdegi.
En sólarfrí í skammdeginu suður á Kanaríeyjum er ekki
bara hollt - heldur líka alveg stórskemmtilegt.
Beint flug á föstudögum Jan . 6 13 20 2?
Okt28. Feb.: 3. 10. 17. 24.
Nóv.: 18. Mar.: 3. 10. 17. 24. 31.
Des.: 2. 9. 16. 23. 30. Apr .: 7. 14. 28.
Sért þú að hugsa um
þá snúðu þér til okkár sólarfrí í skammdeginu
FLUCFÉLAC LOFTLEIDIR URVAL LANDSÝN ZJTSYN
fSLAWDS
Lækjargötu 2
Sími 25100
Eimskipafélags
húsinu
Sími 26900
Skólavörðustíg 16
Sími 28899
Austurstræti 17
Sími 26611