Morgunblaðið - 22.10.1977, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrui
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjóm og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorhjorn Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Ámi Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, simi 10100.
Aðalstræti 6. simi 22480.
egar Jóhann Hafsteín,
fyrrum forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins,
tekur þá ákvörðun að hætta
setu á Alþingi íslendinga, er
merkum þætti lokið í sögu
þings og þjóðar. Jóhann
Hafstein hefur verið einn far-
sælasti stjórnmálamaður lands-
ins um margra áratuga skeið
og fáir hafa staðið upp úr þing-
sæti sínu með jafn glæsilegan
feril að baki og þessi mikli
baráttumaður og leiðtogi
stærsta flokks þjóðarinnar. En
þegar upp er staðið, er það
kannski mest um vert að við
brottför Jóhanns Hafsteins úr
sölum Alþingis hverfur þaðan
mikill og sérstæður dreng-
skaparmaður, sem aldrei hefur
mátt vamm sitt vita, enda þótt
hann hafi þurft að standa af sér
mörg stórviðri og slæma póli-
tíska sjói. Þegar slíkur maður
hættir afskiptum af stjórnmál-
um, fer ekki hjá því, að sam-
herjar hans leiði hugann að
þeirri manneskjufegu afstöðu,
sem er honum eiginleg, og
reyni að draga réttar ályktanir
af því, hvernig hún hefur
komið heim og saman við póli-
tískan eril og lausn þeirra
margvíslegu vandamála, sem
lögð hafa verið á herðar stjórn-
málamannsins Jóhanns
Hafsteins. Það er áreiðanlega
ekki heldur ofmælt, að íslenzka
þjóðin saknar Jóhanns Haf-
steins úr sölum Alþingis, enda
er mannval þar upp og ofan,
eins og gerist, og nú þyrfti
Alþingi íslendinga fremur á
styrkum stoðum og
manndómsmönnum að halda
en því að þeir hverfi úr stjórn-
málabaráttunni, sem mest og
bezt hafa dugað
Morgunblaðið ætlar ekki að
tiunda störf Jóhanns Hafsteins
nú þegar hann lætur af þing-
mennsku, en vill þó minna á
mikilvægt hlutverk þessa fyrr-
um forsætisráðherra i þjóðar-
sögunni siðustu áratugina. Vart
þarf að geta þess, hve mikill
hlýhugur fylgir honum nú,
þegar hann sezt á friðarstól og
hverfur af vettvangi stjórn-
mála. Það er áreiðanlegt, að
fáir þingmenn hafa notið svo
mikillar virðingar og góðs
hugar, þegar þeir hafa sagt
skilið við stjórnmálabaráttuna,
eins og Jóhann Hafstein nýtur
nú. Hann var tengiliður milli
gömlu foringja Sjálfstæðis-
flokksins og nýrrar kynslóðar
og án hans hefði flokkurinn
ekki komið jafn óskaddaður út
úr þeim hörmungum, sem yfir
hann og þjóðina dundu sumar-
ið 1970, eins og raun hefur
borið vitni. Jóhann Hafstein
tók við búinu, þegar Bjarni
Benediktsson féll frá, og það
var gæfa íslenzku þjóðarinnar
og þá ekki síður Sjálfstæðis-
flokksins, að svo drenglund-
aður stjórnmálamaður og
reynsluríkur skyldi vera
kallaður til að sitja í fyrirrúmi.
En þá, og einmitt þá, var
Jóhann Hafstein stærstur.
Þegar á hann var lögð sú byrði
að axla vandamál þjóðarinnar,
meðan sárin voru að gróa, fann
þjóðin bezt hvern mann
Jóhann Hafstein hafði að
geyma. En fyrst og siðast var
það að sjálfsögðu styrkur Sjálf-
stæðisflokksins, að slíkur
mannúðarmaður tengdi
gamlan tíma við nýjan. Þá
blöstu vandamál við í öllum
áttum, en tíminn hefur nú
grætt sárin að mestu.
Af Jóhanni Hafstein tók svo
ný forysta við og er vert að
minnast þess, að hún leiddi
Sjálfstæðisflokkinn til einhvers
mesta sigurs, sem hann hefur
unnið í síðustu alþingiskosn-
ingum. Sjaldan hefur þjóðinni
riðið jafn mikið á, að vel færi en
einmitt þá S'örf Jóhanns Haf-
steins, ekki sízt þau sem hann
þurfti að axla á erfiðustu
stundum ævinnar, skiluðu sér
þannig með glæsibrag landi og
þjóð til heilla um ókomin ár. En
hann var svo gæfusamur að
eignast verðugan arftaka. Geir
Hallgrímsson forsætisráðherra.
En ekki hefur alltaf verið
dansað á rósum, eins og fyrr
getur. Hinn 22. ágúst 1970
birtir Morgunblaðið samtal við
Jóhann Hafstein og er þar
fjallað um stjórnmálaviðhorfið
og það, hvað fyrir liggi Hinn
nýi forsætisráðherra skýrði
þjóðinni frá því, sem við blasti,
og svaraði mörgum spurning-
um, sem þá voru efst í huga
flestra, ekki sizt sjálfstæðis-
manna. Jóhann Hafstein skýrði
m.a. frá því, að hann hefði
óskað eftir, að kosning færi
fram „meðal þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins um það, hver
mynda skyldi nýtt ráðuneyti og
stendur nú kosning yfir, en
nokkrir þingmenn voru ekki á
þingflokksfundinum í gær
vegna eðlilegra forfalla. Þegar
úrslit liggja fyrir, verður tekin
ákvörðun um fjórða ráðherra
Sjálfstæðisflokksins. Að þvi
búnu tel ég, að viðræður hefjist
milli stjórnmálaflokkanna um
framgang mála á næsta þingi
og lausn annarra viðfangefna.
Að þessu brýna verkefni verða
flokkarnir að ganga með oddi
og egg", sagði Jóhann
Hafstein. Eins og kunnugt er
hlaut hann traustan stuðning
þingflokks sjálfstæðismanna
og stjórn undir forystu hans
leiddi islenzku þjóðina út úr
þeim hörmungum, sem hún
hafði þurft að ganga í gegnum.
í lok þessa samtals spyr rit-
stjóri Morgunblaðsins Jóhann
Hafstein að því, hvort rétt sé,
sem margir segi, að harðvitug
valdabarátta sé hafin innan
Sjálfstæðisflokksins og hvað sé
um það að segja. Jóhann svar-
ar: „Það væri fásinna að gera
sér ekki grein fyrir því, að það
er ekki vandalaust verk að
skipa forystu Sjálfstæðisflokks-
ins eftir hið skyndilega og svip-
lega fráfall jafn mikilhæfs for-
ingja og Bjarni Benediktsson
var. Sumir telja eðlilegt að
dreifa byrðinni eða jafna hana
meira á forystuna en verið hef-
ur. Ég felli mig vel við þá
hugsun, en slíkt verður að
íhuga vel og ákvarða með eðli-
legum hætti. í Sjálfstæðis-
flokknum hefur það t.a.m. áður
verið svo, að sami maður
gegndi ekki bæði formennsku í
þingflokki og flokknum. Þann-
ig var Ólafur Thors um tima
formaður Sjálfstæðisflokksins
og Bjarni Benediktsson formað-
ur þingflokksins. Ég hygg, að
þetta hafi einnig tíðkazt i öðr-
um stjórnmálaflokkum hér á
landi, en þó verið nokkuð
breytilegt."
Þannig voru þá viðbrögð
mannsins, sem axla þurfti erfið-
ustu byrðina. Á hann var lagt,
ekki síður en aðra mikilhæfa
forystumenn, að þurfa að finna
til í stormum sinna tíða. Það
var Jóhanni Hafstein áreiðan-
lega meiri sársauki að taka við
forystu flokks og þjóðar á þess-
um erfiðu timum, vegna þess,
að hann var tilfinningaríkur
maður með skáldlega æð og
viðkvæma kviku. En þessir
eðliskostir hans hafa einnig far-
ið vel saman við þá hörku og
ákveðni, sem góður stjórnmála-
maður þarf að búa yfir. En
nauðsynlegust er þó stjórn-
málamanni góð dómgreind.
Dómgreindin brást Jóhanni
Hafstein ekki á örlagastund
Hann segir að lokum í fyrr-
nefndu samtali — og er
ástæða til að vitna í það, um
leið og Jóhanni Hafstein eru
þökkuð frábær störf fyrir land
og lýð og hlý vinátta við
Morgunblaðið, þar sem alltaf
var haft í fyrirrúmi, að hver hélt
sínu, ef á reyndi, Sjálfstæðis-
flokkurinn og Morgunblaðið:
„Það er ekki hægðarleikur,"
sagði Jóhann Hafstein, „að
taka við af Bjarna Benedikts-
syni. Aðrir finna það tæpast
betur en ég. En naumast var
öðrum skyldara að hlaupa ekki
undan merkjum. Minn styrkur
er mestur, þar sem er löng
vinátta og náið samstarf við
okkar látna foringja í hans
anda vil ég vinna."
Það gerði Jóhann Hafstein
með sóma.
Jóhann Hafstein
Stefán Briem
meistari T.R.
STEFAN Briem, menntaskóla-
kennari, varð Skákmeistari
Taflfélags Reykjvíkur 1977.
Stefán sigraði með yfirburðum
í A flukki á haustmóti félags-
ins, hlaut 8‘A vinning af 11
mögulegum, einum og hálfum
vinningi á undan hættulegustu
keppinautum sínum.
Stefán tók forystu þegar í
upphafi mótsins og hélt henni
allt til loka. Að vísu dró nokkuð
saman með honum og skæðustu
keppinautum hans eftir næst-
síðustu umferðina, en þá hlaut
hann sitt eina tap í mótinu,
fyrir Birni Jóhannessyni. t síð-
ustu umferðinni reyndist Stef-
án þó mun sterkari á taugum
en andstæðingar hans, því að á
meðan hann lagði Jóhann Örn
Sigurjónsson að velli, tapaði
Margeir Pétursson fyrir Jóni
Þorsteinssyni og Björn
Þorsteinsson stóð lengi halloka
gegn Hilmari Viggóssyni, en
tókst að klóra út jafntefli eftir
llOleiki.
Taflmennska Stefáns og þó
sérstaklega byrjanaval hans, er
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
ákaflega frumlegt. Með hvítu
hóf hann t.d. skákir sinar með
kóngsbragði er honum gafst
færi á, með einni undantekn-
ingu, i skak sinni við Björn
Þorsteinsson er hann lék eftir
1. e4 eð, 2. Re!? Það er ánægju-
legt að í foryst'usveit islenzkra
skákmanna skuli hafa bætzt
maður sem Iætur allan utan-
bókarlærdóm lönd og leið. Við
skulum líta á skák Stefáns úr
síðustu umferó mótsins, þá er
tryggði honum sigurinn.
Hvítt: Jóhann Örn Sigurjóns-
son
Svart: Stefán Briem
Skozki leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4
(Skozki leikurinn, sem nú
virðist hafa öðlazt nokkru fyrri
vinsældir sínar)
cxd4 4. Rxd4 Bc5 5. Rb3
(Algengt framhald er hér einn-
ig 5. Be3 Df6) Bb6 6. a4 a6
(Hvassari og eðlilegri leikur
virðist 6. . . Df6! (Nú verður
staða hvíts öllu rýmri) 7. Rc3
d6 8. Rd5 Ba7 9. Bd3 h6
(9 . . . Rge7 var slæmt vegna
10. Bg5) 10. Df3 Rge7 11. Dg3
Kf8! 12. Bd2 Re5 13. Bc37!
Eftir þennan leik neyðist hvít-
ur til að skipta upp i lakara
endatafl. Mun eðlilegra var 13.
0—0) Rxd5 14. exd5 Dg5! (Með
þessum leik jafnar svartur
a.m.k. taflið)
skák-
15. Bxe5 Dxe5+ 16. Dxe5 dxe5
17. Ra5?! (Hvítur hefur ennþá
betri liósskipan og hefði því
ekki þurft að óttast 18 . . . f5
eftir 18. 0—0!) f6 18. Hdl Bc5!
19. c3 b6 20. Rc6 Bd7 21. Ke2
Kf7 22. Bc4 Bd6 23. Hal Hhe8
24. Hhel f5 25. g3? (þessi og
næsti leikur hvíts flýta aðeins
fyrir því að svörtum takist að
skapa sér frípeð á kóngsvæng.)
Kf6 26. h4 e4 27. Kd2 g5!
(Svartur hefur nú öruggt frum-
kvæði) 28. hxg5+ hxg5 29. Rd4
He5 30. Hhl Hg8 31. Hh6+ Hg6
32. Hxg6+ Kxg6 33. f4 exf3
(Framhjáhlaup) 34. Rxf3 He4
35. Rd4 Bxg3 36. Bxa6 bf2 37.
Rb5 g4 38. Rxe7 be3+ 39. Kc2
g3 40. Bfl Bf4 41. Ra8 (Hér fór
skákin í bið)
Stefán Briem
Be3! 42. d6 Hf4 43. Bb5 g2 44.
Bxd7 Hf4 45. Be8+ Kh6 46. d7
bg5. Hvítur gafst upp.
Urslit í öðrum flokkum urðu
þessi:
B flokkur
1. Benedikt Jónasson 8'A
2. Sævar Bjarnason 8v.
Framhald á bls. 24.
HAUSTMÖT tr. m. A-FL. U 2. 3. H. 5. G 1. 5. 10. II. 12. KINN. Ní,
/. $T£fÁN QRlfM Vi \ 'h A 0 i i i i 7L i Ö7l i
2. bXÖRN ÞOMiemSON I 0 7i 7i A /l A A A /l 'k 7 2.-3.
3. MAR&tir PtruzssoN 0 1 A 7i 1 A 0 A 7i A 0 7 2.-3.
H. JÖNAS P. SRLIN&5S0N »/z </z 0 7x 0 7z A /i 1 A Zi 6 H-S.
5. AtGEIR Þ 'ARNASON 0 •/z 7i Zi /l 7i A 7l Tjl 7z .1 G V-5
6. BJÖRN JÖHANNÍSSON 1 0 0 A % 0 % 0 /z 1 A 5 7i 6.-1.
7. Þröstur qsrgmann 0 /z 0 7z 7l A Zx h 0 1 A 57x 6-7
l 3ÖN þoRSTflNSSON 0 0 A 0 0 /i Zx 7z 0 A A HVj' M.
JÓHANN ÖRN SlGURjbNSSON 0 0 0 7x 7z A /x Zl 7z 7.i 7i H/l 8.-9.
10. GUNNAR Gunnarsson 0 ó /i 0 7z Zz A A 7l 0 0 V 10-1).
/1. HHMAR VIGGÓSS0N •/l 'h 0 0 7l 0 0 0 72 im A V fO-U
IX. JÚLÍUS FRIÐ3ÖNSS0N 0 7l 1 /t 0 0 0 0 h A 0 ■ 3Vx 12: